Morgunblaðið - 29.03.2001, Qupperneq 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 15
SAMIÐ hefur verið um að Mekka
Tölvulausnir á Akureyri annist
notenda- og kerfisþjónustu við
tölvukerfi orkusviðs Landsvirkj-
unar á Norðurlandi, en um er að
ræða þjónustumiðstöð á Ak-
ureyri, Blöndustöð, Laxárstöð og
Kröflustöð. Reynir B. Eiríksson,
framkvæmdastjóri Mekka Tölvu-
lausna, og Bergur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri upplýsingasviðs
Landsvirkjunar, undirrituðu
samninginn.
Bergur sagði að samningur
þessi væri fyrir margra hluta
sakir merkilegur, en hann er sá
fyrsti sem fyrirtækið gerir nú
eftir að umfangsmiklar skipu-
lagsbreytingar hafa verið gerðar
á Landsvirkjun. Fyrirtækinu
verður skipt upp í tvö grunnsvið,
orkusvið og flutningssvið, og
einnig verða fjögur þjónustusvið
innan fyrirtækisins og er eitt
þeirra upplýsingasvið.
Bergur sagði að í stað þess að
reka eigin tölvudeild hefði verið
ákveðið að félagið einbeitti sér
að því sem það væri best í, þ.e.
að veita þjónustu sem snýr beint
að orkuvinnslunni og semja við
aðra um að sinna tölvuþjónust-
unni. Með því að semja við
Mekka Tölvulausnir um þessa
þjónustu færðist hún einnig nær
viðskiptavinum á Norðurlandi.
„Við vonum að með þessu fyr-
irkomulagi verði þjónustan betri
og samningurinn verði báðum
félögum til hagsbóta,“ sagði
Bergur.
Reynir sagði að starfsmenn
Mekka Tölvulausna myndu
leggja sig fram um að veita sem
besta þjónustu og kvaðst hann
ánægður með hinn nýja samning,
sem væri arðvænlegur fyrir bæði
félög. Þá sagði Reynir einnig
ánægjulegt að með samningnum
væri brotið blað, en hann væri sá
fyrsti sem Landsvirkjun gerði
um þjónustu af þessu tagi. „Þetta
er vonandi bara byrjunin, við
vonum að í framtíðinni munum
við geta veitt fleiri fyrirtækjum á
landsvísu þjónustu,“ sagði hann.
Væntingar eru raunar um að
samstarfið verði vísir að frekara
samstarfi milli Landsvirkjunar
og Mekka Tölvulausna um þróun
og uppbyggingu upplýsingakerfa
fyrirtækisins.
Landsvirkjun
snýr sér í
átt til Mekka
Morgunblaðið/Kristján
Undirritun samnings Mekka Tölvulausna og Landsvirkjunar, f.v. Val-
ur Knútsson, yfirmaður þjónustumiðstöðvar orkusviðs Landsvirkjun-
ar, Bergur Jónsson, framkvæmdastjóri upplýsingasviðs Landsvirkj-
unar, og Reynir B. Eiríksson, framkvæmdastjóri Mekka Tölvulausna.
MIKIÐ verður um dýrðir í Hlíðar-
fjalli á föstudagskvöld, 30. mars, en
þar verður haldið brettamót Sprite
þar sem m.a. fjórir atvinnumenn á
snjóbrettum leika listir sínar.
Byggðir verða sérstakir stökkpallar
þar sem áhugafólki mun einnig gef-
ast tækifæri til að spreyta sig.
Atvinnumennirnir sem um ræðir
eru hér á vegum Snowborder Mag-
azine ásamt ljósmyndara og blaða-
manni.
Með þeim í för er kvikmyndatöku-
maður sem framleiðir kvikmynd um
snjóbrettaíþróttina. Brettakapparn-
ir eru frá Austurríki, Kanada og
Bandaríkjunum og ferðast hópurinn
um heiminn til að vinna efni fyrir
tímarit og kvikmyndir og hefur hóp-
urinn nú viðkomu á Íslandi.
Gott skíðafæri er nú í Hlíðarfjalli
og nægur snjór þannig að tilvalið er
fyrir skíðaáhugafólk að bregða sér á
skíði og fylgjast um leið með nokkr-
um af fremstu brettamönnum heims
leika listir sínar.
Atvinnu-
menn í
Hlíðarfjalli
Snjóbrettamót
SVARFDÆLSKI marsinn er yf-
irskrift menningarhátíðar sem
efnt verður til í Dalvíkurbyggð um
helgina, dagana 30. mars til 1. apr-
íl. Að hátíðinni standa nokkrir
áhugamenn um svarfdælska
menningu.
Hátíðin hefst með „Heims-
meistarakeppni í brús“ á Rimum í
Svarfaðardal kl. 20.30 föstudaginn
30. mars. Brús er spil sem trúlega
er ekki mjög vel þekkt nú til dags.
Á árum áður var það spilað víða
um land, einkum var spila-
mennskan þó bundin við Svarfað-
ardal og Grýtubakkahrepp. Með
sanni má segja að hvergi hafi brús
þó verið spilað af meiri ákafa og
tilfinningahita en einmitt í Svarf-
aðardal og er þannig sterkur hluti
af svarfdælskri menningu.
