Morgunblaðið - 28.04.2001, Qupperneq 47
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 47
✝ Sigríður Guð-mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
11. júní 1915. Hún lést
á Ljósheimum, Sel-
fossi, 18. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Kristín
Jóhannesdóttir, f.
17.05. 1891 að Tröð á
Álftanesi, d. 26.12.
1984, og Guðmundur
Guðmundsson, f. 6.5.
1880 á Ísafirði, d.
13.2. 1932. Systkini
Sigríðar, sammæðra:
Björn, f. 12.9. 1916, d. 12.8. 1978,
María Einhildur, f. 29.1. 1923, d.
9.3. 1988, Guðlaug Björg, f. 29.1.
1923, d. 9.6. 1995, og Petrína Krist-
ín, f. 18.12. 1925. Sigríður giftist,
30. október 1943, Birni Ingimar
Valdimarssyni, f. 11.11. 1907 í
Norðurgarði á Skeiðum, d. 2.8.
1985. Foreldrar hans voru Valdi-
mar Jónsson, f. 26.6. 1880, d. 26.7.
1972, og Sigríður Guðmundsdóttir,
f. 29.10. 1876, d. 7.10. 1970. Dætur
Sigríðar og Björns eru: 1) Steinunn
Guðrún, f. 4.10. 1944, í sambúð
með Guðmundi Ívarssyni, f. 18.6.
1930. Þau búa á Selfossi. Synir
Steinunnar eru: a) Bjarni Ólafsson,
f. 7.8. 1966, kona hans er Guðný I.
Rúnarsdóttir, f. 16.4. 1969, þeirra
börn eru Eydís Harpa, f. 21.10.
1990 og Ingimar Óli,
f. 18.7. 1993. b) Björn
Ingi Sveinsson, f.
19.7. 1970. c) Sigur-
bergur Sveinsson, f.
19.7. 1972. d) Guð-
mundur Geir Sveins-
son, f. 13.4. 1974. 2)
Þorgerður, f. 23.3.
1948, búsett á Sel-
fossi. Börn hennar: a)
Axel Hafsteinn Gísla-
son, f. 27.8. 1966,
kona hans er Signý
Harpa Hjartardóttir,
f. 13.1. 1970, sonur
þeirra er Sindri Steinn, f. 15.12.
1999. b) Oddný Sigríður Gísladótt-
ir, f. 17.6. 1974, í sambúð með Jóni
Guðmundi Birgissyni, f. 14.12.
1968, þeirra dætur eru Andrea Ýr,
f. 8.5. 1995, og Rakel Eir, f. 15.9.
1997. c) Björn Már Gíslason, f. 30.3.
1980, unnusta hans er Erna Dís
Ingólfsdóttir, f. 28.11. 1982.
Á yngri árum vann Sigríður við
verslunarstörf í Reykjavík. Einnig
vann hún á afgreiðslu Tímans í
nokkur ár. Eftir að Sigríður og
Björn giftu sig hófu þau fljótlega
búskap í Björnskoti á Skeiðum og
bjuggu þar til ársins 1982 þegar
þau fluttust á Selfoss.
Útför Sigríðar Guðmundsdóttur
fer fram frá Selfosskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.30.
Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breytt, og vit
til að greina þar á milli.
(Höf. ók.)
Þegar ég settist niður til að skrifa
nokkur minningarorð um elskulega
móður mína kom þessi bæn upp í
huga mér. Æðruleysið sem þú bjóst
yfir var einstakt. Oft hafa dagarnir
varið langir hjá þér í seinni tíð þegar
þróttur þinn minnkaði og þú gast
ekkert farið. Aldrei heyrði ég þig
kvarta. Þú þakkaðir fyrir innlitið
hvort sem það var stutt eða langt.
Baráttuþrek þitt til að vera sjálf-
bjarga var mikið. Þín heitasta ósk var
að vera heima hjá þér. Þér tókst það
með þinni seiglu. Við systurnar vor-
um hjá þér örfáa daga því þróttur
þinn var orðinn ansi lítill allra síðast.
