Morgunblaðið - 28.04.2001, Síða 38
LISTIR
38 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
A
ðeins 18% íslenskra
fyrirtækja eru í
eigu kvenna, að því
er fram kemur á
heimasíðu verkefn-
isins Auður í krafti kvenna.
Verkefnið, sem Nýsköp-
unarsjóður atvinnulífsins, Ís-
landsbanki, Morgunblaðið,
Deloitte&Touche og Háskólinn í
Reykjavík standa að, hefur það
yfirlýsta markmið, að nýta enn
betur þann auð sem í konum
býr með því að auka þátttöku
þeirra í atvinnusköpun og
stuðla þannig að auknum hag-
vexti á Íslandi. Á heimasíðu
verkefnisins kemur fram að í
löndum sem Íslendingar bera
sig gjarnan
saman við
eru 25–38%
fyrirtækja í
eigu kvenna.
Fyrr í
þessum mán-
uði var birt
skýrsla hag-
stofu Bandaríkjanna, þar sem
fram kemur að fyrirtækjum í
eigu kvenna fjölgar nær þrisvar
sinnum örar en öðrum fyrir-
tækjum þar í landi og mest er
fjölgunin í Kaliforníu. Rannsókn
hagstofunnar náði til áranna
1992–1997.
Um 26% allra bandarískra
fyrirtækja eru nú í eigu kvenna
og ljóst að þar er mikill
vaxtarbroddur í atvinnulífinu.
Það ber að hafa í huga, að
hagstofan telur aðeins með þau
fyrirtæki sem eru í
meirihlutaeign kvenna, þ.e.
eignarhlutur þeirra verður að
vera 51% eða meiri. Jafnvel
þótt kona eigi helming í
fyrirtæki telst það ekki í
kvennaeigu, eða þótt nær
fullvíst þyki að meirihluti
hluthafa í fyrirtæki á almennum
markaði sé konur. Og þau
fyrirtæki, sem konur komu á
laggirnar en stækkuðu að
tilstuðlan nýrra hluthafa, svo
eignarhlutur stofnendanna fór
niður fyrir 51%, teljast heldur
ekki með.
Þessi nýi háttur hagstofunnar
á talningu „kvennafyrirtækja“
rýrir hlut þeirra verulega. Í
Washington starfa samtök
kvenna í viðskiptum og af
þeirra hálfu er því haldið fram
að réttnefnd „kvennafyrirtæki“
séu um 38%, eða tvö af hverjum
fimm bandarískum fyrirtækjum.
Samtökin vilja nefnilega telja
með fyrirtækin þar sem kona á
helming, en þar með bætist t.d.
í hópinn fjöldi fyrirtækja sem
hjón hafa stofnað í sameiningu.
Frá 1992–1997 fjölgaði
fyrirtækjum í kvennaeigu um
16% í Bandaríkjunum, en
öðrum fyrirtækjum um 6%,
samkvæmt tölum hagstofunnar.
En það er ekki nóg með að
fyrirtækjum kvenna fjölgi ört,
heldur virðast þau dafna betur
en önnur.
Þegar litið var til fyrirtækja í
eigu kvenna sem höfðu launaða
starfsmenn á skrá fjölgaði þeim
um 37% frá 1992 til 1997. Aðrir
náðu ekki að veita jafn miklu til
þjóðfélagsins í formi
atvinnusköpunar, því
sambærileg tala fyrir önnur
fyrirtæki var aðeins 6%.
Loks má svo nefna, að sjö af
hverjum tíu fyrirtækjum í eigu
kvenna starfa í þjónustu eða
verslun. Þar er þó að verða
breyting á, því mesti vaxtar-
broddurinn í kvennafyrir-
tækjum er innan byggingar-
iðnaðarins, framleiðslu,
heildsöludreifingu og
landbúnaðar.
