Vísir - 06.06.1979, Side 23
. } ....
Svala Nielsen syngur 12 lög eftir
Ingólf Sveinsson.
Lögin sem Svala Nielsen syng-
ur eru eftir Ingólf Sveinson. Þetta
er nýtt prógramm sem aldrei hef-
ur veriö sungið fyrr. Textarnir
eru eftir Guðmund Böðvarson,
Stein Steinarr og Ingólf sjálfan.
„Þetta eru mjög létt og falleg
lög, og ég hef mjög gaman af að
syngja þau”, sagði Svala I viðtali
við Visi. Ennfremur sagði hún að
hún hefði reynt áður að fá að
syngja lög eftir Ingólf en sökum
hlédrægni hans hefði ekki orðið úr
þvi fyrr en nú.
Utvarp í kvöld kl.19.35:
Einsöngur í útvarpssal:
Svaia
Nielsen
syngur
Hér sést Aiexander Haigh (t.v.) að ræða viö Frederick Weyland, þáverandi yfirmann herja Bandarikj-
anna i Vletnam, og Ellsworth Bunker, ambassador. Myndin var tekin þegar Haigh fór sendiför fyrir
Nixon til Vietnam á timum striðsins þar.
Svíarnir spyrja Halgh
Sviar tala við Alexander Haigh
heitir mynd, sem er á dagskrá
sjónvarpsins kl 21.55 i kvöld. Þar
svarar Haigh, sem er yfirmaður
herafla NATO, spurningum
sænskra sjónvarpsmanna.
Alexander Haigh var áhrifa-
maður i Bandarikjunum um ára-
bil áður en hann tók við starfi sinu
hjá NATO, m.a. var hann hátt-
settur ráögjafi Richard Nixons
forseta og sá maöurinn, sem átti
hvað mestan þátt i þvi að Nixon
fékkst til að segja af sér á sinum
tima.
Sjónvarp í kvöid kl. 20.35:
Lífsglaðir apakettir
„Þessir apar eru algengir á
Indlandi og þar I kring. Þeir eru
mikið notaðir I sambandi við
læknisrannsóknir, blóðflokkun og
annað sb"kt”, sagði Óskar Ingi-
marsson, þýðandi fræðslumynd-
arinnar „Lifsglaðir apakettir”.
,,Á striðsárunum þá var erfitt
að komast þangað austur svo að
nokkur hundruö apar voru fluttir
á eyju skammt frá Puerto Rico,
sem heitir Cayo Santiago. Aparn-
ir eru merktir á sérstakan hátt,
bæöi eyrnmarkaöir og númerað-
ir, þannig að auðvelt er að fylgj-
ast með þeim. Þetta er ákaflega
sérkennilegt þjóðfélag með
stéttaskiptingu og svipar um
margt til mannlegs samfélags”.
Óskar sagðist sjálfur kalla
þessa apa musterisapa. Hann
sagði að myndin væri ákaflega
skemmtileg og myndirnar væru
góðar og náðst hefðu myndir áf
öpunum við hinaróliklegustu aö-
stæður.
útvarp
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.20 A vinnustaönum
Umsjónarmenn: Haukur
Már Haraldsson og
Hermann Sveinbjörnsson.
Kynnir: Asa Jóhannesdótt-
ir.
14.30 Miðdegissagan
15.00 Miðdegistónleikar:
16.00 Fréttír. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn: Halldór
Gunnarsson kynnir.
17.20 Litli barnatiminn.
17.40 Tónleikar.
18.00 Víðsjá (endurtekin frá
morgn inum).
18.15 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tii-
kynningar
19.35 Einsöngur I útvarpssal:
Svala Nielsen syngur
20.00 Ka mmertónleika r
20.30 CJtvarpssagan: ,,Fórn-
arlambið” eftir Hermann
Hesse Hlynur Arnason lýk-
ur lestri þýöingar sinnar
(14).
21.00 Píanósónata nr. 8i B-dúr
op. 84 eftirSergej Prokofjeff
Lazar Berrnan leikur.
21.30 Ljóð eftir Kristin
Bjamason frá Asi í Vatns-
dal Hrafnhildur Kristins-
dóttir les.
21.45 tþróttir Hermann Gunn-
arsson segir frá.
22.05 Aö austan Birgir
Stefánsson kennari á Fá-
skrúðsfiröi segir frá.
22.30 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Svört tónlist Umsjón:
Gerard Chinotti. Kynnir:
Jórunn Tómasdóttir.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
sjónvarp
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30. Barbapapa
20.35 Lifsglaði: apakettír
21.05 Valdadraumar
21.55 Sviar tala við Alexander
Haig
22.25 Dagskrárlok.
sTö r æ n i n g j á s kVd íÖ~ ök k áro’a"GengBÍáö
Stóratburöir reka nú hver
annan á landi hér. Er svo kom-
ið, að erfitt er um vik að henda
reiður á öllum þeim markverðu
viðburðum, sem á daga okkar
drifur. í gær var frá þvi greint
að tU landsins hefði komið ,,sjó-
ræningjaskip” undir Singapore-
fána, en af isienskum uppruna.