Þú varst lögð inn á Ljósheima 17.
apríl en það var stutt vera því þú and-
aðist að morgni 18. apríl.
Mikið var ég þakklát fyrir að hafa
verið komin heim frá Kanarí þegar
þú þurftir á mér að halda og geta
uppfyllt ósk þína. Þú áttir það svo
sannarlega inni hjá mér. Þó að ég eigi
eftir að sakna þín og okkar stunda,
sem aldrei bar skugga á, þá er ég
mjög þakklát fyrir þína hönd að þú
fékkst að vera heima og þurftir ekki
að liggja lengur.
Guð blessi þig mamma mín og
þakka þér fyrir allt sem þú varst mér.
Þín dóttir,
Steinunn.
Elsku amma.
Margs er að minnast nú þegar þú
ert fallin frá. Þar ber hæst allar góðu
stundirnar sem ég átti í sveitinni hjá
ykkur afa þar sem ég var í mörg sum-
ur. Heimili ykkar var mér nánast sem
mitt annað heimili allt fram á ung-
lingsár. Ávallt munu börnin mín
minnast sunnudagskaffitímanna þar
sem vöfflur og rjómi var á borðum,
því þér þóttu vöfflur svo góðar. Alltaf
varst þú tilbúin að gefa góð ráð ef ég
leitaði til þín og studdir mig í því sem
ég tók mér fyrir hendur. Þú barst
ætíð með þér æðruleysi og gleði.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Valdimar Briem.)
Hafðu þökk fyrir allt sem þú hefur
verið mér.
Blessuð sé minning þín.
Bjarni og fjölskylda.
Látin er móðursystir mín, Sigríður
Guðmundsdóttir, og fer útför hennar
fram í dag frá Selfosskirkju. Eigin-
maður hennar, Björn Ingimar Valdi-
marsson, lést 2. ágúst 1985. Oft fór ég
ásamt foreldrum mínum í heimsókn
til þeirra hjóna og dætra þeirra í
Björnsskot, þar sem við vorum
nokkra daga, og síðan á Selfoss, eftir
að þau fluttu þangað, og voru þau
alltaf gestrisin og góð heim að sækja
og var gaman að koma til þeirra. Var
alltaf mjög gestkvæmt hjá þeim. Þeg-
ar ég var ellefu ára var ég í sveit hjá
þeim hluta úr sumri. Oft komu þau
hjónin í heimsókn til okkar í Heið-
argerði, og dvöldu þau hjá okkur
nokkra daga og var alltaf gaman þeg-
ar þau komu. Eftir að Ingi lést kom
Sigga oft og var hjá okkur í nokkra
daga og voru heimsóknirnar gagn-
kvæmar.
Sigga var mjög skyldurækin, trúuð
og góð kona. Við ræddum um margt,
bæði trúmál og liðna tíð og sagði hún
mér margt frá þeim tímum. Voru það
skemmtilegar stundir. Hún bar mikla
umhyggju fyrir afkomendum sínum
og ættingjum. Bið ég algóðan Guð að
blessa minningu Siggu og þeirra
hjóna og votta ég dætrum þeirra og
fjölskyldum innilegustu samúð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ólafur Þórisson.
SIGRÍÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ Jón SveinbjörnÓskarsson fædd-
ist í Klömbur, Aðal-
dal í S-Þingeyjar-
sýslu, 20. september
1924. Hann andaðist
á Sjúkrahúsi Húsa-
víkur 14. apríl síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Hildur
Baldvinsdóttir, f. 23.
júní 1892, d. 22.
janúar 1948, og Ósk-
ar Jónsson, f. 21.
nóvember 1883, d.
12. ágúst 1969.
Systkini hans: Hulda,
f. 9.12. 1915, lést í barnæsku;
Dagur, f. 14.4. 1917; Heiðbjört, f.
4.2. 1919, látin; Baldvin Hilmar, f.
10.2. 1921; Málfríður Ingibjörg, f.
