Vísir - 16.06.1979, Blaðsíða 6
Laugardagur 16. júnl 1979
6
Dr. Youri Ilitchev, landsliösþjálfari I knattspyrnu er mjög á milli
tanna fólks þessa dagana eftir óvænt og sárgrætilegt tap landsliðs-
ins við Sviss um siðustu helgi. Landsiiðsþjálfarar eru kannski ekki
manna vinsælastir þegar illa gengur og Youri hefur fengið sinn
skammt af skömmum. Hans álit hefur hins vegar lftiö heyrst og úr
þvl er ætlunin að bæta.
Youri Ilitchev er fæddur og uppalinn I Moskvu og lauk prófi úr
Iþróttaskóla þeirrar borgar og prófi I Iþróttasálarfræöi. Hann lék
knattspyrnu með þekktum sovéskum félagsliðum, svo sem Loko-
motiv og Dynamo Moskva. Einn góðan veöurdag brá hann sér með
siðartalda liðinu til Bretlands og lék á móti Arsenal. Albert Guð-
mundsson var þá leikmaður með enska iiðinu og tildrög þess að
Youri var fenginn hingað til lands sem þjálfari Vals má einmitt
rekja til þessarar ferðar sovéska liösins.
Youri þjálfaði Valsliðið á árunum 1973 og 1974 og slöan aftur 1976
og 1977
„A minum fyrstu árum hjá
Val byrjaði ég að byggja upp
nýtt Valslið enda hafði liðið áður
verið I öldudal. Þá komu upp
strákar eins og Guömundur
Þorbjörnsson, Atli Eðvaldsson,
Kristinn Bjömsson, og Dýri
Guðmundsson kom til okkar frá
FH. Arið 1976 var þessari upp-
byggingu lokið og framtlðin
blasti þá við liðinu en þá varð
það einmitt fyrir mikiÚi blóð-
töku, of mikilli, og árangurinn
varð ekki sem skyldi. Við misst-
um Kristinn yfir i 1A, Hermann
hætti og Vilhjálmur Kjartans-
son fór til Svlþjóðar.
Ég vil ekki hrósa mér, en
Valsliðið árið 1976 var mjög gott
lið. Ég vonaði að árið 1977 yrði
enn betra en vegna fyrrnefndra
ástæðna brást það. Þótt vonir
minar varðandi Val hafi ekki
fullkomlega ræst er ég
ánægöur með störf mln þar. Ég
reynda leikmenn I nokkrar
stöður. Ég vil aö Vikingur leiki
raunverulega knattspyrnu, en
þaðgerir liðið ekki I dag. Það er
alltof mikið um hlaup og spörk
til einskis. Ég vona að ég sé að
gera rétt með liðið og ég heldað
við séum á réttri leið. Það er
útilokað að við föllum 1 2. deild,
óheppnin hefur elt okkur á rönd-
um og við höfum átt við tíma-
bundna erfiðleika að etja. Ég
trúi þvl að slðari hluta sumars-
ins muni liðið leika mun betur
en I dag”.
„Og þá erum við komnir aö
landsliðinu”.
„Aðalatriðið varðandi lands-
Uðiðer það aðí þvl eru kannski
ellefu bestu einstaklingarnir en
það er ekki nóg til þess að liðið
standi undir nafni. Það er
auðvelt aö byggja upp landslið
með islensku atvinnumönnun-
um en það verður að fá miklu
Ég sagði þeim að með þessum hætti skoruðu þeir engin mörk, þetta væru bara hlaup og spörk
„Sigurvisscm geröi
teikmennina blinda99
Helgarspjall við dr. Youri Uitchev, landsliðsþjálfara um Val, Víking og landsliðið
hafði úr góöum efnivið að vinna
oglagði hartaðleikmönnunum.
Og ég dreg ekki fjöður yfir það
að þetta var erfitt fyrir leik-
mennina sem þurftu aö vinna
með knattspyrnunni”.
