Morgunblaðið - 29.03.2001, Síða 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 41
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
- ANNO 1929 -
K
O
R
T
E
R
ÞEGAR ég las grein
Sifjar Konráðsdóttur
réttargæslumanns
brotaþola í máli því
sem ég gerði að um-
talsefni í grein minni í
blaðinu hinn 22. mars
sl. kom mér ekki á
óvart að reynt yrði að
koma umræðunni í
annan farveg. Réttar-
gæslumaðurinn lætur
vera að fjalla um aðal-
atriði málsins heldur
fer þá leið að segja að
margt í grein minni
hafi verið rangt og efni
hennar hennar hafi
verið fullyrðingar og
dylgjur um störf hennar sem rétt-
argæslumanns stúlkunnar.
En hvað er rangt í grein minni? Er
það rangt að neitað hafi verið að
koma með stúlkuna fyrir dóm þrátt
fyrir niðurstöðu Hæstaréttar og án
þess að foreldrar eða forráðamenn
stúlkunnar hefðu kannað aðstæður
þar? Er það rangt að sú ákvörðun
hafi verið tekin að frumkvæði og
samkvæmt ráðum ann-
arra en foreldra eða
forráðamanna barns-
ins? Það er ekkert af
þessu rangt. Þetta eru
staðreyndir málsins.
Það stendur hins vegar
eftir ósvarað hvers
vegna neitað var að
koma með stúlkuna
fyrir dóm og þar með
hugsanlega fórnað mik-
ilvægum hagsmunum
hennar. Voru aðrir
hagsmunir meiri og þá
hverjir?
Hafi ekki verið aðrir
og meiri hagsmunir í
húfi fyrir stúlkuna er
varla hægt með góðu móti að draga
aðra ályktun en þá að ákveðnum
hagsmunum stúlkunnar hafi verið
fórnað í pólitískum tilgangi. Það var
síðan sorglegt að sjá hvernig fólk,
sem staðið hefur framarlega í póli-
tískri baráttu fyrir því að skýrslu-
tökur af börnum fyrir dómi fari fram
í Barnahúsi, notaði dóm þennan, sem
ekki gat farið efnislega á annan veg,
og hélt því fram fullum fetum að
brotið hefði verið á réttindum stúlk-
unnar og jafnvel að annarleg sjón-
armið dómara hefðu ráðið niðurstöð-
unni.
Að lokum til að létta á áhyggjum
réttargæslumannsins og vegna þess
að honum varð tíðrætt um dylgjur í
fyrri grein minni get ég upplýst hann
um að eina sem ég hef fengið frá
Héraðsdómi Reykjavíkur um mál
þetta er endurrit af dóminum sjálf-
um sem allir geta fengið.
Með grein þessari hyggst ég jafn-
framt láta lokið umfjöllun minni um
þetta einstaka mál, a.m.k. á síðum
dagblaða.
Hagsmunir barna
sem brotaþola
Brynjar
Níelsson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Dómur
Því er ósvarað hvers
vegna neitað var að
koma með stúlkuna
fyrir dóm, segir
Brynjar Níelsson, og
þar með hugsanlega
fórnað mikilvægum
hagsmunum hennar.
TALSVERT hefur
verið fjallað um staf-
rænt sjónvarp í fjöl-
miðlum undanfarið. Að
því tilefni er ætlunin að
fjalla í tveimur stuttum
greinum um þá þjón-
ustu sem býðst í staf-
rænu sjónvarpi og þá
þróun sem nú er að eiga
sér stað í nágranna-
löndum okkar á þessu
sviði.
Stafræn útsending
er grunnur að ótelj-
andi möguleikum
Í grófum dráttum
má skipta hugtakinu
stafrænu (digital) sjónvarpi í þrennt
þar sem það nær yfir afar ólíka notk-
unarmöguleika. Í fyrsta lagi ber að
nefna stafræna útsendingu á sjón-
varpsefni sem er ekki gagnvirk. Í
öðru lagi er um að ræða stafræna út-
sendingu með bakaleið og í þriðja lagi
á hugtakið við stafræna einkarás með
bakaleið. Bæði stafræn útsending
með bakaleið og stafræn einkarás
teljast vera stafrænt gagnvirkt sjón-
varp þar sem notendur geta með
bakaleiðinni stýrt þeirri þjónustu
sem þeir þiggja.
Grunnurinn að því að geta boðið
hundruð sjónvarpsrása, að geta leigt
kvikmyndir, hlustað á tónlist að vild,
geta spilað sjónvarpsleiki við aðra
sjónvarpsnotendur og vafrað um Int-
ernetið svo eitthvað sé nefnt, er að út-
sendingar sjónvarps verði stafrænar.