19.1. 1923, látin; Hreinn, f. 26.2.
1927, látinn; Haukur Bjarmi, f.
25.1. 1928, og Sigurpáll, f. 19.2.
1931. Hinn 11. september 1954
kvæntist Jón eftirlifandi eigin-
konu sinni, Önnu Sigríði Gunn-
arsdóttur, frá Bangastöðum í
Kelduhverfi, f. 11. september
1930. Foreldrar hennar voru Vil-
fríður Guðrún Davíðsdóttir, f.
20.11. 1897, d. 25.5. 1973, og
Gunnar Jónatansson, f. 5.5. 1877,
d. 25.6. 1958. Börn þeirra: 1) ósk-
írður sonur, fæddur andvana
7.11. 1952. 2) Hildur, f. 26.7.
1955, búsett í Reykjavík, hennar
maður er Sigurður Héðinn Harð-
arson, f. 16.2. 1963, dætur þeirra
eru Anna Björt, f. 28.11. 1987, og
Hildur Ósk, f. 8.10. 1991. 3)
Óskírð dóttir, fædd andvana 23.8.
1956. 4) Óskar, f. 4.6. 1960, d.
19.2. 1990, hans kona er Ester
Sveinbjarnardóttir, f. 9.9. 1963,
búsett í Reykjavík,
synir þeirra eru
Markús, f. 15.9.
1986, og Jón Svein-
björn, f. 22.2. 1990.
5) Gunnar, f. 23.3.
1962, búsettur í
Klömbur, Aðaldal,
hans dætur eru
Hrafnhildur Anna, f.
20.10. 1983, búsett í
Reykjavík, dóttir
Ásdísar Kolbrúnar
Jónsdóttur, f. 20.3.
1957, og Eygló
Dögg, f. 22.2. 1986,
búsett í Vogum,
dóttir Hildar Halldórsdóttur, f.
8.9. 1966. 6) Haraldur, f. 5.11.
1965, búsettur á Höfn í Horna-
firði, hans kona er Sigurbörg
Einarsdóttir, f. 22.8. 1959, börn
þeirra eru Einar, f. 16.5. 1985,
Helga, f. 30.8. 1988, og Baldvin, f.
19.8. 1990. 7) Einar, f. 7.9. 1967,
búsettur í Mývatnssveit, hans
kona er Kolbrún Ívarsdóttir, f.
26.7. 1969, þeirra dóttir er Heið-
björt, f. 4.2. 1999. 8) Davíð, f. 7.9.
1967, búsettur á Húsavík, hans
kona er Helga Dóra Helgadóttir,
f. 31.5. 1970, þeirra synir eru
Davíð Helgi, f. 9.12. 1992, Óskar
Páll, f. 25.12. 1997, og dóttir Dav-
íðs er Elva Björg, f. 28.9. 1990,
búsett í Bandaríkjunum, móðir
hennar er Guðlaug Linda Kára-
dóttir, f. 5.8. 1971.
Jón var búfræðingur frá
Hvanneyri og starfaði alla sína
tíð sem bóndi á æskuheimili sínu,
Klömbur.
Útför Jóns fer fram frá Grenj-
aðarstaðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Ég minnist með gleði og þakk-
læti Jóns tengdaföður míns sem nú
hefur verið burt kallaður eftir ára-
langa sjúkralegu.
Það bárust háværar raddir til
eyrna minna, hér var Jón í Klömb-
ur léttur í lund að ræða landsins
gagn og nauðsynjar við einn gesta
sinna í eldhúsinu í Klömbur. Jón
hafði einstakt lag á að fá fólk til að
opna sig og tjá sínar skoðanir á
málunum. Hann hafði þetta hárfína
skopskyn og oft ögrandi skoðanir á
hlutunum, svona til að fá rétt
tempó í umræðuna. Honum fannst
lítið í það varið, ef hann ekki þurfti
að hafa svolítið fyrir því að ná sínu
fram og fá fólk til að sjá hlutina frá
hans sjónarhóli. Hann var mikill
gleðimaður og naut sín vel í góðra
vina hópi, þar sem hægt var að
taka eina og eina danssveiflu.
