Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 66
Síðasta föstudag opnaði hópur
frá Listaháskóla Íslands sýningu í menn-
ingarmiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði.
Unnar Jónasson ræddi við meðlimi hópsins
um sýninguna og listina fyrir austan.
ÞAÐ ERU þau Baldur GeirBragasson, Lars Nilsson, El-ín Helena Evertsdóttir,
Gunnhildur Hauksdóttir, Arnfinnur
Amazeen, Sirra Sigrún Sigurðar-
dóttir, Michael Johansson, Pétur
Kristjánsson og Páll Banine sem
eiga verk á sýningunni og eru þau
flest nemendur frá Listaháskólan-
um. Björn Roth var leiðbeinandi og
veitti hópnum stuðning á tímum en
hafði einnig titilinn sýningarstjóri.
Sýningin er samvinnuverkefni
Listaháskóla Íslands, Skaftfells,
menningarmiðstöðvar Seyðisfjarðar
og Dieter Roth-Akademíunar. Diet-
er Roth-Akademían er einhvers kon-
ar orðrómur, n.k. skóli án húsnæðis.
„Hugmyndin er sú að nemandinn
verður sjálfur að nálgast kennarann
sem er eiginlega öfugt við það sem
maður á að venjast,“ segir Gunnhild-
ur. „Þegar nemandinn er búinn að
tala við alla kennarana í akademí-
unni útskrifast hann en okkur er
sagt að kennararnir séu alveg ótelj-
andi. Það eru vinir og samstarfs-
menn Dieters sem taka til sín alls
kyns fólk með það að markmiði að
kenna því í hans anda. Þetta er fólk
úti um allan heim. Björn Roth er
einn af kennurum akademíunnar en
þrátt fyrir það erum við samt ekki
formlega nemendur hennar.“
Seyðisfjörður
ein stór vinnustofa
Hópurinn kom til Seyðisfjarðar 10
dögum áður en sýningin opnaði og
setti sig inn í mannlífið og stemmn-
inguna í bænum.
„Þetta var algjört ævintýri, við
fórum að sigla á firðinum og sum
okkar skutu svartfugl sem við borð-
uðum svo saman. Ég sá hreindýr í
fyrsta skipti og svo kynntumst við al-
veg frábæru fólki,“ segir Elín Hel-
ena. Á þessum 10 dögum sem hóp-
urinn vann að sýningunni stóð þeim
til boða að ganga í fyrirtækin í bæn-
um eins og t.d. stálsmiðjuna og neta-
gerðina og fá aðstoð frá starfsmönn-
um þar. Þannig varð fólkið á
staðnum stór þátttakandi í verkinu.
„Það voru allir tilbúnir að hjálpa
okkur og vildu allt fyrir okkur gera.
Þetta var því ómetanlegt vinnuum-
hverfi, nokkuð sem maður er ekki
vanur þegar maður er að vinna t.d.
hérna í borginni. Flestir nýttu sér
aðstöðu þá sem í boði var og þannig
urðu verkin hluti af staðnum,“ segir
Sirra.
Hópurinn segir að hugmyndin að
sýningunni hafi þróast samhliða til-
urð hennar. Þau hafi ekki komið með
hana tilbúna í farteskinu. „Við kom-
um bara með það sem við vorum að
fást við og einhverjar hugmyndir í
kollinum og unnum út frá þeim á
staðnum eftir efnum og aðstæðum,
veðrum og vindum. Þannig var Seyð-
isfjörður vinnustofan okkar og
Skaftfell sýningaraðstaðan,“ segir
Arnfinnur.
Liðsmenn hópsins eru sammála
um að ferðin hafi reynst ágætis
reynsla á mörgum sviðum, t.a.m.
hvernig væri að
vinna einstaklings-
verkefni í stórum
hópi. Sum úr hópn-
um segjast jafnvel
hafa lært að tala og
hlusta upp á nýtt
því allt annar takt-
ur og aðferðir séu
notaðar í samskipt-
um í bæjarfélögum
eins og Seyðisfirði
en í Reykjavík.
