Morgunblaðið - 24.04.2001, Page 58

Morgunblaðið - 24.04.2001, Page 58
DAGBÓK 58 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Reykjavíkurhöfn: Detti- foss, Helgafell og North- ern Loknes koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Lagarfoss, Rexnes, Olchan og Nordstar komu í gær. Arctic Swan kemur í dag. Fréttir Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun kl. 17– 18. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–16.30 opin handavinnustofan, áhersla á bútasaum, kl. 9–12 bókband og öskju- gerð, kl. 9.30 dans- kennsla, kl. 13–16.30 op- in smíðastofa, trésmíði/ útskurður, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Aflagrandi 40. Enska kl. 10 og kl. 11. Farið verður í leikhúsið fimmtud. 26. apríl í Loftkastalann að sjá „Sniglana“. Rútuferð frá Aflagranda. Miðvi- kud. 25 apríl verður farið um Borgarfjörð. Lagt af stað kl. 10. Uppl. og skráning í Aflagranda sími 562-2571. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böð- un, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–12 tréskurður, kl. 9–16 handavinna og fótaað- gerð, kl. 10 sund, kl. 13– 16 leirlist. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið á Hlaðhömrum er á þriðjud. og fimmtud. kl. 13–16.30, spil og föndur. Leikfimi í íþróttasal á Hlaðhömrum, þriðjud. kl. 16. Uppl. hjá Svan- hildi í s. 586 8014 kl. 13– 16. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18–20. Kl. 9 hárgreiðsla og böðun, kl. 10 samverustund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 föndur og handavinna. Kl. 14.45 söngstund í borðsal með Jónu Bjarnadóttur. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Saumur kl. 13, bridge kl 13:30. Á morgun verður línudans kl 11, mynd- mennt kl. 13 og píla kl.13:30. Leikhúsferð í Þjóðleikhúsið að sjá- „Syngjandi í rigning- unni“ 4. maí nk. Sækið pantaða miða í Hraunsel milli kl. 13.30 og 16. Skoðunarferð í Þjóð- menningarhúsið10. maí. Skráning hafin í Hraun- seli sími 555- 0142 Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Þriðjudagur: kl. 10.30. fara Göngu- Hrólfur í göngu með sænskum gestum. Kl. 10.30 koma sænskir eldri borgarar í heimsókn. Gengið verður um Laug- ardalinn. Hádegisverður í Ásgarði kl. 12. Erindi flytja Ólafur Ólafsson formaður FEB og Bene- dikt Davíðsson frá LEB. Dansað undir harm- ónikuleik Ólafs B. Ólafs- sonar. Skák kl. 13.30 og alkort spilað kl. 13.30. Miðvikud: Baldvin Tryggvason verður til viðtals um fjármál og leiðbeiningar um þau mál á skrifstofu FEB kl. 10.30–11.30. Panta þarf tíma. Dagana 27.–29. apríl verður 3ja daga ferð á Snæfellsnes. Brottför frá Ásgarði Glæsibæ 27. apríl kl. 9. Allra síðasti skráning- ardagur. 9. maí Garð- skagi-Sandgerði- Hvalnes. Brottför frá Glæsibæ kl. 13. Skráning hafin. Opnunartími skrif- stofu FEB er kl. 10–16. Uppl. í síma588 2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, tré- skurður og fleira, kl. 9– 17 hárgreiðsla, kl. 10 leikfimi, kl. 12.45 Bón- usferð. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16. 30 vinnustofur opnar, kl. 13 boccia, Veit- ingar í kaffihúsi Gerðu- bergs. Föstudaginn 27. apríl kl. 16 verður opnuð myndlistasýning Gunn- þórs Guðmundssonar, m.a. syngur Gerðubergs- kórinn undir stjórn Kára Friðrikssonar. Undir- leikarar eru Benedikt Egilsson og Unnur Ey- fells, félagar úr Tónhorn- inu leika létt lög. Allir velkomnir. Allar upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Leikfimi kl. 9.05, kl. 9.50 og kl. 10.45, kl. 9.30 gler- list, handavinnustofa op- in, kl. 14 boccia, þriðju- dagsganga fer frá Gjábakka kl. 14. Í tilefni viku bókarinnar verða lesin ljóð í Gjábakka fimmtud. 26. apríl kl. 14, þeir sem vilja lesa skrái sig í afgreiðslunni. