Morgunblaðið - 29.03.2001, Page 35
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 35
með frekari samning-
um við háskóla víðs-
vegar í Evrópu og Am-
eríku.
Deildir háskólans
Við skólann eru
starfræktar þrjár
kennsludeildir: Frumgreinadeild,
viðskiptadeild og lögfræðideild.
Frumgreinadeild veitir eins árs
sérhæfðan undirbúning fyrir nám í
rekstrar- og viðskiptadeild. Nám í
frumgreinadeild er ekki á háskóla-
stigi, en er lánshæft.
Í viðskiptadeild eru öll helstu svið
rekstrar, viðskipta og stjórnunar
kennd á þremur árum og lýkur
náminu með BS-gráðu. Fyrstu tvö
árin mynda eina heild og fylgjast
nemendur á 1. og 2. ári að í náminu.
Að þeim áfanga loknum eru nem-
endur útskrifaðir með diplómagráðu
í rekstrarfræðum. Þriðja árið er
sjálfstætt framhald af fyrstu tveim-
ur árunum og því lýkur með BS-
gráðu. Nemendum á þriðja ári
stendur til boða að ljúka hluta af
náminu við erlenda háskóla. Einnig
er hægt að taka þriðja árið í fjar-
námi.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst hef-
ur stofnsett nýja deild við skólann,
lögfræðideild, sem býður næsta
NÆSTA haust verða tæplega 200
nemendur við staðnám á Bifröst.
Heildaríbúafjöldi háskólaþorpsins
er þá orðinn tæplega 400, starfsfólk,
nemendur og fjölskyldur þeirra.
Þéttbýlisstaðurinn byggist allur á
þekkingar- og háskólastarfi.
Mikil uppbygging stendur nú yfir
hjá Nemendagörðum Viðskiptahá-
skólans til að anna fjölgun íbúa og
þegar er hafinn undirbúningur að
viðbyggingum við núverandi skóla-
hús. Auk skólahúsa, nemendagarða
og íbúðarhúsnæðis starfsfólks eru á
Bifröst kaffi- og veitingahús, lík-
amsræktarstöð, leikskóli og þvotta-
hús.
„Viðskiptaháskólinn á Bifröst
gerir kröfur til nemenda sinna og
þeir gera kröfur til skólans. Við vit-
um að góður árangur krefst góðrar
aðstöðu fyrir nemendur okkar og
fjölskyldur þeirra,“ segir Runólfur
Ágústsson rektor. „Þess vegna eru
bókasafn, vinnuher-
bergi og tölvukerfi op-
in allan sólarhringinn.
Líkamsræktarstöð
heldur nemendum í
formi og í dagslok má
slaka á í gufu, ljósum
og heitum pottum eða
ræða málin yfir kaffi-
bolla eða ölkrús á kaffihúsinu.“
Samband við útlönd
Nemendur á Bifröst þurfa að búa
sig undir virka þátttöku í alþjóðlegu
umhverfi. Nemenda- og kennara-
skipti við erlenda háskóla beina al-
þjóðlegum áhrifum til skólans.
Nemendur á þriðja ári geta stundað
hluta námsins við erlenda sam-
starfsháskóla og á hverju ári kemur
hópur erlendra nemenda til að
stunda nám á Bifröst.
Helstu samstarfsskólar Við-
skiptaháskólans eru University of
Manitoba í Kanada, Bayerische
Beamtenfachhochschule í Þýska-
landi, Hogeschool í s’Hertogen-
bosch í Hollandi og Southampton
Institute í Bretlandi. Auk þess er
Viðskiptaháskólinn aðili að
SOCRATES-ERASMUS með fjöl-
mörgum evrópskum háskólum og
þátttakandi í NORDPLUS-sam-
starfi Norðurlandanna. Alþjóðavæð-
ingin á Bifröst mun halda áfram
haust upp á nám til BS-gráðu í við-
skiptalögfræði.
