Morgunblaðið - 24.04.2001, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 24.04.2001, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 51 Eftirfarandi starf hjá Vinnumálastofnun er laust til umsóknar: Starf afgreiðslufulltrúa hjá Svæðisvinnumiðlun Vesturlands á Akranesi Um er að ræða 100% starf sem felst m.a. í: ● Símsvörun ● Skráningu atvinnuleitenda ● Vinnslu og útborgun atvinnuleysisbóta ● ásamt öðrum verkefnum Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi góða tölvukunnáttu, sé áhugasamur og jákvæður í samskiptum og samvinnu. Laun eru samkvæmt kjarasamningum opin- berra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Umsóknarfrestur er til 8. maí 2001, öllum umsóknum verður svarað. Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsferil skal skila til: Vinnumálastofnunar, Heiðu Gestsdóttur, starfsmannastjóra, Hafnarhúsinu við Tryggva- götu, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Sigr. Gísladóttir, forstöðumaður í síma 430 5300 Vinnumálastofnun er þjónustustofnun sem starfar samkvæmt lögum nr. 13/1997 um vinnumarkaðsaðgerðir og fer með yfirstjórn vinnu- miðlunar í landinu. Á vegum stofnunarinnar starfa átta svæðisvinnu- miðlunarskrifstofur. Umdæmi Svæðisvinnumiðlunar Vesturlands er Vesturlandskjördæmi auk Reykhólahrepps í Austur-Barðastrandar- sýslu. Starfsmenn skrifstofunnar eru þrír (forstöðumaður, ráðgjafi og fulltrúi). Vinnustaðurinn er reyklaus. Frekari upplýsingar um Svæðisvinnumiðlun Vesturlands er að finna á heimasíðu: http:// vinnumalastofnun.is . Lausar stöður Framhaldsskólakennara vantar í eftirtalda kennslu: ● Enska (heil staða). ● Tölvufræði (heil staða). ● Læknaritun (stundakennsla). ● Félagsfræði (afleysing í heila stöðu). ● Lyfjafræði (heil staða). ● Stærðfræði (heil staða). ● Staða aðstoðarskólameistara. Staðan er veitt til fimm ára frá og með 1. ágúst næst- komandi. Umsókn skal stíla á skólameistara og skila á skrifstofu skólans, sem er opin kl. 8.00—15.00 eða senda í pósti. Heimilisfang skólans er Ár- múli 12, 108 Reykjavík. Ekki þarf að fylla út sér- stök umsóknareyðublöð, en umsókn skulu fylgja afrit prófskírteina og starfsferilsskrá. Öll- um umsóknum verður svarað skriflega. Um- sóknarfrestur er til 16. maí. Laun eru í samræmi við gildandi kjarasamninga. Nánari upplýsingar veitir skólameistari í síma 581 4022. Greinargóð lýsing á skólanum er á heimasíðu hans, www.fa.is . Fjölbrautaskólinn við Ármúla er kjarnaskóli í heilbrigðisgreinum og þróunarskóli í upplýsingatækni. Um 250 manns stunda nám á heilbrigðisbrautum en 500—550 á öðrum starfsmenntabrautum og bóknámsbrautum til stúdentsprófs. Frá og með haustinu verður meirihluti kennara með fartölvu við starf sitt og nemendum gefst kostur á að kaupa eða leigja slíkt tæki hjá Nýherja hf. eða öðrum seljendum. Skólinn tekur þátt í samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Gallups, Hinu gullna jafnvægi, en markmið þess er að auka sveigj- anleika í starfi og starfsánægju. Starfsmenn eru 70—80. Skólameistari. Rafhlöður Við erum fyrirtæki sem flytur inn allar stærðir og gerðir af rafhlöðum, mjög þekkt vörumerki. Við auglýsum eftir dreifingaraðila/umboðsaðila á Suðurlandi að og með Hornafirði og einnig á Vesturlandi. Áhugasamir sendi umsóknir til auglýsinga- deildar Mbl. fyrir 