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulínsmálun, kl. 10 jóga og ganga, kl. 13–16 handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum, kl. 14 boccia. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, fótaaðgerðir og leikfimi, kl. 9.45 banka- þjónusta, kl. 13 handa- vinna og hárgreiðsla. Hraunbær 105. Kl. 9– 16.30 postulínsmálun, kl. 9–17 fótaaðgerðir, kl. 9– 12 glerskurður, kl. 9.45 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13–16.30 myndlist, kl. 13–17 hár- greiðsla. Miðvikudaginn 25. apríl verður farið um Borgarfjörð. Lagt af stað kl. 10.30, uppl. í síma 587-2888. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi, halda sinn mánaðarlega fund í Miðgarði á morg- un kl. 10. Nánari upplýs- ingar veitir Þráinn Haf- steinsson í s. 5454-500 Kirkjulundur, félags- starf aldraðra, Garða- bæ. Þriðjud. 24. apríl: spilað í Kirkjuhvoli kl. 13.30, tréskurður kl. 13.30. Fimmtudaginn 26. apríl: spilað í Holtsbúð kl. 13.30, boccia kl. 10.30, leikfimi kl. 12.10. Dagana 27 og 28. apríl eru upp- skerudagar í Kirkjuhvoli kl. 13–18, sýning á tóm- stundavinnu aldraðra, skemmtiatriði og veit- ingar kl. 15 báða dagana. Norðurbrún 1. Kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 10–11 boccia, kl. 9–16.45 opin handavinnustofan, tré- skurður. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15–12 bútasaumur, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 11 leikfimi, kl. 13 bútasaumur, tréút- skurður og frjáls spila- mennska. Sýning á vatnslitamyndum (frummyndum) eftir Erlu Sigurðardóttur úr bókinni „Um loftin blá“ eftir Sigurð Thorlacius verður frá 30. mars til 4. maí virka daga frá kl. 9– 16.30. Allir velkomnir. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan og hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður, myndlist og morgunstund, kl. 10 leik- fimi og fótaaðgerðir, kl. 11 boccia, kl. 13 hand- mennt og keramik, kl. 14 félagsvist. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Spilað í kvöld kl. 19. Allir eldri borgarar velkomnir. Félag ábyrgra feðra heldur fund í Shell- húsinu, Skerjafirði, á miðvikudögum kl. 20, svarað í síma 552 6644 á fundartíma. Eineltissamtökin halda fundi á Túngötu 7, á þriðjudögum kl. 20. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum, Laug- ardalshöll, kl. 12. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborgarsvæð- inu, Hátúni 12. Bingó kl. 20 í kvöld. ITC deildin Harpa held- ur fund í kvöld þriðjud 24.apríl kl.20 að Borg- artúni 22. (þriðju hæð). Fundurinn er öllum opin.uplýsingar gefur Guðrún í síma 553- 9004. Hringurinn. Aðalfund- urinn verður haldinn í Akogessalnum við Sól- tún miðvikudaginn 25. apríl kl. 19. Kvennadeild Slysa- varnafélagsins í Reykja- vík. Afmælis og skemmtifundur verður föstudaginn 27. apríl kl. 20 í Sóltúni 20. Til skemmtunar harmóniku- leikur, upplestur, happ- drætti o. fl. Kvenfélag Kópavogs. Gestafundur verður mið- vikudaginn 25. apríl kl. 20.30 í félagsheimilinu Gjábakka. Kvenfélag Hreyfils. Kvenfélag Kópavogs býður Hreyfilskonum í heimsókn miðvikudaginn 25. apríl kl. 20.30 í Gjá- bakka, Kópavogi. Ath! fundur Kvenfélags Hreyfils fellur niður 24. apríl. Í dag er þriðjudagur 24. apríl, 114. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Þá sleit allt fólkið eyrnagullin úr eyrum sér og færði Aroni. (II Mós. 32, 3.-4.