Flottasti staður í
veröldinni
Opnunin tókst
ótrúlega vel og fjöldi fólks kom á
staðinn til að berja listaverkin aug-
um og spjalla við listamennina. Þar
lék líka þaulreyndur harmóníkuleik-
ari og nokkur pör dönsuðu gamla ís-
lenska dansa af miklum móð undir
leik hans.
Það kom hópnum á óvart hvað
áhorfendurnir voru ótrúlega for-
dómalausir og áhugasamir gagnvart
listaverkunum og þannig tilbúnir til
að njóta listarinnar. Þetta segir hóp-
urinn vera vegna þess að ótrúlega
sterk menningarhefð sé á Seyðisfirði
og það hafi komið sterkt í ljós þegar
sýning eins og þessi opnar við svo
góðar undirtektir.
„Menningarmiðstöðin Skaftfell er
líka mjög gott gallerí og með þeim
flottari á landinu,“ fullyrðir Baldur.
„Þar er fallegur salur og frábært
umhverfi. Þau sem standa að mið-
stöðinni hugsa stórt því verið er að
innrétta gestavinnustofur á efri hæð
hússins sem galleríið er í og þá er
komin alveg frábær aðstaða fyrir ut-
anaðkomandi gesti til að sýna þar.“
Allir úr hópnum voru sammála umað
þeim hafi verið tekið opnum örmum
hvort sem um hafi verið að ræða
listamenn frá Stokkhólmi, Þórsheimi
eða Reykjavík. Einnig fengu allir
frelsi til að finna það sem þeir voru
að leita að í bæjarfélaginu hvort sem
það var einhver innri stemmning eða
fjörugt mannlíf. Í tengslum við sýn-
inguna kemur út bók í 50 eintökum
sem er nokkurs konar bókverk um
ferlið sem átti sér stað í tengslum við
sýninguna. Í bókinni verða skissur,
teikningar og einnig fullt af hug-
myndum ásamt texta frá hópnum og
þeim sem stóðu að sýningunni. Hóp-
urinn segist vera búinn að kynnast
fullt af fólki og sum þeirra séu jafn-
vel að plana að fara aftur þangað í
sumar að vinna: „Seyðisfjörður er
nefnilega flottasti staður í veröld-
inni.“
Hópurinn hressi hvetur alla til að
skella sér á sýninguna í Skaftfelli á
Seyðisfirði en annars er líka hægt að
skoða sýninguna á alnetinu undir
http:// www.sfk.is/landrover.htm en
síðasti sýningardagur er 31. maí.
Skaftfell á færi
Alla og Óli á opnun sýningarinnar.
Áhugaverð hópsýning á Seyðisfirði
FÓLK Í FRÉTTUM
66 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sonne Rammstein
Butterfly Crazy Town
Road Trippin Red Hot Chili Peppers
Miss Jackson Outkast
Last Resort Papa Roach
Man Overboard Blink 182
Út á lífið Lydía Grétarsdóttir
Stuck In A Moment U2
Shiver Coldplay
Things I Have Seen Spooks
Survivor Destiny´s Child
Can’t Fight The Moonlight LeAnn Rimes
Lítill fugl 200.000 Naglbítar
Dagbókin mín 3 G ´S
Nobody Want’s To Be Lonely Christina Aguilera &
Ricky Martin
Stan Eminem & Dido
The Call Backstreet Boys
It Was’nt Me Shaggy
Gravel Pit Wu Tang Clan
I’m Like A Bird Nelly Turtado
Vikan 28.03. - 04.04
http://www.danol.is/stimorol
Nýr útsölustaður:
Snyrtivörudeild
Kringlunni
Spennandi opnunartilboð
frá 29. mars til 4. apríl.
Förðunarmeistari veitir ráðgjöf
- komdu í förðun.
Þú færð URBAN DECAY bol
þegar keypt er fyrir 3.500 kr*.
*Meðan birgðir endast
www.urbandecay.com