Þegar skýrslan var kynnt
leitaði dagblaðið Sacramento
Bee til prófessors við við-
skiptadeild Kaliforníuháskóla í
Irvine. Prófessorinn, Judy B.
Rosener, sagði að ein skýringin
á því að konur byrjuðu rekstur
eigin fyrirtækja væri óánægja
með stórfyrirtæki. Aðstæður
innan stórfyrirtækja hentuðu
konum oft illa og þær gætu
hæglega haslað sér völl upp á
eigin spýtur, því ekki skorti
þær sjálfstraustið eða sambönd
í viðskiptaheiminum. Áður fyrr,
jafnvel fyrir aðeins einum
áratug, hefðu konur átt í
erfiðleikum með að fjármagna
ný fyrirtæki, en nú vissu þær
hvar vænlegt væri að leita fyrir
sér. Það væri liðin tíð að konum
þætti öryggi fólgið í starfi hjá
stórfyrirtækjum, svo núna væru
þær tilbúnar að láta gamla
starfið sigla sinn sjó og taka
áhættuna af eigin rekstri.
„Skilvirkasta leiðin til að
fjölga fyrirtækjum er að hvetja
konur til atvinnusköpunar,“
segir á heimasíðu Auðar í krafti
kvenna. Skýrsla hagstofu
Bandaríkjanna sýnir sann-
leiksgildi þessara orða. Þá
segir: „Lengi hefur verið talið
að aðaldrifkraftur hagkerfisins
felist í stórum og staðföstum
fyrirtækjum. Nú er hins vegar
almennt viðurkennt að ný
fyrirtæki stuðla hvað mest að
auknum hagvexti.“
Í ávarpi formanns Auðar í
krafti kvenna, Guðrúnar
Pétursdóttur, segir, svo enn sé
vitnað til heimasíðunnar: „Þetta
átak er ekki eingöngu gert fyrir
konur heldur fyrst og fremst
fyrir íslenskt hagkerfi sem þarf
á krafti kvenna að halda. Við
þurfum á öllum þeim
sköpunarmætti að halda sem
þjóðin býr yfir til að nýta þau
tækifæri til atvinnusköpunar
sem bíða alls staðar í kringum
okkur.
Staðreyndin er sú að margar
konur hika við að taka áhættu
og hrinda hugmyndum sínum í
framkvæmd. Ástæðurnar eru
margvíslegar, en veigamikill
þáttur er fólginn í því, að þær
treysta sér oft ekki til þess,
vegna skorts á þekkingu á
fjármálum og rekstri. Margar
hafa því forðast þessi verkefni.
Fyrir vikið fer atvinnulífið á
mis við sköpunarkraft þeirra og
hjól hagkerfisins sem konur
gætu fengið til að snúast og
skapa verðmæti standa kyrr.“
Dæmin frá Bandaríkjunum
sýna að hjól atvinnulífsins
snúast sem aldrei fyrr þegar
konur láta til sín taka.
Kraftur
kvenna
Það er ekki nóg með að fyrirtækjum
kvenna fjölgi ört, heldur virðast þau
dafna betur en önnur í Bandaríkj-
unum. Hjól atvinnulífsins snúast sem
aldrei fyrr þegar konur láta til sín taka.
