Vísir - 14.06.1979, Page 4
Fimmtudagur 14. júni 1979
4
'
Ferðamannastraumurinn til London hefur aukist mjög á siðustu árum. Troöningurinn er geysilegur á hinum klassisku ferðamannastöðum f borginni.
Tlll MILUðNIR TIL LONDON
Ferðamenn sem heimsækja London i ár munu
verða um tiu milljónir talsins, ef þeir sem gerst
þekkja til ferðamálanna i Bretlandi reynast sann-
spáir. En þrátt fyrir ýmsa kosti fyrir borgina að fá
svo mikið af ferðamönnum, þá hafa þeir ekki sömu
sögu að segja.
Það er ekkert þægilegt aö troö-
ast innan um þúsundir á torgum
Lúndúnarborgar, fyrir utan þaö
að Englendingar virðast gjör-
samlega horfnir úr borginni. Þar
ber mest á Bandarikjamönnum,
Þjóöverjum, Japönum, Aröbum,
allra handa þjóöflokkum, nema
Bretum.
Verðlagið sprengt upp
Þaö er ekki lengra siöan en 1960
aö ferðamenn sem heimsóttu
London voru innan viö hálfa
milljón talsins miöað við áriö.
Aukningin er þvi gifurleg, en þaö
sem verra er, hótelin hafa ekki
fylgt eftir aukningunni.
í London er þvi slegist um hvert
herbergi. Verðið hefur rokiö upp
úr öllu valdi, ferðamennirnir eru
rændir aleigunni um hábjartan
dag.
Veitingastaðirnir i borginni
hafa fariö aö dæmi hótelanna.
Verðlagið á matnum og öllum
veitingum hefur margfaldast.
Enginn sér i minnis-
merkin, fyrir fólki
Ollu þessu fólki fylgja fleiri
farartæki. Nú eru það rútur fullar
af ferðamönnum sem mjakast
eftir götunum.
Þegar komið er á frægustu
ferðamannastaöina þá sem allir
verða aö skoöa t.d. t.d. West-
mknster Abbey, Tower of Lond-
on, og Winstor kastala, þá ser
enginn neitt fyrir fólksmergö.
Ferðamenn færðu Bretum
milljarða króna á áiöasta ári.
Bretar þarfnast þessara peninga.
Margt af þeirri starfsemi sem er i
London, væri ekki boöiö upp á ef
þessir peningar kæmu ekki i
rikiskassann.
Tapið á lestunum borga
ferðamenn.
Ferðamenn borga um milljón
pund á viku i fargjöld með
strætisvögnum rútum og lestum i
London einni saman. Án þessara
tekna hefði borgin þurft að greiða
með þessari þjónustu u.þ.b. 50
milljón pund.
Sama sagan er uppi á teningn-
um þegar verslanir eiga i hlut.
Helmingur þeirra færi á hausinn
ef ferðamennirnir villtust ekki
inn.
En þrátt fyrir troðningin, þá
þyrpast ferðamenn til London,
þangað liggja allra leiðir.
Nú er veriö aö kvikmynda áframhaldið af ROCKV. Sylvester Stallone kallar hana einfaldlega ROCKY
II. Hér er hann ásamt vinisínum Butkus, sem kemur fram I nýju myndinni.
SJALDGÆFUM DÝRUM
SMYGLAÐ MILLI LANDA
Stórsmyglarar sem
hafa haldið sig við eitur-
lyf hafa nú bætt sjald-
gæfum dýrum á listann
hjá sér.
Alþjóðadýraverndunar-
samtökin héldu fund ný-
lega í London og þá kom
það f ram að það verður æ
algengara að sjaldgæfum
dýrum sé smyglað á milli
landa.
Fálkar eru mjög eftir-
sóttir, eins og við þekkj-
um hér á landi frá s.l.
sumri, þegar handsam-
aðir voru fálkaþjófar.
Á ráðstefnunni kom
fram að fálkaþjófar fá
himinháar upphæðir fyrir
fuglana í arabalöndum,
þar sem olíufurstar nota
þá til veiða.
KISSINGER OG
KEISARINN
Henry Kissinger fyrrverandi utanrikisráðherra
Bandarikjanna átti sinn þátt i þvi að íranskeisari er
nú i Mexicó. Sagt er að Kissinger hafi unnið að þvi
bak við tjöldin að fá dvalarleyfi i landinu fyrir keis-
arafjölskylduna.
Kissinger var i nokkra daga i
Mexikó i febrúar sl. Þá mun hann
hafa rætt við ráðamenn um
hugsanlega heimsókn keisarans.
Fyrrverandi utanrikisráðherr-
ann hefur gagnrýnt Bandarikja-
stjórn fyrir að bjóða keisaranum
ekki að dveljast i landinu. Tals-
menn stjórnarinnar hafa sagt að
keisarinn sé velkominn til Banda-
rikjanna en jafnframt að hann
hafi ekki farið fram á það. Þá
væru yfirvöld einnig mjög ugg-
andi um öryggi keisarans, ef
hann dveldi i landinu, þar sem um
50 þúsund iranskir stúdentar
dvelja við nám i Bandarikjunum.
Henry Kissinger fyrrum utanrlkisráðherra Bandarlkjanna og
Mohammed Palavi fyrrum transkeisari á blaðamannafundi I Sviss
1975.