Morgunblaðið - 28.04.2001, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KONUNGLEGI leiklistarskólinn í Lond-on, Royal Academy of Dramatic Art(RADA), er einn sá virtasti í heiminum.Það voru 1.400 manns sem sóttu um í
þetta sinnið en einungis 32 sem komust að, þar á
meðal Aníta. Hún er fyrsti Íslendingurinn í fjóra
áratugi sem hlýtur þarna inngöngu en Gunnar Eyj-
ólfsson, Klemens Jónsson og Steinunn Bjarnadóttir
voru þarna á sínum tíma. Skólastjórinn hringdi
sjálfur í Anítu og tilkynnti henni fréttirnar, sem
þykir tíðindum sæta. Af þessu má sjá að árangur
Anítu er ekkert minna en framúrskarandi.
Vöruð við
„Það var alltaf verið að vara mig við,“ segir Aníta.
„Mér var sagt að það væri ekkert litið við Íslend-
ingum og ég skyldi bara gleyma þessu. Þetta er
nefnilega alveg ofsalega virt stofnun, Anthony
Hopkins og Lord Attenborough sitja þarna í nefnd-
inni, þannig að þetta er tengt áhrifaríku fólki og það
er mikið tekið eftir RADA-nemendum af leikstjór-
um, framleiðendum o.s.frv. Ég hef tekið eftir því
þegar ég hef verið að tala við leikara og annað fólk í
þessum bransa og segist hafa fengið inngöngu í
RADA þá fær maður sjálfkrafa einhvers konar
virðingu frá þeim!“
Aníta hefur nú búið í London í tvö ár.
„Ég er að ljúka menntaskólastiginu í vor,“ upp-
lýsir hún. „Ég átti alveg eins von á því – þegar ég
fór í leiklistarkólann – að þeir myndu segja mér að
koma aftur eftir tvö ár. Ég er ekki nema 18 ára.
Þeir taka ekki yngri nemendur en 18 þannig að
maður átti alveg eins von á því að verða vísað burt.
Ég er svo búin að vera í prufum síðan í nóvember.“
Hún segir stigin vera þrjú sem nemendur gangi í
gegnum. „Er lengra var komið var ég beðin um að
syngja og þá söng ég Vísur Vatnsenda-Rósu.
Reyndi að hafa þetta svolítið þjóðlegt. Ég hef frek-
ar nýtt mér það að vera Íslendingur en hitt. Fólk
hefur oft áhyggjur af því að vera útlendingar en ég
reyndi bara að spila svolítið inn á það.“
Ekkert stress
Aníta segir það mikilvægt að vera öðruvísi í þess-
um bransa.
„Maður þarf að finna eitthvað í sjálfum sér sem
er einstakt og öðruvísi svo það sé tekið eftir manni.
Það er svo auðvelt að týnast í öllum fjöldanum. Það
þarf að gera eitthvað til að láta á sér bera. Það þarf
alltaf að vera að ota sínum tota – eitthvað sem mað-
ur upplifði aldrei hérna á Íslandi. Núna þarf maður
að berjast fyrir hverju einasta snifsi! Þannig að
þetta herðir mann, maður er orðinn viðskiptakona!“
Aníta segist í raun ekki hafa náð því að verða
neitt stressuð í inntökuprófunum.
„Fyrir mér var þetta bara fjarlægur draumur.
Ég átti aldrei von á því að komast inn. Þannig að ég
leit bara á þetta sem dýrmæta reynslu fyrir mig og
sagði bara við sjálfa mig: „Ég ætla að nýta þetta í
botn og hafa rosalega gaman af því.“ Enda fékk ég
tíma hjá bestu kennurum Bretlands. Þannig að það
var engin pressa á mér og þess vegna náði ég að
gera mitt besta.“
Aníta segir einmitt að stress sé frekar misskilið
fyrirbæri.
„Þetta er bara orka; þetta er adrenalín. Og um
leið og fólk áttar sig á því getur það nýtt orkuna sér
í hag í stað þess að láta hana eyðileggja fyrir sér. Þú
stjórnar orkunni en hún ekki þér.“
Námið er þrjú ár og alveg ofsalega stíft, að sögn
Anítu.
„Þetta mun taka yfir líf mitt næstu þrjú árin og
ég er bara mjög hamingjusöm með það. Þetta er
mín ástríða og ég tók ákvörðun um að ég ætlaði að
verða leikkona þegar ég var 16 ára. Þetta er það
sem ég þarf að gera fyrir mig – og þetta er hægt. Þú
þarft að vera alveg rosalega ákveðinn því þeir sjá
algjörlega í gegnum það ef þú ert það ekki. Ef þeir
fá nemanda til sín í prufu sem er æðislega hæfi-
leikaríkur en ekki alveg viss í sinni sök þá getur
hann bara gleymt þessu. Þeir líta ekki við honum.
Hugurinn, sálin og hjartað þarf að vera í þessu
120%. Þú verður að vita að þetta sé þitt líf – og sért
tilbúinn að fórna öllu fyrir það.“
Ljósmynd/Dagur Gunnarsson
Aníta Briem tók ákvörðun um að leggja leiklistina fyrir sig þegar hún var 16 ára.