VIÐHORF
Eftir Hönnu
Katrínu
Friðriksson
hkfridriksson-
@ucdavis.edu
NORRÆNA heimildar- og stutt-
myndahátíðin Nordisk Mini-Pan-
orma 2001 hefst í dag og stendur um
helgina í Norræna húsinu. Þar verð-
ur sýnt úrval mynda frá Nordisk
Panorama-hátíðinni sem haldin var í
Bergen síðastliðið haust. Málþing
um íslenskar heimildarkvikmyndir,
verður síðan haldið í Norræna hús-
inu á sunnudaginn kl. 16 í tengslum
við hátíðina. Félag kvikmyndagerð-
armanna skipuleggur málþingið í
samstarfi við Nordisk Mini-Panor-
ama. Fulltrúar kvikmyndafyrirtækja
og sjónvarpsstöðva munu taka þátt í
pallborðsumræðum, en þar er mark-
miðið ekki síst að ræða samstarf
þeirra aðila. Að sögn Hjálmtýs Heið-
dal kvikmyndagerðarmanns og eins
aðstandenda hátíðarinnar er mál-
þingið ekki síst haldið í tilefni þeirra
tímamóta sem urðu með stofnun
stutt- og heimildarmyndadeildar
Kvikmyndasjóðs. „Íslensk heimild-
armyndagerð hefur átt mjög erfitt
uppdráttar hér á landi. Nú um stund-
ir má hins vegar greina mikla vakn-
ingu í þessum málum, áhuginn er
mikill, bæði meðal ungs kvikmynda-
gerðarfólks og þeirra sem reyndari
eru í faginu. Með tilkomu sérstakrar
deildar innan Kvikmyndasjóðs sem
sinnir þessu sviði kvikmyndagerðar
hefur skapast fjárhagslegt svigrúm
sem mjög hefur skort á þessu sviði
fram til þessa,“ segir Hjálmtýr.
Úrval norrænna mynda
Nordisk Panorama er samnorræn
heimildar- og stuttmyndahátíð sem
flyst milli Norðurlandanna ár hvert.
Nú hefur verið tekinn upp sá siður að
sýna úrval mynda frá hátíðinni í þeim
löndum sem ekki hýsa aðalhátíðina
undir yfirskriftinni Nordisk Mini-
Panorama. „Aðalhátíðinni er ætlað
að endurspegla það besta sem er að
gerast á sviði stutt- og heimildar-
myndaframleiðslu á Norðurlöndun-
um. Hingað til hafa Íslendingar ekki
haft mjög greiðan aðgang að því sem
er að gerast á þessu sviði, og er hátíð-
in því skref í þá átt að færa heimild-
armyndamenningu nær okkur,“ seg-
ir Hjálmtýr. Sem dæmi um myndir
sem sýndar verða er Den höjeste
straf, verðlaunamynd Tómasar
Gíslasonar um hvarf danska komm-
únistaleiðtogans Arne Munch Peder-
sen, og hin sænska Min mamma hade
fjorton barn sem hlaut 1. verðlaun á
Panorama hátíðinni.
Myndir hátíðarinnar verða sýndar
í þremur um það bil 90 mínútna dag-
skrám sem lýkur hverri um sig með
umræðum. Fyrsta sýningarlota hefst
kl. 11 í dag laugardag (Min mamma
hade fjorton barn, Consolation
Service), sú næsta hefst kl. 14 (Den
höjeste straf, 80 grader aust for
Birdland, Hjem til jul) og sú þriðja
og síðasta hefst kl. 13, á morgun
sunnudag (I et hjörne av verden,
Waiting for Godot at De Gaulle,
Kuppet, Sorthvid).
Aðgangur að hátíðinni og mál-
þinginu er ókeypis og allir velkomn-
ir.
Norræn stutt- og heimildarmyndahátíð í Norræna húsinu
Vakning í heimildar-
myndagerð á Íslandi
ÞRÍR ungir leikarar útskrifast í
vor úr leiklistarskólanum Arts.
Educational School of Acting í
London eftir þriggja ára nám.
Þetta eru þau Margrét Kaaber,
Birna Hafstein og Erlendur Eiríks-
son. Þau eru nú önnum kafin við
æfingar útskriftarsýninga í nem-
endaleikhúsi skólans og fara þar
öll með stór hlutverk.
„Þessi leiklistarskóli er í dag tal-
inn einn af fjórum bestu leiklistar-
skólunum í Bretlandi og hlaut ný-
lega 1. einkunn í gæðamati sem fer
fram innan skóla sem tilheyra
Conference of Drama Schools og
metur ákveðin nefnd frammistöðu
skólanna á vikutímabili,“ segir
Margrét Kaaber.
