Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 16
SUNNA Gestsdóttir bætti
fimm ára gamalt Íslands-
met í 200 m hlaupi innan-
húss, þegar hún hljóp á
24,80 sek. á sunnudaginn.
Metið setti hún á meist-
aramóti Noregs sem haldið
var í Stangehallen í Nor-
egi. Gamla metið, sem var
24,85 sek., átti Geirlaug B.
Geirlaugsdóttir, sem hún
setti í Ósló 1996.
Sunna
með met
í Ósló
Fyrsti leikhlutinn var mjög jafnog átti hvort lið 6 skot sem
hittu markið. Aðeins eitt skot rataði
þó inn; Clark
McCormick náði
forystu fyrir SA
með því að sneiða
skot Leifs Finney í
markið á 15. mínútu. Annar leik-
hluti var einnig mjög jafn, sóknirn-
ar þyngri og uppskeran var líka
betri. Dimitry Zinoviev jafnaði fyrir
Björninn, Anders Lindner kom SA
yfir skömmu síðar en Zinoviev jafn-
aði aftur. Heimamenn lentu síðan í
því að leika tveimur færri og gest-
irnir nýttu sér það og Sergei Zak
skoraði. Staðan því 2:3.
Í síðasta leikhlutanum höfðu leik-
menn SA undirtökin og pressuðu
stíft. McCormick jafnaði á 5. mín.
eftir sendingu frá Ingvari Þór Jóns-
syni og heimamenn pressuðu áfram.
Björninn náði skyndisókn á 7. mín.
og Sergei Zak skoraði eftir frábær-
an undirbúnings Zinovievs. Þetta
reyndist vera sigurmarkið í leiknum
því þrátt fyrir þungar sóknir SA og
alls 13 skot sem hittu markið, auk
þess sem mörg fóru fram hjá, þá
tókst liðinu ekki að jafna.
Rússarnir Zinoviev og Zak voru
yfirburðamenn hjá Birninum ásamt
Pavel Tcherkas í markinu. Hjá SA
varði Micheal Kobezda vel, Ingvar
Þór og Leifur Finney voru sterkir,
McCormick mikilvægur að vanda
og nýi leikmaðurinn frá Danmörku,
Anders Lindner, sýndi að hann er
skæður sóknarmaður.
,,Það var sárt að tapa þessu. Við
sóttum meira en við vorum afar
óheppnir í sókninni. Nú þýðir nátt-
úrlega ekkert annað en að mæta
grimmir í næsta leik og jafna met-
in,“ sagði Ingvar Þór Jónsson eftir
leikinn.
Enn einn nýr leikmaður var kom-
inn til Bjarnarins, Finninn Jouni
Tormanen. Hann er þó enginn ný-
græðingur í íshokkíinu hér á landi
því árin 1992–1995 bjó hann á Ak-
ureyri og lék með SA og reyndar
eitt tímabil með Birninum. ,,Þetta
var mjög spennandi leikur og gam-
an að vinna. Raunar er þetta í fyrsta
sinn sem ég kynnist því að vinna
leik á Akureyri með Birninum. Ég
kom til landsins í gær og var þreytt-
ur eftir flugið en ég vildi samt spila
með. Við ætlum svo bara að halda
áfram að vinna,“ sagði Tormanen.
Hann hefur búið í Noregi undanfar-
in ár en sagðist hafa saknað Íslands
meira en Finnlands og var því hæst-
ánægður með það að vera kominn
hingað aftur.
Björninn
byrjar vel
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
ÍSHOKKÍLIÐ Bjarnarins hrósaði sigri gegn deildarmeisturum
Skautafélags Akureyrar í fyrsta leiknum í úrslitakeppninni. Leik-
urinn fór fram á Akureyri sl. laugardag og sigraði Björninn í fjör-
ugum slag 4:3. Næsti leikur verður einnig háður á Akureyri en síðan
eru tveir leikir á dagskrá í Reykjavík. Það lið sem vinnur þrjá leiki
fagnar Íslandsmeistaratitlinum.
Morgunblaðið/Kristján
Leikmenn Bjarnarins fögnuðu innilega eftir sigur á Skautafélagi Akureyrar, 4:3. Liðin mætast aft-
ur á Akureyri í kvöld kl. 18.40.
ANDRI Sigþórsson skoraði eitt
marka Salzburg sem sigraði 2. deild-
arliðið Braunau, 6:1, í æfingaleik um
helgina. Andri hefur verið á skot-
skónum með liði Salzburgar í æf-
ingaleikjum að undanförnu og von-
andi heldur hann uppteknum hætti
um næstu helgi en þá leikur Salzb-
urg fyrsta leik sinn eftir vetrarfríið.
Andri og félagar taka á móti Admira
Wacker.
BRYNJAR Björn Gunnarsson
sneri sig á ökkla í leik Stoke gegn
Rotherham og þarf að hvíla í nokkra
daga. Vonast er til að Brynjar verði
klár fyrir næstu helgi en þá mætir
liðið Colchester. Stoke átti að mæta
Port Vale í bikarkeppni neðrideilda-
liða í kvöld en leiknum hefur verið
frestað á ný vegna slæmra vallarskil-
yrða hjá Port Vale.
GUÐJÓN Þórðarson knatt-
spyrnustjóri Stoke vill styrkja lið
sitt fyrir lokabaráttuna í 2. deildinni.