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Víkverji skrifar... VERKFÖLL eru tvíbent vopn aðmati Víkverja. Hann hitti ný- lega að máli hjón, sem voru ekki hrif- in af þessu baráttutæki. Konan er framhaldsskólakennari og eiginmað- urinn sjómaður. Hún var í löngu verkfalli með tilheyrandi launamissi í vetur og nú er hann, sem annars þénaði mjög vel á frystitogara, kaup- laus. Þetta setur vissulega stórt strik í reikninginn hjá þessu fólki. Það er ekki tekið út með sældinni að vera launalaus vikum saman. Fæstir ráða við það, því víða er boginn spenntur það mikið að ekkert má út af bregða eigi að vera hægt að standa í skilum. Ávinningurinn af löngu verkfalli skilar sér seint eða aldrei í launa- umslagið. Víkverji tekur því undir með Frið- riki Pálssyni, stjórnarformanni SÍF, sem hefur sagt að verkföll séu úrelt og þurfa finni aðrar leiðir til lausnar á kjaradeilum. Hann telur að verk- föll eigi aðeins að nota sem neyðar- rétt þegar allar leiðir virðast lokaðar og mikið sé í húfi. Víkverji telur að kjaradeila sjómanna og útvegs- manna snúist ekki um bráðnauðsyn- legar kjarabætur eða úrbætur af öðru tagi. Víkverji dregur hvorki taum útgerðarmanna né sjómanna í þessari deilu, en hann ber hag þjóð- arbúsins og fiskverkafólks fyrir brjósti. Víkverja finnst rétt að benda deiluaðilum á að þeir hafa þegar stærsta hlutann úr þeirri köku, sem veiðar, vinnsla og útflutningur sjáv- arafurða er búin til úr. Þar ber fisk- verkafólkið minnst úr býtum og nú hafa þessir aðilar svipt það atvinn- unni og skilið eftir á lágmarkskjör- um eða atvinnuleysisbótum. Víkverji vill benda deiluaðilum á að taka tillit til þess og reyndar skilur hann ekki að ekki skuli vera hægt eftir nærri eins og hálfs árs samningaþref að mætast á miðri leið. x x x VÍKVERJI hefur bæði gagn oggaman af göngutúrum en er því miður allt of latur til að ganga eins mikið og hann þyrfti, en það er hans vandamál. Það er að mati Víkverja til fyrirmyndar hve vel er búið að göngufólki í Reykjavík með góðum göngustígum út um allar trissur. Uppáhaldsgönguleiðir Víkverja eru um Elliðaárdalinn og Fossvogsdal- inn enda býr hann í Fossvogi. Vík- verji hefur líka gaman af að ganga um bæinn, til dæmis Hljómskála- garðinn og við Tjörnina. Honum finnst hins vegar miður hvernig um- gengni borgarbúa er. Allt of algengt er að fólk fleygi frá sér rusli hvar sem það fer og er að því mikill sóða- skapur. Um helgina átti Víkverji gönguleið hjá ráðhúsi Reykjavíkur. Við húsið er lítil tjörn og er að henni mikil prýði. Um helgina var hún nærri vatnslaus og blasti þá við ótrú- legur sóðaskapur. Tjörnin var hrein- lega full af rusli. Líklega hefur vatni verið hleypt úr henni til að hreinsa hana og var ekki vanþörf á. Þeir sem ganga um á þennan hátt hendandi rusli um allt ættu að skammast sín. Hið fagra umhverfi okkar á slíkt ekki skilið og framferði eins og þetta lýsir mest innra manni þeirra sem svo haga sér. Sóðaskapur er þeim sem hann ástunda til skammar. ÉG heyrði í fréttum að ein hver úr hópi þjóðernissinna hefði hótað manni og hann kærði hann. Ég hef unnið með erlendu fólki, sem kemur víða að og flest af því hefur verið gott og dug- legt fólk. Hvað er svona sérstakt við það að vera Ís- lendingur? Erlent fólk kann þó mannasiði og það er meira en hægt er að segja um marga landa vora. Indíánar til forna kölluðu hvíta manninn bleiknefja og eitt er víst að í gegnum aldirnar hafa bleiknefjar verið mjög frekir og níðst á fólki af öðrum kynþáttum. Það er óþolandi að hér skuli kynþáttafordómar vera ríkjandi núna þegar 21. öld- in er gengin í garð. Fólk, sem er svona þenkjandi, þyrfti að taka vel til í sál- artetrinu og skríða út úr miðaldakofunum. Öll erum við bræður og systur og jöfn fyrir augliti guðs. Við eigum að taka vel á móti er- lendu fólki og skapa því sömu tækifæri og menntun og Íslendingum. Því miður vinnur margt af þessu er- lenda fólki þau erfiðu störf, sem Íslendingar eru of fínir til að vinna. Því miður má finna kynþáttafordóma í öllum stéttum þjóðfélags- ins. Grímur. Þjóðlendur Í TILEFNI vinnu þjóð- lendunefndar