Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÖGMUNDUR Jónasson, formaður
þingflokks Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs, tók skýrslu Ríkis-
endurskoðunar
um samninga heil-
brigðisráðuneytis-
ins við Öldung hf.
um rekstur og
byggingu hjúkr-
unarheimilis við
Sóltún 2 í Reykja-
vík til umræðu ut-
an dagskrár á Al-
þingi í gær.
Skýrslan var unn-
in að beiðni Ög-
mundar, en þingmaðurinn segir að
þar komi fram gagnrýni á hvernig
staðið var að samningnum við Öld-
ung hf., auk þess sem skýrslan sýni
að Öldungur njóti ýmissa fríðinda
umfram aðra aðila sem reka hjúkr-
unarheimili.
Ögmundur sagði að þó kæmi ekki
fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar
að samningur þessi væri verðtryggð-
ur í bak og fyrir og rangt væri að
báðir aðilar tækju með honum
áhættu, hún væri öll ríkisins megin
eftir því sem hann best fengi séð.
Benti hann ennfremur á að andstætt
því sem heilbrigðisráðherra hefði
haldið fram í fjölmiðlum myndi Öld-
ungur fá hækkun á daggjöldum ef
inn á heimilið kæmu sjúklingar sem
þyrftu meiri umönnun en kveðið er á
um í samningnum. Þá myndu dag-
gjöldin hækka.
Sagði Ögmundur að sú niðurstaða
skýrslu Ríkisendurskoðunar að
samningurinn við Öldung væri 14%
dýrari en hjá sam-
bærilegum aðilum
kynni jafnvel að
vera vanmetin og
gæti verið um enn
meiri mun að
ræða.
„Hvernig getur
heilbrigðisráð-
herra réttlætt
þennan samning
þegar það hefur
nú fengist stað-
fest af Ríkisendurskoðun að fyrir
samfélagið og skattborgarann er
miklu dýrara að fela fyrirtækjum á
borð við Öldung hf. á grundvelli
einkaframkvæmdar rekstur þessar-
ar þjónustu en skipuleggja hana og
starfrækja á vegum samfélagsins
eða fela hana aðilum sem ekki hafa
gróðasjónarmið að leiðarljósi, eins
og verið hefur,“ sagði hann ennfrem-
ur.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra sagði
skýrslu Ríkisendurskoðunar í öllum
meginatriðum mjög jákvæða og bent
væri á að gerðar væru afar skýrar og
markvissar kröfur til þeirra sem
reka myndu Sóltúnsheimilið. Þjón-
ustan þar yrði á háu stigi og umönn-
unarkröfur væru miklar.
„Það er rétt sem fram kemur að
samningurinn um Sóltúnsheimilið
kostar um 14% meira þegar borið er
saman við þau hjúkrunarheimili sem
við rekum í dag. En í þessum efnum
erum við kannski að bera saman nú-
tímann og framtíðina,“ sagði ráð-
herra og nefndi til sögunnar ýmsa
þætti sem gerðu þessa þjónustu dýr-
ari en hjá öðrum hjúkrunarheimil-
um. Þannig myndu allir búa á ein-
býli, veikustu einstaklingarnir, sem
nú ættu heima á sjúkrahúsum,
myndu dvelja þar og heimilismenn
yrðu teknir inn beint af sjúkrahúsum
og ákveðið af yfirvöldum hverjir það
væru. Þá yrðu kröfur um meiri þjón-
ustu fagfólks en á öðrum heimilum.
„Ég lít ekki á Sóltúnsheimilið sem
stefnubreytingu eða nýtt upphaf í
heilbrigðisþjónustunni,“ sagði Ingi-
björg og bætti því við að sér þætti
mikilvægast að búa til gæðakröfur
fyrir hjúkrunarheimili til framtíðar.
