Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMKVÆMDIR hefjast í
dag við endurnýjun Sóleyjar-
götu frá Njarðargötu að Skot-
húsvegi. Gatan verður lokuð
fyrir umferð allt fram í miðjan
júlí. Sigurður Skarphéðinsson
gatnamálastjóri segir að
stefnt sé að því að búið verði
að malbika götuna fyrir 17.
júní og eftirstöðvar verksins
verði kláraðar á um einum
mánuði eftir það. Það sem
kallar á endurnýjun götunnar
eru ónýtar skolplagnir. Sig-
urður segir að þess utan sé
gatan ekki glæsileg. Hún sé
gömul og kúpumynduð og auk
þess sé afleit bunga á henni
við Bragagötu sem verði fjar-
lægð.
Sigurður segir að fram-
kvæmdirnar leiði til þess að
aðkomuleiðir inn í miðbæinn
verða erfiðari fyrir vikið. Til
þess sé litið að Sæbrautin beri
meiri umferð og sé reiknað
með að meiri umferð fari um
hana og að einhverju marki
einnig um Suðurgötuna.
Framkvæmdirnar fari fram
að sumarlagi þegar umferð er
að jafnaði minni en engu að
síður sé ljóst að óþægindi
verði vegna framkvæmdanna.
Gatan verður um leið fegr-
uð. Gangstígar norðanmegin
götunnar, húsamegin, verða
breikkaðir, hvor akrein verð-
ur mjókkuð en miðeyjan verð-
ur breikkuð. Hún verður að
hluta til girt og stefnt er að því
að koma fyrir gróðri á henni.
Kostnaðaráætlun hljóðaði
upp á um 90 milljónir króna
en Sigurður segir að gengið
hafi verið að tilboði Arnar-
verks, sem bauð 75 milljónir
króna.
Sóleyjargata verður
endurnýjuð í sumar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miðborg
LEIKSKÓLARÁÐ hefur
samþykkt samhljóða að fara
þess á leit við borgarráð að
Leikskólar Reykjavíkur
greiði einkareknum leikskól-
um mánaðarlegan húsnæðis-
styrk sem nemi 388 krónum á
hvern fermetra. Samhliða
upptöku styrksins er ráðgert
að taka upp viðræður við
einkareknu leikskólana um
hvernig eftirliti með gjald-
skrá þeirra verði háttað.
Tillagan var lögð fram af
Kristínu Blöndal, formanni
leikskólaráðs, en þar sem
ekki er gert ráð fyrir þessum
útgjöldum í fjárhagsáætlun
Leikskóla Reykjavíkur vegna
ársins 2001, fer leikskólaráð
fram á 14,9 milljóna króna
aukafjárveitingu til að mæta
þessum kostnaði.
Í greinagerð með tillög-
unni segir að einkareknir
leikskólar auðgi leikskóla-
starf í borginni og veiti for-
eldrum frekari valkosti og að
með því að greiða húsnæð-
isstyrk þann er tillagan geri
ráð fyrir sé verið að renna
enn styrkari stoðum undir
rekstur þeirra. Þar segir að
frá árinu 1994 hafi borgaryf-
irvöld hækkað rekstrarstyrk
úr 6.000 krónum fyrir barn
sambúðarfólks eða giftra for-
eldra í 19.850 krónur og að
niðurgreiðsla vegna barna
einstæðra foreldra nemi
35.400 krónum.
Einkareknir leikskólar
eru í 3.200 fm húsnæði
„Reykjavíkurborg greiðir í
dag stofnstyrk til einkarek-
inna leikskóla sem í febrúar
nam 32.902 krónum á fer-
metra og fylgir sú upphæð
byggingarvísitölu,“ segir í
greinagerðinni. „Miðast þessi
upphæð við meðalkostnað
borgarinnar við að fullgera
lóð og kaup á lausum búnaði í
leikskóla í eigu borgarinnar-
.Eins og áður sagði fá einka-
erknir leikskóla að auki rek-
stararstyrki sem taka mið af
kostnaði borgarinnar við
rekstur eigin leikskóla. Allur
húsnæðiskostnaður einka-
reknu leikskólanna, að frá-
dregnum kostnaði vegna lóð-
ar og búnaðar, er hins vegar
undanskilinn í þessum styrkj-
um og er því innheimtur með
leikskólagjöldum. Sú tillaga
sem hér er flutt gerir ráð fyr-
ir að tekinn verði upp hús-
næðisstyrkur sem nemur 388
krónum á fermetra á mánuði
og miðast sá kostnaður við
100.000 króna stofnkostnað á
fermetra, 50 ára afskriftar-
tíma eignar og 4% vexti.
Einkareknir leikskólar í
Reykjavík eru í dag í 3.200
fermetra húsnæði og má því
búast við að aukin útgjöld
Leikskóla Reykjavíkur á
þessi ári verði um 14,9 millj-
ónir króna.“Á fundi leikskóla-
ráðs þar sem tillagan var
rætt lögðu fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks fram eftirfar-
andi bókun: „Við fulltrúar
Sjálfstæðisflokks í leikskóla-
ráði samþykkjum að veita
einkareknum leikskólum hús-
næðisstyrk, en höfnum hug-
myndum um eftirlit
Reykjavíkurborgar með
gjaldskrá þeirra.“
Fulltrúar R-listans lögðu
þá fram bókun þar sem segir:
„Á undanförnum árum hafa
styrkir til einkarekinna leik-
skóla stóraukist og er hús-
næðisstyrkur sá, sem tillagan
gerir ráð fyrir, alger nýjung.
