Vísir - 16.06.1979, Síða 5
vism
Laugardagur 16. jiinl 1979
Marian á heimili slnu. Hún er ekki nema 24 ára gömui en er útslitin og þreýtt.
En þrátt fyrir þaö „sprakk”
hún hvaö eftir annaö. Tilraunir
Oyvinds til aö koma Marian á
réttan kjöl aftur kostuöu hann
vinnúna. en hann er læröur
kennari.
Frá því i fyrrahaust og til
dagsins i dag hafa öyvind og
móöir Marian keypt eiturlyf
handa Marian fyrir næstum
fjórar og hálfa milljónir króna á
löglegan hátt.
Tók innof stóran
skammt
I einn mánuð hefur Marian
komist hjá þvi aö kaupa eiturlyf
á svarta markaðnum og þaö er
aö miklu leyti kærasta hennar,
Oyvind, að þakka. Hann er stöö-
ugt á höttunum eítir læknum,
sem eru reiöubúnir til aö skrifa
upp á morfin, til aö halda Mari-
an viö.
Það sem varð til þess, að
Marian ákvaö að segja blööun-
um frá reynslu sinni var atvik,
sem geröist fyrir nokkrum dög-
um. Þá reyndi Marian, með
hjálp öyvinds, aö komast inn á
meöferöarheimili rikisins fyrir
eiturlyfjaneytendur. Marian
haföi tekiö inn of stóran skammt
af svefnlyfjum og var I lifs-
hættu.
En þaö var ekkert rými fyrir
Marian og þau voru gerð aftur-
reka. Marian varö mjög veik af
svefnlyfjunum en lifði þó af.
A svefnboröinu hennar eru
ýmsar geröir lyfja og Marian
tekur þau inn án afláts. Til þess
aö róa sig niöur og til að geta
sofiö i nokkra klukkutima tekur
hún t.d. Nembutal beint i æö.
Nembutal er sterkasta svefnlyf-
iö á markaðnum. En sé lyfiö
tekiö beint I æð. eyöileggjast
þær.
Sprautar sig í fæturna
Eftir að hafa sprautað i sig
eiturlyfjum i tiu ár á Marian
erfitt meö aö finna heilar æöar
fyrir sprautuna. Hún verður nú
aö sprauta sig i lappirnar þvi
hún er búin að eyðileggja æö-
arnar i handleggjunum.
Samt sem áöur hefur Marian
sett sér þaö mark aö komast út
úr heljargreip eiturlyfjanna.
Bæöi er þaö vegna þess aö lifs-
löngunin hefur aukist hjá henni
eftir aö hafa kynnst öyvind og
svo veit hún, aö haldi hún áfram
á sömu braut er stutt i dauðann.
Sprakk
Svokallaö Thai-heroin, en það
notar Marian, er blandað meö
stryknin. A þann hátt er viman
styttri og þvi þarf aö kaupa
meira af efninu. En fari hlutfall
strykninsins yfir visst mark
deyja neytendurnir.
Allt þetta er Marian kunnugt
um , og hún vill losna úr þessu
sjálfskaparviti. En tekst henni
þaö áöur en þaö er orðiö of
seint?
Hefur reynt flestar teg
undir eiturlyf ja
Siöustu árin hefur aðeins her-
óin og morfin getaö mætt þörf-
um hennar. Marian stendur nú á
ystu brún hengiflugsins mikla
og hún veit þaö sjálf. Hugsunin
um dauðann er henni oft mikil
fróun.
Hún hefur reynt aö svipta sig
lifi, þvi hún sér bara tvær leiðir
út úr þvi viti, sem hún hefur
komið sjálfri sér i: Aö fá úthlut-
að morfinskammti ævilangt
undir eftirliti lækna: eöa dauö-
ann.
Innri barátta
Marian býr ásamt móöur
sinni i litilli Ibúö i Osló. t hálft ár
hefur hún háð mikla innri bar-
áttu til aö losna úr járngreip
eiturlyfjanna. Viö þessa við-
leitni sina úýtur Marina góörar
aðstoðar kærasta sins, öyvinds.
öyvind er ekki eiturlyfjaneyt-
andi og ekki upp á neinn vimu-
gjafa kominn. övind og Marina
eru hrifin hvort af ööru og vilja
giftast.
Marian er útslitin kona og
henni Iiður illa. Hún vill hætta
eiturlyfjaneyslunni og byrja lif-
iö á nýjan leik. en hún á ekki
margra kosta völ.
Það eina, sem henni býðst, er
þriggja vikna lega á meðferöar-
heimili norska rikisins fyrir
eiturlyfjaneytendur. Eftir þess-
ar þrjár vikur tekur gatan viö
fólkinu aftur.
Ákveðinn skammtur dag-
lega?
Marian er svo langt niöri aö
húnálitur, aöþaöeina, sem gæti
bjargaö henni, væri aö fá út-
hlutaö ákveönum skammti af
morfini daglega. Þrjár vikur á
meöferöarheimili er engin
lausn.
Marian leggur sjálf til, aö
hinn daglegi morfinskammtur
hennar veröi 15 millilitrar til aö
byrja meö og eftir nokkurn tima
yröi svo hægt aö minnka
skammtinn niöur I 10 millilitra.
Ef til vill kemur sá dagur, aö
Marian veröur ekki lengur háö
eiturlyfjum. Um þaö efast hún
þó stórlega.