Einkaaðilar sagðir hafa
skattgreiðendur að féþúfu
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
Samfylkingunni, minnti á að oftast
hefðu rök fyrir einkarekstri verið
hagkvæmni og því væri undarlegt að
gengið hefði verið til samninga við
einkaaðila þegar ljóst var að kostn-
aður yrði meiri fyrir vikið. „Finnst
ríkisstjórninni í góðu lagi að fara
svona með skattfé almennings?“
spurði hún og sagði að með þessu
fengju einkaaðilar að hafa skatt-
greiðendur að féþúfu og auðvitað
færi Öldungur hf. ekki út í þennan
rekstur til 25 ára af tómri góð-
mennsku.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagði málflutning þingmanna stjórn-
arandstöðunnar ótrúlegan. Sagði
hann kjarna málsins að ekki væri
sanngjarnt að bera saman Sóltún og
almenn hjúkrunarheimili og ríkis-
sjóður væri ekki að fara illa með fjár-
magn með þessum samningi, hann
væri þvert á móti að spara fé með því
að láta ekki aldraða sjúklinga dvelja
á sjúkrahúsum þar sem kostnaður
við hvern dag væri miklu meiri.
Undir lok umræðunnar sagði Ög-
mundur Jónasson ýmsar spurningar
vakna við skoðun samningsins, t.d.
hvers vegna umrætt fyrirtæki, sem
væri í eigu Íslenskra aðalverktaka
og Securitas, fengi þá meðhöndlun
sem raun bæri vitni, meðhöndlun
sem færði eigendum sínum vísan
gróða. Ekki kæmi vörnin frá fulltrú-
um ríkisstjórnarinnar í einkavæð-
ingarnefnd, en þar sætu menn sem
sjálfir væru nátengdir einkavæðing-
arbraskinu, eins og hann orðaði það.
Benti Ögmundur t.d. á að einn
nefndarmanna af fjórum væri ein-
mitt stjórnarformaður Íslenskra að-
alverktaka, fyrirtækisins sem myndi
reka og væri nú að reisa Sóltún 2.
Deilt um Sóltúnsheimilið utan dagskrár á Alþingi
Áhættan
sögð öll rík-
isins megin
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Ögmundur gagnrýndi samninginn um rekstur Sóltúnsheimilisins.
Dagskrá Alþingis fimmtudaginn
29. mars 2001. 102. fundur hefst kl.
10.30.
1. Skýrsla utanríkisráðherra
um utanríkismál.
2. Norræna ráðherranefndin 2000,
skýrsla, 543. mál, þskj. 846.
– Ein umr.
3. Norrænt samstarf 2000, skýrsla,
571. mál, þskj. 880. – Ein umr.
4. Vestnorræna ráðið 2000,
skýrsla,
478. mál, þskj. 760. – Ein umr.
5. Ályktanir Vestnorræna ráðsins,
Þáltill., 479. mál, þskj. 761. –
Fyrri umr.
6. Alþjóðaþingmannasambandið
2000, skýrsla, 418. mál, þskj.
678. – Ein umr.
7. ÖSE-þingið 2000, skýrsla, 477.
mál, þskj. 759. – Ein umr.
8. VES-þingið 2000, skýrsla, 495.
mál, þskj. 781. – Ein umr.
9. Þingmannanefnd EFTA og EES
2000, skýrsla, 519. mál, þskj.
815. – Ein umr.
10. NATO-þingið 2000,
skýrsla, 529. mál, þskj.
825. – Ein umr.
11. Evrópuráðsþingið 2000,
skýrsla, 550. mál, þskj.
856. – Ein umr.
SVANFRÍÐUR Jónasdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, hefur
kallað eftir viðbrögðum ríkisstjórn-
arinnar við þeirri stöðu sem uppi er í
kjaradeilu sjómanna og útgerðar-
manna. Bendir hún m.a. á að vænt-
anlegt frumvarp samgönguráðherra
sé sem eitur í beinum sjómanna og
geti valdið erfiðleikum við lausn
málsins.