Stoke hefur ekki fengið nema tvö
stig út úr þremur síðustu leikjum og
Guðjón segir nauðsynlegt að fá liðs-
styrk. Hann átti fund með Gunnari
Þór Gíslasyni stjórnarformanni Ís-
lendingaliðsins í gær en fram til
þessa hefur Gunnar ekki talið þörf á
að styrkja liðið frekar.
HELGI Kolviðsson lék allan leik-
inn í vörn Ulm sem gerði jafntefli,
1:1, á útivelli við Saarbrücken í
þýsku 2. deildinni í knattspyrnu um
helgina. Ulm er í 14. sæti deildarinn-
ar.
GUNNLAUGUR Jónsson og
félagar í Uerdingen unnu góðan úti-
sigur á Fortuna Köln, 2:1, í þýsku 3.
deildinni. Gunnlaugur lék allan leik-
inn í vörn Uerdingen sem er í 7. sæti
deildarinnar.
RAUFOSS, norska 1. deildarliðið
sem Haraldur Ingólfsson og Krist-
inn Hafliðason leika með, hefur
komið mjög á óvart á knattspyrnu-
móti sem nú stendur yfir í Egypta-
landi. Raufoss vann egypsku meist-
arana, Al Ahly, 3:0, og gerði jafntefli
við rúmenska úrvalsdeildarliðið Arg-
es, 1:1. Haraldur lagði upp eitt
markanna gegn Al Ahly.
BRYNJÓLFUR Bjarnason skor-
aði sína aðra þrennu í fyrstu tveimur
leikjum ÍR í deildabikarnum um
helgina en lið hans tapaði þá, 5:4, fyr-
ir Keflavík. ÍR komst í 3:0 á fyrstu 17
mínútum leiksins og síðan í 4:1 í
seinni hálfleik en Keflavík sneri
blaðinu við og Þórarinn Kristjáns-
son skoraði sigurmarkið þremur
mínútum fyrir leikslok.
ATLI Viðar Björnsson, sóknar-
maðurinn sem FH fékk frá Dalvík í
vetur, skoraði þrennu á sunnudaginn
þegar Hafnarfjarðarliðið vann stór-
sigur á Stjörnunni, 6:1, í deildabik-
arnum. Sigurður Jónsson skoraði
einnig fyrsta mark sitt fyrir FH í
leiknum.
FÓLK
GRÉTAR Rafn Steinsson,
knattspyrnumaður frá Akra-
nesi, er farinn til enska fyrstu-
deildarliðsins Sheffield United
og mun Grétar æfa með vara-
og unglingaliði félagsins fram
á föstudag. „Ég er spenntur og
vonandi fæ ég möguleika til að
leika með varaliðinu á miðviku-
dag. Það er líklegast að ég leiki
með ÍA næstu tvö árin þar sem
ég þarf að öðlast meiri reynslu
í úrvalsdeildinni hér heima áð-
ur en ég fer að hugsa um at-
vinnumennsku,“ sagði Grétar í
samtali við Morgunblaðið.
Grétar til
reynslu hjá
Sheff. Utd.
ÓLAFUR Páll Snorrason,
leikmaður enska 1. deild-
arliðsins Bolton, hefur verið
lánaður til skoska 2. deild-
arliðsins Clydebank ásamt
tveimur öðrum leikmönnum
Bolton út tímabilið. Allir eru
leikmennirnir 19 ára gamlir
og hafa leikið með unglinga-
og varaliði Bolton í vetur.
Clydebank er í 6. sæti af
tíu liðum í skosku 2. deild-
inni, sjö stigum á eftir
Stranraer sem er í öðru sæti.
Ólafur Páll
lánaður til
Clydebank
FÓLK
FATIH Terim, knattspyrnuþjálf-
ari frá Tyrklandi, hætti í gær störf-
um hjá Fiorentina á Ítalíu. Terim
kvaðst hafa fengið nóg af Vittorio
Cecchi Gori, forseta félagsins.
Kornið sem fyllti mælinn var þegar
Gori ruddist inn í búningsklefa liðs-
ins eftir leik á laugardaginn og
hrópaði ókvæðisorð að Terim.
THOMAS Strunz, fyrrum lands-
liðsmaður Þjóðverja í knattspyrnu,
tilkynnti í gær að hann væri hættur,
32 ára gamall. Strunz hætti hjá
Bayern München í nóvember og við-
ræður hans við félög í Englandi,
Þýskalandi og á Spáni báru engan
árangur. Strunz lék 41 landsleik fyr-
ir Þýskaland.
STEFFEN Stiebler, fyrirliði
þýska handknattleiksliðsins Magde-
burg, liðs Alfreðs Gíslasonar og
Ólafs Stefánssonar, hefur framlengt
samning sinn við liðið til ársins 2004.
ANDREJ Lavrov, handknattleiks-
markvörðurinn snjalli frá Rúss-
landi, mun væntanlega verja mark
Nettelstedt í Þýskalandi næsta vet-
ur. Hann er laus undan samningi við
Badel Zagreb í Króatíu í vor. Lavr-
ov, sem er talinn besti markvörður
heims, er á 39. aldursári en sýnir
engin ellimerki.
KR-INGAR halda Bjarna Þor-
steinssyni kveðjuhóf í KR-heimilinu
kl. 20 í kvöld. Bjarni var á dögunum
seldur til norska knattspyrnufélags-
ins Molde en er staddur heima í
stuttu fríi.