Vísir - 06.06.1979, Síða 7
KR hefur jafnaö 1:1. — Wfl helm Fredri k sen stekkur i loft upp og fagnar marki sinu. Visismynd Friðþjófur
Svelnbjörn sð um aö
skora fyrlr flkranes
- Hann skoraöl öll mörk Skagamanna sem slgruðu KR-lnga
a Laugardalsvelllnum (gærkvöldi
! ,.Eg
: bara
: skil
lekkert
Sveinbjörn Hákonarson
var hetja Skagamanna i' leik
þeirra gegn KR i gærkvöldi,
enda ekki á hverjum degi,
sem sami mabur skorar þrjú
mörk í leik. Eftir leikinn
þyrptust áhangendur Skaga-
manna aö honum með
miklum fagnaöarlátum sem
vonlegt var, en þaö var
minni fögnuður i kring um
Matthias Hallgrimsson sem
skoraði ekki mark i leiknum
þrátt fyrir upplögö tækifæri
tíl þess.
„ Ég bara skil ekkert i
þessu, þaö er eins og mér sé
fyrirmunaö að skora þessa
dagana”, sagöi Matthias, er
við ræddum viö hann á
Laugardalsvelli i gær-
kvöldi. ,,En eigum viö ekki
aösegja aö þetta komi bara i
næsta leik” bættí hann viö.
— Ert þú öruggur aö kom-
ast i liðið i næsta leik eftir
þetta i kvöld?
,,Ég vona þaö, og ég er viss
um aö þegar mér tekst loks-
ins að koma boltanum i netíö
þá róast ég og fleiri munu
fylgja á eftir. Þetta er oröið
sálrænt lika, hjá mér þegar
svona illa gengur uppi viö
mark andstæöinganna.”
,,Ég er nú búinn að spila
sjö leiki i röð meö Akranes-
liðinu án þess að skora, hef
ekki komið tuörunni i netið -
siöan fyrir Indónesiuferöina,
en þegar ég pota einu marki,
þá kemur þetta allt saman”
sagöi Matthias Hallgrims-
son, leikmaður sem er
þekktur fyrir allt annaö en
að fara illa með marktæki-
færi sin, þótt lftið gangi hjá
honum í markaskoruninni
þessa dagana.
gk-.
mSí,S!!L«
Staðan i 1. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu er nú
þessi:
Akranes 3 2 1 0 6:3 5
Valur 3 1 2 0 5:2 4
ÍBK 3 1 2 0 4:0 4
Fram 2 1 1 0 4:2 3
ÍBV 2 1 1 0 2:0 3
KR 3 1 1 1 3:4 3
KA 2 1 0 1 5:4 2
Víkingur 3 1 0 2 3:8 2
Þróttur 2 0 0 2 1:4 0
Haukar 3 0 0 3 1:7 0
Markhæstu menn:
Sveinbj. HákonarsonlA 5
Gunnar Ö.Kristjáns Vík. 2
SveinnSveinss. IBV 2
IngiB. Albertss. Val 2
Pétur Ormslev Fram 2
Gunnar Blöndal KA 2
ÞórirSigfúss. IBK 2
Næstu leikir fara fram i
kvöld en þá leikar
Næstu leikir fara fram i
kvöld en þá leikar
Þróttur/Fram og KA/IBV.
Sveinbjörn Hákonarson var
hetja Akranesliðsins, sem sigraði
KR-inga 3:1 á Laugardalsvelli i
gærkvöldi er liðin léku þar i 1.
deild Islandsmótsins i knatt-
spyrnu. Sveinbjörn skoraði öll
mörk Akranesliösins og eitt
þeirra var með fallegustu mörk-
um sem sést hafa á þeim velli,
viðstöðulaus „negling”, algjör-
lega óverjandi fyrir markvörð
KR.
Sigur Skagamanna i gær var
sanngjarn en tölur eins og 2:1 eða
3:2 hefðu gefið betri mynd af
leiknum. En það vantaði allan
brodd I sóknarleik KR-inganna
sem þó höfði i fullu tré við Skaga-
mennina úti á vellinum lengst af.
Þrir af fastamönnum KR-inga
léku ekki með i gær, Ottó Guð-
mundsson, landsliðsmaður sem
fingurbrotnaði við vinnu i gærdag
og þeir örn Guðmundsson og
Sigurður Pétursson sem báðir
voru i keppnisbanni.