,,Er eins góöur efniviöur hjá
Vlking, sem þú þjálfar núna?”
„Þaö er talsverður munur á
þessum tveimur liðum, Víking
og Val. Ég virði leikmenn Vík-
ings, þeir stunda sínar æfingar
velogeru virkilegaduglegir. Og
fyrr en slðar kemur að þvl að
þeir munu uppskera ávöxt
erfiðis sins. Þaö er aftur á móti
deginum ljósara að það tekur
meiraenárað byggjauppliöog
Vlkingsliðið á margt ólært. Það
er bara spurning um tima
hvenær liðið smellur saman,
kannski gerist þaö þegar í sum-
ar.
Þvl má ekki gleyma að mikil
meiösli hafa sett strik I
reikninginn hjá Viking og tal-
andi dæmi um það er þegar átta
leikmenn voru frá vegna
meiðsla. 1 slöasta leik á móti
KR misstum við Óskar Tómas-
son illa meiddan út af og
spurning hvorthann getur leikið
knattspyrnu framar, þó ég voni
aö svo verði”.
„Attu von á þvl að þú getir
náð sama árangri með Víkings-
liðiö ogValsliðiðmiðaö við þann
efriiviö sem þú hefúr úr að
spila?”
„Nei, til þess vantar mig
meiri tíma til undirbúnings ef
góður árangur á að nást. Miðað
við önnur lönd er undirbúningur
hér undir landsleiki I aigjöru
lágmarkiog yfirburðir annarra
þjóða að þessu leyti hafa geysi-
lega mikið að segja. Flestar
þjóðir haga þvi þannig að lands-
liði er gefinn tlmi til æfinga en
ég er stundum að fá landsliðs-
mennina íslensku nokkrum
klukkustundum fyrir leik. 1
þokkabót bætist það svo við að
atvinnumennirnir koma að utan
eftir leiki með slnum félags-
liðum, oft örþreyttir og illa fyrir
kallaðir.
I leiknum á móti Sviss á dög-
unum var Asgeir Sigurvinsson
allt annað en undir þaö búinn að
leika. Hann hafði verið á feröa-
lagi alltof lengi rétt fyrir leikinn
ogvar þreyttur. Við vitum öll að
hann getur miklu meira og ég
ætlast til miklu meira af honum
en hann sýndi I leiknum. Ég dá-
ist að leikni hans ef hann hefði
baraleikiðeinsogi Sviss, þá...”
„Kom ekki til greina aö kippa
honum út af? ”
„Það hvarflaði að mér en ég
get ekki borið hann saman við
aðra leikmenn liösins. Hann er
sllkur yfirburðamaöur, — og
hvaö hefði verið sagt ef ég hefði
tekið hann út af og við þrátt
fyrir þaö tapað leiknum?”
„Það hefur verið sagt aö
skortur á baráttuanda einkenni
liðið og það sé mikill munur frá
þvíhér áárum áður. Hvaðsegir
þú um það”?
„Min skoðun er sú að það hafi
síður en svo skort baráttuanda I
liðið i leikjunum á móti Dönum,
Pólverjum, Þjóðverjum og
Hollendingum. Ég get ekki
ásakaö leikmenninafyrir það aö
berjast ekki, þeir hafa barist
vel. Hins vegar er llkamlegt
þrek þeirra ekki sem skyldi og
þeir geta ekki leikið á fullum
krafti allan leikinn I 90 minútur.
Þau ummæli mln um þrek leik-
mannanna sem leika með is-
lenskum liðum sem blásin hafa
veriö út I fjölmiðlum eru á mis-
skilningi byggö. Ég sagði að
þeir hefðuekki nógu mikiðþrek,
en ekki að þeir væru ilia á sig
komnir hvað llkamlegt þrek
snertir.