Visir hafði svo mikiö viö að
greina frá komu þessa skips i
aðalfrétt á forsiöu og skal ekki
dregiö I efa að þar hafi eðlilegt
fréttamat ráöiö ákvörðunum
visra manna.
Eigi verður þaö þó talinn
minni viöburður þegar varafor-
sætisráöherra Kinverja, sjálfur
Geng Biao (sem öllum á vita-
skuld að vera að góðu kunnur),
kemur i opinbera heimsókn til
tslands, þó að það hafi ekki ver-
ið efni nema i baksiðufrétt.
Nefnið nafn mitt þegar ykkur
liggur litiö viö, sagöi Halldór
Laxness þegar hann tók viö
heiðursnoktorsnafnbótinni forð-
um daga á hátiðarsamkomu i
Háskólabiói. Sennilega hefur
Geng Biao ko-mið hingað meö
sama hugarfari og nóbelsskáld-
ið okkar, þegar hann hræröi
þjóðina meö þessum fleygu orö-
um.
Þjóðin hefur hins vegar aldrei
leitað til Halldórs þegar henni
hefur legiö svo litið við aö þurfa
á ráðleggingum að halda við
stjórn efnahagsmála. Er þó lík-
legt að nóbelsskáldið hefði ekki
lagt á verri ráð en okkar annars
ágætu stjórnmálamenn. En
Geng Biao kom út hingað meö
sinni góðu konu, sem ber ekki
slorlegra nafn en frú Zhao
Lanzinag. Útvarpið tók fram að
okkar heimsfrægu rábherrar dr.
Ólafur Jóhannesson og Benedikt
Gröndal hefðu tekið á móti hin-
um tigna erlenda gesti ásamt
með háttsettum islenskum em-
bættismönnum. Ekki verður
annað sagt en við séum for-
framaðir i höfðingjamóttökum
og fer vel á þvi.
Geng Biao hefur þegar rætt
viö einvalaliö úr rikisstjórninni.
Undirritaður hefur ekki spurnir
af þvi hvernig ráðherrarnir,
hver fyrir sinn flokk, greindu
frá öllum siðum og háttum við
landsstjórnina hér heima. Þess
er hins vegar aö vænta aö þeir
hafi ekki leyst svo frá skjóðunni
að okkar tigna gesti sé I öllum
smáatriðum ljóst, hversuteygja
má framogtil baka það sem við
sameiginlega köllum rikis-
stjórn. Þrátt fyrir miklar bylt-
ingar og þar á meöal menning-
arbyltingar og byltingar gegn
, ,the gang of four” hafa Kin-
verjar aldrei lært þau rikis-
stjórnarbrögð, er viö höfum iök-
að hér norður við heimskauts-
baug, án þess að heimurinn hafi
fylgst svo gjörla með þvi sem
hérhefur gerst, nema þá helst I
þorskastriðum. Sannleikurinn
er sá, að heimsfriönum væri
stefnt I hættu ef varaforsætis-
ráðherra svo voldugs og fjöl-
menns rikis sem Klna er fengi
hugboð um, hvaða æfingar er I
raun og veru unnt að hafa
frammi, þegar menn á annab
borð eru komnir f rikisstjórn.
Astæöa er þvi til að brýna
þagmælsku fyrir okkar ráöherr-
um að þvi er þau rikisstjórnar-
fangbrögð varöar, sem viö einir
allra þjóða kunnum skil á. Þó að
þagmælska verði ekki talin hin
sterka hlið okkar ágætu ráð-
herra, má gera ráð fyrir að þeir
skilji mikilvægi þagmælskunn-
ar i þessu tilviki, enda miklu
nær fyrir þá að inna okkar tigna
gest um baráttuaðferðir gegn
veröbólgu eins og þær eru á-
stundaðar I Kina. Er nokkuð
víst að með þvi móti má halda
uppi liflegum stjórnmálaum-
ræðum fram eftir sumri, þegar
Geng Biao er floginn.
Aðstoðarforsætisráðherra
Kina verður þó að fá greinar-
góðar skýringar á blaðafréttum
um Islensk draugaskip frá
Singapore. Færi vel á þvi aö fé-
lagi Ragnar Arnalds samgöngu-
ráðherra greindi gesti okkar frá
þeim ummælum óskars Vigfús-
sonar formanns Sjómannasam-
bandsins að nákvæmlega verði
athugað hvort þetta skip sigli
undir sjóræningjafána og ef svo
reynist þá geti allt gerst eins og
hann komst að orði i Visi I gær.
Jafnframt ætti samgönguráö-
herraab vitna til orða Sigurðar
Sigurðssonar talsmanns Sjó-
mannafélags Reykjavlkur i Visi
I gær, en hann sagði að áhöfnin
væri allra þjóða lýöur (þar á
meðal islendingar) sem ráðin
væri á skipið á mjög lélegum
launum. Það væru góð skipti á
upplýsingum, ef Geng Biao
fengi allt að vita um sjóræn-
ingjaskipiö okkar og okkar
virðulegu ráðamenn höndlubu i
staðinn nokkra vitneskju um
verðbólguna I Kina.
Svarthöfði.