Þegar KR missti síðan þá
Stefán örn Sigurðsson og Guð-
mund Jóhannesson útaf i fyrri
hálfleik vegna meiösla og staðan
var 1:0 fyrir Akranes bjuggust
flestir við að eftirleikurinn yrði
Skagamönnunum auðveldur en
svo varð þó ekki.
Sveinbjörn Hákonarson haföi
náð forustunni fyrir Akranes
strax á 6. minútu. Sigþór ómars-
son hafði þá fengið langa send-
ingu inn i vitateig KR, og hann
sendi boltann á Sveinbjörn sem
kom á fullri ferð inn i teiginn og
skoraði með lausu skoti út við
stöng. KR vörnin þarna illa á
verði.
En KR-ingarnir jöfnuðu á 32.
minútu eftir mikla skyndisókn
þar sem Sverrir Herbertsson lék
upp völlinn og átti góða sendingu
á Wilhelm Fredericsen sem
skoraði með föstu skoti i bláhorn-
ið.
A 38. minútu fékk Matthias
Hallgrimsson gullið tækifæri til
að færa Akranesi forystuna að
nýju þegar Haukur Ottesen KR-
ingur gaf á hann inn i vitateig (!)
en af einhverjum óskiljanlegum
ástæðum „fraus” Matthias alveg
og KR-ingar afstýrðu hættunni.
Minútu siðar náðu KR-ingarnir
fallegu upphlaupi sem endaði
með skalla frá Sæbirni Guð-
mundssyni en rétt yfir.
Þegar siðari hálfleikurinn hófst
hafði dregið fyrir sólu og mjög
dofnaði yfir leiknum. Þó fékk
Matthias aftur firnagott tækifæri
til að skora á 51. minútu en skot
hans af 2-3 metra færi fór i þver-
slána og út. — Minútu siðar skaut
Wilhelm Frederiksen yfir frá
vitapunkti og svo var litið um
tækifæri þar til alveg undir lokin
og Sveinbjörn Hákonarson nýtti
tvö fyrir Akranes.
Fyrra markið skoraöi hann
með þrumufleyg af 15 metra færi
eftir að varnarmaður KR hafði
skallað frá og þaö siðara þremur
minútum siðar með lausu skoti af
stuttu færi eftir sendingu frá
Kristjáni Olgeirssyni. Orslitin þvi
3:1, og fögnuður Skagamanna
mikill i leikslok.
Aðstæður á Laugardalsvelli i
gærkvöldi voru frábærar, sólskin,
logn og hiti og um 2000 manns
mættu á völlinn. Þeir fengu að sjá
liflegan fyrri hálfleik en siðan
dofnaði yfir leiknum.
Sem fyrr sagði var sigur
Skagamanna sanngjarn, þeir
verða hættulegir i sumar með sitt.
jafna lið þótt bestu menn þeirra i
gær hafi verið Sveinbjörn
Hákonarson, Kristján Olgeirsson
og Arni Sveinsson.
Það er óþarfi fyrir KR-inga að
örvænta þrátt fyrir þennan
ósigur, það býr margt i KR-liðinu
„Mér finnst alveg ástæöulaust
að vera að sækja dómara með
þessa getu alla leið austur á
Firði”, sagði Kristinn Jónsson,
formaður Knattspyrnudeildar
KR eftir leik KR og Akraness i
gærkveldi. Greinilegt var að
Kristinn var mjög óánægður með
þáttHjörvars Jenssonar, ogvildi,
hann meina að hann hafi leyft
Skagamönnum að komast upp
með allt of mikla hörku.
sem er skipað ungum leikmönn-
um. Þeir eiga eftir að ná enn bet-
ur saman og þá koma sigrarnir.
— Bestu menn KR i þessum leik
voru Sigurður Indriðason, Birgir
Guðjónsson og Guðjón Hilmars-
son sem átti ágæta spretti.
Dómari var Hjörvar Jensson og
var greinilegt að hann var hrædd-
ur, enda mun þetta vera fyrsti
stórleikurinn sem hann dæmir.
Margir dómar hans orkuðu tvi-
mælis og hann var heppinn að
leikmenn fóru ekki út i meiri
hörku en raun bar vitni.
„Það er greinilega liðin sú tiö
aö KR leiki fastast allra liða”,
sagði Kristinn. „Hinsvegar léku
Skagamennirnir þannig i þessum
leik að það er engu likara en að
dagskipun til þeirra hafi verið að
sparka KR-ingana niður og jarða
þá. Það segir sina sögu aö tveir
leikmenn okkar þurftu á Slysa-
varðstofúna eftir leikinn”, sagði
Kristinn að lokum.
gk-.
KR-IHGAR
ÖHRESSIR