Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 61
DAGBÓK
Allir tímar að verða
upppantaðir
Gerðu verðsamanburð. Innifalið í myndatökunni. 12
stækkanir 13x18 cm, 2 stækkanir 20x25 cm
og ein stækkun 30x40 cm í ramma.
Ljósmyndastofan Mynd sími 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020.
Við erum í F.Í.F.L.
TRYGGÐU
BARNINU ÞÍNU
ÞÆGINDI
I Í
2001
w w w.
o
o
. i
s
LJÓÐABROT
SÁLARSKIPIÐ
Sálarskip mitt fer hallt á hlið
og hrekur til skaðsemdanna,
af því það gengur illa við
andviðri freistinganna.
Sérhverjum undan sjó eg slæ,
svo að hann ekki fylli,
en á hléborðið illa ræ,
áttina tæpast grilli.
Ónýtan knörrinn upp á snýst,
aldan þá kinnung skellir,
örvæntingar því ólgan víst
inn sér um miðskip hellir...
Sýnist mér fyrir handan haf
hátignarskær og fagur
brotnuðum sorgar öldum af
upp renna vonar dagur.
Bólu-Hjálmar.
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
HRÚTUR
Þú kannt ekki að segja
nei og því sitja eigin mál
oft á hakanum. Þessu
þarft þú að breyta.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú átt að leggja þitt af mörk-
um til málamiðlunar. Hlust-
aðu á það sem aðrir hafa fram
að færa og mundu að það er
enginn sem vill eyðileggja þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú er rétti tíminn til að hrinda
því í verk, sem þú hefur lengi
beðið með. Vertu hvergi
smeykur því áætlanir þínar
ganga í augun á yfirboðurun-
um.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Gefðu gaum að orðum þínum,
því þau hafa mikla þýðingu og
geta skorið úr um það, hvort
þú nærð árangri eða ekki.
Galdurinn er að tala skýrt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Freistingarnar eru ekki til
þess að falla fyrir þeim; það er
bara afsökun þeirra, sem veik-
ir eru á svellinu. En þú getur
léttilega varizt þeim.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er einhver, sem vill um-
fram allt hafa undirtökin í
sambandinu við þig. Láttu það
ekki gerast, heldur stattu
ákveðinn á þínu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Eitthvað sem virzt hefur í
fjarlægð kemur skyndilega
inn á þitt borð og þú þarft að
beita öllum þínum hæfileikum
til þess að komast óskaddaður
frá þessum hlut.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Leyfðu listinni að blómstra og
gefðu henni meiri tíma en þú
hefur gert til þessa. Það hjálp-
ar þér á öllum sviðum þegar
þú leyfir sköpunargleðinni að
njóta sín.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur málstað að verja sem
þér er kær svo þú verður að
standa af þér allar ásakanir
jafnvel þótt grófar séu. En
þinn tími mun koma.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Láttu ekki fjötra þig í viðjar
úreltra skoðana heldur vertu
óhræddur að skoða málin upp
á nýtt og mynda þér skoðanir í
samræmi við það.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt þér virðist fæst ganga
þér í haginn þá er engin
ástæða til þess að láta hugfall-
ast því skjótt skipast veður í
lofti og þrátt fyrir allt skaltu
líta á björtu hliðarnar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú verður náttúrulega að sýna
einhvern árangur til þess að fá
frið í starfi þínu. En þetta á
ekki að vera þér erfitt ef þú
bara nennir að leggja eitthvað
á þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er sjálfsagt fyrir þig að
leika ráðgjafann í fjármálum
sem öðrum málum og þá ætti
mest öryggi að vera fólgið í því
að leita til fagmanna. Gamall
vinur birtist óvænt.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÚTSPILIN geta stundum
verið nánast skoplega af-
drifarík. Hér er gott dæmi
um þessa vandræðalegu hlið
spilsins frá HM 1983, úr við-
ureign Bandaríkjamanna og
Ný-Sjálendinga.