Ég sagði þetta sem staðreynd,
en ekki sem óánægju mina með
starf þjálfaranna. Ég segi eng-
um þjálfara fyrir verkum og
hver þeirra hefur slna áætlun
um það hvenær leikmenn eru I
bestri likamlegri þjálfun.
En það er ekki allt unnið með
llkamlegu þreki. Atvinnu-
mennirnir eru aö þvi leyti vel
undir leiki búnir en þeir þurfa
hvild. Þeir vinna geysilega mik-
ið fyrir sín lið og auðvitað borg-
ar enginn allt fyrir ekkert. Þaö
er á hinn bóginn nauðsynlegt
fyrir leikmennina að hvílast,
ekki siður andlega en likam-
lega. Þeir verða að læra að
hugsa með heilanum en ekki
hjartanu.
Auðvitað skilur maður það að
eftir langt keppnistimabil úti
séu þeir orðnir þreyttir á knatt-
spyrnu, vilja helst ekki þurfa
um hana að hugsa og komast I
vont skap við þaö eitt aö sjá fót-
bolta.
„Nú virðast flestir vera ósátt-
ir við þá ákvörðun þlna að
skipta Teiti út af i' leiknum við
Sviss”.
„Frá sjónarhorni aðdáenda
islenska landsliðsins er þetta
réttmæt gagnrýni. En sem sér-
fræðingur get ég ekki tekið
undir þessa óánægju þvi ég
hafði minar ástæður fyrir þess-
ari skiptingu. Teitur lék skln-
andi vel og ég hafði slður en svo
nokkra athugasemd við hans
frammistöðu en ég varð að
breyta um leikkerfi eftir siðara
mark Svisslendinganna oghann
féll ekki inn I það.
Ég óskaði eindregið eftir þvl
aö fá Teit heim I þennan lands-
leik þvi ég ætlaði honum stórt
hlutverk sem fremsta manns I
framlinunni. Hann stóð fyrir
slnu en aðrir leikmenn léku ekki
eins og fyrir þá hafði veriö lagt
og vegna þess myndaðist eyöa I
sókninni, sem ég varð að fylla.
Það geröi ég með því að setja
Karl inn á og láta Arnór koma á
miðjuna.
„Gerum við of miklar kröfur
til landsliðsins?”
„Já, fyrir þennan leik kom
þaðberlega I ljós, beinlinis allir
töldu sigurinn vísan fyrir liðið
og helst var að heyra á mönn-
um, og þá undanskil ég ekki
leikmenn að spurningin væri
bara um þaö hve mörg mörkin
yröu. Við vorum alltof sigur-
vissir og höfðum tvö stig I
vasanum þegar gengið var til
leiksins. Slikt kann ekki góðri
lukku aö stýra.
Leikmennirnir voru svo
sigurvissir að þeir voru sem
blindir, ætluðu að skora f hverri
sókn, en gleymdu hvernig þeir
ætluðu að fara að því. Ég
skammaði þá I hálfleik og sagði
þeim að með þessum hætti
skoruðu þeir engin mörk, þetta
værubarahlaup og spört. — Svo
gerðu þeir þau mistök að leyfa
sér að slaka á eftir markið I
upphafi seinni hálfleiks. Það
myndaðist of mikið bil á milli
Asgeirs og Teits og sennilega
hef ég dregið það I 10-15 of lengi
að taka Teit út af og setja Karl
inn á. Ef við heföum hins vegar
haft vindinn I bakið I siðari hálf-
leik hefði mér aldrei dottið til
hugar að taka Teit út af en á
móti vindinum þurfti ég leik-
mann á miðjuna sem gat haldið
boltanum og sá maður var
Arnór”.
—Gsal
GESTSAUGUM
VlÉR VIRÐI5T UF5-5TOMDmD Á ISLAímDI
NOKKURM VEGIMK) SA SAMI 00 í US^
NEMA iPflÐVRNtm AU/EG,
PGTÆKUNGft
Telknarl: Krls Jackson