Viðskiptalögfræðin
Viðskiptalögfræðin er 3 ára nám
sem samþættir fjármál, viðskipti og
lögfræði með það að markmiði að
mennta stjórnendur með sérþekk-
ingu á lagalegum þáttum viðskipta
og rekstrar fyrir atvinnulíf og sam-
félag.
Lögfræðilegur hluti námsins fel-
ur í sér þau réttarsvið er lúta al-
mennt að rekstri fyrirtækja, rekstr-
arformi og rekstrarumhverfi í víðu
samhengi. Sérstök áhersla er lögð á
fjármálamarkaðinn og alþjóðleg við-
skipti í því samhengi.
Viðskiptafræðilegi hlutinn tekur á
grunnþáttum hagfræði, stjórnunar
og reikningshalds auk sérstakrar
áherslu á fjármál og alþjóðavið-
skipti.
Auk áfanga á sviði lögfræði og
viðskipta er leitast við að samþætta
þessi svið í blönduðum framhalds-
kúrsum en einnig eru kennd grunn-
fög á sviði stærðfræði, upplýsinga-
tækni, rannsóknaraðferða og sam-
skipta.
Gert er ráð fyrir að síðasta árið
sé að mestu kennt á ensku og mögu-
leiki verður einnig að taka það að
hluta til erlendis.
Morgunblaðið/RAX
Fartölvur eru vinnutæki nemenda í Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Hér
er menntamálaráðherra í heimsókn í skólanum.
Vaxandi háskóla- og
viðskiptaþorp á Bifröst
sem skiptist á milli listsköpunar á
vinnustofum og fræðigreina.
Í byrjun er lögð áhersla á hug-
myndavinnu, skissugerð og upplýs-
ingatækni auk þess sem nemendur
sækja námskeið í smíði, mótun, ljós-
myndun, tölvu-
vinnslu, prentun
og fleiru.
Á síðari hluta
verður listsköpunarþáttur ríkjandi
með áherslu á sjálfstæða vinnu nem-
enda undir faglegri stjórn prófess-
ora. Listfræðikennsla fer fram í fyr-
irlestrum og málstofum. Auk
skyldunámskeiða í listasögu og list-
heimspeki gefst nemendum kostur á
fjölda valnámskeiða um sértækt
efni. Umsóknarfrestur í myndlist er
til 10. apríl nk.
Leiklistardeild
Í leiklistardeild er lögð áhersla á
sjálfstæði nemandans í vinnu með
það að markmiði að skerpa sýn hans
á eigin framvindu og vinnubrögð
sem listamanns. Tekið er mið af
kenningum Stanislavskis og Grot-
owskis í leiktúlkunarkennslu sem er
meginuppistaða námsins.
Fyrstu tvö árin er lögð áhersla á
að nemandinn fái góða undirstöðu í
öllum tæknifögum. Leiklistarsaga
og listsaga er kennd á þessu tímabili
sem og undirstöðunámskeið í heim-
speki.
VIÐ nám í Listaháskóla Íslands er
lögð höfuðáhersla á sköpun og miðl-
un. Skólinn sinnir æðri menntun á
sviði listgreina og býður upp á nám
til fyrstu háskólagráðu í fjórum
deildum; leiklistardeild, myndlistar-
deild, hönnunar-
deild og tónlist-
ardeild. Við
skólann er sér-
fræðibókasafn og upplýsingaþjón-
usta sem tengjast þeim fræðum sem
stunduð eru innan skólans.
Skólinn rekur nemendaleikhús,
gallerí og ýmis verkstæði sem opin
eru öllum nemendum. Að kennslu
við skólann koma bæði innlendir og
erlendir listamenn og listfræðingar
auk fagfólks með tækni- og verk-
þekkingu á ýmsum sviðum.