Klukkan 11 laugardaginn 31.
mars verður efnt til málþings um
svarfdælska menningu í Dalvíkur-
skóla. Frummælendur eru: Þórar-
inn Eldjárn og nefnir hann erindi
sitt „ …dælska, firska, vetnska og
lenska“. Árni Daníel Júlíusson
sagnfræðingur flytur erindi sem
hann kallar „Gullöldin í Svarfað-
ardal“, Gunnar Stefánsson út-
varpsmaður ræðir um Svarfdæla
sögu og fleiri sögur og Guðrún
Kristinsdóttir, minjasafnsvörður
á Akureyri, ræðir um Kristján
Eldjárn og fornminjarannsóknir í
Svarfaðardal.
Laugardagskvöldið 31. mars
verður stiginn svarfdælskur mars
í félagsheimilinu Rimum í Svarf-
aðardal.
Sunnudaginn 1. apríl verður
efnt til gönguferðar um Dalvíkina
undir leiðsögn Sveinbjörns Stein-
grímssonar og verður einkum litið
á gömul hús. Lagt verður af stað
frá ráðhúsi Dalvíkur og er reiknað
með einnar klukkustundar göngu-
ferð. Klukkan 14 sama dag verður
söngur í Dalvíkurkirkju þar sem
fram koma kórar í Dalvíkurbyggð
og kór brottfluttra Svarfdælinga.
Menningarhátíðin Svarfdælski marsinn
Heimsmeistara-
keppni í brús
BÆJARSTJÓRN Dalvíkurbyggðar
hefur samþykkt tillögu að breyt-
ingu á deiliskipulagi við Hafnar-
braut á Dalvík, þar sem fyrirhugað
er að vinnslustöð Íslandsfugls,
slátrun og vinnsla verði til húsa.
Áður hafði umhverfisráð sveitar-
félagsins samþykkt deiliskipulags-
tillöguna fyrir sitt leyti.
Sláturhús Íslandsfugls verður til
húsa í húsnæði Samherja við Hafn-
arbraut en byggt verður við húsið
og í það sett fullkomin sláturlína og
vinnslutæki. Stefnt er að því að
kjötvinnslustöðin verði tilbúin í júlí-
mánuði en á þeim tíma eru fyrstu
afurðir Íslandsfugls væntanlegar á
markað.
Ekki hafa allir íbúar Dalvíkur
verið á eitt sáttir við þessa fyr-
irhuguðu starfsemi Íslandsfugls og
m.a. bárust fjórar athugasemdir við
breytingar á deiliskipulagi svæðis-
ins, frá aðilum í næsta nágrenni við
húsnæði sláturhússins. Í bókun
bæjarstjórnar kemur fram að sam-
eiginlegt með mótmælunum er ugg-
ur viðkomandi varðandi það að um-
rædd breyting á deiliskipulagi
svæðisins komi til með að rýra
verðgildi viðkomandi eigna vegna
takmörkunar á útsýni til hafnarinn-
ar og fjarðarins og nálægð hins fyr-
irhugaða sláturhúss kunni að hafa
sömu áhrif.
Bæjarstjórn hefur skilning á
þessum ótta húseigenda um að
bygging sláturhússins kunni að
hafa slík áhrif á verðmæti nálægra
húseigna en telur ekkert framkom-
ið sem bendi til að slíkt eigi sér
stað, umfram það sem almennt
kann að leiða af þéttingu byggðar á
slíkum svæðum.
Ekki reynt til þrautar
að finna annan stað
Svanhildur Árnadóttir bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks greiddi at-
kvæði gegn breytingu á deiliskipu-
laginu og lagði fram eftirfarandi
bókun á fundi bæjarstjórnar:
„Deiliskipulag sem hér liggur fyrir
til afgreiðslu gerir ráð fyrir bygg-
ingu sláturhúss í hjarta bæjarins.
Ég tek undir mótmæli þeirra íbúa
sveitarfélagsins sem telja að verð-
gildi eigna þeirra rýrni við þessa
staðsetningu og tel jafnframt að
ekki hafi verið reynt til þrautar að
finna sláturhúsi annan stað, því
greiði ég atkvæði gegn þessu deili-
skipulagi.“
Sláturhúsið verður
byggt við Hafnarbraut
Bæjarstjórn Dalvíkur hefur samþykkt breytingar á deili-
skipulagi við Hafnarbraut vegna vinnslustöðvar Ísfugls
KK og Magnús
Eiríksson verða
með nokkra tón-
leika á næstu
dögum á Norð-
urlandi. Fimmtu-
dag 29. mars Við
Pollinn, Ak-
ureyri, kl. 21,
föstudag 30.
mars Hafnarbarinn, Þórshöfn, kl.
22 og laugardag 31. mars Gamli
Baukur, Húsavík, kl. 22 Þeir félag-
ar hafa gefið út í sameiningu þrjá
hljómdiska með eigin efni og á
tónleikunum munu þeir leika eigið
efni, erlenda tregasöngva, nokkur
sjómannalög og eitt GCD-lag.
Magnús og
KK spila á
Norðurlandi
Magnús og KK
LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju-
skóli í Svalbarðskirkju á laugar-
dag, 31. mars, kl. 11. Kyrrðar-
stund verður í kirkjunni kl. 21 á
sunnudagskvöld. Kirkjuskóli verð-
ur í Grenivíkurkirkju kl. 13.30 á
laugardag.
Kirkjustarf
♦ ♦ ♦