„Í vetur höfum við haft fjöl-
breytt verkefni að fást við í nem-
endaleikhúsi m.a. Ödipus konung
eftir Sófókles í leikstjórn Andrew
Visnevski, leikdagskrá byggða á
verkum George Orwell og kvik-
mynd sem fjallaði um ungt lista-
fólk í London, Monsters&Civilians í
leikstjórn Adrian James,“ segir Er-
lendur. „Kvikmyndaleikur er orð-
inn mikilvægur hluti af náminu og
var gerð kvikmyndarinnar í beinu
framhaldi af kvikmyndaleiknámi,“
bætir Birna Hafstein við.
„Lokaverkefni okkar eru Söng-
leikurinn Man from La Mancha og
Mother Courage eftir Brecht. Er-
lendur fer með aðalhlutverkið í
söngleiknum og við Birna leikum
aðalhlutverkin í Mutter Courage, “
segir Margrét. Birna fer með hlut-
verk Mutter Courage og Margrét
með hlutverk Katrínar dóttur
hennar. „Einnig höldum við svo-
kallað „Showcase“ þar sem við
kynnum okkur sérstaklega fyrir
leikhússtjórum, leikstjórum og um-
boðsmönnum með samantekinni
leikdagskrá og fer dagskráin fram
8. maí næstkomandi í Criterion
leikhúsinu við Piccadilly,“ segir
Erlendur.
Margrét Kaaber, Erlendur Eiríksson og Birna Hafstein.
Þrír íslensk-
ir leikarar
útskrifast
í London
BURTFARARPRÓF Þórhalls
Bergmann píanóleikara frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík
verður haldið í
Salnum, Tón-
listarhúsi
Kópavogs, í
dag kl. 14.
Á efnisskrá
eru Prelúdía
og fúga í d-moll
nr. BWV 875
(WK II) eftir
Johann Seb-
astian Bach,
Sónata nr. 4 í Es-dúr op. 7 eftir
Ludwig van Beethoven, Prel-
údía í gís-moll op. 32 nr. 12 eftir
Sergei Rachmaninoff og Píanó-
kvintett í g-moll op. 57 eftir
Dmitri Sjostakovitsj.
Aðgöngumiðar seldir við inn-
ganginn frá kl. 13.
Burtfar-
arpróf
Þórhalls
Berg-
mann
Þórhallur
Bergmann
STÓRSVEIT Reykjavíkur efnir til-
stórsveitarveislu í Ráðhúsi Reykja-
víkur í dag, laugardag, kl. 14.
Að þessu sinni býður Stórsveitin
æskunni til leiks og koma fram þrjár
skólastórsveitir auk Stórsveitar
Reykjavíkur. Þær eru: Stórsveit
Tónlistarskóla FÍH, stjórnandi
Edward Fredriksen, Stórsveit Tón-
menntaskóla Reykjavíkur, stjórn-
andi Sigurður Flosason og Léttsveit
Tónlistarskóla Keflavíkur, stjórn-
andi Karen Sturlaugsson.
Aðgangur er ókeypis.
Stórsveit í
Ráðhúsinu
SÝNINGUM Íslenska dansflokks-
ins á Kraak een, Kraak twee eftir
Jo Strømgren og Pocket ocean eft-
ir Rui Horta í Borgarleikhúsinu
lýkur nú á sunnudag klukkan
20:00.
Verkin eru bæði samin sérstak-
lega fyrir Íslenska dansflokkinn og
voru sýnd í sýningarferð hans í
Kanada í síðasta mánuði.
Sýningarnar hafa fengið lofsam-
lega dóma bæði hér og erlendis, nú
síðast í grein í parísarblaðinu Le
Figaro um páskana.
Morgunblaðið/Golli
Úr sýningu Íslenska dansflokksins á Pocket Ocean eftir Rui Horta.
Dansverk
af fjölunum