Jón var mikið náttúrubarn, laus
við auðhyggju, stress og streð sem
fylgir markaðshyggjukapphlaupi
nútímans. Það var órjúfanlegur
hluti af lífi hans að geta gengið nið-
ur að Laxá og veitt á stöng eða far-
ið upp að Langavatni.
Alla tíð mjólkaði hann kýrnar í
höndunum ásamt Baldvini bróður
sínum, því honum hugnaðist ekki
verksmiðjubúskapur og má með
sanni segja að búið í Klömbur hafi
verið það sem í nútímanum er kall-
að „vistvænt hamingjubú“, þar sem
skepnur, náttúra og maður lifðu í
samhljómi.
Jón var mjög kærleiksríkur og
voru barnabörnin fljót að smjúga
upp í fangið á afa þar sem hann sat
við eldhúsborðið í Klömbur. Fyrir
kom að þau sátu hvort á sínu læri
án þess að trufla afa nokkuð, hann
munaði ekkert um að gefa þeim að
borða með sér. Reyndar veit ég
ekki til að nokkur hafi borðað nóg í
Klömbur að mati Jóns, þetta var
allt svo mikið kropp.
Þessar minningar fljúga í gegn-
um huga minn á örskotsstundu og
fylla hann af gleði og hamingju. Því
góðir skilja gott eftir og þannig
mun ég ætíð á saknaðarstundum
geta leitað í fjársjóð minninganna
og ég veit að elskuleg tengdamóðir
mín, börnin þeirra Jóns, barnabörn
og aðrir aðstandendur munu einnig
gera það.
Ester Sveinbjarnardóttir.
Jæja, Jón, þá er komið að því að
við kveðjumst að fullu í þessu jarð-
lífi. Ég vil þakka þér fyrir allar
stundir sem við höfum átt saman í
gegnum árin. Ég mun alltaf minn-
ast þeirrar hlýju og eftirvæntingar
sem bjó í hjarta mínu þegar ég var
á leið norður á Klömbur. Ég man
ekki eftir öðru þegar norður var
komið en þú sætir í horninu þínu
eins og að þú værir að bíða eftir
einhverju með glettni í augum og
brosi á vör. Kveðjan sem þú not-
aðir var sérstök í alla staði. „Nei.
Komdu blessaður, vinur, og vel-
kominn.“ Þetta voru þau orð sem
þú tókst þér í munn og hvað mér
fannst þau ævinlega yndisleg. Það
var margt sem við skeggræddum
við eldhúsborðið á Klömbrum og
það vita þeir sem þar hafa setið
hvaða tilfinning það var að sitja í
þessu einstaka eldhúsi. Eitt var
það sem var gaman að spjalla við
þig um en það var veiði og þá sér-
staklega um veiðina í Nesi sem þú
þekktir vel á árum áður og var það
sérstaklega fróðlegt að leita í
smiðju þína í leit að þekkingu. Mér
er það minnisstætt hvað þú hafðir
ávallt gaman af að skoða veiðiflug-
unar, sem ég hafði meðferðis norð-
ur, ekki varstu mér sammála um að
úrvalið skipti þar nokkru um. Máli
þínu til stuðnings sagðir þú mér
söguna af tyggjóbréfinu góða. Þú
sagðir mér að eitt sinn hefðir þú
fundið tyggjóbréf á stéttinni á
Klömbrum, þú hefðir tekið það upp
og sett það á öngul sem þú áttir og
síða hefðir þú farið út í hænsakofa
og kippt nokkrum stélfjöðrum af
hananum. Fjaðrirnar klipptir þú til
og settir yfir tyggjóbréfið og síðan
vafðir þú þetta allt saman þannig
að úr varð veiðifluga. Með þessa
flugu að vopni fórst þú til veiða í
Nesi og veiddir það mikið þennan
dag að flugan var með öllu ónýt
eftir daginn, mikil var eftirsjá þín
að flugunni þar sem þetta var ein-
hver besta veiðiflugan sem þú
hafðir komist í kynni við. Mikið
reyndum við að líkja eftir þessari
flugu þú og ég því alltaf hafði ég
hnýtingargræjurnar mínar með-
ferðis norður á Klömbur, en því
miður tókst það aldrei og því tekur
þú fluguna þína með þér í veiði-
lendurnar miklu þar sem ég geri
ráð fyrir að þú munir staldra við í
smástund á leið þinni um ókunn
lönd.