Eins og fram kemur í grein-
argerð hafa einkareknir leik-
skólar ekki haft aðrar leiðir
til að fjármagna húsnæðis-
kostnað en í gegnum dag-
gjöld og ætti tillagan, nái hún
fram að ganga, því að geta
komið fram í lægri daggjöld-
um og þar með styrkt sam-
keppnisstöðu einkarekinna
leikskóla gagnvart Leikskól-
um Reykjavíkur.
Í umræddu ákvæði tillög-
unnar er einungis gert ráð
fyrir viðræðum við rekstrar-
aðila og mun hér eftir sem
hingað til kappkostað að hafa
gott samstarf við þá.“
Einkareknir leikskól-
ar fái húsnæðisstyrk
Reykjavík
VINNA við fornleifauppgröft
við Aðalstræti 16 er nú nærri
hálfnuð og hafa fornleifa-
fræðingar grafið niður á 15-
20 metra langan skála frá
landnámsöld sem liggur sam-
síða Aðalstræti. Þegar má
greina nyrðri enda skálans
og hluta langelds í honum
miðjum en útlínur skálans
eru sjáanlegar af stein-
hleðslum sem marka austur-
og vesturveggi hans.
Þá hefur verið grafið niður
á hús sem tilheyrðu Innrétt-
ingum Skúla Magnússonar
landfógeta frá 18. öld en ekk-
ert bendir enn til þess að
byggt hafi verið á svæðinu í
5-6 aldir í millitíðinni. Lítið
hefur fundist af forngripum
þó að ekki sé ólíklegt að ein-
hverjir slíkir komi upp úr
kafinu þegar greftrinum lýk-
ur í sumar.
Auk útlína skálans hefur
uppgröfturinn einkum leitt í
ljós undirstöður bygginga
Innréttinganna og brunaleif-
ar nokkurra húsa þeirra frá
árinu 1764. „Ástæðan fyrir
því að lítið hefur fundist af
munum er væntanlega sú að
ef grafið er á bæjarstæðum
finnast einkum tveir flokkar
hluta,“ útskýrir Mjöll Snæs-
dóttir fornleifafræðingur hjá
Fornleifastofnun Íslands sem
framkvæmir verkið fyrir Ár-
bæjarsafn. „Þetta eru hlutir
sem fólk annars vegar henti
og hins vegar týndi. Þessa
hluti finnur maður gjarnan í
reglulegum sorphaugum
annars vegar og í mold-
argólfum hins vegar. Við er-
um ekki búin að fara niður í
gólfið í landnámsskálanum
og höfum reyndar ekki hitt á
lög sem voru mjög hrein sor-
plög. Þess vegna hafa fáir
gripir fundist. Þó hafa fundist
leirkerabrot, glerbrot og brot
úr svokölluðum krítarpípum,
allt frá tímum Innrétting-
anna. Gripir frá landnáms-
tíma hafa hins vegar ekki
fundist.“
Forngripir frá land-
námsöld gætu fundist
Aðspurð hvort hugsanlegt
sé að finna gripi frá land-
námstíma þegar grafið verð-
ur lengra niður í gólf land-
námsskálans segir Mjöll þó
enga ástæðu til að útiloka
neitt í þeim efnum. „Það er al-
veg hugsanlegt að við finnum
einhverja gripi í gólfinu en ég
geri ekki sérstaklega ráð fyr-
ir að það verði mikið,“ segir
hún. Skálinn er 5,5-6 m á
breidd þar sem hann er breið-
astur og mjókkar til endanna.
„Þetta er algengt sköpulag á
víkingaaldarskálum en það
er ekki vitað hví þeir voru
byggðir með þessum hætti.
Vera kann að verkfræðilegar
ástæður liggi þar að baki.“
Lengd skálans er á bilinu
15-20 metrar og þegar eru
um 8 metrar sjáanlegir, þar
af hluti langelds í honum.
Uppgröfturinn hófst um
miðjan janúar og eiga forn-
leifafræðingarnir að ljúka
störfum fyrir 15. júní. Á milli
6-8 fornleifafræðingar vinna
að verkinu og hefur verið
byggt yfir vinnusvæðið til að
koma í veg fyrir tafir af völd-
um frosts og vetrarmyrkurs
en þess ber að geta að ekki er
hægt að fletta jarðlögum ofan
af fornminjum í frosti.
Ástæða þess að forn-
leifauppgröfturinn fer fram
við Aðalstrætið er sú að fyr-
irhugaðar eru nýbyggingar á
svæðinu. Í ljósi þess að ekki
er leyfilegt að spilla forn-
minjum án undangenginna
fornleifarannsókna hófst
uppgröfturinn í janúar. For-
senda þessarar framvindu
var að sjálfsögðu vitneskja
um að einhverjar fornminjar
væri að finna á svæðinu en sú
vitneskja hefur legið fyrir um
nokkurra áratuga skeið.
Morgunblaðið/Ásdís
Petra Mösslein fornleifafræðingur, til vinstri, við störf sín í Aðalstræti. Til hægri skoðar fornleifafræðingurinn Jannie Ebsen jarðlögin en fundist hafa leirkerabrot og glerbrot frá 18. öld.
Miðborg Grafið niður á land-
námsskála í Aðalstræti