Morgunblaðið - 25.02.2001, Side 58

Morgunblaðið - 25.02.2001, Side 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Micro-meðferð, litun og plokkun kr. 5.870 Tilboð kr. 4.980 Opið til kl. 21.00 Upplýsingar í s. 561 8677 www.snyrting.is fyrir eftir Tilboð Matreiðslumeistararnir Ragnar Wessman og Reynir Magnússon bjóða upp á saltfiskveislu á Hótel Loftleiðum. Frá fimmtudeginum nk. verður hlaðborð Lónsins hlaðið kræsingum þar sem portúgölsk og spænsk matreiðsluhefð verður í hávegum höfð ásamt þarlendum vínum og drykkjum. 1. - 4. mars 2001 Borðapantanir í símum 5050 925 og 562 7575 M a t s e ð i l l Lífið er saltfiskur! Saltfisksalat með ætiþirstlum, sólþurrkuðum tómötum og eggjum Marineraður saltfiskur með pintóbaunum og grenolata Exqueisada de Bacalao með tómötum, lauk og ólífum á salati Bakaður Portúgalskur saltfiskur, laukur og kartöflur í kerskál Blaðdeigsrúllur með Brandada Saltfisk- og Kúrbítsrisotto með Basil Steiktur saltfiskur að Katelónskum hætti Ofnbakaður saltfiskur í Xafaina sósu Saltfiskur með rjómasoðnu spínati Soðinn saltfiskur með humarbitum og vorlauk í Biscayasósu Á BOLLUDAGINN sjálfan mun hljómsveitin Heimilistónar halda tón- leika í Iðnó, sem eru jafnframt fjöl- skyldukemmtun, og hefst hún kl. 20.30, en húsið verður opnað kl. 20. Meðlimir sveitarinnar eru fjórar landsþekktar leikkonur; Vigdís Gunnarsdóttir sem leikur á harmon- ikku og á hljómborð, Elva Ósk Ólafs- dóttir er á bassanum, Ólafía Hrönn Jónsdóttir er trommuleikarinn og Halldóra Björnsdóttir syngur og spil- ar á xylafón. Á þessari árlegu skemmtun þeirra eru ætíð óvæntar uppákomur milli laga og jafnan leikin örleikrit eftir Ólafíu. Farið er í leiki, haldin bolluátskeppni og bolluljóð dagsins frumflutt. Fleiri góðir gestir kveðja sér hljóðs, en þau Edda Björgvins- dóttir og Ómar Ragnarsson munu taka lag með sveitinni, og kynnir kvöldsins verður leikkonan Bára Lyngdal. Nýtt og spennandi band Sveitin var stofnuð haustið 1997, eftir að Elva og Ólafía höfðu talað saman í hæggengu lyftunni í Þjóðleik- húsinu, eina staðnum þar sem nokkuð næði gefst. Ólafía: Þetta átti ekki að vera kvennahljómsveit fyrst. Vigdís: Við ætluðum að hafa karl- söngvara. Ólafía: Svona til að snúa við dæminu, en þeir voru bara allir svo lélegir. Vigdís: Eða sögðust vera að gera eitt- hvað annað! – Af hverju skemmtið þið alltaf á bolludaginn? Elva: Við spilum opinberlega þá, en skemmtum allan ársins hring. Halldóra: Bolludagurinn varð fyrir valinu af því að hann er alltaf á mánu- degi og það er frídagur leikara og við vorum öruggar með hann. Vigdís: Annars komum við alls staðar fram, á árshátíðum, í afmælum, í sundlaugum og víðar. Elva: Fólk ræður okkur sem þorir að prófa eitthvað nýtt og spennandi. Ástin og lífið Heimilistónar tóku upp geisladisk í fyrra, en bara fyrir þær sjálfar, bestu vini og kunningja. Ólafía: Hann var ekki leikinn í fjöl- miðlum því við höfðum ekki leyfi fyrir tökulögunum. Vigdís: Fyrst spiluðum við bara lög sem aðrir hafa samið. Elva: En þróunin er einsog hjá öðrum hjómsveitum, við erum farnar að semja mikið sjálfar og annað kvöld ætlum við að frumflytja fullt af lögum, sem eru flest um ástina og lífið. Þetta eru mjög djúpar pælingar hjá okkur. – Sprottnar hvaðan? Elva: Úr þroskanum. Við erum þroskaðar konur. Útsprungnar. Ólafía: Það er svo mikið af þroskuð- um hljómsveitum. Vigdís: Við erum öðruvísi þroskaðar. Ekki á hljóðfærunum! – Gefur nafn sveitarinnar eitthvað til kynna um eðli hennar? Ólafía: Já, diskurinn sem við gerðum og er með öllum lögunum okkar, er al- veg frábær heimilisdiskur. Vigdís: Þetta eru lög sem við