Morgunblaðið - 25.02.2001, Page 59
MAÐURINN sem fór með eitt
stærsta hlutverk kvikmyndasög-
unnar, en enginn veit hvernig lítur
út eða hljómar, hefur verið lagður
inn á spítala.
David Prowse fór með hlutverk
Svarthöfða í fyrri þríleik Stjörnu-
stríðsbálksins en andlit hans var
hulið grímu allan tímann auk þess
sem leikstjórinn George Lucas réð
bandaríska leikarann James Earl
Jones til þess að sjá um að ljá
óþokkanum rödd sína. Jafnvel í eina
skiptið sem Svarthöfði tók loksins
af sér grímuna var ráðinn annar
leikari til þess að vera hinn aldraði
Anakin Skywalker, „maðurinn á
bak við grímuna“.
David Prowse, sem nú er 65 ára
að aldri, hefur lifað af því síðan
myndirnar voru gerðar að mæta á
ráðstefnur víðs vegar um heim all-
an tileinkaðar Stjörnustríðsævin-
týraheiminum. Af öðrum hlutverk-
um Prowse má geta þess að honum
brá fyrir í Clockwork Orange (1971)
sem hinum stórvaxna lífverði rit-
höfundarins.
Veikindi Prowse þykja afar dul-
arfull því það reynist læknum erfið
þraut að sjúkdómsgreina hann.
Umboðsmaður hans vill þó kenna
því hversu mikill vinnuþjarkur
maðurinn er að hann hafi verið
lagður inn. Til að mynda hafi hann
síðan eftir áramót ferðast víðs veg-
ar um Bandaríkin, Japan og Þýska-
land til þess að svala eftirspurn
aðdáenda um að fá að vera í nær-
veru hans.
Leikarinn David Prowse lagður inn á spítala
„Logi, ég
er... eitthvað
slappur.“
Svarthöfði slappur
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2001 59
Sími 461 4666 samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal.
Vit nr.194.
FRÁ HÖFUNDI BAD BOYS
EDDIE GRIFFIN ORLANDO JONES
Sýnd kl. 8 og 10. Vit nr.197
Sýnd kl. 2. Ísl tal. vit nr.183
Spennandi ævintýramynd
fyrir börn á öllum aldri
Sýnd kl. 4 og 6. Vit nr. 204 Forsýnd kl. 8.
Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Mel Gibson Helen Hunt
Frábær gamanmynd.
Loksins... maður sem hlustar.
Vinsælasta mynd Mel Gibson til þessa.
What
Women
Want
FRÁ HÖFUNDI BAD BOYS
EDDIE GRIFFIN ORLANDO JONES
Sýnd kl. 5.45 og 8. Mán. kl. 8. Vit nr. 202.
Sýnd kl. 6 og 10.15. Vit nr.197
Mán. kl. 10.15.
GLENN CLOSE
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. Vit nr.194.
ÓFE hausverk.is
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. vit nr.183
Kvikmyndir.com
1/2 Kvikmyndir.is
1/2 MBL
Rás 2
Sýnd kl. 8 og 10.30. Mán. 8 og 10.30 Vit nr. 190.
Nýr og glæsilegur salur
betra en nýtt
Mel Gibson Helen Hunt
What Women Want
Sýnd kl. 8 og 10.20
HENGIFLUG
ÓFE hausverk.is
Frumsýning
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans...
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
ANTHONY HOPKINS
JULIANNE MOORE
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 5.45.
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Mel Gibson Helen Hunt
Frumsýning
Frábær gamanmynd.
Loksins... maður sem hlustar.
Vinsælasta mynd Mel Gibson til þessa.
SV Mbl
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
Mán. kl. 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
Mán. kl. 5.30, 8 og 10.30.
What
Women
Want
Stærsta mynd ársins er komin
ANTHONY HOPKINS JULIANNE MOORE
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans...
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. Mán. kl 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
MAGNAÐ
BÍÓ
G L E N N C L O S E
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal.
Mán. kl. 6.
HENGIFLUG
Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 12 ára.
Mel Gibson Helen Hunt
Frábær gamanmynd.
Loksins... maður sem hlustar.
Vinsælasta mynd Mel Gibson til þessa.
What
Women
Want
ATH! The 6th Day er sýnd í Regnboganum
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. Mán 5.30, 8 og 10.30.
ÓFE hausverk.is
RAFPOPPSVEITIN
múm vakti verðskuld-
aða athygli í fyrra með
plötu sinni Yesterday
was Dramatic – Today is
OK. Platan fékk frá-
bæra dóma hérlendis
sem erlendis, komst m.a.
á nokkra árslista er-
lendra tónlistartímarita
yfir bestu plötur ársins.
Platan kom út á vegum
TMT Entertainment
hérlendis, undirmerkis
Thule-útgáfunnar ís-
lensku, en var dreift í
Bretlandi af Tugboat-
útgáfunni. Á mánudag-
inn dregur hins vegar til
tíðinda því þá mun sveit-
in skrifa undir samning við breska fyrirtækið Fat-
Cat, sem m.a. gaf út plötu Sigur Rósar, Ágætis
byrjun, á erlendri grundu. Hljóðar samningurinn
upp á fimm breiðskífur. „Vá, úff, ég er alltof ný-
vaknaður,“ segir Örvar múmliði og kímir í gegnum
símann er Morgunblaðið innir hann eftir áliti á
þessu. „Þetta er búið að vera lengi í bígerð,“ segir
Örvar. „Þetta gefur okkur möguleika á því að geta
einbeitt okkur einungis að tónlistinni í einhvern
tíma. Og það er alveg frábært. Algjör draumur.“
Það sem er svo í bígerð hjá múm á næstunni er að
Yesterday... verður dreift í Evrópu í mars af Thule,
skífa með endurhljóðblöndunum kemur í vor og ný
breiðskífa er svo áætluð með haustinu.
Múm gerir samning við FatCat
Morgunblaðið/Ásdís
Hljómsveitin múm: Fimm platna samningur í höfn.
„Algjör draumur“