Morgunblaðið - 01.05.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isAlfreð Gíslason segir að Magdeburg
hafi aldrei leikið betur /B6
KA stendur vel að vígi fyrir fjórða
leikinn á fimmtudag /B2
12 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
RÚMLEGA 300 einkennisklæddir
lögreglumenn gengu fylktu liði
að Alþingishúsinu í gær og mót-
mæltu seinagangi í kjara-
viðræðum við ríkið og vinnu-
brögðum samninganefndar
ríkisins en samningar lögreglu-
manna hafa nú verið lausir í átta
mánuði.
Almennur fundur þeirra hafði
skömmu áður samþykkt ályktun
þar sem segir m.a. að leiða megi
líkum að því að staða kjara-
viðræðna við ríkið sé svo slæm
sem raun ber vitni sökum þess að
lögreglumenn hafi ekki þving-
unarúrræði s.s. verkfallsrétt.
Skorað var á stjórnvöld að renna
öflugum stoðum undir löggæsl-
una strax og þess er krafist að
stjórnvöld móti stefnu í löggæslu-
málum til að tryggja öryggi
borgaranna.
Þá er vísað til ályktunar aðal-
fundar Félags yfirlögregluþjóna
hinn 20. apríl sl. en þar segir
m.a.: „Ljóst er að eftir því sem
dregst að ganga frá viðunandi
kjarasamningi má búast við að
fleiri lögreglumenn hverfi úr
starfi.“
Viðvarandi skortur á fag-
lærðum lögreglumönnum
Um 350 lögreglumenn voru á
fundinum og er það um helm-
ingur lögregluliðs landsins. Sól-
veigu Pétursdóttur dómsmála-
ráðherra og Halldóri Blöndal,
forseta Alþingis, var afhent
ályktun fundarins og greinargerð
um gang kjaraviðræðnanna.
Jónas Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna,
segir að mótmælunum sé ætlað
að vekja athygli þjóðþingsins og
alls almennings á þeirri stöðu
sem lögreglumenn eru í. Helstu
kröfur lögreglumanna eru, að
sögn Jónasar, þær að grunnlaun
menntaðra lögreglumanna verði
ekki lægri en 150.000 krónur á
mánuði. Þá verði starfslok þeirra
miðuð við 60 ár sem sé svipað og
í nágrannalöndum Íslands enda
hafi kannanir sýnt að lög-
reglumenn lifi 5–7 árum skemur
en meðalmaðurinn. Því valdi
helst streita í starfi og óreglu-
legur vinnutími.
Í ályktun fundarins er lýst yfir
áhyggjum af viðvarandi skorti
faglærðra lögreglumanna. Jónas
segir að hvergi í nágrannalönd-
um okkar tíðkist að menn sem
ekki hafa lokið prófi frá lög-
regluskóla starfi sem lög-
reglumenn. Nú séu um 70–80
ófaglærðir lögreglumenn að
störfum en hafi síðasta sumar
verið um 160. Þetta valdi auknu
álagi á faglærða lögreglumenn
auk þess sem hætta sé á því að
þeir lögreglumenn sem þekkja
ekki til hlítar þau lög sem þeir
starfa eftir geri mistök í starfi.
Það bitni á borgurunum og lög-
reglunni í heild sinni.
Landssamband lögreglumanna
framlengdi í gær viðbótartrygg-
ingar lögreglumanna á eigin
ábyrgð en þær hefðu að öðrum
kosti runnið út á miðnætti.
Hvatti fundurinn lögreglumenn
til að sýna ýtrustu aðgæslu og
tefla ekki í tvísýnu við störf sín.
Jónas segir að enn hafi ekki
náðst samkomulag við ríkið um
skiptingu kostnaðar vegna fram-
lengingarinnar. „Það þarf ekki að
koma til aðgerða af þeim sökum
en þessi staða er engu að síður
slæm,“ segir Jónas.
Um 300 einkennisklæddir lögreglumenn gengu fylktu liði að Alþingi
Morgunblaðið/Ásdís
Rúmlega 300 einkennisklæddir lögreglumenn tóku þátt í göngunni og komu þeir víðsvegar að af landinu.
