Morgunblaðið - 29.03.2001, Page 65
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 65
STÓRSÖNGVARINN Geir Ólafs-
son, eða Ice Blue eins og hann er
jafnan kallaður, hefur margsann-
að að hann er gæðablóð og má
ekkert aumt sjá. Það ætti því að
koma fáum á óvart að hann sé nú
með í farvatninu styrktartónleika
til handa krabbameinssjúkum
börnum. Kappinn söngelski er
líka þekktur fyrir allt annað en að
gera hlutina með hangandi haus.
Hann hefur kallað á nokkra af
vinum sínum úr söngbransanum
sem þurftu ekki að hugsa sig um
tvisvar þegar þeir heyrðu hver
málstaðurinn væri. Þeir sem ætla
að troða upp með Geir, og vit-
anlega gömlu góðu Furstunum,
eru þau Anna Sigríður Helgadótt-
ir, Daníel Ágúst Haraldsson,
Andrea Gylfadóttir og Páll Óskar.
Fríður og fjölbreyttur sönghópur
það.
Kominn tími til að gefa
„Við vildum einfaldlega láta
eitthvað gott af okkur leiða til
þessa ágæta málefnis og skemmta
okkur um leið,“ segir Geir að-
spurður um tildrög söngskemmt-
unarinnar í kvöld. „Ég fór nú
bara að hugsa; það er búið að
ganga ágætlega hjá manni í
bransanum og sífellt verið að
þiggja og þiggja. Því þótti mér
tími til kominn að þakka fyrir mig
– gefa eitthvað til baka og það
hyggst ég gera með því að halda
árlega styrktartónleika fyrir góð
málefni og tónleikarnir í kvöld
eru hinir fyrstu sem slíkir.“ Geir
segist ætíð hafa lagt sig fram, síð-
an hann byrjaði í bransanum, að
láta gott af sér leiða.
Allir til í tuskið
Þess þarf vart að geta að hinir
örlátu söngvarar sem fram koma í
kvöld gefa vinnu sína, sem og all-
ir aðrir er að skemmtuninni
koma. Geir segir það hafa verið
hið léttasta verk að safna saman
hæfileikafólki til að vera með:
„Það slógi allir til sem ég talaði
við og í þeirra huga kom ekki
annað til greina en að vera með
og framtakinu var almennt fagn-
að.“
Geir vildi sem minnst um ná-
kvæma atriði kvölddagskrárinnar
tjá sig og segir hana eiga að
koma fólki svolítið á óvart:
„Þess má þó geta að við munum
koma fram í sitt hvoru lagi. Daní-
el Ágúst ætlar t.d. að troða upp
einvörðungu studdur píanóleik
Jóns vinar síns Ólafssonar. Þannig
verður hvert okkar með sína dag-
skrá sem hlaðin er valinkunnum
sönglögum sem geta ekki annað
en hitt fólk beint í hjartastað.“
Einstök stemmning
Geir bendir enn fremur á að
söngvarinn heimskunni Harold
Burr, úr The Platters, ætli jafnvel
einnig að heiðra viðstadda með
nærveru sinni: „Eins og menn sjá
þá erum við að tala um einvalalið
listamanna sem mun koma fram,
listamenn sem ég hef ætíð haft
miklar mætur á og er mjög upp
með mér fá tækifæri til að vinna
með. Ég lofar stemmningu sem
engri er lík á Kaffi Reykjavík í
kvöld.“
Húsið opnar klukkan 21.00. Að-
gangseyrir er 1000 kr. og rennur
óskiptur í sjóð Styktarfélags
krabbameinssjúkra barna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hjartagóðir stórsöngvarar: Daníel Ágúst, Geir, Páll Óskar, Andrea og
Anna Sigríður.
Sungið fyr-
ir krabba-
meinssjúk
börn
Styrktartónleikar Geirs Ólafs og vina á Kaffi Reykjavík í kvöld