Morgunblaðið - 24.04.2001, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 24.04.2001, Qupperneq 53
Listmunir Erum að taka á móti verkum fyrir næsta list- munauppboð sem verður haldið á Hótel Sögu fimmtudagskvöldið 10. maí. Vinsamlegast hafið samband tímalega. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14—16, sími 551 0400. KENNSLA Reiðskólinn Geldingaholti Reiðskóli Rosemarie þar sem fagmennskan er í fyrirrúmi. Námskeið fyrir börn og fullorðna, byrjendur, sem lengra komna. Einnig námskeið fyrir óöruggar konur og karla. Kennsla er verkleg og bókleg fyrir alla hópa. Á staðnum er góð gistiaðstaða, heitur pottur, kennslugerði og hringvöllur. Þar er hægt ásamt kennslunni að njóta; fyrir börnin dýralíf, sveita- líf fyrir fullorðna, kyrrð og slökun. Námskeið, 7 dagar fyrir börn og 2ja—3ja daga námskeið fyrir fullorðna. Dæmi 1.—7. júní almennt námskeið fyrir börn og 8.—14. júní framhald fyrir börn með eigin hesta. Ýmiss konar námskeið allt sumarið. Leitið nánari upplýsinga í síma 486 6055 og 894 1855. Lengi býr að fyrstu gerð. Reiðskólinn Geldingaholti. TIL SÖLU TIL SÖLU Til sölu eru ýmis tæki og áhöld úr þrotabúi Hífis-Kjarnaborunar ehf., svo sem beltagröfur og hjólagröfur, stór kerra, fleygar, steinsagir og kjarnaborar, generatorar, rennibekkur, logsuðutæki, kolsýrusuðutæki, bílalyfta (3500 kg), tjakkar, margvísleg handverkfæri o.fl. Munirnir verða til sýnis að Funahöfða 17, Reykjavík, þriðjudaginn 24. apríl og miðviku- daginn 25. apríl n.k., frá kl. 9:00 til 18:30. Marteinn Másson, hdl., skiptastjóri þb. Hífis- Kjarnaborunar ehf. FÉLAGSSTARF Fundur um fjölskyldu- og skólamál í Garðabæ í kvöld, þriðjudaginn 24. apríl kl. 20.30 í húsnæði félagsins á Garðatorgi 7 Framsögumenn: Erling Ásgeirsson formaður skólanefndar og Ingibjörg Hauksdóttir formaður fjöl- skylduráðs, sem mun ræða um fjölskyldu- stefnu Garðabæjar. Hvetjum alla Garðbæinga til að koma og taka þátt í umræðum um málefni er varða bæjarfé- lagið okkar. VERUM BLÁTT — ÁFRAM Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ. TILKYNNINGAR ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu strax gott 125 fm iðnaðar- eða geymsluhúsnæði með góðri lofthæð í Skipholti. Upplýsingar í síma 893 7342 eða 560 0900 Sigurður G. Málþing í Hafnarfirði um sjálfbæra þróun á nýrri öld Stýrihópur Staðardagskrár 21 í Hafnarfirði stendur fyrir málþingi í Setbergsskóla, fimmtudaginn 26. apríl, kl. 18.00—21.00 um stefnumörkun sjálfbærrar, vistvænnar þróunar 2001—2020. Rætt verður um og unnið með framsetningu markmiða og mælikvarða íslenskra stjórnvalda á sviði umhverfismála og auðlindanýtingar. Til umræðu verða málefni sem varða okkur öll og því hvetjum við allan almenning til þess að sækja þetta málþing og stuðla að lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku varð- andi umhverfismál og þjóðfélagsþróun á Íslandi. Til frekari glöggvunar á umfjöllunarefnum má benda á heimasíðu umhverfisráðuneytis (http://www.stjr.is/umh, smella á „Umhverfisþing — Stefnumörkun um sjálfbæ- ra þróun“). Enn frekari upplýsingar veitir verk- efnisstjóri Staðardagskrár 21 í Hafnarfirði í síma 585 5525. Ársfundur Samvinnulífeyrissjóðsins verður haldinn á Grand Hótel, miðvikudaginn 25. apríl 2001 kl. 14.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. Önnur mál. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum sjóðs- ins. Þeir, sem hyggjast sækja fundinn, eru vin- samlegast beðnir að tilkynna þátttöku í síma 520 5500. Stjórnin. Aðalfundur SPOEX 2001 Aðalfundur Samtaka psoriasis- og exemsjúkl- inga verður haldinn fimmtudaginn 26. apríl nk. á Grand Hóteli Reykjavík v/Sigtún og hefst kl. 20.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Baldur Tumi Baldursson húðlæknir ræðir um meðferðarúrræði. Önnur mál. Mætið öll og fræðist um málefni samtakanna. Stjórnin. SMÁAUGLÝSINGAR KENNSLA ■ www.nudd.is FÉLAGSLÍF  EDDA 6001042419 I Lf.  Hamar 6001042419 I L.f. AD KFUK Holtavegi 28 Í kvöld er afmælis- og inntöku- fundur og hefst hann með borð- haldi kl. 19. Nýjar konur teknar inn í félagið. Hjónin Einar Sig- urbjörnsson og Guðrún Edda Gunnarsdóttir segja frá ferð sinni til Kenýja sumarið 2000. Ástríður Haraldsdóttir leikur ein- leik á píanó. Verð kr. 2500. