Vísir - 06.06.1979, Blaðsíða 3
VÍSIR Miðvikudagur 6, júni, 1979
IVð EVRðPUMET
SETT í EYJUM
Tvö Evrópumet voru sett á sjó-
stangveiöimóti sem haldiö var
um helgina I Vestmannaeyjum.
Georg Kristjánsson setti
Evrópumet meö 9.1 kilóa keilu, en
Sigrún Sveinbjörnsdóttir með 8.6
kflóa steinbit.
. Úrslitin i sjóstangveiöimótinu
voru annars þau aö i karlaflokki
var efstur Sveinn Jónsson VE
með 178,5 kg. 1 næstu sætum voru
Jóhann Kristinsson og Bjarki
Arngrimsson AK. í kvennaflokki
varð hlutskörpust Ester óskars-
dóttir VE með 95.8 kg. Næst henni
komu þær Elinborg Bernódeusd.
VE OG Roswitha Abel, Austur-
riki.
í sveitakeppninni sigraði sveit
Akureyrar með 448 kg afla. Næstu
sveitir voru sv. Sveins Jónssonar
VE og sv. Hjálmars Eiðssonar
VE.
Bátabikarinn hlaut Karl Guö-
mundsson skipstj. á Hafliða VE-
13. Hann skilaði á land 791.8 kg.
afla. Heildarafli var 2838 kg.
Stærsti fiskur var 50.4 kg. lúða.
—p.i.
.’&pfíí
•r, 9 í jBBpy ;jj Piy
1 !
Bátarnir koma aö seinni daginn.
FRAMHALDSRANNSOKN
FRÍHAFNARMALSINS
ER EKKI ENN LOKIÐ
Framhaldsrannsókn á Fri-
hafnarmálinu er enn ekki lokið
en hún hefur staöið yfir frá því
um miöjan febrúar. Rannsóknin
var fyrirskipuð vegna frétta i
Visi um aö aukagjald væri lagt á
sumar vörur Frihafnarinnar til
aðdylja hluta af rýrnun sem þar
ætti sér staö.
Það var I byrjun nóvember
sem rannsóknin hófst eftir að
Visir hafði itrekað birt fréttir
um hið meinta aukagjald. Hátt i
100 manns voru yfirheyrðir og
bókhaldsgögn skoðuð. Margir
játuðu að hafa vitað um auka-
álagningu á vörur og fékkst það
staðfest úr bókhaldsgögnum,
sem sýndu að til dæmis hafði
áfengi verið selt i flugvélar
Arnarflugs á hærra verði en
sagði I auglýstri verðskrá Fri-
hafnarinnar.
Um mánaðamótin janú-
ar/febrúar voru gögn málsins
send rikissaksóknara og eftir að
hafa haft þau til athugunar i
skamman tima ákvað hann að
itarlegri rannsókn skyldi gerð.
Hefur hún staðið yfir siðan og er
það Ólafur I. Hannesson. fulltrúi
lögreglustjórans á. Keflavikur-
flugvelli sem hefur hana með
höndum eins og frumrannsókn-
ina.
Ólafur sagði i samtali við Visi
fyrir helgina að hann hefði
óskað eftir ýmsum gögnum sem
tók langan tima að afla. Hann
væri nú að vinna úr þessum
gögnum, en ekki væri hægt að
segja til um hvenær þessari
framhaldsrannsókn lyki.
—SG
„ERFIBARI EH OFT AflUR”
- seglr Kjartan Jóhannsson s|ávarútvegsráðherra
um ákvðrðun llskverðs
„Þetta verður vafalaust eins
erfitt og svo oft áður ef ekki
erfiðara”, sagði Kjartan Jó-
hannsson sjávarútvegsráðherra
við Visi er hann var spurður um
ákvörðun á nýju fiskverði en það
átti að liggja fyrir 1. júni sl.
„Það verður farið yfir stöðuna
næstu daga. Ný viðhorf hafa
skapast við þá miklu oliuverðs-
hækkun sem er framundan”,
sagði Kjartan. „Eins hafa komið
fram ný viðhorf i yfirnefndinni
sem menn þurfa að glöggva sig
á”.
„Ég tel æskilegra að það verði
hægt að greiða fyrir veiðum á
ufsa og karfa i sumar með einum
eða öðrum hætti þannig að þær
yrðu hagkvæmari en ella en
leiðirnar geta sjálfsagt verið mis-
munandi”, sagði Kjartan.
—KS
UndanUágur frá verkbannl vsi
Verkbann þaö sem Vinnuveit-
endasamband Isiands hefur
boðaö frá og meö 18. júni næst-
komandi nær ekki til eftirfar-
andi starfsemi, samkvæmt
samþykkt sambandsstjórnar
VSl:
1. Heilbrigðisþjónustu, þar með
talin lyfjaverslun og hvers-
konar þjónusta við sjúkrahús
og aðrar heilsugæslustöðvar,
svo og gistihús.
2. Hverskonar þjónustu við lög-
gæslu, slökkvilið, öryggis-
gæslu og neyðaraðstoð svo og
hverskonar þjónustu við skóla
og aðrar menntunarstofnanir.
3. Farþega- og póstflutninga
hverskonar á landi og i lofti
og þjónustu við þá er slika
flutninga annast.
4. Vélgæslu og vörslu fasteigna,
framleiðslutækja, afurða og
annarra verðmæta.
5. Verslunar með bensin, oliur
og oliuvörur, afgreiðslu oliu-
skipa og oliuflutninga.
6. Smásöluverslunar með mat-
vörur.
7. Vinnu við útgáfu, prentun og
dreifingu dagblaða.
8. Dreifingar áburðar og fóður-
bætis.
9. VSl veitir undanþágur vegna
nú ófyrirséðra knýjandi
nauðsynja og ótalinna þjóð-
félagslegra mikilvægra
starfa eftir nánari ákvörðun á
hverjum tima”.
Þau settu Evrópumet, hann Georg Þ. Kristjáns meö 9.1 kg keilu og hún
Sigrún Sveinbjörnsd. meö 8.6 kg. steinbit.
Visismyndir: GS Vestmannaeyjum.
oo
SEXTÍU œ SEX NÖRÐÚR
Slagveðursfötin
fro
Sjóklæðagerðinni
ó alla fjölskylduna
SJÓBÚÐIN
GRANDAGARÐI 7 - REYKJAVlK
SIMI 14114 - HEIMASlMI 14714