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ 8764
♥ Á103
♦ 10984
♣ K5
Vestur Austur
♠ KG52 ♠ ÁD103
♥ DG964 ♥ 872
♦ ÁG ♦ –
♣ Á10 ♣ DG9873
Suður
♠ 9
♥ K5
♦ KD76532
♣ 642
Opinn salur:
Vestur Norður Austur Suður
-- Pass Pass 3 tíglar
Dobl 3 grönd 4 tíglar * 5 tíglar
Dobl Allir pass
Lokaður salur:
Vestur Norður Austur Suður
-- Pass Pass 4 tíglar
Dobl Allir pass
Um sagnir mætti hafa
mörg orð og ekki öll falleg. Í
opna salnum reynir norður
að grugga vatnið með
þriggja granda sögn, sem
allir vita að ekkert er á bak
við. Betra hefði verið að
hækka í fjóra tígla. Eins er
vafasamt að suður hafi
nokkur efni á því að hækka í
fimm tígla.
Dobl vesturs á fjórum
tíglum í lokaða salnum hefur
greinilega verið til sektar,
því annars hefði austur ekki
passað. Þetta er aðferð sem
fáir nota nú til dags.
En nóg um sagnir. Banda-
ríkjamaðurinn Jim Jacoby
átti út í opna salnum gegn
fimm tíglum dobluðum og
valdi hjartadrottninguna.
Ekki er hægt að setja út á
það val, en óheppinn var
hann. Sagnhafi drap heima,
svínaði hjartatíu og henti
spaða niður í hjartaás. Fór
svo í trompið og gaf aðeins
tvo slagi á láglitaásnana.
Unnið spil.
Í lokaða salnum kom vest-
ur út með laufás og hélt
áfram með litinn í öðrum
slag. Sagnhafi trompaði út,
en vestur drap á ásinn, spil-
aði makker inn á spaða og
fékk lauf til baka og fjórða
slag varnarinnar á tígul-
gosa. Einn niður. Góð vörn,
en sagnhafi hefði kannski
átt að gera betur. Hvernig
þá?
Áður en hann spilaði
trompi gat hann klippt á
spaðasamganginn með því
að spila hjarta þrisvar og
henda spaða í hjartatíuna!!
Frábært skærabragð.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STAÐAN kom upp í ann-
arri deild Íslandsmóts skák-
félaga. Eftir að hafa ekki
teflt í nokkur ár hefur Ing-
var Þór Jóhannesson (1935)
heldur betur brett upp erm-
arnar og teflt sem aldrei
sem fyrr. Skákstíllinn er
orðinn fjörugri og kraft-
meiri enda mega nú
reynslumiklir meistarar
fara að vara sig þegar hann
fær tækifæri til að mæta
þeim. Ingvar hafði
hvítt gegn félaga
sínum frá Akur-
eyri, Halldóri B.
Halldórssyni
(1910). 26. Bb7! og
svartur gafst upp
enda verður hann
mát eftir 26...
Dxb7 27. Dd8#.
Skákin tefldist í
heild sinni: e4 c5
2. b3 Rc6 3. Bb2
d5 4. exd5 Dxd5 5.
Rc3 Dd8 6. Rf3
Rf6 7. Bb5 Bd7 8.
O-O e6 9. d4 a6 10.
Be2 cxd4 11. Rxd4
Bc5 12. Ra4 Ba7 13. Rxc6
Bxc6 14. Bf3 Bxa4 15. bxa4
Dc7 16. Hb1 Hd8 17. De2
Rd5 18. Be5 Dc5 19. Bxg7
Hg8 20. Be5 Hd7 21. Hfd1
b6 22. c4 Re7 23. Hxd7
Kxd7 24. Hd1+ Ke8 25.