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 53 LENKA Ptacnikova gæti orðið fyrsta konan sem teflir í landsliðs- flokki á Skákþingi Íslands. Hún sigr- aði í fyrstu tveimur skákunum í ein- vígi við Pál Agnar Þórarinsson um sæti í landsliðsflokki og þarf einungis hálfan vinning úr tveimur síðustu skákunum til að sigra, en tefldar verða fjórar skákir. Páll hafði hvítt í fyrstu skákinni og fljótlega vék skákin út af þekktum slóðum. Páll gaf peð á b2 í 13. leik en fékk ekki umtalsverðar bætur í stað- inn. Lenka vann síðan a2-peðið í 20. leik og þá virtust úrslitin ráðin. Hún gaf Páli ekki gagnfæri og hann gafst upp eftir 30 leiki þegar hann lék af sér hrók í afar erfiðri stöðu þar sem hann var enn tveimur peðum undir. Lenka hafði hvítt í síðari skákinni. Páll svaraði með Sikileyjarvörn og að þessu sinni fylgdi skákin þekktum leiðum fram undir 20 leik. Í 22. leik missti Lenka af vænlegri leið en hélt engu að síður þægilegri stöðu. Henni tókst síðan að bæta stöðu sína og í 34. leik yfirsást Páli lítil flétta sem Lenka átti sem vann taflið samstundis. Hann gaf því í 36. leik. Það sem einkennir þessar tvær skákir er að Páll hefur teflt undir getu og ekki tekist að skapa sér umtals- verð mótfæri. Lenka hefur á hinn bóginn teflt ágætlega og náð að halda uppi pressu á stöðu andstæðingsins. Afleiðingin er sú að Páll er nú í mjög erfiðri stöðu og verður að vinna tvær síðustu skákirnar til þess að missa ekki af lestinni. Þriðja skákin í einvíg- inu verður tefld næsta föstudag og hefst taflið klukkan 18 í húsnæði Skáksambands Íslands í Faxafeni. Hannes efstur í Egyptalandi Hannes Hlífar Stefánsson er í efsta sæti á alþjóðlegu skákmóti, opna Tanta-skákmótinu, sem nú fer fram í Egyptalandi. Hann deilir efsta sætinu með andstæðingi sínum úr fjórðu um- ferð, alþjóðlega meistaranum Azer Mirzoev (2.488) frá Azerbadjan. Þeir Hannes hafa 3½ vinning en þeir gerðu jafntefli í fjórðu umferð sem fram fór á laugardag. Frammistaða Hannesar í fyrstu umferðunum lofar góðu þótt enn eigi hann eftir að mæta stigahæstu kepp- endunum á mótinu. Reyndar var allur undirbúningur Hannesar fyrir mótið með þeim hætti að það þarf ekki að koma á óvart þótt hann vermi að lok- um eitt af efstu sætunum. Hannes mætti stighæsta keppanda mótsins, Alexander Fominyh (2571), í fimmtu umferð sem fram fór á sunnudag. Í gær var frídagur á mótinu. Heiðrún sigraði í klúbbakeppni Hellis A-sveit Heiðrúnar sigraði örugg- lega í hinni árlegu klúbbakeppni Hellis sem haldin var sl. föstudag. Heiðrún fékk 39½ vinning af 44 mögulegum. Í öðru sæti varð A-sveit Dýónýsus með 36½ vinning og í þriðja sæti varð B-sveit Heiðrúnar með 30½ vinning. Lokaúrslit mótsins urðu þessi: Heiðrún-A 39½ v. 2. Dýónýsus-A 36½ v. 3. Heiðrún-B 30½ v. 4. BDTR 29 v., 5. Mállöggurnar 26½ v., 6. Dýónýsus-B 21 v., 7. Heið- rún-C 19 v., 8. Iðnskólaklúbburinn 18½ v., 9. Fjórir stakir 14½ v., 10. Verð líka að fara 14 v. , 11. Peðaklúbb- urinn 13½ v., 12. SVR 2½ v.Bestum árangri á fyrsta borði náðu Magnús Örn Úlfarsson og Helgi Áss Grétars- son en þeir hlutu báðir 10 vinninga af 11 mögulegum. Bestum árangri á öðru borði náði Stefán Kristjánsson með 10½ v. Efstu þrjár sveitir voru þannig skipaðar: Heiðrún A Jón Viktor Gunnarsson 9 v., 2. Stef- án Kristjánsson 10½ v., 3. Bragi Þor- finnsson 10 v., 4. Arnar Gunnarsson 10 v. Dýónýsus A Magnús Örn Úlfarsson 10 v., Sig- urbjörn Björnsson 9 v., Páll Þórarins- son 7 v., Róbert Harðarson 9½ v. Heiðrún B Bergsteinn Einarsson 5 v., Björn Þorfinnsson 8 v., Sigurður Páll Stein- dórsson 7½ v., Ingvar Þór Jóhann- esson 9 v. Úr mótaáætlun Skáksambandsins 26.4. SA. 45 ára og eldri. 10 mín. 27.4. Hellir. Uppskeruhátíð 28.4. SÍ. Íslandsm. barnask.sveita 28.4. SÍ. Helgarskákmót 29.4. SA. 45 ára og e. gegn yngri 29.4. Hellir. Netskákmót Lenka hárs- breidd frá landsliðsflokki Páll Agnar Þórarinsson og Lenka Ptacnikova við upphaf annarrar ein- vígisskákarinnar. SKÁK T a f l f é l a g R e y k j a v í k u r 7.–15.4 2001 SKÁKÞING ÍSLANDS Daði Örn Jónsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.