10. maí, merktar „Rafhlöður — 11140“. Hjúkrunarfræðingur heilsugæslu Laus er til umsóknar 70% staða hjúkrunarfræðings við heilsugæslustöð frá 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi. Launakjör samkvæmt kjarasamn- ingi hjúkrunarfræðinga. Allar nánari upplýsingar veita Kristjana Arnardótt- ir, hjúkrunarforstjóri, sími 455 4128 og Valgerður Guðmundsdóttir, hjúkrunarstjóri, sími 455 4110. Umsóknir skulu berast til Kristjönu Arnardóttur, Flúðabakka 2, 540 Blönduósi. Umsóknarfrestur er til 9. maí 2001. Aðstoðardeildarstjóri sjúkradeild II Laus er til umsóknar 50—70% staða aðstoðar- deildarstjóra á sjúkradeild II frá 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi. Launakjör samkvæmt kjara- samningi hjúkrunarfræðinga. Allar nánari upplýsingar veita Kristjana Arnardótt- ir, hjúkrunarforstjóri, sími 455 4128 og Vigdís Björnsdóttir, hjúkrunarstjóri, sími 455 4140. Um- sóknir skulu berast til Kristjönu Arnardóttur, Flúða- bakka 2, 540 Blönduósi. Umsóknarfrestur er til 9. maí 2001. Heilbrigðisstofnunin Blönduósi. Rafvirkjar — rafvirkjar Óskum eftir vönum rafvirkjum til fram- tíðarstarfa. Fjölbreytt verkefni. Traustur vinnuveitandi. Uppl. næstu daga í síma 894 1083, Eggert. Vantar þig áhugavert starf? Félags– og þjónustumiðstöðin, Bólstaðarhlíð 43, óskar eftir starfsfólki, 18 ára og eldra, til starfa við félagslega heimaþjónustu. Um er að ræða fastar stöður. Starfshlutfall eftir samkomulagi. Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur- borgar og Eflingar. Margvísleg reynsla kemur að notum. Við leitum að góðu fólki. Hringdu og fáðu nánari upplýsingar. Hlökkum til að heyra frá þér. Nánari upplýsingar veita: Anna Kristín Guð- mannsdóttir, deildarstjóri, og Ragnheiður Steinbjörnsdóttir, deildarstjóri, í síma 568 5052. Helga Jörgensen, deildarstjóri, og María Þórar- insdóttir í síma 568 6960. Sölumaður Lítil en ört vaxandi heildverslun með þekkt vörumerki óskar að ráða sölumann í heilsdags- starf. Hæfniskröfur: Reynsla af sölumennsku, þjón- ustulund, stundvísi og reglusemi. Aðeins er um framtíðarstarf að ræða. Vinsamlegast skilið inn umsóknum til auglýs- ingadeildar Mbl. fyrir föstudaginn 27. apríl merktar: „H — 2189“. Með allar umsóknir verð- ur farið sem trúnaðarmál. Sumarafleysingar 2001 Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa frá 1. júní vegna sumarafleysinga. Helgar-, kvöld- og næturvaktir eða eftir nánara samkomulagi. Yfirumsjón með tveimur hjúkrunardeildum. Sjúkraliðar Sjúkraliðar óskast á hjúkrunardeildir frá 1. júní vegna sumarafleysinga. Vinnuhlutfall samkomulag. Dag/vaktavinna. Starfsfólk við aðhlynningu Starfsfólk óskast til aðhlynningarstarfa á hjúkr- unardeildir frá 1. júní vegna sumarafleysinga. Vinnuhlutfall samkomulag. Dag/vaktavinna. Getur hentað skólafólki. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunar- forstjóri, Borghildur Ragnarsdóttir, í síma 563 8803. Víðines er 2ja ára hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Á heimilinu eru tvær deildir, fyrir 19 og 18 íbúa. Við viljum leggja áherslu á heimilislegt umhverfi fyrir íbúa og starfsfólk. Víðines er staðsett á fallegum og friðsælum stað, ca 10 km fyrir utan Mosfellsbæ. Bifreiðastyrkur er greiddur samkvæmt reglum þar um.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.