Morgunblaðið - 27.02.2001, Síða 5
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 B 5
„LEIKMENN Sporting voru
nokkuð grófir í vörninni og ég
eins og aðrir leikmenn Hauka
fengum að finna fyrir því,“ sagði
Halldór Ingólfsson. Það sprakk
fyrir við hægra auga hans undir
lok leiksins þannig að það þurfti
að búa um augabrúnina. Var
engu líkara en Halldór hefði tek-
ið þátt í hnefaleikum en ekki
handknattleik. „Ég fékk nokkur
högg. Það þýddi ekki að láta það
slá sig út af laginu, heldur bíta á
jaxlinn og halda áfram.“
Sprakk fyrir við hægra auga
EFTIRLITSMAÐUR Handknatt-
leikssambands Evrópu á leik Sport-
ing og Hauka, Uwe Stenberg, fylgd-
ist grannt með dómurum leiksins og
ræddi við þá um gang leiksins í
nokkur skipti sem gert var hlé á
honum. Þegar flautað var til hálf-
leiks talaði Stenberg hressilega yfir
dómurunum, sem voru frá Kýpur.
Var augljóst á látbragði Sten-
bergs að hann var óhress með að
þeir dæmdu ekki fót á leikmann
Sporting sem stöðvaði knöttinn vís-
vitandi með fætinum á síðustu sek-
úndum fyrri hálfleiks, en í framhaldi
skoruðu leikmenn Sporting níunda
og síðasta mark sitt í hálfleik.
Minnkuðu þeir þar með muninn í
eitt mark, 10:9.
Afskipti manna
í heiðursstúku
ÞAÐ vakti nokkra athygli að
gestir sem voru í heiðursstúku vall-
arins skiptu sér mjög af leik Sport-
ing-liðsins í leiknum við Hauka.
Voru þar ákveðnir menn sífellt að
hrópa skipanir niður til þjálfara liðs-
ins um það sem betur mætti fara að
þeirra mati. Eftir því sem næst
verður komist voru þarna á ferð
stjórnarmenn í Sporting, sem voru
alls ekki hressir með leik sinna
manna lengst af leiknum.
Eftirlitsmaður fylgd-
ist með dómurunum
Það var frábær andi innan liðsins,varnarleikinn leystum við stór-
kostlega vel og Bjarni var frábær í
markinu. Eftir
þennan fyrri leik er
ég því afar sáttur við
stöðuna þótt vissu-
lega hafi verið
möguleikar á að gera enn betur með
því að vinna. Við vorum eiginlega
klaufar að vinna ekki. Það er okkur
lærdómur fyrir síðari viðureignina á
heimavelli. Til þess að komast áfram
verður að leika tvo góða leiki. Úrslit
í svona baráttu ráðast ekki í öðrum
leiknum af tveimur, það er alveg á
hreinu.“ Viggó segir að sínir menn
verði að vanda sig mjög í síðari
leiknum á heimavelli á sunnudaginn,
hvergi megi slaka á og koma leik-
mönnum Sporting á bragðið, þá sé
voðinn vís. Viggó er afar ósáttur við
frammistöðu dómaranna á lokakafl-
anum; þegar leikmenn Hauka voru
rétt byrjaðir í sókn gáfu dómararnir
merki um að töf væri yfirvofandi.
„Þá kom upp mikill órói í liðinu og
einbeitingin minnkaði. Við það kom-
ust leikmenn Sporting inn í leikinn á
ný, keyrðu upp hraðann, enda
þeirra helsta von. Staða þeirra var
orðin slæm. Auk þess voru þeir
heppnir á lokakaflanum.“ Viggó seg-
ir að allt hafi gengið upp og ekkert í
leik Sporting hafi komið á óvart.
„Við vorum með allan leik Sporting
teiknaðan á blað, þeir gerðu ekkert
sem við áttum ekki von á. Fyrir vik-
ið tókst okkur að verjast þeim á
þann hátt sem lagt var upp með.
Einnig var frammistaða Bjarna í
markinu frábær, hann tók við þegar
vörnin opnaðist og leikmenn Sport-
ing fengu opin færi.
Okkur tókst að brjóta helstu
skyttu Sporting á bak aftur, hún
skoraði ekki nema eitt mark. Vörnin
skilaði sínu svo sannarlega, allar
færslur og skiptingar tókust vel.
Í síðari leiknum er nauðsynlegt að
meira komi út úr hornamönnum
mínum en að þessu sinni. Að öðru
leyti verða aðrir leikmenn að leika
eins vel og í dag til að okkur takist
að komast í undanúrslit keppninnar.
Síðast en ekki síst má ekki
gleyma frábærum stuðningsmönn-
um okkar. Þeir fóru hreinlega á
kostum, þannig að ég á eftir að
muna þeirra þátt í leiknum alla tíð.
Þeir voru áttundi maðurinn í liði
okkar.“ Viggó segir enn fremur að
heimaleikurinn á sunnudaginn verði
tíundi heimaleikur Hauka í Evrópu-
keppninni á þessari leiktíð. „Við vit-
um að það er ekkert sjálfgefið í Evr-
ópukeppninni. Sporting hefur náð
hagstæðum úrslitum á útivelli í
þessari keppni. Framhaldið er undir
okkur komið, vinnum við heima-
vinnu okkar af skynsemi fram að
næsta leik getum við komist áfram,“
sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari
Hauka.