Skólinn á í samstarfi við fjölmarga
erlenda listaháskóla, fjöldi erlendra
gestakennara sækir skólann heim og
veitir nemendum innsýn í alþjóðlega
strauma í listum, auk þess gefast
tækifæri til nemendaskipta við sam-
skiptaskóla Listaháskóla Íslands um
alla Evrópu.
Innan skólans er rekin sérstök
stofnun, Opni listaháskólinn, þar
sem í boði eru fagnámskeið fyrir
listamenn og áhugafólk um listir.
Myndlistardeild
Við myndlistardeild er gefinn
kostur á þriggja ára myndlistarnámi
Á þriðja ári er áhersla lögð á að
útfæra það sem nemandinn hefur
lært fyrstu tvö árin. Leiktúlkunar-
vinna með leikstjórum er í brenni-
depli.
Á fjórða ári felst námið í þátttöku í
nemendaleikhúsi. Þar eru sett upp
þrjú verkefni undir stjórn atvinnu-
leikstjóra. Haustið 2001 hefja 8 nem-
endur nám í leiklistardeild. Umsókn-
arfrestur rann út 26. febrúar sl.
Hönnunardeild
Í hönnunardeild er lögð áhersla á
að kenna hönnun sem sérstaka
aðferðafræði til að bregðast við
þörfum og viðfangsefnum á frjóan
og gagnrýninn hátt. Jafnframt á
nemandinn að öðlast haldgóða
þekkingu á tækni, reglum og miðl-
um. Þar reynir á skipulagshæfileika,
listrænt innsæi og að nemandinn
hafi yfirsýn yfir ólík fagsvið og að-
ferðir.
Nám við deildina fer fram á mis-
munandi brautum sem nemendur
þurfa að velja á milli strax í umsókn
um námið: grafísk hönnun, sem síðar
skiptist í hönnun fyrir skjámiðla og
hönnun fyrir prentmiðla, og vöru-
hönnun sem skiptist í þrívíða hönnun
annars vegar og textíl-og fatahönn-
un hins vegar. Kennsla í bygging-
arlist/arkitektúr er í undirbúningi.
Umsóknarfrestur í hönnun er til
10. apríl nk.
Tónlistardeild
Tónlistardeild verður stofnuð við
Listaháskóla Íslands næsta haust. Í
upphafi verður boðið upp á nám til
fyrstu háskólagráðu í hljóðfæraleik,
söng og í tónfræði/tónsmíðum. Sér-
stök áhersla verður lögð á að skerpa
sköpunargáfu nemandans og virkja
hann til sjálfstæðrar vinnu í list
sinni.
Jafnframt er stefnt að þróun
kennslu á sviði nýrra miðla og þeim
möguleikum sem skapast með teng-
ingum þeirra við aðrar listgreinar.
Um er að ræða þriggja ára nám til 90
eininga sem lýkur með lokaverkefni
og ritgerð. Miðað er við að 25–30
nemendur fái inngöngu á fyrsta ár í
deildinni í haust. Umsóknarfrestur
verður auglýstur síðar.
Tónlistarskólinn í Reykjavík mun
verða í sama rými og Listaháskólinn
í Odda og kynna tónmenntakennara-
deildina sína.
Vefslóð Listaháskóla Íslands er
www.lhi.is.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Útskriftarárgangur leiklistardeildar Listaháskóla Íslands, ásamt leik-
stjóranum Ingólfi Níels Árnasyni, sýnir verkið Stræti þessa dagana.
Höfuðáhersla á sköpun og miðlun
TÆKNISKÓLI Íslands er faghá-
skóli á sviði tækni, reksturs og heil-
brigðisgreina auk þess sem boðið er
sérhæft aðfararnám. Skólinn hefur
frá upphafi lagt áherslu á starfs-
menntun á háskólastigi. TÍ er í bein-
um tengslum við atvinnulífið og hafa
nemendur unnið verkefni í samvinnu
við fyrirtæki eða stofnanir og fulltrú-
ar atvinnulífsins komið sífellt meira
að uppbyggingu einstakra áfanga í
tilteknum deildum.