Umrætt frumvarp lýtur að áhöfn-
um íslenskra skipa og kemur m.a. að
fækkun stýrimanna og vélstjóra um
borð í fiskiskipum hér á landi. Upp-
lýsti Svanfríður að formaður Vél-
stjórafélagsins hefði sagt sjávarút-
vegsnefnd að meðan ekki yrðu
gerðar breytingar á umræddu frum-
varpi yrði ekkert af samningum.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra vildi ekki upplýsa efni frum-
varpsins, þar sem hann hefði ekki
enn mælt fyrir því. Í því fælust þó
mikilvæg atriði, t.d. varðandi rétt-
indi áhafna. Vel gæti verið að í með-
förum þingsins og þingnefndar yrðu
gerðar breytingar á frumvarpinu, en
hann vildi ekki ræða það nánar á
þessu stigi.
Svanfríður taldi þessi svör ráð-
herrans allsendis ófullnægjand-
i.Stjórnarandstaðan hefði varað við
því að viðræður myndu tefjast vegna
lagasetningar og það hefði komið á
daginn. Nú væri brýnt að stjórnvöld
gerðu sitt með skapandi hætti svo
keyra mætti viðræður aðila á fullt.
Deilt um
væntanlegt
frumvarp
TALIÐ er að 200 til 250 konur gang-
ist undir brjóstastækkunaraðgerð
hér á landi á ári hverju. Um níu af
hverjum tíu aðgerðum teljast fegr-
unaraðgerðir, en um 10% eru aðgerð-
ir vegna eftirstöðva brjóstakrabba-
meins og annarra slíkra sjúkdóma.
Þetta kom fram í svari Ingibjargar
Pálmadóttur heilbrigðisráðherra á
Alþingi í gær við fyrirspurn Katrínar
Fjeldsted, Sjálfstæðisflokki, um
brjóstastækkanir.
Ráðherra upplýsti að stærstur
hluti brjóstastækkunaraðgerða hér á
landi færi fram á einkastofum lýta-
lækna og ekki lægju fyrir endanlegar
tölur um þann aðgerðafjölda hjá
embætti Landlæknis. Við samantekt
hans, sem miðaðist við undanfarin ár,
væri hins vegar talið að aðgerðir
væru 200–250 á ári, og eru þá taldar
með aðgerðir þær sem gerðar eru á
sjúkrahúsum.
Tryggingastofnun ríkisins greiðir
eingöngu kostnað vegna endurbygg-
ingar brjósta eftir brottnámsaðgerð-
ir, t.d. eftir krabbamein, en ekkert
vegna fegrunaraðgerða, að því er
ráðherra sagði.
Enduraðgerðir mjög fátíðar
Í fyrirspurn Katrínar var óskað
upplýsinga um endingu þeirra brjós-
tapúða sem komið er fyrir við aðgerð-
irnar. Ráðherra svaraði því til að
ending púðanna væri mjög mismun-
andi. Mjög sjaldan þyrfti hins vegar
að skipta um púða og enduraðgerðir
væru mjög fátíðar. Væru þær helst
gerðar vegna herslismyndunar í kjöl-
far myndunar örvefjar eða vegna
rofs sem yrði á sílikonhylki. Sagði
hún fylgivandamál geta komið upp
innan örfárra ára frá fyrstu aðgerð
eða nokkrum áratugum síðar, og
væri engin regla á því hvenær fylgi-
kvillar kæmu fram.
Ingibjörg sagði ennfremur að síli-
kon hefði lengi verið notað sem fyll-
ingarefni við stækkun brjósta. Í upp-
hafi hefði því verið sprautað óbeislað
inn í brjóstið, en sú aðferð hefði þó
aldrei verið notuð hér á landi. Flestar
aðgerðir væru gerðar með brjósta-
púðum af mismunandi stærð sem
hefðu verið fylltir með sk. sílikon-
hlaupi. Þá væru einnig notaðar salt-
vatnsfyllingar, einkum þegar verið
væri að endurbyggja brjóst eftir
brottnám vegna krabbameins.