Það var virkilega gaman að takaþátt í þessum leik og ég vona svo
sannarlega að þessi úrslit vegi þungt í
þeirri ætlan okkar að
tryggja sæti í fjög-
urra liða úrslitum
keppninnar. Staða
okkar er hægstæða
og við verðum að nýta okkur heima-
völlinn um næstu helgi.“ Halldór átti
nokkuð erfitt uppdráttar í fyrri hálf-
leik en óx heldur betur ásmegin er á
leikinn leið, fór hann hreinlega á kost-
um í síðari hálfleik, skoraði sex mörk
og átti nokkrar línusendingar. „Við
lögðum upp með að leika langar sókn-
ir, gefa okkur tíma til þess að sækja.
Mér tókst framan af ekki sem skyldi
að einbeita mér að þessari ætlan okk-
ar. Er á leið tókst mér betur upp, gaf
mér tíma til þess að láta boltann vinna
með okkur. Þá fór að ganga betur.“
Halldór segir að mikil reynsla sé fyrir
hendi innan Haukaliðsins og því hafi
menn ekki látið erfiðar aðstæður á
stundum slá sig út af laginu,“ sagði
Halldór.
Getum vel við unað
„Hernaðaráætlun okkar gekk full-
komlega upp að mínu mati. Við vorum
staðráðnir í að mæta vel einbeittir til
leiks, vissir um að tækist að leika
sterka vörn myndi markvarslan koma
með. Þá væri möguleiki á að ná hag-
stæðum úrslitum,“ sagði Óskar Ár-
mannsson, leikstjórnandi Hauka.
Þetta gekk allt saman eftir. Einnig
lékum við agaðan sóknarleik sem skil-
aði góðum árangri. Í heild tel ég okk-
ur hafa leikið vel úr þeirri stöðu sem
kom upp, þótt í lokin hafi óhagstæðir
dómarar spillt sóknarleiknum og þar
með möguleikanum á sigri.“ Óskar
sagði það vera ákveðin vonbrigði að
vinna ekki úr því sem komið var, en
liðið var þremur mörkum yfir, 21:18,
þegar á fjórðu mínútu var eftir. „En
eftir á að hyggja getum við vel við un-
að að mínu mati. Bjarni markvörður
varði á tíðum vel, mikið í opnum fær-
um, sem voru rakin marktækifæri.“
Lék Sporting-liðið eins og þið áttuð
von á?
„Já, það lék alveg eins og við reikn-
uðum með. Við vorum búnir að fara
vel yfir leik þess áður en á hólminn
var komið. Það hafði eflaust áhrif á
leik þess að Luis Gomes, örvhentur
landsliðsmaður, var ekki með vegna
meiðsla. Sporting lék 5+1-vörn eins
og þess er siður, þar kom ekkert á
óvart.“ Um síðari leikinn segir Óskar
að varast beri að vera með of mikla
bjartsýni þótt staðan sé hagstæð.
„Nú er leikhlé, síðari viðureignin eftir
og þar má ekki slá slöku við. Reynslan
hefur kennt okkur það. Enginn vafi er
hins vegar á að við mætum til síðari
leiksins til þess að vinna,“ sagði Ósk-
ar.
Hann telur lið ABC Braga sem
Haukar léku við í haust vera talsvert
sterkara en lið Sporting. „Við eigum
betri möguleika gegn Sporting á
heimavelli en á móti Braga.“
„VIÐ erum sannarlega sáttir við jafnteflið en úr því sem komið var
eru það viss vonbrigði að hafa ekki unnið, möguleikinn var svo
sannarlega fyrir hendi,“ sagði fyrirliði Hauka, Halldór Ingólfsson, að
leikslokum í Lissabon, aðspurður hvort ekki hefði verið óþarfi að
missa leikinn við Sporting niður í jafntefli, 21:21.
Eftir
Ívar
Benediktsson
Vonbrigði
að hafa
ekki unnið
Smápeningum
rigndi yfir Bjarna
BJARNI Frostason, markvörður Hauka, fékk heldur betur
að finna fyrir óánægju stuðningsmanna Sporting þegar
hann varði hvað best í fyrri hálfleik. Gripu þeir til þess að
láta rigna smápeningum inn á völlinn og sumir þeirra hittu
Bjarna. Auk þess hræktu nokkrir á bakið á honum. Varð að
gera hlé á leiknum þegar mest gekk á til þess að hreinsa
vítateiginn af smápeningum. Kom eftirlitsmaður Handknatt-
leikssambands Evrópu, Uwe Stenberg, inn á leikvöllinn til
þess að tína upp smápeninga og annað rusl sem áhorfendur
létu frá sér fara.
Bjarni sagði að meðal smápeninganna sem hefði verið
kastað að honum hefði verið 200 eskúdos peningur, sem er
nokkuð þyngri en 100 kr. peningurinn heima. Fyrir 200
eskúdos er m.a. hægt að fá tvo bolla af kaffi á veitingastað.
Morgunblaðið/Lárus Karl Ingason
Aliaksandr Shamkuts skorar eitt af fimm mörkum sínum af línu.
Þarf tvo góða leiki til
þess að komast áfram
„ÉG er mjög ánægður með frammistöðu minna manna að þessu
sinni. Það má segja að það hafi gengið upp sem við lögðum upp
með að gera í leiknum,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka,
glaðbeittur í leikslok í Lissabon síðdegis á laugardaginn.
Ívar
Benediktsson
skrifar
frá Lissabon