Morgunblaðið - 24.04.2001, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 24.04.2001, Qupperneq 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ KÆRI Magnús Orri, nú neyðist ég til þess að senda þér bréfkorn, vegna þess hve erfitt er að ná sambandi við þig. Þú ert ýmist veikur, ekki við eða upptekinn í síma, og að auki svo um- kringdur af bifreiðum þarna uppi í Lynghálsi, að fótfúnum manni einsog mér er algjörlega ófært að nálgast þig á skrifstofu þinni. Þar við bætist að ekki þýðir að biðja símadömurnar að koma til þín skilaboðum. Annaðhvort færð þú þau ekki, eða vilt ekki tala við mig. Hrakist á milli hljómplötu- útgefenda í 10 ár Upphafið var það, að þegar ég nálg- aðist sjötugsaldurinn, fékk konan mín blessuð þá hugmynd að gaman væri nú að gefa út disk – eða diska – með söng mínum. Þessari hugmynd kom hún á framfæri við vin minn og félaga, Þorstein Hannesson, söngvara, sem var ennþá hjá RÚV. Þorsteinn brást skjótt við, ræddi við útvarpsstjóra, Markús Örn Antonsson, sem tók hug- myndinni mjög vel. Þorsteinn samdi síðan við þá aðra, sem áttu rétt á þóknun fyrir flutninginn – söngvara, píanóleikara og Sinfóníuhljómsveit- ina – um að þeir gæfu eftir sinn hluta. Nú átti að gleðja gamla manninn! Að vísu var ekki samið við Karlakór Reykjavíkur um þeirra hlut, því þeir höfðu gefið út Hrausta menn og margt fleira, án þess að þeim dytti í hug að greiða mér eyri fyrir minn þátt í þeim útgáfum. – Skítt með það. RÚV samdi síðan við Steinar hf. um að þeir gerðust samstarfsaðilar að þessari útgáfu, en RÚV léti þeim í té fullbúin segulbönd – að mig minnir – yfir 80 sönglögum, aríum, tvísöngvum o.s.frv. Þetta fékk fyrirtækið Steinar hf. ókeypis að ég best veit. Fyrirtækinu var síðan skylt að semja við mig um þóknun. Það datt þeim aldrei í hug en vísuðu á RÚV, sem hafði ekkert með það mál að gera. Steinar hf. gáfu síðan út 4 diska – hver þeirra var í 500 eintökum, sam- tals urðu þetta 2000 diskar. Þegar ég fór að ræða um samning við vin minn Steinar Berg, sagði hann mér að fyrstu 500 eintökin væru undanþegin þóknun til flytjenda, að mér skildist vegna upptökukostnaðar í dýrum „stúdíóum“. Ekki áttaði ég mig á þessari vizku þar sem ég vissi ekki betur en að þessi hluti útgáfunnar hefði verið framlag RÚV. Þá var mér talin trú um að umbúðir og smápési með efnisskrám og afmæliskveðjum frá tveimur vinum mínum hefðu vald- ið miklum aukakostnaði. Þetta hafði ég aldrei áður heyrt hjá fyrri útgef- endum, Svavari Gests og Haraldi í Fálkanum. Ég er að eðlisfari heldur latur, og hef aldrei þjáðst af græðgi, svo þetta varð að smá „jagi“ milli okkar Stein- ars í nokkur ár. Loks var fyrirtækið Steinar hf. lagt niður af einhverjum ástæðum og þá tók við annað fyrirtæki, sem ég held að hafi aðallega verið í eigu Skífunn- ar. Þetta var „Spor“ – niður á við – í átt til Skífunnar. Einhverntíma datt mér í hug að biðja vin minn Jónatan Garðarsson, hinn mætasta mann, að útvega mér samninginn, sem RÚV hafði gert við Steinar hf. á sinni tíð. Hann lofaði því, en einhver kom í veg fyrir að ég fengi að sjá þann