Vísir - 06.06.1979, Side 2
2
VÍSIR
Mi&vikudagur 6, júni, 1979
B'ýstu við bráðabirgða-
lögum i farmannadeil-
unni?
Svavar Ingólfsson, vélvirki: Ég
hugsa ekki, lagasetning á engan
rétt á sér í þessu tilviki.
vieu oenedíklsson: ÍNéi.
Birna Lúöviksdóttír, nemi? Ég
hefekki hugmynd um þetta mál,
ég held þó ekki.
Sigurgeir Baldursson, nemi: Já
ég býst vi& þvi. Mér finnst þaö
ekki rétt stefna, farmenn fá litiö
út úr þvi.
Asmundur Ársælsson, sjóma&ur:
Nei, ég vona aö þaö veröi ekki
gert. Má alveg sleppa því.
uppfinning hiá Útgerðarfélagi Akureyrar:
NÝR LYFTARI
MEÐ GRIPKLÚ
um 3500 fiskkassa og hefðu 16
kassar farið á bretti þannig að
þegar lyftarinn væri kominn i
fulla notkun gætu þeir losað sig
við um 220 trbretti. Klóin vinn
ur þannig að hún þrýstir köss-
unum þéttingsfast saman eftir
að hún hefur tekið utan um þá.
Hafist var handa við nýtt hús-
næði hjá ÚA 1977 og er nú unnið
af fullum krafti að flytja starf-
semi frystihússins þangað og
jafnframt hefur verið unnið að
allmiklum endurbótum. Gisli
sagði að nú þegar væru komnar
um 300 milljónir i það verk.
—KS
- sparar
fyrirtækinu
220 trébretti
Hjá útgerðarfélagi Akureyr-
ar hefur verið hönnuð sérstök
kló framan á lyftara sem flytur
til fiskkassa. Þessi kló gerir það
að verkum að bretti undir fisk-
kassana verða óþörf.
„Þetta sparar mikið þvi tals-
verðir fjármunir eru bundnir i
brettunum. Auk þess sem meira
rými verður i fiskgeymslum og
meiri þrifnaður”, sagði Gisli
Konráðsson framkvæmdastjóri
ÚA i samtali við Visi.
Gisli sagði að margir hefðu
hjálpast að við þessa uppfinn-
ingu eða leynivopn frystihússins
eins og hann kallaði það og væri
ekki hægt að eigna hana neinum
einstökum.
Sem dæmi um hagræðið fyrir
ÚA af þessari uppfinningu
nefndi Gisli að þeir væru með
„Leynivopniö”. Þessi kló framan á lyftaranum getur lyft 16 fiskkössum án þess aö þeir séu á brettum.
Viö þaö sparast miklir fjármunir sem bundnir eru I þessum brettum auk þess sem rýmra veröur i fisk-
vinnsiustöövum. Visismynd GVA.
Umsjón: Katrin
Pálsdóttir og
Haildór
Reynisson
Gashylkin fyrir sumarío:
„Örugg
um er
„Aðalatriðið i sambandi við
meðferð á gaskútum er að menn
fylgi algerlega þeim meðferðar-
reglum sem eiga við hverju
sinni,” sagði Kristján Jónsson
starfsmaður Kósangassölunnar
þegar Visir ræddi við hann um
meðferð á gaskútum.
Kristján sem sem sem sjálfur
er gamall blaðamaður á Visi
sagði að þegar skipt væri um
hylki ættu menn fyrst að ganga úr
skugga um að allt gas væri búið af
kútnum. Ennfremur að vera ætið
þar sem loftræsting væri góð, t.d.
i tjalddyrum eða út viö dyr i
sumarbústað. Það minnkaði
hættuna a sprengingu ef eldur
kæmist að gasi sem e.t.v. læki út.
ef regl-
fylgt”
En aðalreglan væri samt sú að
vera ekki með opinn eld þar
nálægt sem skipt væri ‘um gas-
kúta.
Þá tók Kristján fram að stund-
um leyndist hætta þegar menn
kæmu að sumarbústað eftir aö
nokkur timi væri liðinn siðan þeir
komuþangað siöast Þá kynni gas
að hafa safnast fyrir i bústaðnum
og þvi mættu menn ekki ganga
beint inn með logandi tóbak.
Annars taldi Kristján að ekki
væri i raun mikil hætta af meö-
höndlun á gasi ef menn gættu þess
sem hér hefur verið minnst á. All-
ir stærri gaskútar væru að auki
búnir öryggisventlum þannig að
gas læki út ef þrýstingur i þeim
Ein aöalreglan er sú aö vera ekki meö opinn eld náiægt þar sem skipt er
um gaskúta. 1 myndinni eru gashylki fyrir litla feröaprimusa
Vísismynd JA.
Þegar skipt er um hylki veröur aö ganga úr skugga um aö allt gas sé búiö
af kútnum.
yrði of mikill og ef gas væri i
andrúmsloftinu fyndist þaö strax
á lyktinni þvi lyktarefni væri sett
i gasið.
Kristján fræddi okkur á þvi að
Kósangassalan væri annars veg-
ar með gul gashylki sem væru
ekki með skrúfanlegum krana
heldur með skrúfanlegum þrýsti-
minnkara sem skammtaði gas i
samræmi við þá notkun sem
hann væri ætlaöur til. Þessi tæki
væru vengjulega tengd við gas-
hylkin með slöngu og þar væri
einkum að þvi að gæta aö tryggi-
lega væri gengið frá samskeytum
meö hosuklemmum. Einnig væru
þeir meö blá tæki þar sem gas-
hylkið væri aðeins notað einu
sinni og væru það létt tæki sem
hentuðu þeim er hyggðu á göngu-
ferðir. Þessi litlu tæki kostuðu
5.375 kr. en 200 g fyllingar á þau
550 kr. A gulu hylkin sem væru
stærri og meira notuð i sumarbú-
staði kostaði 5 kg. fylling 3500 kr.
en 11 kg fylling 6300 kr. Venjuleg
eyðsla i sumarbústað væri um 11
kg af gasi yfir mánuðinn.
- HR.