Vísir - 14.06.1979, Qupperneq 16
VÍSIR
Fimmtudagur 14. júni 1979
„Úánægjan sem
rekur mig álram”
drstutt spjall við Stelnunni Siguröardúttur I tlletnl verksummerkja
Olga von Leuchtenberg viö mynd sina, Skógargull.
00 VIsismyndrJA
FRONSK LISTAKONA
SYNIR A MOKKA
,,Ég er ánægð með þessa bók
að þvi leyti að ég veit að mér
hefur farið fram, og einnig af
þvi að hún er samviskusamlega
unnin. Það er viss heildarsvipur
yfir henni. Nú svo er ég óánægð
með hana að þvi leytinu til að ég
veit að eg get gert betur. Mað-
ur verður að vera óánægður.
Hjá mér er það óánægjan sem
rekur mig áfram.”
Verksummerki heitir þriðja
ljóðabókin sem Steinunn Sig-
urðardóttir sendir frá sér, og er
nýkomin á markað. Bókinni er
skipt i kafla: Dagar og svo
framvegis, Oti og inni, Kondu,
Gróður himins og jarðar, Þjóð-
sögur og Fullyröingar. Bókin er
74 blaðsiður og það er Helgafell
sem gefur hana út. Hönnun
kápu sá Erna Ragnarsdóttir
um.
, ,Ég reyni að skipuleggja
minn tima”, sagði Steinunn
þegar við spurðum hvenær hún
skrifaði. „Akveða hvenær ég
sest niður. Auðvitað falla stund-
um úr dagar þegar ég skrifa
ekki, en i starfslaunafrii eins og
núna hef ég ákveðinn vinnu-
tima. Þá vinn ég mest á morgn-
ana og fram eftir deginum.”
„Það er mjög mismunandi
hversu fljót ég er að skrifa. Sum
ljóðanna koma nokkurn veginn
alsköpuö en algengast er að ég
skrifi þau aftur og aftur. Ljóöin i
þessari bók eru unnin á mjög
löngu timabili. Síðast sendi ég
frá mér bók ’71 og nú er ’79.”
Steinunn er i frii frá frétta-
mennskunni á Otvarpinu, og
verður þar til i haust. Eitt af þvi
sem hún vinnur að núna er sjón-
varpsleikrit sem ákveðið hefur
verið að taka upp i haust.
„Það er upp úr smásögu eftir
sjálfa mig, sem ekki hefur birst.
Likamlegt samband i Norður-
bænum heitir hún.”
Minnisvarði um Hausastaða-
skóla verður afhjúpaður i dag kl.
17.30 I landi jarðarinnar að
Hausastöðum I Garðabæ. Siöasti
ábúandi jarðarinnar, ólafia
Eyjólfsdóttir mun afhjúpa minn-
isvarðann.
Hausastaðaskóli hóf starfsemi
sina haustið 1792, en hann var
reistur fyrir sjóð, sem Jón Þor-
kelsson, skólameistari i Skálholti,
lét eftir sig. Skólinn starfaði til
ársins 1812 og stunduðu þar nám
börn á aldrinum 6—16 ára. Þau
voru á Hausastöðum árið um
kring og skólinn sá þeim fyrir öll-
um nauðþurftum, enda voru nán-
ustu aöstandendur þeirra annað
hvort engir til eða öreigar.
Skólinn var þvi jafnframt upp-
eldisstofnun. Fengu þar margir
nokkra menntun, sem aö öðrum
kosti hefði ekki staðiö þeim til
boða.
„Um hvaö hún fjallar. Ég þori
ekki að segja þaö! Þú mátt hafa
þaö eftir mér.”
Steinunn sótti námskeið það
sem Sjónvarpið hélt I vetur til
leiðbeininga fyrir rithöfunda og
einkum þá sem semja leikrit.
Þar voru unnin frumhandrit að
sjónvarpsleikritum og valin sex
til að taka upp. Eitt af þvi er
leikrit Steinunnar.
„Ég vinn með Agli Eðvalds-
syni að þessu, og við erum ein-
mitt að vinna að leikritinu núna.