Tækniskóli Íslands er háskóli at-
vinnulífsins. Námsframboðið hefur
aukist með tímanum og auk tækni-
fræði er boðið upp á nám í iðnfræði,
meinatækni, röntgentækni, iðn-
rekstrarfræði, alþjóðamarkaðsfræði
og vörustjórnun auk aðfarar-
náms í frumgreinadeild.
Tæknifræði er hagnýtt 7
anna nám og lýkur með B.Sc.-
gráðu. Þar er áhersla lögð á
þarfir atvinnulífsins og þjóð-
félagsins fyrir tæknimenntað
starfsfólk.
Upplýsingatæknifræði
Nýjasta námsbrautin er upplýs-
ingatæknifræði en auk hennar er um
að ræða bygginga-, iðnaðar-, raf-
magns-, orku- og véltæknifræði.
María Dís Ásgeirsdóttir er nemandi á
fyrsta ári í upplýsingatæknifræði en
hún hafði áður lokið frumgreinadeild
við skólann. Upplýsingatæknifræðin
hófst haustið 1999 við skólann og er
þverfaglegt nám. Til að lýsa breidd-
inni í náminu segir María að nem-
endur læri að hanna rafeindatæki,
forrita það og að markaðssetja það.
„Námið er þrjú og hálft ár,“ segir
María og við verðum fullgildir tækni-
fræðingar eftir það, fyrsta árið erum
við t.d. alfarið í rafmagnstækni-
fræði.“ Námið er að hennar mati afar
hagnýtt og mikil þörf fyrir upplýs-
ingatæknifræðinga í atvinnulífinu.
Konur hafa undanfarin misseri
verið hvattar til að leggja stund á
tækninám, m.a. af Orkuveitu Reykja-
víkur. Konur hafa nokkuð sótt í upp-
lýsingatæknifræðin og eru um 20 í
náminu. María segist sjálf hafa farið í
framhaldsskólana til að kynna námið
og hvetja stelpur til að fara í Tækni-
skólann.
Áhersla á
starfsmenntun
á háskólastigi
Morgunblaðið/Þorkell
María Dís Ásgeirsdóttir er í upp-
lýsingatæknifræði.
Hún segir námið mjög gef-
andi. Hún nefnir sem dæmi
eins konar fjölfræðiáfanga.
Þar er verið að búa til veðurat-
hugunarstöð, örgjafa hennar,
koma henni í PC-tölvu og loks
á Netið.
María hefur áhuga á skapandi
vinnu eftir námið. „Mig langar til að
vinna hjá fjarskiptafyrirtæki við að
hanna nýjungar,“ segir hún.
Margir möguleikar
Af öðrum námsleiðum í TÍ má
nefna iðnfræði sem er þriggja anna
nám að loknu iðnnámi og prófi úr
undirbúningsdeild Tækniskólans.
Prófgráðan er iðnfræðingur, ýmist í
bygginga-, raf- eða véliðnfræði.
Meinatækni og röntgentækni
(verður geislafræði) er 8 anna nám og
lýkur með B.Sc.-gráðu. Töluverður
hluti námsins er verklegur og fer
fram á rannsóknarstofum, sjúkrahús-
um og öðrum stofnunum.
Iðnrekstrarfræði er 4 anna hag-
nýtt rekstrarnám og síðan er hægt að
bæta við tveggja anna námi í alþjóða-
markaðsfræði eða vörustjórnun og
ljúka þá náminu með B.Sc.-próf-
gráðu.
Aðfararnám í frumgreinadeild get-
ur tekið ýmist 2 eða 4 annir háð því
framhaldsnámi sem viðkomandi
stefnir á. Frumgreinadeild lýkur með
raungreinadeildarprófi sem jafngild-
ir stúdentsprófi af raungreinabraut-
um.