Ef að rétt með flugu fer
fimur stangarmaður,
Kirkjuhólmakvíslin er
kjörinn veiðistaður.
(S.B. Nesi.)
Þinn tengdasonur,
Sigurður Héðinn.
Elsku afi.
Afabörnin á Hornafirði vilja með
þessum línum kveðja þig.
Þegar við vorum að koma til þín í
heimsókn á sumrin var alltaf það
fyrsta sem við sáum Klömbur,
bærinn þinn, og svo áin þín, Laxá,
þar varstu nú búinn að veiða mikið
í gegnum árin.
Þá fengum við að hjálpa þér í
heyskapnum, því yfirleitt vorum
við hjá þér á heyskapartíma. Svo
var nú gaman að koma til þín í fjós-
ið, þar sem þú handmjólkaðir kýrn-
ar og svo leyfðir þú okkur að prófa
að mjólka.
Afi, þú varst glettinn og góður
raulari. Þú sagðir okkur að þú
fengir aðalbláberjaskyr á hverjum
degi allt árið, því í brekkunum þín-
um uxu auðvitað heimsins bestu
aðalbláber.
Svo komuð þú og amma til okkar
á Hornafjörð. Hvað það var gaman
að sýna ykkur hina ýmsu fallegu
staði og vera saman. Þú varst mjög
ánægður með þessa heimsókn.
Elsku afi, við biðjum góðan guð
að geyma þig og styrkja hana
ömmu. Þökk fyrir allt.
Einar, Helga og Baldvin.
Í barnsins djúpa trega ég kem að hvílu
þinni
með kveðjublómin mín.
Þín minning verður alltaf eins og vor í
vitund minni.
Þar vermir sól og skín.
Ég treysti þér og fann að í hita handar
þinnar
var heilög von og þrá.
Þú vaktir, hjartans afi, í barmi bernsku
minnar
það besta, sem ég á.
Og núna þegar vorblærinn strýkur
heitri hendi
og heilsar grænni jörð,
þá hverfur þú í burtu að ævi þinnar
endi,
en ást og þakkargjörð
er kveðja mín og okkar, hún er eldur
sá á arni,
sem yljar kaldan dag.
En Guð, sem öllu ræður, gef þínu besta
barni
hið bjarta sólarlag.
(Valdimar Hólm Hallstað.)
Nú ertu farinn frá okkur, elsku afi.
Þú varst alltaf svo góður við mig og
það var alltaf svo gott og gaman að
koma í Klömbur til ykkar ömmu.
Ég man alltaf eftir því þegar þú
varst að kenna mér að mjólka
kýrnar, ég fékk nú aldrei eins mik-
ið úr spenunum og þú en þú hvattir
mig alltaf áfram að reyna. Ég vildi
alltaf fara með þér í fjósið að
mjólka og þegar þú töltir út til að
gefa kálfunum rölti ég á eftir þér
með hendur fyrir aftan bak alveg
eins og þú gerðir alltaf. Við mat-
arborðið átti ég vísan stað í fanginu
á þér og vildi alltaf borða með þér.
Ég vil þakka þér fyrir allt, elsku afi
minn, ég mun alltaf minnast þín og
allra okkar góðu stunda saman og
ég veit að guð og englarnir passa
þig núna.
Þinn sonarsonur,
Davíð Helgi.
JÓN SVEINBJÖRN
ÓSKARSSON
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.