heyrð- um hljóma á heimilum okkar í upp- vextinum. Elva: Stemmningin minnir á þegar mömmurnar voru heima. Halldóra: Mér finnst mikilvægt að koma heimilisstemmningunni út til fólksins til að sýna að hún er eitthvað sem á ekki bara að vera inni á heim- ilum. Elva: Hún er svo þægileg. – Eigið þið ykkur stóran aðdáenda- hóp? Vigdís: Við vitum að diskurinn var að- aljólagjöfin í fyrra. Halldóra: Ég veit um einn karlmann á okkar aldri sem er mikill aðdáandi. Ólafía: Mímir? Já, hann á það til að elta okkur þegar við erum búnar að spila. Vigdís: Já, og konan sem við spiluð- um í afmæli hjá. Elva: Við erum mjög ánægðar með Mími. Ólafía: Það eru margir aðdáendur búnir að spyrja hvað við ætlum að gera á bolludaginn og ætla greinilega að koma. Bolludagsskemmtun Heimilistóna Útsprungnar konur með aðdáendur Morgunblaðið/Árni Sæberg Vigdís, Halldóra, Ólafía Hrönn og Elva Ósk skipa hljómsveitina Heimilistóna. Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ opnuðu félagarnir „smekk- lausu“ Einar Örn Bene- diktsson og Sjón vefinn icelandculture.com. Af nafninu einu að dæma hef- ur innihaldið eitthvað með menningu landsins að gera, eða er það ekki? „Við vitum það ekki,“ svarar Einar Örn að- spurður hvert innihaldið nú sé. „Nei, nei við erum bara fengnir til þess að draga saman það efni sem flokka má undir menn- ingu og listir á líðandi stundu. Þessa stundina eru visst margir flokkar og við vit- um að það er eftir að bætast við þetta. Það verður sjálfsagt ekki hægt að leita neinna svara á þess- um vef, eins og á svo mörgum öðr- um vefum sem virðast hafa alls- herjarlausnir, við erum ekki að reyna að veita nein svör. Vefurinn er ætlaður útlendingum og und- irbýr þá undir það sem þeir gætu hugsanlega lent í hérna á Íslandi. Það verða ýmsar reynslusögur, bæði frá Íslendingum og ferða- mönnum sem hafa komið hingað. Þetta verður því eiginlega vefur um reynslu okkar Íslendinga, og þeirra sem hingað hafa komið, af Reykjavík.“ Einhvers konar leiðarvísir þá um það sem hér er að finna? „Þetta er ekki neinn leiðarvísir, þetta er frekar ástandslýsing. Þetta eru pistlar, umfjallanir og eitt og annað sem kemur út úr ferðum og ferðalögum fólks til landsins. Við vörum fólk við því að ef það kemur til landsins þá í fyrsta lagi gæti það hitt hinar hræðilegu manndrápskindur. Í öðru lagi gæti það hitt hina hræði- legu ritstjóra þessa vefjar eða aðra Íslendinga sem segja; „how do you like Iceland? Það er bara sagt frá því sem ber fyrir augu allra. Fólk er ekki bara að koma hingað leng- ur út af Gullfossi og Geysi heldur líka út af þeirri menningu sem hér er. Þessi vefur er svona einn part- ur af því að reyna að sýna út á hvað þetta gengur hérna. En mað- ur veit náttúrlega ekkert út á hvað þetta gengur, ekkert frekar en með veðrið.“ Hvað kom til að þú og Sjón hent- uð þessari framkvæmd í gang? „Okkur Sigurjón hefur alltaf langað til þess að prufa að vinna saman. Þetta var svona ágætt tæki- færi til þess að leggjast á eitt með það að gera eitthvað eitt saman. Þar fyrir utan að hætta að reykja á sama tíma og við erum að búa til þennan vef.“ Er þetta þá einhvers konar með- ferð til þess að styðja við bakið hvor á öðrum á erfiðum tímum? „Nei, þetta er ekki meðferð, þetta er frekar andmeðferð. Sig- urjón segir þetta vera hefnd okkar á hvorum öðrum,“ segir Einar Örn að lokum. Vonandi er hefndin sæt. Vefurinn icelandculture.com opnaður Ástandslýsing á menningarlífinu Morgunblaðið/Jón SvavarssonSjón grípur til neyðarúrræða til þess aðhalda tóbaksreyknum frá öndunarvegin-um en Einar andar rólega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.