Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
Síðan 1972
múrvörur
Traustar
íslenskar
Leitið tilboða!
ELGO
Á MORGUN mun Tryggingastofn-
un ríkisins ljúka uppgjöri á
greiðslum til öryrkja vegna
breyttra almannatryggingalaga, en
löggjöfin breytti þeim viðmiðunar-
mörkum sem verið höfðu varðandi
tengingu á bótum öryrkja við
tekjur maka. Alls verða greiddar
1.300 milljónir til öryrkja, en þar
af fara 420 milljónir í skatta. Eftir
standa því um 880 milljónir.
Í gær var verið að ljúka frá-
gangi á greiðslunum. Ágúst Þór
Sigurðsson, framkvæmdastjóri líf-
eyristryggingasviðs Trygginga-
stofnunar, segir að mikil vinna
liggi að baki þessum útreikning-
um, en fletta hafi þurft upp gögn-
um fjögur ár aftur í tímann. Þessi
vinna hafi verið unnin meira og
minna handvirkt, en stofnunin hafi
lagt mikla áherslu á nákvæmni út-
reikninganna.
Hæsta greiðslan 1.500 þúsund
Ágúst Þór sagði að samkvæmt
bráðabirgðatölum fengju 3.960
hærri tekjutryggingu samkvæmt
nýju lögunum en þeir hefðu haft
samkvæmt gömlu lögunum. Hann
sagði að um væri að ræða tekju-
tryggingu, orlofsuppbót, desem-
beruppbót og vexti vegna tímabils-
ins 1. janúar 1997 til ársloka 2000.
Einhver hluti þessa hóps er látinn
og munu dánarbúin fá tilkynningu
núna um mánaðamótin um rétt
viðkomandi til bóta. Óskað verður
eftir að dánarbúin veiti upplýs-
ingar um á hvaða reikning hægt sé
að leggja fjárhæðina.
Ágúst sagði að mjög breytilegt
væri hvað hver og einn væri að fá
mikið. Meðalgreiðslan væri 328
þúsund brúttó (222 þúsund nettó),
en hæsta greiðsla sem hann vissi
um væri 1.500 þúsund.
Uppgjöri á tekjutryggingu 1997–2001 að ljúka
880 milljónir
nettó til öryrkja
VERÐ á papriku hefur frá því í
síðustu viku hækkað úr 400–500
krónum kílóið í 700–800 krónur.
Ástæður verðhækkunarinnar eru
tvíþættar, 30% verðtollur var lagð-
ur á ýmsar grænmetistegundir um
miðjan mánuðinn og innflytjendur
eru nú að kaupa inn papriku frá
Hollandi en þar er uppskerutíma-
bilið að hefjast og paprikan því
dýrari en þegar á tímabilið líður.
Íslensk paprika er ekki komin á
markað ennþá.
Kaupmenn segja neytendur mót-
mæla háu verði á papriku með því
að sniðganga vöruna.
Stórhækkun á papriku
Paprikuverð/18
ÍSLANDSPÓSTI barst
óvenjulegt bréf frá Ameríku
fyrir skömmu. Þegar bréfið,
sem stílað var á Íslandspóst,
var opnað kom í ljós að í því var
lítill poki sem innihélt ösku. Í
meðfylgjandi bréfi segir að í
pokanum sé að finna ösku lát-
innar konu, Veru Andersen að
nafni.
Vera hafi alla tíð þráð að
ferðast um heiminn en hafi
aldrei átt kost á því. Afkomend-
ur hennar hafi því ákveðið að
senda öskuna til Íslands og
biðja þeir Íslandspóst í bréfinu
vinsamlegast að dreifa öskunni
á fallegum stað á Íslandi, að
sögn Írisar Björnsdóttur,
deildarstjóra hjá Íslandspósti.
Ættingjar konunnar hafa
ekki haft frekara samband við
Íslandspóst, að hennar sögn.
„Við getum okkur þess til að
þeir hafi sent þetta víðar um
heiminn. Þetta er sannarlega
óvenjuleg sending en við lítum
ekki svo á að það sé verið að
gabba okkur. Við ætlum að
verða við þessari ósk og fara
með öskuna á einhvern fallegan
stað og dreifa henni þar,“ sagði
Íris.
Beðinn
að dreifa
ösku
látinnar
konu
Óvenjuleg sending
til Íslandspósts
KÁRI var í miklum ham við Vega-
mót á Snæfellsnesi í gær þar sem
þessi maður barðist gegn vindinum.
Fleiri staðir fengu að kenna á veð-
urofsanum og fóru bílar út af veg-
inum á Holtavörðuheiði og tepptu
umferð um hríð. Tveir jeppar rák-
ust saman í blindbyl skammt fyrir
ofan efstu brúna í Norðurárdal, á
leiðinni upp á heiðina, um kvöld-
matarleytið en engan sakaði.
Minni háttar snjóflóð féllu á vegi
í Súðavíkurhlíð og á Siglufjarð-
arveg en umferð komst þar aftur á
seinnipart dags þegar vegirnir
voru ruddir. Skafrenningur og
hálka var um allt vestan-, norðan-
og austanvert landið í gærkvöld en
lægja átti með kvöldinu og nóttinni.
Morgunblaðið/RAX
Barist
gegn
veður-
ofsanum
SAMNINGAR í kjaradeilu
ríkisins og Félags flugmála-
starfsmanna tókust um klukk-
an eitt í nótt hjá ríkissátta-
semjara.
Félagið hafði boðað verkfall
11. og 12. apríl n.k., en það
hefði stöðvað að mestu alla
flugstarfsemi í landinu. Samn-
ingurinn nær til 120 manns.
Þá var skrifað undir tvo
nýja kjarasamninga í húsa-
kynnum ríkissáttasemjara í
gær. Um miðjan dag gerðu
starfsmenn Stjórnarráðsins,
um 200 manns, samning við
ríkið og seint í gærkvöld
samdi Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar við ríkið
fyrir hönd um 230 starfs-
manna, aðallega á Landspít-
alanum í Fossvogi.
Samning-
ar tókust
í nótt
Flugmálastjórn