Mér finnst nú oröið að Egill eigi
jafn mikið i þvi og ég.” — EA
Slggi tlug sýnir
Sigurður Jónsson, Siggi
flug, opnar i dag sýningu á
teikningum sinum I húsakynn-
um Stálhúsgagna, Skúlagötu
61. Sýningin verður opin dag-
lega frá kl. 16—22 og kl. 14—22
um helgar fram til 24. júni.
Franska listakonan Olga von
Leuchtenberg sýnir um þessar
mundir verk sin á Mokka.
Olga er fædd i Paris og hóf list-
nám sitt i Frakklandi, en fluttist
til Bandarikjanna og lauk þar
námi við listaskóla i Boston. Hún
hefur tekið þátt i sýningum i
Boston og nágrenni og á nokkrar
Akraborgin bregður heldur bet-
ur út af vananum á laugardaginn
kemur. í tilefni dagsins verður
hún skreytt og á siglingunni frá
Akranesi til Reykjavikur, veröur
hún umkringd smábátum og sjó-
skíðaköppum. Um kvöldið verður
svo dansleikur um borð i skipinu
og dansinn stiginn langt fram eft-
ir nóttu.
Þetta verður allt saman laug-
ardaginn 16. júni, sem i sjálfu sér
er ekkert merkilegri en aðrir
dagar, nema að hann er næstur á
undan sautjándanum. En for-
ráðamenn skemmtistaðarins óð-
als, kalla þennan dag Óðalsdag.
Á milli 300 og 350 manns gefst
kostur á að kaupa miöa á
skemmtunina þennan dag. Upp
úr hádegi verður lagt af staö frá
stórar myndir I ýmsum einka-
söfnum. Hér sýnir hún nú I fyrsta
sinn.
A sýningunni eru 32 myndir og
eru þrjár þeirra nokkuð stór oliu-
málverk. Sýningin var opnuð 7.
júni og stendur fram til 21. júni.
—SJ
Reykjavik I rútum og haldið á
Akranes með leiðsögumönnum,
nesti og létt vin.
Snætt verður i Botnsdalnum en
siðan farið beint á Skagann. Það-
an verður svo siglt til Reykjavik-
ur I Akraborginni sem skreytt
verður i tilefni dagsins.
Smábátar frá Snarfara verða
um allan sjó og I fyrsta sinn á Is-
landi ætla menn að reyna að
standa á sjóskiðum þessa vega-
lengd. Gestum verður gefið eins
og hálftima hlé þegar til höfuð-
borgarinnar kemur, til þess að
hafa fataskipti. Siðan verður
mætt til leiks aftur i skipið i spari-
fötunum og siglt út á sund, þar
sem merin skemmta sér svo eftir
bestu getu fram á nótt. Og fyrir
þessu öllu stendur svo Óöal._EA
Tðnlelkar Skagflrsku söngsveltarínnar
Mlnnlsvarði um
Hausastaöaskóla
Dansað um borð
(Akraborglnni
Umhverll fyrir latnréftl
Sýningin „Framtiðarum-
hverfi” stendur yfir þessa dagana
i Norræna húsinu. Þar eru sýndar
nokkrar hugmyndir um skipulag
byggðasvæöa með tilliti til jafnr-
ar stööu karla og kvenna. Hug-
myndirnar komu fram I sam-
keppni, sem sænska arkitekta-
félagiö efndi til i desember 1977.
ásamt sveitarfélaginu Gavle I
Sviþjóö.
Hinir árlegu vortónleikar
Skagfirsku söngsveitarinnar
verða haldnir i Austurbæjarbiói
laugardaginn 16. júni kl. 15.
Efnisskráin er fjölþætt.
Frumflutt verða lög eftir Jón
Björnsson frá Hafsteinsstööum
og Skúla Halldórsson, sem sér-
staklega eru tileinkuð Söng-
sveitinni. Einnig verða fluttir
Ástarljóðavalsar óp. 52 eftir
Brahms.
Einsöngvarar eru Margrét
Matthiasdóttir, Guðrún Snæ-
bjarnardóttir, Sverrir Guð-
mundsson og Bjarni Guöjóns-
son, en þau eru öll meðlimir
kórsins.
Guðrún Kristinsdóttir og
Ólafur Vignir Albertsson leika
með á pianó. Söngstjóri er Snæ-
björg Snæbjarnardóttir.
í júlíbyrjun er fyrirhuguö
söngferð til Skotlands og mun
kórinn ferðast þar um og halda
tónleika.