um mörk þjóðlendna finnst mér rétt að ef landeigendur geta sannað eign sína á landi skuli þeir halda því hversu stórt sem það kann að vera, en ef sönnun á landi liggur ekki fyrir eigi það að vera eign þjóðarinnar. Beitar- réttindi býla eru viður- kennd á almenningum og afréttarlöndum en það er ekki það sama og eignar- hald á því landi. Ég vona að þjóðlendunefnd sjái sóma sinn í því að verja eign þjóðarinnar svo hún verði ekki gefin til manna sem ekki geta sannað eign sína á landinu. Pétur Sigurðsson, kt. 250944-4709. Enn einn Hafnar- fjarðarbrandarinn ÞAÐ er boðinn út einka- skóli í Hafnarfirði og viti menn, formaður Heimilis og skóla er til í að græða peninga á einkageiranum við að uppfræða börnin í Hafnarfirði. Guðmundur Guðmunds- son, Hraunbæ 178. Er Morgunblaðið að skreppa saman? SAMKVÆMT lauslegu mati voru eftirtaldir kálfar Morgunblaðsins með 20 blaðsíðum vikulega, Ferðir, Bílar, Barnablaðið og Kvik- myndir. Nú er búið að slengja þessum kálfum inn í aukablað sunnudagsins. Það blað taldi að jafnaði 24- 32 blaðsíður, svo ef ofan- taldir kálfar dragast frá er aukablaðið aðeins 4-8 blað- síður. Er Morgunblaðið að skreppa saman? Lesandi. Regnbogablómin MÓÐIR 9 ára drengs hafði samband við Velvakanda og langaði að koma á fram- færi árangri af frábæru kremi. Drengurinn er mjög slæmur af exemi og hún datt niður á krem sem heit- ir Regnbogablómin. Krem- ið er unnið úr íslenskum jurtum og framleitt af Skipholtsapóteki. Þetta er algjört kraftaverkakrem. Eftir tvo daga var strax sjáanlegur munur á drengnum. Hún er búin að prófa mörg krem, en þetta slær þau öll út. Vill hún benda fólki á þetta. Tapað/fundið Svunta af Brio- barnavagni tapaðist BLÁ svunta af Brio-barna- vagni með böngsum í rauð- um buxum tapaðist laugar- daginn 7. apríl sl. í Engjaseli. Hún hefur sennilega fokið af vagnin- um. Þetta er mikill missir, því hætt er að selja þessa tegund af vögnum. Vinsam- legast hafið samband í síma 699-0273. Barnagullarmband fannst í Garðabæ BARNAARMBAND með áletruninni Valentína Erla fannst á leiksvæðinu á milli Krókamýrar og Löngu- mýrar í Garðabæ fyrir rúmri viku. Upplýsingar í síma 565-6124. Rauð Pokemon-húfa í óskilum RAUÐ Pokemon-húfa fannst við Nauthólsvík. Á húfunni stendur Piku Chu. Hún er merkt Heklu. Eigandi hafi samband í síma 896-2956 eða 695- 1418. Nokia-sími í óskilum NOKIA GSM-sími fannst á leik Hauka og Vals á Ás- völlum, sunnudagskvöldið 22. apríl sl. Upplýsingar í síma 569-1201 eða 551- 0085. Dýrahald Svartur og hvítur hundur í óskilum SVARTUR og hvítur, lág- fættur hundur er í óskilum á Hundahótelinu að Leir- um. Eigandi vitji hans strax. Upplýsingar í síma 566- 8366 eða 698-4967. Rósa er fundin ÞAKKIR til allra þeirra er aðstoðuðu við að leita henn- ar. Sérstakar þakkir til Vel- vakanda, það var honum að þakka að hún fannst. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Bleiknefjar K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 ánægð, 4 dý, 7 ber, 8 skríll, 9 nugga, 11 stela, 13 brumhnappur, 14 streyma, 15 harðfrosið snjókorn, 17 hlykk, 20 elska, 22 þuklar, 23 á ný, 24 magrar, 25 hreinar. LÓÐRÉTT: 1 styggir, 2 ánægja, 3 galdrakvendi, 4 ata út, 5 kyrrt vatn, 6 ræktuð lönd, 10 þyngdareining- in, 12 kraftur, 13 hrygg- ur, 15 matgráðugur mað- ur, 16 spakur, 18 skrifar, 19 söngflokkar, 20 rán- fuglar, 21 boli. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 rembihnút, 8 undur, 9 arfur, 10 iðn, 11 dýrið, 13 aumum, 15 dalla, 18 slota, 21 fet, 22 lokka, 23 æfast, 24 hrossatað. Lóðrétt: 2 eldur, 3 berið, 4 hrana, 5 úlfum, 6 mund, 7 hrum, 12 ill, 14 ull, 15 dóla, 16 lýkur, 17 afans, 18 stæka, 19 okana, 20 atti. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.