Ráðherra bætti því við að kvart-
anir vegna brjóstastækkunarað-
gerða hefðu verið talsvert til umræðu
í fjölmiðlum að undanförnu. Land-
lækni hefði borist að meðaltali ein
slík kvörtun á ári síðustu tíu ár og
hefðu kvartanirnar aðallega snúist
um vonbrigði vegna þess að árangur
aðgerðar hefði ekki verið sá sem
vænst var, vegna örvefjarmyndunar
og sýkinga.
Nokkrar umræður urðu um svör
ráðherra og tóku aðeins alþingiskon-
ur þátt í henni, þær Þórunn Svein-
bjarnardóttir, Þuríður Backman,
Drífa Hjartardóttir og Kolbrún Hall-
dórsdóttir, auk ráðherra og fyrir-
spyrjanda. Kom fram í máli þeirra
gagnrýni á heilbrigðisyfirvöld fyrir
að gefa ekki nægar upplýsingar um
slíkar aðgerðir og fyrir að veita ekki
næga fræðslu um hættur sem slíkum
aðgerðum væru samfara. Þó kom
fram að á vegum Landlæknis væri
unnið að gerð bæklings um þessi mál-
efni.
Ráðherra og fleiri þingkonur
sögðu að ástæða væri til að velta upp
ástæðum þess að svo margar konur
vildu stækka brjóst sín í fegrunar-
skyni, en fram kom að einkum konur
á aldrinum 25–35 ára nýttu sér slíkar
aðgerðir. Sagði Þórunn að hinn mikli
fjöldi fegrunaraðgerða benti til þess
að gríðarlegur samfélagslegur þrýst-
ingur væri í þá átt að steypa ungar
konur allar í sama mót.
Gagnrýndi Katrín að sílikon væri
enn notað í brjóstafyllingum hér á
landi, þegar slíkt hefði verið bannað
víða erlendis, t.d. í Bandaríkjunum,
þar sem ending fyllinganna þætti alls
ekki nægileg.
200 til 250 konur gangast undir brjóstastækkunaraðgerðir árlega hér á landi
Níu af hverjum tíu
í fegrunarskyni
ÁTJÁN þingmenn í öllum þingflokkum undir for-
ystu Árna Ragnars Árnasonar, Sjálfstæðisflokki,
hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar
um auknar forvarnir gegn krabbameinssjúkdóm-
um í meltingarvegi og öðrum sjúkdómum þeim
tengdum.
Tillagan gerir annars vegar ráð fyrir að rík-
isstjórninni verði falið að undirbúa og hrinda í
framkvæmd víðtæku forvarna- og leitarstarfi
vegna krabbameins í meltingarvegi. Hins vegar
gerir tillagan ráð fyrir því að jafnframt verði haf-
inn undirbúningur að því að beita sömu aðferðum,
eftir því sem fært er, í baráttu við aðrar algeng-
ustu tegundir krabbameins hér á landi og hefja
síðar skipulagt og reglubundið forvarna- og leit-
arstarf vegna þeirra.
Tillagan gerir sérstaklega ráð fyrir því að leitar-
og forvarnastarf verði byggt á þeim grunni sem
lagður hefur verið með starfsemi Leitarstöðvar
Krabbameinsfélags Íslands og samstarfsaðila
þess, auk víðtækrar samvinnu aðila innan og utan
heilbrigðisþjónustunnar sem vinna að málefnum
krabbameinssjúkra, í heilbrigðisþjónustu, við
rannsóknir, í forvarnastarfi, fræðslu og stuðnings-
þjónustu.
Í greinargerð með tillögunni kemur m.a. fram
að á hverju ári greinist um eitt þúsund Íslendingar
með krabbamein en árlega deyi um 450 manns af
völdum sjúkdómsins. Athuganir bendi til þess að
nýgengi krabbameins muni aukast um 37% til
2010 og dánartíðni vegna krabbameins aukast um
32%. Þá megi gera ráð fyrir að um 1.400 Íslend-
ingar greinist árlega með krabbamein.
Tillaga um auknar forvarnir gegn krabbameinssjúkdómum
Nýgengi krabbameins mun
aukast um 37% til 2010