Eins og kunnugt er ekkert fyrir-
tæki að bjóða íslenskum notendum
stafrænt sjónvarp nú og eru allar
sjónvarpsstöðvarnar sendar út hlið-
rænt (analogue). En til að hægt sé að
bjóða gagnvirkt sjónvarp þarf að
byggja upp stafrænt dreifikerfi sem
getur verið hvort heldur þráðlaust
eða gegnum leiðara, t.d. ljósleiðara.
Enn fremur þurfa notendur að fá sér-
stakan endabúnað sem tengist sjón-
varpstækinu til að geta tekið á móti
útsendingum stafræns sjónvarps og
horft á það á núverandi hliðrænum
sjónvarpstækjum.
Stafrænt sjónvarp er ekki það
sama og gagnvirkt sjónvarp
Stafræn útsending þarf ekki að
vera gagnvirk. Í sinni einföldustu
mynd verða engar breytingar á notk-
unarmöguleikum þar sem allt staf-
rænt sjónvarp býður ekki upp á
gagnvirkni. Stafræn útsending býður
hinsvegar upp á meiri nýtingu á tíðni-
sviði sem þýðir fleiri sjónvarpsstöðv-
ar fyrir notendur. Þar sem tíðnisvið í
lofti er takmörkuð auðlind er hægt að
fjölga sjónvarpsstöðvum og senda út
4–8 stafrænar sjónvarpsrásir fyrir
hverja hliðræna rás sem send er út í
dag. Þar sem skortur er nú á tíðni
fyrir sjónvarpsútsendingar í lofti
skapar stafræn útsending því mögu-
leika á fleiri sjónvarpsrásum. Þannig
geta ný fyrirtæki komist inn á mark-
aðinn og þær sjónvarpsstöðvar sem
nú dreifa sjónvarpsefni hafa mögu-
leika á að fjölga sjónvarpsrásum.
Notendur stafræns sjónvarps í ein-
földustu mynd geta því fengið aðgang
að fleiri sjónarpsstöðvum.
Stafræn útsending
með bakaleið
Þar sem mikill kostnaður fylgir því
að byggja upp stafræn dreifikerfi auk
þess sem kostnaður fylgir endabún-
aði notenda hefur áhersla verið lögð á
stafrænt gagnvirkt sjónvarp sem
býður upp á mun meiri möguleika en
aðeins fjölgun sjónvarpsrása. Í gróf-
um dráttum má segja að stafrænu
gagnvirku sjónvarpi megi skipta í
tvennt. Annars vegar er um að ræða
stafræna útsendingu með bakaleið og
hinsvegar stafræna einkarás með
bakaleið. Stafræn útsending getur
t.d. verið DVB-T („Digital Video
Broadcast-Terrestrial“) eða gervi-
hnattasendingar. Endabúnaðurinn
gerir notendum kleift að velja úr því
efni sem í boði er og er bakaleiðin er
venjulega annaðhvort í gegnum síma
eða kapal. Einnig má nefna þráðlaust
símasamband, t.d. GSM sem hugsan-
lega bakaleið.
Stafræn útsending býður upp á
mikinn fjölda sjónvarpsrása þar sem
notendur geta valið að horfa á það
efni sem þar er í boði. Með því að
nýta sér bakaleiðina getur þjónustu-
fyrirtæki stóraukið þjónustu sína
með því að t.d. selja aðgang að kvik-
myndum sem sýndar eru á ákveðnum
tímum á sérstökum kvikmyndarás-
um, bjóða bankaþjónustu í sjónvarpi,
auk þess sem hægt er að bjóða ýmiss
konar leiki, íþróttaútsendingar þar
sem áhorfendur velja sjónarhorn og
margt fleira. En þar sem slík stafræn
útsending er háð takmörkuðu tíðni-
sviði er um að ræða takmarkað fram-
boð á efni.
Stafræn einkarás
með bakaleið
Stafræn einkarás er frábrugðin
stafrænni útsendingu að því leyti að
fjarskiptaleiðir eins og ljósleiðari,
xDSL (tækni sem eykur bandbreidd
á símavírnum) og kapall bjóða upp á
það mikla bandbreidd til hvers not-
anda að hann getur valið klæðskera-
sniðna sjónvarpsdagskrá fyrir sig.
Framboð á efni er því ekki háð
ákveðnu tíðnisviði heldur flutnings-
getu fjarskiptaleiðarinnar. Munurinn
er því sá að notendur geta valið sér
sjónvarpsefni, svo sem kvikmyndir,
sjónvarpsþætti, leiki eða tónlistar-
myndbönd af miðlara á rauntíma og
má því í raun tala um rafræna mynd-
banda-, tónlistar- og leikjaleigu sem
getur hýst gríðarlegt magn af efni.
