Vísir - 16.06.1979, Síða 31
Þessi mynd er tekin I smábátahöfninni á Akureyri af bátum sem eru
annaöhvort „leikföng” eöa fiskibátar. VisismyndSJ
FlskveiðasjðDur sker
á lán tll oplnna báta
Nokkurrar óánægju hefur
gætt meöal smábátaeigenda
meö þaö aö ekki skuii veitt lán
úr Fiskveiöasjóöi nú I ár til
smiöa á litlum opnum fiskibát-
um, og munu sumir vera illa
staddir fjárhagslega vegna þess
að lán sem þeir væntu fengust
ekki.
Visir haföi samband viö
Guöjón Halldórsson hjá Fisk-
veiöasjóöi af þessu tilefni og
spuröist fyrir um ástæöur þessa
niöurskuröar.
Guöjón sagöi aö tvennt kæmi
þar til: annars vegar heföi fjár-
veiting af lánsfjáráætlun til
sjóösins veriö minnkuö og hins
vegar heföi hlutfallslega meiru
veriö veitt til smiöi stærri báta
og annarra stórverkefna en
áöur.
Guöjón var spuröur hversu
margar umsóknir heföu borist
vegna opinna báta og sagöi
hann að þær hefðu veriö um 20.
Umsóknir vegna litilla þiljaöra
báta hefðu veriö álika margar
en þar heföu örfáir fengiö lán.
Þá sagöi Guöjón aö þaö heföi
jafnan veriö barningur fyrir
smábátaeigendur að fá lán úr
sjóönum.ekkislst vegna þess aö
menn heföu stundum veriö aö
kaupa sér „leikföng” en ekki
fiskibáta eins og hann oröaði
þaö. Þó hefðu þeir jafnan fengiö
lán sem byggju á stööum þar
sem önnur útgerö en á litlum
bátum væri ekki möguleg.
—HR
Siálfsbjðrg með bðpferð:
126 fatlaðir Norð-
menn í helmsökn hér
Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaöra efnir til mjög athygiis-
verörar hópferöar fyrir félags-
menn sina á Sumarvökuna I
Harstad i Noröur-Noregi dag-
ana 15.-24. júní n Jt.
Þessiferö erfarin i samvinnu
við fjóröungssamband fatlaðra i
Noröur-Noregi og mun hópur
frá þeim samtökum dveljast á
islandi á sama tima og sá is-
lenski veröur i Noregi. Flugvél
sú sem notuö er veröur þvi full-
setin allar leiöir þannig aö hægt
hefur veriö aö halda ferða-
kostnaöinum I lágmarki. Veröiö
er aöeins 102.600 fyrir manninn
og er þá innifaliö flugiö fram og
til baka, gisting og fæði.
I Noregi mun Islenski hópur-
inn dvelja I menntaskólanum í
Harstad og þaöan veröa farnar
þrjár skoðunarferöir. I sam-
bandi við sumarhátiöina veröur
einnig fjölbreytt lista- og
skemmtidagskrá.
Norski hópurinn ’sem hingað
kemur i dag mun dveljast I
Hagaskólanum. A morgun tekur
fólkiö þátt 117. júnl-hátiöarhöld-
unum I Reykjavik og er ástæöa
til aö hvetja fólk til tillitssemi
viö þessa gesti okkar i mann-
þrönginni sem væntanlega
veröur á hátiöarsvæöinu.
A mánudaginnferhópurinn til
Þingvalla þar sem Þór Magnús-
son þjóöminjavörður veröur
leiösögumaöur. Um kvöldiö
veröur snæddur málsveröur I
Valhöll i' boöi Magnúsar H.
Magnússonar, félagsmála-
ráðherra.
A þriöjudaginn veröur
Reykjalundur skoöaöur auk
þess sem forseti Islands dr.
Kristján Eldjárn, veröur sóttur
heim.
Margar fleiri skoöunarferöir
veröa farnar um Suöurlands-
undirlendiö auk þess sem ýmis-
legt annaö verður á dagskrá
hópsins.
Margir aðilar, félagasamtök,
opinberir aöilar og einstakling-
ar, leggja hönd á plóginn til að
gera þessa ferö frænda okkar
sem ánægjulegasta og ódýrasta.
Skipulagning og undirbún-
ingur feröarinnar hefur allur
veriö i höndum Sjálfsbjargar.
P.M.
