Morgunblaðið - 29.03.2001, Qupperneq 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 25
GÖRAN Persson forsætisráðherra
Svíþjóðar, sem fer með for-
mennsku í Evrópusambandinu
(ESB) þetta misserið, og Romano
Prodi, forseti framkvæmdastjórn-
arinnar, lýstu báðir ánægju sinni
með niðurstöður leiðtogafundar
sambandsins í Stokkhólmi um síð-
ustu helgi. Framkvæmdastjórninni
var falið að þróa frekari tillögur í
þeim málum sem ekki náðist sam-
komulag um.
Mikilvægur árangur náðist í að
þróa sameiginlegan markað með
verðbréf og fjármálaþjónustu.
Lögð var mikil áhersla á þetta mál
og sagði Prodi að sér hefði komið á
óvart að svo skýr niðurstaða skyldi
hafa náðst. Sameiginlegur fjár-
málamarkaður með samræmdum
lögum og reglum myndi nýtast til
að gera viðskipti og fjármögnun í
Evrópu hagkvæmari en nú er. Af
þessu myndi hljótast mikil hagræð-
ing bæði fyrir einstaklinga, fyrir-
tæki og hagkerfi Evrópu í heild
sinni.
Ekkert samkomulag
um orkumarkaðsmál
Ekki náðist samkomulag um
aukið frjálsræði í orkumálum en
undir það fellur sala og dreifing á
raforku og gasi. Aðalástæðan var
ágreiningur um að einokunarfyr-
irtæki í ríkjum sem ekki væru búin
að innleiða frjálsa samkeppni á
þessu sviði myndu hafa forskot á
fyrirtæki sem hingað til hafa þurft
að keppa á samkeppnismarkaði.
Þau gætu nýtt einokunarhagnað til
að kaupa fyrirtæki og undirbjóða
önnur til að auka markaðshlutdeild
sína. Framkvæmdastjórnin fékk
það hlutverk að leggja frekari drög
sem gætu myndað grunninn að
samkomulagi á þessu sviði.
Samkomulag náðist ekki um
sameiginlegt evrópskt einkaleyfi
en markmiðið með því er að fyr-
irtæki og einstaklingar þurfi ein-
ungis að leggja fram eina umsókn
til að fá einkaleyfi í Evrópusam-
bandslöndunum í stað þess að
sækja um í hverju aðildarlandi fyr-
ir sig.
Ekki náðist heldur samkomulag
um samræmt evrópskt flugsvæði
er á að auka frjálsræði og sam-
keppni í flugsamgöngum í Evrópu-
sambandinu. Ráðherrar sam-
göngu- og fjarskiptamála í
aðildarríkjum ESB voru hvattir til
að komast að samkomulagi um
flugsamgöngur, lestarsamgöngur,
póstþjónustu og fjarskiptamál.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
var meðal gesta og er þetta í fyrsta
skipti sem forseti Rússlands tekur
þátt í fundi leiðtoga ESB-ríkja.
Persson sagðist vonast til þess að
umbætur á efnahags- og stjórn-
málasviðinu í Rússlandi myndu
verða til þess að verslun og við-
skipti myndu aukast milli ESB og
Rússlands.
Leiðtogar ríkjanna samþykktu
ályktanir er lúta að ástandinu í
Makedóníu og á Kóreuskaganum.
Sendinefnd sambandsins með Gör-
an Persson í broddi fylkingar mun
fara til Norður-Kóreu í síðasta lagi
í maímánuði. Javier Solana, æðsta
talsmanni sambandsins í utanríkis-
og varnarmálum, var falið að gera
tillögur að því hvernig ESB gæti
komið að friðsamlegri lausn mála
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Slegið á bjartsýninótur
ESB-leiðtogarnir sögðu að þrátt
fyrir að undanfarið hefði hallað
undan fæti í efnahagsmálum í
Bandaríkjum og Japan væri efna-
hagsástandið í Evrópu almennt
nokkuð gott. Atvinnuleysi væri það
lægsta síðan 1991, það væri til vitn-
is um að umbætur sem hrint hefði
verið í framkvæmd á síðustu árum
væru að skila sér. Stækkun samb-
andsins til austurs myndi auka
tækifæri fyrir hagvöxt og viðskipti
bæði fyrir þær þjóðir sem koma til
með að ganga í ESB og núverandi
aðildarríki.
Leiðtogafundur ESB-ríkja í Stokkhólmi
Niðurstöður í sam-
ræmi við væntingar
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
AP
Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, ásamt Romano Prodi, for-
seta framkvæmdastjórnar ESB, á leiðtogafundinum í Stokkhólmi.
LAXELDI við suðurströnd Noregs
stafar nú mikil ógn af eitruðum þör-
ungabreiðum sem að undanförnu
hafa verið að vaxa í hafinu á þessum
slóðum.
Olav Lekve, talsmaður Fiskistofu
Noregs, segir að þörungarnir hafi á
síðustu dögum valdið dauða um 700
tonna af eldislaxi í eldiskvíum við
suðurodda landsins. Þúsundir tonna
af laxi eru í hættu, en ef þörunga-
breiðan leggst yfir eldiskvíarnar
rænir hún fiskinn öllu súrefni; tálkn-
in stíflast og fiskurinn drepst. Sá
fiskur sem drepst með þessum hætti
er óhæfur til manneldis. Norsk lax-
eldisfyrirtæki slátra árlega um
400.000 tonnum af eldislaxi og eru af-
urðirnar mestmegnis fluttar út til
Evrópusambandslanda.
„Þetta gæti orðið versta þörunga-
plágan sem norskt fiskeldi hefur
nokkru sinni orðið að þola,“ sagði
Lekve. Sagði hann þörungabreið-
una, sem virtist vera afbrigði af jap-
önskum uppruna sem fyrst varð vart
í Norðursjónum árið 1996, geta ógn-
að kvíum með um 4.000 tonnum af
laxi ef vindar og hafstraumar stefna
henni vestur eftir ströndinni.
Búnir að „skjóta rótum“
Jan Aure hjá norsku hafrann-
sóknastofnuninni í Björgvin tjáði Af-
tenposten í gær að allt benti til að
þessi þörungategund, nefnd chatto-
nella, hefði tekið sér fasta bólsetu í
Skagerrak og Kattegat. Það kunni
að þýða dauðadóm yfir fiskeldi við
suðurströnd Noregs. Mikill vöxtur
sé kominn í þörungana svo snemma
árs og það benti eindregið til, að þeir
væru búnir að „skjóta rótum“ en
bærust ekki bara með straumum ut-
an úr Norðursjó, eins og síðast þegar
þörungaplága af þessu tagi barst að
Noregsströndum, í maí 1998.
Þörungar ógna
laxeldi í S-Noregi
Ósló. Reuters, Morgunblaðið.
Hillukerfi
fyrir lagerinn,verslunina,
heimilið, bílskúrinn.
Umboðs- og heildverslun
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
Einfalt í uppsetningu
Skrúfufrítt
Smellt saman
Trygg gæði - Gott verð!
Heildarlausnir
ISO 9001
Öryggis- og gæðastaðlar
Netverslun - www.isold.is