Vísir - 06.06.1979, Qupperneq 5
jUmsjön:
Katrin
Pálsdóttir
VÍSIR
Miðvikudagur 6, júni, 1979
utsogunarsog
kjörgripur
föndrarans
Fjölvirk stingsög (jigsaw) með aflúrtaki fyrir margskonar
fylgihluti svo sem slípi- og fægihjól og fræsarabarka með
ýmsum fylgihlutum.
Verð ón fylgihluta kr. 25.970
Verð með fylgihlutum kr. 33.980
Tilvaldar gjafir handa allri fjölskyldunni
PÓSTSENDUM
Um tima leit svo út I nótt að all-
ar vélar af gerðinni DC-10 yrðu
kyrrsettar. Þetta átti við allar
þær vélar, sem skráðar eru i
Bandarikjunum.
Það voru samtök flugfarþega i
Bandarikjunum sem fóru fram á
að vélarnar yrðu kyrrsettar þar
ta sannanir lægju fyrir um öryggi
þeir ra.
Heimsmeistarinn f skák,
Anatoly Karpov frá Sovétrikjun-
um, og Bandaríkjamaðurinn
Walter Browne, munu leiða sam-
an hesta sina i Las Vegas i
september. Browne er fyrrver-
andi Bandarikjameistari í skák.
Það hefur tekið mUda vinnu og
þolinmæði að koma þessu móti á
milli meistaranna. Verðlaunin
eru ekkert smáræði.. 50 þúsund
dalir.
Karpov, sem er 28 ára gamall,
hefur teflt við Browne niu sinnum
og hefur hann gert sex sinnum
jafntefli en unnið þrjár skákir.
Browne er þritugur. Hann vann
bandariska skákmeistaratitilinn
árið 1974, 1975 og 1977.
Ákveðið hefur verið að i hverja
skák þeirra Karpovog Brownfari
tveir timar, hver keppandi fær 60
minútur til að hugsa sig um.
Við höfum hentugt verkfœri til ýmiskonar
föndurvinnu.
DREMEL frœsari
verkfæri með 1001 möguleika.
Fræsar. borar.slipar.fægir.*"
sker út • grefur»brýnir.
Fjölmargir fylgihlutir fáan-
legir svo sem fræsaraiand.
haldari/ ótal oddar, sagir og
sliparar
Verð kr. 19.650
Bandariska loftferðareftirlitið
hefur gefið út yfiriysingu þess
efnis, að vélarnar séu öruggar.
Eftir þá yfirlýsingu, ákvað dóm-
arinn, sem fjallaði um málið,
Aubrey Robinson, að fresta þvi.
Undirbúið hafði verið að senda
skeyti út þess efnis að allar
skráðar DC-10 yrðu kyrrsettar.
En rétt áður en skeytið átti að
fara, var breyting á og dómarinn
frestaði málinu.
Allar DC-10 flugu þvi eftir áætl-
un i' Bandarikjunum 1 gær og nótt,
en miklum hluta innanlandsflugs
Bandarikjanna er annað af DC-10
flugvélum.
Vélar af gerðinni DC-10 eru i
allt 138 i Bandarikjunum. Ef áætl-
un þeirra fellur niður, ferallt flug
úr skorðum, bæði innan Banda-
rikjanna og einnig i ýmsum öðr-
um löidum, þvi að DC-10 vélar
eru i eigu flestu stærstu flugfé-
laga heims.
Muhammad Ali heimsmeistari i hnefaleikum, getur fleira en barið frá
sér. Hann tekur sér stundum penna i hönd og dregur ails konar linur.
Nýjasta myndin hans er bygging Sameinuðu þjóðanna I New York.
Hann afhenti Kurt Waldheim verkið innrammað nýlega.
Jóhannes Páil páfi, sem nú er i
sinu heimalandi, Póllandi, hefur
haldið þrumandi ræöu yfir lands-
mönnum. Páfi hefur boðað I ræð-
um si'num að kirkjan eigi að
skipta sér meira af pólitiskum
málum.
Landar páfa hafa tekið honum
eins og hetju og mörg hundruð
þúsund manna hlýtt á mál hans.
Páfi var erkibiskup i Krakow i 14
ár, en þar var hann nú i' fjóra
dagaogfékk einstakar móttökur.
Jóhannes Páll hefur ekki komið
til borgarinnar siðan hann settist
á páfastól, en þar eru margir
hans bestu vinir og ættingjar.
Páfi hefur lýst það skoðun sina
á fundum með háttsettum mönn-
um kirkjunnar, að biskupar og
prestar eigi að berjast fyrir meiri
völdum kirkjunni til handa i
löndum, þar sem marxistar ráða
rikjum. Páfi benti á að kirkjan i
Póllandigætialdreistarfað vel og
á eðlilegan hátt, ef henni væri
ekki tryggö góð vinnuskilyrði.
Páfi lét i ljósi óánægju með að-
búnað kirkjunnar i Póllandi.
Bvltingar-
ráð í Ghana
Byltingarmenn i Afrikurikinu
Ghana hafa tilkynnt að þeir hafi
nú landið undir sinni stjórn. Ungir
menn i hernum standa að bylting-
unni, en þeir tilkynntu i útvarpi i
gær að þeir hefðu myndað stjórn.
Stjórn Fred Akuffo hershöfð-
ingja, sem tók völdin i júli'mánuði
i fyrra, hefur verið steypt, að
sögn byltingarmanna, sem hafa
útvarpið á sinu valdi.
Leiðtogi byltingarmanna,
Jerry Rawlings flugliðsforingi,
tilkynnti iútvarpi að búið væri að
skipa tiu manna byltingarráð.
Rawlings var handtekinn áður
á þessu ári, en þá misheppnaðist
byltingartilraun i iandinu.
Ráðgert hafði verið að kosning-
ar færu fram i Ghana i júni. Til-
kynning hefur verið gefin út þess
efnis að undirbúningur undir þær
sé i fullum gangi og að þær muni
fara fram á tilsettum tima.
Byltingarmenn hafa ekki til-
kynnt hvað hefur oröið af Akuffe
hershöfðingja, en hann tók völdin
i byltingu fýrir um ári.
Nýju valdhafnarnir i landinu
kenna Akuffe um að. hafa komið
efnahagsmálum landsins i
algjöra ringulreið. Þá tilkynntu
þeir einnig aö stokkað yrði upp i
hernum.
Þrumar yfir
Pólverjum
Elnvígi Karpovs
og Browne
DC-10 FLUG-
BANNIFRESTAÐ