„FLÓKALUNDUR ALDREI
VERIÐ ARSHÓTEL”
- seglr Helmlr Hannesson, formaður Ferðamálasjóðs
„Flókalundur hefur aldrei
vcriö árshótel/ vegna samgöngu-
erfiöieika á vetrum, svo einfalt er
þaö. Þvl veröur ekki breytt meö
tilliti til veðurs og færöar”, sagöi
Heimir Hannesson form. Feröa-
málasjóðs,en urgur er i Sambandi
veitinga- og gistihúsaeigenda
vegna sölu sjóösins á Flókalundi
til verkalýöshreyfingarinnar.
Heimir sagöi aö meö tilliti til
þess að verkalýðshreyfingin ræki
orlofshús i nágrenninu væru frek-
ar likur á þvi aö starfsrækslutimi
Flókalundar lengdist en hversu
mikið vissi náttúrulega enginn.
„Sala á Flókalundi er eitt en al-
menn lánastefna Feröamálasjóös
annaö þótt menn vilji rugla þessu
saman og gera aö einum og sama
hlutnum. Undanfarin ár hefur
verulegum fjármunum verið
ráöstafaö til hótelauppbyggingar
viöa um land, til einstaklinga,
fyrirtækja og félagasambanda.
Og ekki I neinum tengslum viö
rikisvaldið eöa opinbera aöila.
Stefna sjóösstjórnarinnar hefur
þvi einmitt veriö sú aö hjálpa til
við aö setja upp sjálfstæöan hótel-
rekstur sem hægt er aö reka allt
áriö um kring”.
Heimir sagði aö allar hug-
leiöingar um einstefnuakstur eöa
breytta stefnu sjóösstjórnarinnar
i þá átt aö afhenda verkalýðs-
félögum eöa rikisvaldi væru
byggðar á misskilningi. „Varö-
andi Flókalund geröum viö þaö aö
skilyrði”, sagöi Heimir, „og viö
höfum þaö bréflega staöfest af
kaupandanum, aö hótel- og
veitingarekstur yröi áfram á
staönum, sem yröi jafnt opinn
félögum I verkalýösfélögum og
öörum”.
„Viö megum ekki gleyma þvi
aö orlofsstarfsemi, hvort heldur
er verkalýöshreyfingar eöa ann-
arra samtaka — er lika feröamál.
Þar af leiöandi hljóta Feröamála-
ráö og Ferðamálasjóöur að taka
fullt tillit til hennar”, sagöi Heim-
ir aö lokum. —Gsal
Pölýfönkórinn meö skyndlhappdrætli
Skyndihappdrætti Póiýfón-
kórsins stendur nú yfir en til
þess er efnt I fjáröflunarskyni
fyrir starf kórsins næsta vetur.
Meðal vinninga má nefna ferö
fyrir tvo til Lúxemborgar,
sólarlandaferðir til Italiu,
Búlgariu og Ibiza. Ennfremur
hálendisferö meö Olfari Jakob-
sai auk smærri vinninga. Dreg-
iöveröur3. júli oger verö miöa
kr. 800 en upplag aöeins 6400.
Allir kórfélagar Pólýfónkórsins
150 aö tölu annast sölu miöanna.
Þess má geta að hinn frægi
hljómsveitarstjóri Hubert Sou-
dant hefur látið I ljós áhuga á aö
stjórna tónleikum hérlendis
meö þátttöku kórsins. Einnig
hefur komið fram sú hugmynd
aö Pólýfónkórinn komi fram á
hljómleikum meö einhverri af
stórhljóms veitum Evrópu og þá
undir stjórn Soudants, enfrá þvi
hefur þó ekki enn verið gengiö.
—HR
Þessihestur fannst skammt frá Grundarfiröi. Hann hefur veriö látinn
ganga úti I allan vetur, en örlög slikra útigangshesta eru oft dapurleg,
sérstaklega á höröu vori. Dauöi þessa hests er slys. Svo viröist sem
hann hafi fest einn fótinn i sprungu og ekki getaö losaö sig. Þar sem
þetta skeöi nálægt eyðibýli undir Kirkjufeili.langt frá almannaleiöum,
beiö hestsins ekkert annaö en hungurdauöinn.
Visismynd BC,Grundarfiröi
MIÐ-EVROPUFERÐ
í ágúst
Leiöin liggur m.a. um Luxemburg,
Worms, Rínar- og Móseldali, Freiburg,
Basel, Luzern, Lichtenstein, Innsbruck,
Salzburg, ítalíu, Tyrol, Miinchen, Hei-
delberg, Koblenz.
16
Ágúst
FERÐASKRIFSTOFAN
<TTCf><VTM(
lönaöarhúsinu v/Hailveigarstíg
Símar 28388 — 28580