Dd3 Dc8.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla Hlutavelta
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. febrúar sl. í Ár-
bæjarkirkju af sr. Þór
Haukssyni Guðrún Helga
Kristjánsdóttir og Páll Mar-
el Sigþórsson.
Þessar duglegu stelpur héldu tombólu til styrktar
Rauða krossi Íslands og söfnuðu 5.105 kr. Þær eru f.v.:
Dagný Kristjánsdóttir, Jóna Lillý Gísladóttir og Emma
Ósk Magnúsdóttir, allar búsettar í Mýrdal.
Undanúrslit Íslands-
mótsins í sveitakeppni
um helgina
Um helgina spila 40 sveitir víðs
vegar að af landinu um 10 sæti í úr-
slitunum sem verða spiluð um
páskana að venju.
Fyrirliðar eru hvattir til að mæta
stundvíslega kl. 14:00 á fyrirliða-
fundinn.
Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar
Eiríksson.
Dagskrá:
Fyrirliðafundur föstudaginn 30.
mars kl. 14.00.
1. umferð föstudaginn 30. mars kl.
15.00–16.30 og kl. 16.50–18.20.
2. umferð föstudaginn 30. mars kl.
19.30–21.00 og kl. 21.20–22.50.
3. umferð laugardaginn 31. mars
kl. 11.00–12.30 og kl. 12.50–14.20.
4. umferð laugardaginn 31. mars
kl. 14.50–16.20 og kl. 16.40–18.10.
5. umferð laugardaginn 31. mars
kl. 19.30–21.00 og kl. 21.20–22.50.
6. umferð sunnudaginn 1. apríl kl.
10.30–12.00 og kl. 12.20–13.50.
7. umferð sunnudaginn 1. apríl kl.
14.15 –15:45 og kl. 16.05–17.35.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Sveit Vina er meðal þátttakenda í undanúrslitum Íslandsmótsins sem
hefst í húsi Bridssambandsins nk. föstudag. Sveitin er skipuð kunn-
uglegum andlitum úr bridsheiminum hér syðra. Talið frá vinstri: Árni
Már Björnsson, Leifur Kristjánsson, Heimir Þór Tryggvason, Anna G.
Nielsen, Guðlaugur Nielsen og Gísli Tryggvason.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Bridsfélag Suðurnesja
Mánudaginn 26. mars lauk minn-
ingarmóti um Guðmund Ingólfsson.
Spilaður var Butler og úrslit urðu
þessi:
Arnór Ragnarss. – Guðjón S. Jensen 159
Garðar Garðarss. – Óli Þ. Kjartanss. 154
Randver Ragnarss.
– Svala Pálsd. – Pétur Júliusson 154
Þórir Hrafnkels.
– Lilja Guðjónsd. – Sigurður Davíðss. 148
Gunnar Guðbjörnss.
– Elías Guðmundss. – Kolbeinn Páls. 148
Mánudaginn 2. apríl verður spil-
aður einmenningur. Hinn 9.
páskatvímenningur og laugardaginn
14. hið árlega Kaskómót sem er
hraðsveitakeppni.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Ekki fékkst nægileg þátttaka í
hraðsveitakeppni þegar til átti að
taka, en mánudaginn 26. mars var
þess í stað spilaður eins kvölds tví-
menningur.
Úrslit hans urðu þannig:
Friðþj. Einarsson – Halldór Þórólfsson 105
Njáll Sigurðsson – Guðni Ingvarsson 91
Atli Hjartarson – Sverrir Jónsson 90
Þórarinn Sófuss. – Gunnl. Óskarsson 89
Erla Sigurjónsdóttir – Sigfús Þórðarson 88
Næstu tvö mánudagskvöld verður
spilaður páskatvímenningur, þar
sem þrjú efstu pörin hljóta vegleg
páskaegg í verðlaun.
Með morgunkaffinu
Nei, ég sá ekki óhapp-
ið. Ég beygði mig nið-
ur til að laga skóinn.
Já, elskan...?