samning. Hins vegar fékk ég sendan heim ann- an samning. Það var samningur sem ætlast var til að ég skrifaði undir. Ég á hann enn, og mig minnir að Steinar Berg hafi sett nafnið sitt undir hann. Í þessum samningi stóð ég á stóru 0. Loks hrapaði ég niður til Skífunnar Hér er loks komið að þér, Magnús minn Orri. – Þá lenti ég í höndunum á þér, því miður. Síðan hefi ég verið í stökustu vandræðum. Ég bað þig um að komast að því fyrir mig, hve mikið hefði verið framleitt af diskunum áð- urnefndu – og diskum með dægurlög- um sem Svavar Gests hafði gefið út mörgum árum áður. Steinar hf. eða Spor höfðu keypt réttinn af Svavari. Sá diskur var gefinn út undir heitinu Lax, lax, lax. Þetta ætlaðir þú að at- huga fyrir mig, en þegar ég spurði um árangurinn hafðir þú ekki haft tíma til að kanna málið. Ég er svo sem ekkert að kippa mér upp við það frekar en vant er. Hitt þykir mér hundleiðinlegt hvað þú hefur lélegan bókhaldara í vinnu. Hann hefur hvað eftir annað ruglað mér saman við nafna minn Guðmund Jónsson í „Sálinni hans Jóns míns“ eða hvað hópurinn heitir. Ég man ekki hvort það var fyrir eða eftir sl. áramót að ég fékk ávísun frá Stefi upp á að mig minnir rúmlega 160 þúsund krónur. Ekki þóttist ég eiga þá pen- inga og skilaði þeim aftur til Stefs. Þar kom í ljós að nafni minn í „Sál- inni“ átti þessa peninga. Aftur fékk ég ávísun frá Stefi, eitthvað lægri en sú fyrri var. Þar rak ég augun í það að ég átti rétt á texta við eitt lagið. Þessar greiðslur eru fyrir flutning í útvarpi erlendis. Þær eru sendar Stefi til úthlutunar. Þær eru til höf- unda laga og texta. Stúlkurnar í Stefi vildu endilega greiða mér það sem ég átti. Ekki man ég hvort það voru 131 eða 113 krónur. Enda skiptir það engu. Allt fram að því að þið tókuð við mér (eða tókuð mig), hafði ég verið að fá þetta 200–500 krónur á ári fyrir þennan flutning erlendis, en eftir það ekkert. Það skiptir heldur engu máli. Þessar greiðslur eru byggðar á upp- lýsingum frá ykkur um hver sé eig- andi réttar á lögum og textum á disk- um sem þið gefið út. Heldurðu ekki, Magnús minn Orri, að bókhaldið sé heldur báglegt hjá þér? Það hlýtur að vera a.m.k. skraut- legt! Að lokum: Ég man ekki eftir því að þið hafið greitt mér 1.800 kr. í fyrra, en þið senduð mér seðil vegna skatts- ins eftir að ég hafði skilað skatt- skýrslu. Tók ég við greiðslu, eða lögð- uð þið hana inn á bankabókina mína? Seðillinn barst í pósti eftir að ég átti að skila skýrslunni (eftir síðasta skila- dag). Það eru léleg vinnubrögð. Nú hefi ég fengið tilkynningu um að ég eigi inni 808 krónur fyrir Lax, lax, lax. Þið megið eiga aurana, og ég krefst þess að þið hafið engin afskipti af mér framvegis. Þar með að ég tek ekki við neinum greiðslum frá ykkur í framtíðinni. Mér leiðist að eiga skipti við fólk eins og ykkur. Ég gæti farið í fýlu og því nenni ég ekki. Þinn einlægur GUÐMUNDUR JÓNSSON söngvari. P.s. Ég hef haft svolítið gaman af því að skrifa þetta bréf. Það bætir skapið mikið. G.J. Kæri Magnús Orri Frá Guðmundi Jónssyni: BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.