Slík rafræn leiga gefur áhorfendum
kost á að greiða aðeins fyrir það efni
sem þeir vilja horfa á. Sjónvarpsnot-
endur geta því sjálfir valið og stýrt á
hvað þeir horfa og hvenær. Sjón-
varpsefnið er aðgengilegt notendum í
ákveðinn tíma og hafa þeir innan
þess tíma fulla stjórn á efninu. Not-
endur geta því spólað fram og til-
baka, sett í bið eða stöðvað mynd-
efnið.
Þar sem sjónvarpsmiðlun sem
þessi er ekki háð tíðnitakmörkunum
er möguleikt að veita ýmiss konar
sérhæft efni sem ekki höfðar til
fjöldans, s.s. fræðslu- og kennsluefni
eða sjónvarpsrásir og kvikmyndir frá
ólíkum menningarsvæðum.
Í næstu grein verður fjallað um
þróun í stafrænu sjónvarpi í ná-
grannalöndum okkar en í erlendum
fjölmiðlum hefur verið talað um
gagnvirkt sjónvarp sem næstu
tæknibyltingu Evrópu þar sem Evr-
ópuþjóðir munu verða leiðandi í þró-
uninni.
Stafrænt gagn-
virkt sjón-
varp og nýir
möguleikar I
Davíð
Gunnarsson
Sjónvarp
Bæði stafræn útsending
með bakaleið og stafræn
einkarás teljast vera
stafrænt gagnvirkt
sjónvarp, segja
Elfa Ýr Gylfadóttir og
Davíð Gunnarsson,
þar sem notendur geta
með bakaleiðinni
stýrt þeirri þjónustu
sem þeir þiggja.
Elfa Ýr er yfirmaður
viðskiptamótunar og
Davíð er tæknistjóri hjá GMi Digital.
Elfa Ýr
Gylfadóttir
þurft að grípa til ráðstafana í sam-
keppnismálum sem ganga gegn
hagsmunum neytenda. Vissulega
fara áherslur þó oft saman.
Að efla Neytendasamtökin
Ljóst er að neytendasvið Sam-
keppnistofnunar verður flutt yfir til
umboðsmanns neytenda verði farið
að tillögum Neytendasamtakanna.
Embætti umboðsmanns neytenda
verður því ekki dýrt fyrir samfélag-
ið. Það myndi hins vegar styrkja
stöðu neytenda verulega og um leið
allt atvinnulífið.
Þótt Neytendasamtökin séu
byggð upp sem áhugamannasamtök,
eins og Sigurður bendir á í grein
sinni, hafa þau byggt upp faglega og
öfluga þjónustu við félagsmenn sína
og raunar alla neytendur. Þetta hef-
ur tekist vegna þess hve stór hluti
neytenda hefur séð ástæðu til þess
að vera félagsmenn í samtökunum,
enda eru þau hlutfallslega fjölmenn-
ustu neytendasamtök í heimi ásamt
systursamtökum sínum í Hollandi.
Það hljómar ekki illa en sá hængur
er þó á að Íslendingar eru fámenn
þjóð og þótt Neytendasamtökin séu
fjölmenn miðað við íbúafjölda vantar
enn verulega uppá að þau séu nægi-
lega fjölmenn til þess að geta aðstoð-
að neytendur sem skyldi og talað
máli þeirra af nægilegum krafti.
Starfið byggist nefnilega að mestu
á félagsgjöldum almennra neytenda
og þau eflast því með hverjum nýjum
félagsmanni. Til upplýsingar má
geta þess að árgjaldið er aðeins 2.950
krónur en fyrir þá upphæð fá félags-
menn margvíslega þjónustu sem
öðrum stendur ekki til boða án end-
urgjalds. Má þar til dæmis nefna að-
gang að leiðbeininga- og kvörtunar-
þjónustunni, Neytendablaðið,
aðgang að niðurstöðum margvís-
legra kannana og margt fleira.
Neytendamál
Ég get tekið undir það
með Sigurði Jónssyni,
segir Jóhannes
Gunnarsson, að leið-
beininga- og kvört-
unarþjónusta er að
mörgu leyti í ágætum
farvegi hér á landi
þótt talsvert vanti enn
uppá að stjórnvöld við-
urkenni fjárhagslega
ábyrgð sína á rekstri
þjónustunnar.
Höfundur er formaður
Neytendasamtakanna.
FRÁBÆRAR SNYRTIVÖRUR
Handsnyrtivörur frá = og Depend.
Augabrúnaliturinn í bláu pökkunum frá Tana.
Vax- og hitatæki til háreyðingar, háreyðingarkrem,
vaxstrimlar og svitalyktareyðir frá
Frábært verð og frábær árangur.