Morgunblaðið - 04.04.2001, Blaðsíða 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2001 23
Apotheker
SCHELLER
N A T U R K O S M E T I K
SUÐUR-KÓRESKA utanrík-
isráðuneytið mótmælti í gær
formlega samþykki japönsku
stjórnarinnar á kennslubókum í
sögu, og sagði þær innihalda
„rangfærslur“ um grimmdarverk
Japana á stríðstímum.
Í yfirlýsingu suður-kóreska ut-
anríkisráðuneytisins segir að þar-
lendum stjórnvöldum þyki „ákaf-
lega miður“ að Japanar skuli
hafa lagt blessun sína yfir þessar
umdeildu bækur, sem önnur ná-
grannaríki í Asíu hafa fordæmt
og sagt þær hvítþvo aðgerðir
Japana í seinni heimsstyrjöldinni.
Bækurnar eru ætlaðar fyrstu-
bekkingum í menntaskólum og
segir í yfirlýsingu Suður-Kóreu-
manna að bækurnar „innihaldi
enn réttlætingu og fegrun á fyrri
misgjörðum Japana, á forsendum
sjálfhverfrar túlkunar á sögunni“.
Ekki minnst á
kynlífsþrælkun
Suður-kóresk stjórnvöld kvarta
yfir því að í japönsku bókunum sé
ekki minnst á að japönsk yfirvöld
hafi hneppt asískar konur í kyn-
lífsþrælkun á stríðsárunum. Choo
Kyu-Ho, sá starfsmaður ráðuneyt-
isins sem sér um málefni er varða
Japan, sagði aftur á móti að það
væri of snemmt að segja að þetta
væri það eina sem athugavert
væri við bækurnar.
Suður-kóreska stjórnin kemur
saman til aukafundar í dag til
þess að ræða hvernig hægt sé að
bregðast við málinu, að sögn
Choo. Suður-kóreska fréttastofan
Yonhap sagði að stjórnin myndi
væntanlega hvetja Japana til að
endurskoða bækurnar, fresta
opnun markaða fyrir japanskar
menningarvörur eða kalla heim
sendiherra Suður-Kóreu í Tókýó.
Mótmæla kennslubókum
Reuters
Park Du-ri, 78 ára gömul suður-kóresk kona, við minnismerki um þján-
ingar kóreskra kvenna í síðari heimsstyrjöld. Park var ein þriggja
kvenna sem voru neyddar til að veita japönskum hermönnum kynlífs-
þjónustu og dæmdar voru bætur fyrir það í sögulegum dómi í fyrra.
Æðri dómstóll í Hiroshima hnekkti þessum dómi sl. fimmtudag. Skortur
á umfjöllun um kynlífsþrælkun kvenna í Asíulöndum sem hernumin
voru af Japönum í síðari heimsstyrjöld er meðal atriða í nýjum japönsk-
um skólabókum sem reitt hafa Kóreubúa til reiði.
Seoul. AFP.
ÁKVÖRÐUN Tony Blairs forsætis-
ráðherra um að fresta væntanlegum
kosningum í Bretlandi vegna gin- og
klaufaveikifaraldursins hefur vakið
margvísleg viðbrögð. Bændur fagna
frestuninni en ýmsir liðsmenn
Verkamannaflokksins, þ.á m. ráð-
herrar í ríkisstjórninni, voru ekki
hlynntir frestuninni. Bresk dagblöð,
sem eru á vinstri væng stjórnmála,
benda á það að dyggustu stuðnings-
mönnum flokksins finnist lítið til
ákvörðunarinnar koma auk þess sem
bent hefur verið á að Verkamanna-
flokkurinn sækir ekki fylgi sitt í
sveitir landsins. Íhaldsflokkurinn
hefur hins vegar gagnrýnt að kosn-
ingunum hafi ekki verið frestað um
óákveðinn tíma.
Margir ráðherrar í ríkisstjórn
Blair ráðlögðu honum að fresta ekki
sveitarstjórnarkosningunum til 7.
júní en talið er fullvíst að þá muni
þingkosningar einnig fara fram.
Þegar Blair tilkynnti um frest-
unina í fyrradag sagði hann að með
því að fresta kosningunum væri leit-
ast við að sameina hagsmuni þeirra
sem styðja ríkisstjórnina og þeirra
sem eru henni andvígir. Bændur
fögnuðu mjög ákvörðuninni en leið-
togar þeirra höfðu lýst yfir áhyggj-
um sínum af því að Blair gæti ekki
beitt sér að fullu í aðgerðum gegn
gin- og klaufaveiki ef kosningar
væru í nánd. Ben Gill, forseti bresku
bændasamtakanna, sagði í samtali
við breska ríkissútvarpið, BBC,
„lífsnauðsynlegt að ekkert truflaði
baráttuna gegn gin- og klaufaveiki“.
Skoðanakannanir sýna einnig að
meirihluti kjósenda er hlynntur
frestuninni. Í skoðanakönnun sem
The Guardian birti í gær styður
meirihluti aðspurðra frestunina,
einnig á meðal kjósenda Verka-
mannaflokksins. En margir sem
tengjast Verkamannaflokknum hafa
gagnrýnt frestunina og benda á að
þeir sem hún friðar tilheyri ekki
hefðbundnum stuðningshópi Verka-
mannaflokksins. „Eins og málin
standa núna þá munu þeir sem horn
hafa í síðu Blair ... segja að forsætis-
ráðherrann hafi enn einu sinni leiðst
af réttri braut vegna skorts á öryggi
eða vegna löngunar sinnar til að falla
í kramið,“ sagði í leiðara The Guard-
ian.
Fréttaskýrandi AFP bendir á að
samflokksmenn Blair líti þann eig-
inleika forsætisráðherrans að höfða
til breiðs hóps kjósenda ekki endi-
lega jákvæðum augum. Margir með-
limir flokksins séu lítt hrifnir af til-
burðum Blair til að höfða til
kjósenda úr röðum millistéttarinnar.
Sú stefna hafi löngum leitt til þess að
hefðbundnum markmiðum vinstri-
manna hafi verið kastað fyrir róða.
Íhaldsmenn, sem hafa verið ein-
dregnir fylgismenn frestunarinnar,
voru fljótir til að gagnrýna Blair fyr-
ir skort á stefnufestu.
Talsmenn ferðaþjónustunnar eru
hins vegar á öðru máli og segja frek-
ari frestun muni hafa enn neikvæð-
ari áhrif en orðið er.
Margvísleg viðbrögð við ákvörðun Blair
Bændur fagna
kosningafrestun
London. AFP, The Daily Telegraph.