Fjarlægur
draumur
rætist
Ung íslensk leikkona, Aníta
Briem, er komin inn í konung-
lega leiklistarskólann í London.
Arnar Eggert Thoroddsen
ræddi við hana á þessum tíma-
mótum.
Aníta Briem fékk inngöngu í einn virtasta leiklistarskóla heims
Eftirlifendur
(Sole Survivor)
S p e n n u m y n d
Leikstjóri Mikael Salomon. Aðal-
hlutverk Billy Zane, John C. Mc-
Ginley. 165 mín., Bandaríkin 2000.
Skífan. Bönnuð innan 16 ára.
HÉR er á ferð tveggja hluta sjón-
varpsmynd á einni spólu, sem gerð
er eftir einni af metsölubókum skáld-
sagnahöfundarins nafntogaða, Dean
Koontz. Hér er því um mikla og
langa mynd að ræða sem gæti fælt
einhverja frá. Óttist þó ekki. Þrátt
fyrir hátt í þriggja tíma setu leiðist
manni aldrei nokkurn tímann heldur
þvert á móti nær myndin að halda
manni rígföstum
frá upphafi til enda.
Sagan er á yfir-
náttúrulegum nót-
um. Blaðamaður-
inn Joe Carpenter
(Zane) missir konu
sína og dóttur í
hörmulegu flug-
slysi en ári síðar
kemst hann á snoðir um að ekki sé
allt með feldu og að hugsanlega hafi
þær alls ekkert farist.
Það væri synd að fara að reifa
söguþráðinn nánar því honum er ætl-
að að koma manni á óvart á fleiri en
einn veg. Á endanum tekst það
kannski ekki alveg nægilega vel hvað
mig varðar og langsóttar niðurstöð-
ur eru helsti gallinn í annars
heillandi sögu.
Hinn sænskættaði leikstjóri og
gamalkunni kvikmyndatökumaður
Salomon heldur vel á spöðunum.
Zane er kröftugur og alltaf trúverð-
ugur í aðalhlutverkinu og og kant-
leikarinn McGinley nýtur sín í safa-
ríkri óþokkarullu, kannski einum of.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Handan
móðunnar
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.45. Vit nr. 224.
Sýnd kl. 2 og 3.50.
Vit nr. 203.
Sýnd kl. 1.50. Íslenskt tal.
Vit nr. 169
Sýnd kl. 8 og 10.20.
Vit nr. 225.
2 fyrir 1
Þið munuð aldrei trúa því hversu ná-
lægt heimsendi við vorum
i l i t í -
l i i i
Kevin Costner (Dances with Wolves) í sannsögulegri
spennumynd um Kúbudeiluna 1962 og hversu ná-
lægt glötun heimurinn komst.Hann man aldrei meira en seinustu 5 mín af ævinni sinni og veit ekki hver-
jum hann getur treyst. Guy Pearce (LAConfidential) og Carrie-Anne Moss
(Matrix) í frábærri spennumynd sem Ebert og Roeper líkja við PulpFiction
og Usual Suspects.
Engi
n mi
nnin
g get
ur ve
rið h
ættu
leg!
Sýnd kl.3.40, 5.45, 8 og 10.15. vit nr 220. B.i.14.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
HK DV
Ó.H.T RÚV
strik.is
www.sambioin.is
Sýnd kl. 5.30 og 8.
B.i.16. Vit nr. 201
HK DV
Kvikmyndir.is
Hau-sverk.is
Tvíhöfði
ÓJ Stöð2
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 207
Kvikmyndir.is
Vinsælasta Stúlkaninsæl sta Stúlkan
Brjáluð
Gamanmynd
Forrester fundinn
Allir hafa hæfileika,
þú verður bara að upp-
götva þá.
Sýnd kl. 10.30.
Vit nr. 217
Kvikmyndir.com
Sprenghlægileg ævintýramynd
Sýnd kl. 2, 4 og 6. sl. tal. Vit nr 213. Sýnd kl. 2 og 3.50. Enskt tal. Vit nr 214
Sýnd kl. 2 og 3.50.
ísl tal Vit nr. 183.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Vit nr. 173.
Miss Congeniality
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 10.
B. i. 16.
eftir Þorfinn Guðnason.
HK DV
Strik.is
Ó.H.T Rás2
SV Mbl
Lalli
Johns
Yfir 5000 áhorfendur
Sýnd kl. 5 og 8.
Sýnd kl.3, 5.30, 8 og 10.30.
Forsýnd kl.8.
kirikou
og galdrakerlingin
DV
Tví-
höfði
Sýnd. kl. 2 og 4.
Sýnd kl. 2.
Sýnd kl. 8 og 10.15
B.i.16 ára. Sýnd kl. 5.45 og 8
Málþing
kl.1.
Kristnihald undir jökli
sýnd kl.6
Útlaginn
sýnd kl. 10.30.
Stuttmyndadagar í Reykjavík. Umsóknafrestur rennur út 6. maí
www.this.is/shortcut
HK DV
Kvikmyndir.com
strik.is
Sýnd kl. 11.
FRUMSÝNING
Ó.H.T RÚV