Vísir - 06.06.1979, Blaðsíða 8

Vísir - 06.06.1979, Blaðsíða 8
8 VÍSIR Miðvikudagur 6, júni, 1979 j ""y utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjbri: Davfð Guömundsson Rítstjórar: Olafur Ragnarsson Hörður Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Indriðason, Gunnar Salvarsson, Halldór Rpynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður Sigurðsson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjansson og Kjartan L. Pálssori. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. utlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Sfðumúla 8. Simar 84611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Sfðumúla 14 simi 86611 7 linur. Askrift er kr. 3000 á mánuöi innanlands. Verð i lausasölu kr. ISO eintakið. ,prentun Blaöaprent h/f A aö styrkja fiskiskipaflotann til veiöa á vannýttum fisktegundum, eins og ufsa og karfa? Meöslikum aögeröum væri komiöút á varhugaveröa braut. Þaö er vissulega fokiö i flest skjói, ef nú þarf aö fara aö styrkja fiskveiöarnar. Þorskveiðitakmarkanirnar, sem ákveðnar hafa verið á þessu sumri, setja strik í reikninginn í útgerðarmálum þjóðarinnar. Vegna bannsins blasir það við, að stórhluti f iskiskipaf lotans hlýtur að verða aðgerðarlaus mikinn hluta sumarsins, ef ekki finnast möguleikar til að halda skipun- um til annarra veiða en þorsk- veiða. Og þetta segir ekki aðeins til sín hjá útgerðunum og sjó- mönnunum, heldur líka hjá fisk- vinnslufyrirtækjunum og fisk- vinnslufólki og raunar þjóðinni allri. Það er því að vonum, að stjórn- völd og útgerðaraðilar hafa leitt aðþvíhugann, hvort grundvöllur sé fyrir þvi að beina þorskveiði- skipunum aðöðrum veiðum. í því sambandi hef ur mikið verið talað um að auka sóknina í „vannýttar f isktegundir", og þá helst ufsa oc karfa. En sá galli er á þessu úr- ræði, að veiði á þessum fiskteg- undum til vinnslu hér innanlands borgar sig engan veginn. Senni- lega gera fyrirsjáanlegar olíu- verðshækkanir það að verkum, að það borgar sig ekki heldur að veiða þessar tegundir og selja aflann ferskan erlendis, þó að hærra verð fáist f yrir hann þann ig- Til þess að koma í veg fyrir stöðvun flotans yfir þorskveiði- bannstimann hafa komið upp hugmyndir um að styrkja út- gerðina með einum eða öðrum hætti til veiða á t.d. ufsa og karfa. í efnahagsmálalögunum, sem kennd eru við Ólaf Jóhann- esson forsætisráðherra, er m.a. ráðagerð um það, að lög um Aflatryggingasjóð verði endur- skoðuð á þessu ári og í þeim lög- um verði „heimilað að beita f jár- magni sjóðsins til þess að bæta upp verð á þeim tegundum, sem vannýttar kunna að vera, og leggja i því skyni sérstakt gjald á afla af þeim tegundum, sem taldar eru ofnýttar", eins og það er orðað í Ólafslögum. Nú að undanförnu hefur Kjartan Jó- hannsson sjávarútvegsráðherra látið i Ijós skoðanir, sem ekki er hægtað skilja öðru vísi en svo, að ráðherrann telji æskilegt að styrkja einhvern veginn veiðar á ufsa og karfa. Vísir varar útgerðarmenn og stjórnvöld eindregið við þvi að grípa til millifærslna milli ein- stakra greina útgerðarinnar eða að taka upp styrki til óarðbærra veiða. Reynslan sýnir, að það er ávallt erfitt að losna aftur við millifærslukerfin, þótt þau séu í upphaf i hugsuð til skamms tíma. Og hvorki hefur nokkur grein at- vinnulífsins né ríkissjóður fyrir hönd skattborgaranna nú efni á því að leggja f ram styrki til óarð- bærrar framleiðslu. Á að sækja fjármagn til þorskveiðanna eða þorskvinnslunnar, sem ekki sér fram úr sínum eigin vandamál- um eftir síðustu olíuhækkanir? Ætli landbúnaðurinn sé aflögu- fær, eða stendur ekki styrr um það, hvort eða hvernig útvega eigi fjármagn til aukinna út- flutningsbóta fyrir landbúnað- arafurðir? Halda menn, að ein- hverja sjóði sé að sækja til iðnað- arins, sem nú síðast þurfti að fá vernd gegn erlendri samkeppni með sérstöku aðlögunargjaldi? Hefur mönnum heyrst, að verslunin í landinu sé líkleg til að geta staðið undir hallarekstri í öðrum atvinnugreinum? Eða dettur nokkrum manni í hug, að nú sé lag að leggja nýja skatta á almenning í landinu? Að sjálfsögðu kemur ekkert af þessu til greina. Lausn á vanda- málum íslenska þjóðfélagsins nú felst ekki í því að veita styrki til fleiri óarðbærra verkefna, heldur miklu frekar hinu, að menn snúi sér að þeim verkefn- um, sem gefa af sér arð. Ný rodd á öldur Dðsvakans: - rætl vlð sðra Kristján Rðbertsson Útvarpshlustendur hafa áreiðanlega tekið eftir hinni nýju rödd sem er farin að heyrast úr þula- stofu i „gamla gufuradióinu”. Þessi rödd er eign Kristjáns Róbertssonar, prests i Frikirkjunni, Visir ræddi við Kristján og spurði hann hvernig honum likaði þetta starf. Frikirkjupresturinn útvarpspulur orðinn „Þetta er bara afleysinga- starf, ég grip i þetta og um framhaldið veit ég ekki, en ég verð allavega i þessu fyrst um sinn. Mér likar þetta alveg ágæt- lega. Ég er nú ekki alveg óvanur þessu. Ég hef komið fram i út- varpinu áður, fyrir mörgum ár- um þegar ég var i skóla hérna i Reykjavik. þá var ég lausráöinn hjá CJtvarpinu við aö lesa aðsent efni um tiina. Þá var ég i Há- skólanum en þetta var á timum Helga Hjörvar.” Kristján er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og útskrifaöur frá guðfræöideild- inni i Háskólanum. Áður en hann varð prestur viö Frikirkj- una var hann m.a. prestur á Akureyri og Siglufirði. — Þú hefur sem prestur væntanlega góöa reynslu i þvi aö tala til fólks. „Jú, jú mikil ósköp,” sagöi Kristján. „Annars er það skylda þeirra sem taka að sér svona starf að ílana ekki að neinu og fara áér rólega til þess að byrja með. Ég les þvi frekar hægt og satt best að segja eru ekki allir sammála um þennan hraða sem er á mæltu máli i útvarpinu. Já. sérstaklega eldra fólk og mér finnst að það þurfi aö koma til móts við þetta fólk að einhverju leyti." — Nú leggja málvöndunar- menn mikla áherslu á skýrt mál og réttan framburð. Hafa þér verið gefin einhver fyrirmæli i þeim efnum? „Málfræðilegur ráðunautur Rikisútvarpsins, Baidur Jóns- son, lektor, hefur samvinnu við þulina og ég hef átt með honum fundi. Þulirmr hafa alltaf að- gang að honum með sin vanda- mál og hann auðvitað alltaf að þeim með sinar aðfinnslur.” Kristján sagði aö hann myndi ekki ganga fastar vaktir hjá út- varpinu i fyrstu en hann mun auðvitað halda áfram sem prestur við Frikirkjuna. - SOS. Séra Kristján Róbertsson, I hinu nýja starfi sinu sem þulur I hljóövarpinu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.