,,En ég gæti lifað I mörg ár
enn ef ég gæti minnkaö notkun-
ina og tekið fastan skammt dag-
lega”, sagöi Marian. „Vanda-
málið er aö finna lækni, sem vill
skrifa upp á sllkan skammt
fyrir mig”.
A uglýsið i Vísi
Sfftti 86611
\A
Smurbrauostofan
BJORNINN
Njálsqötu 49 - Simi 15105
17.1UNI 1979
Þjóðhátíð
Reykjavíkur
DAGSKRA
I. DAGSKRÁIN HEFST:
Kl. 09.55 Samhljómur kirkjuklukkna í Reykjavík.
Kl. 10.00 Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig frá
Reykvíkingum á leiöi’ Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum
v/Suðurgötu. Lúðrasveit verkalýðsins leikur: Sjá roðann á
hnjúkunum háu. Stjórnandi Ellert Karlsson.
II. VIÐ AUSTURVÖLL:
Lúðrasveit verkalýðsins leikur ættjarðarlög á Austurvelli.
Kl. 10.40 Hátiðin sett: Jón H. Karlsson, formaður þjóðhátíðarnefndar.
Karlakór Reykjavíkur syngur: Yfir voru ættarlandi. Söngstjóri
Páll Pampichler Pálsson.
Forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn, lcggur blómsveig frá ís-
lensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli.
Karlakór Reykjavíkur syngur þjóðsönginn.
Ávarp forsætisráðherra, Ólafs Jóhannessonar.
Karlakór Reykjavíkur syngur: Island ögrum skorið.
Ávarp fjallkonunnar.
Lúðrasveit verkalýðsins leikur: Ég vil elska mitt land.
Kynnir: Vilhelm G. Kristinsson.
Kl. 11.15 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prestur séra Hjalti Guðmunds-
son. Dómkórinn syngur. Marteinn H. Friðriksson leikur á orgel.
Einsöngvari: Garðar Cortes.
III. LEIKUR LÚÐRASVEITA:
Kl. 09.30 Við Hrafnistu.
Kl. 10.15 ViðHátún.
Kl. 11.00 Við Borgarspítalann.
KI. 09.30 Við Elliheimilið Grund.
Kl. 10.15 Við Landspítalann.
Kl. 11.00 Við Landakotsspítalann.
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts og Herradsbygd Skola
Korps leika.
Stjórnendur: ólafur L. Kristjánsson og Björn Töraasen.
IV. TÍVOLl:
Kl. 14.00—18.00 Skátatívolí, Kassabílaakstur og Götuleikhús nemenda úr
Leiklistarskóla Islands, í Lækjargötu og á Lækjartorgi.
V. LEIKUR FYRIR ALLA:
KI. 14.00— 18.00 Við Kjarvalsstaði leika fóstrur, Tóti trúður (Ketill Larsen)
o.fl. við börn á öllum aidri. Farið í leiki og sagðar sögur. Brúðu-
leikhús, tafl o.fl.
Kl. 14.45 Gengið frá Kjarvalsstöðum að Hlemmi.
VI. SKRÚÐGÖNGUR:
Kl. 15.15 Safnast saman á Hlemmtorgi og við Sundlaug Vesturbæjar.
Frá Hlemmtorgi verður gengið um Laugaveg, Bankastræti og
Ingólfsstræti á Arnarhól. Lúðrasveitin Svanur leikur, undir
stjórn Sæbjörns Jónssonar.
Frá Sundlaug Vesturbæjar verður gengið um Hofsvallagötu,
Túngötu, Garðastræti, Vesturgötu og Hafnarstræti á Arnarhól.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur, undir stjórn Þorvaldar Stein-
grímssonar.
Skátar ganga undir fánum fyrir skrúðgöngunum og stjórna þeim.
VII. BARNASKEMMTUN Á ARNARHÓL:
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts og Herradsbygd Skola
Korps leika. Stjórnendur: ólafur L. Kristjánsson og Bjöm
Töraasen.
Kl. 16.00 Samfclld dagskrá:
Stjórnandi: Helga Hjörvar.
Textahöfundur: Jón Hjartarson o.fl.
Undirleikari: Carl Billich.
Þátttakendur:
Ámi Trýggvason, Randver Þorláksson,
Bessi Bjamason, Sigríður Þorvaldsdóttir,
Guðrún Alfreðsdóttir, Sigurður Sigurjónsson.
VIII. LAUGARDALSVÖLLUR 20 ÁRA:
Kl. 13.50 „Landshlaup F.R.I. 1979“ hefst.
Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar flytur ávarp.
Hlaupið verður um eftirfarandi götur: Reykjaveg, Borgartún,
Snorrabraut, Laugaveg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuveg,
Sóleyjargötu, Hringbraut og Reykjanesbraut.
Kl. 14.15 Knattspyrna:
Reykjavík — l.B.K. 3. f.l.
Reykjavík — l.A. 4. fl.
Reykjavík — F.H. 5. fl.
Kl. 15.30 17. júní mótið í frjálsum íþróttum, síðari dagur.
IX. NAUTHÓLSVÍK:
Kl. 14.00—18.00 Siglingaklúbbur Æskulýðsráðs Reykjavíkur verður opinn
og urigum sem öldnum gefinn kostur á að kynna sér siglinga-
íþróttina.
X. KVÖLDSKEMMTUN:
Kl. 21.00 H.L.H.-flokkurinn leikur í Austurstræti.
Diskótek á Lækjartorgi.
Skemmtuninni lýkur kl. 23.30.