Mót-
mæltu
seina-
gangi í
kjaravið-
ræðum
SAMKOMULAG náðist í kjaradeilu Félags há-
skólakennara og samninganefndar ríkisins í gær-
morgun og voru samningar undirritaðir um níu-
leytið eftir næturlangan fund. Hefur verkfalli
félagsins, sem hefjast átti á miðnætti í kvöld og
standa til 16. maí, verið aflýst.
Innan vébanda Félags háskólakennara eru allir
háskólamenntaðir starfsmenn Háskóla Íslands
aðrir en prófessorar og eru félagar um 470 talsins.
Róbert H. Haraldsson, formaður Félags há-
skólakennara, sagði að nú yrði farið í það að kynna
kjarasamninginn fyrir félögum, en ekki hefði verið
ákveðið í smáatriðum hvernig að því yrði staðið, né
hvenær atkvæði yrðu greidd um nýja samninginn.
Aðspurður sagðist hann vera sáttur við niður-
stöðuna. Þeir hefðu náð fram umtalsverðum hluta
af því sem þeir hefðu lagt upp með í kjaraviðræð-
urnar.
Róbert sagði að það markmið sem þeir hefðu
lagt upp með hefði verið að ná upp grunnlaun-
unum, jafnframt því að tryggja virkni þeirra ár-
angurskerfa sem væru til staðar samkvæmt
launakerfinu.
Hann sagðist aðspurður telja að með þessum
samningum hefðu sannarlega verið tekin spor í
rétta átt varðandi það að setja háskólakennslu og
rannsóknir á þann stall sem þeim bæri launalega
séð. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um ein-
stök atriði kjarasamninganna, þar sem hann vildi
kynna þau fyrst fyrir félögum í Félagi háskóla-
manna áður en frá þeim yrði skýrt í fjölmiðlum.
Kjarasamningurinn gildir í hálft fjórða ár frá 1.
apríl síðastliðnum til loka nóvember árið 2004.
Þungu fargi létt af stúdentum
Stjórn Stúdentaráðs samþykkti ályktun í gær
eftir að samkomulag náðist í kjaraviðræðunum
þar sem samkomulaginu er fagnað. „Verkfalli er
aflýst og þungu fargi er létt af tæplega sjö þúsund
háskólastúdentum sem nú geta þreytt próf sam-
kvæmt próftöflu. Stúdentaráð hefur barist af full-
um krafti fyrir því að samkomulag náist. Sú bar-
átta hefur skilað árangri og þakkar ráðið
stúdentum fyrir öflugan stuðning í baráttunni og
óskar þeim góðs gengis í prófunum.“
Formaður Félags háskólakennara um nýjan kjarasamning félagsins
Sáttur við niðurstöðuna
ÚTGERÐAR- og fiskvinnslufyrir-
tækið Vísir í Grindavík tilkynnti
starfsmönnum sínum í gær að frá og
með 2. maí yrðu þeir teknir af launa-
skrá. Er ástæðan rekstrarstöðvun
vegna hráefnisskorts sem stafar af
sjómannaverkfallinu og er fólki bent
á að sækja um atvinnuleysisbætur.
Hjálmar Sigurðsson, trúnaðar-
maður starfsmanna hjá Vísi, tjáði
Morgunblaðinu að þetta hefði komið
flatt upp á starfsfólk, það hefði und-
anfarnar vikur unnið úr fiski sem til
var en því hefði lokið um hádegi í
gær. Hjálmar sagði rúmlega 40
manns hafa unnið hjá fyrirtækinu,
um helmingur þess hefði verið send-
ur heim en á kauptryggingu fljótlega
eftir að sjómannaverkfallið hófst en
hinir hefðu haft vinnu áfram þar til í
gær. Eftir að vinnu lauk var starfs-
fólkinu tilkynnt með bréfi sem sent
var heim að þar sem ekkert hráefni
hefði borist í tæpan mánuð yrði að
tilkynna því að það yrði tekið af
launaskrá frá og með miðvikudegi 2.
maí. Hjálmar segir 6–7 manns vinna
áfram við ýmis viðhaldsstörf hjá Vísi.
Í bréfi Péturs Hafsteins Pálsson-
ar, framkvæmdastjóra Vísis, til
starfsmanna Vísis segir meðal ann-
ars: „Sjómannaverkfallið hefur nú
staðið í mánuð til viðbótar við þá
daga sem voru í mars. Vilji eig-
endanna hefur verið sá að reyna eins
og unnt væri að hafa starfsfólk við
landvinnsluna á launum yfir þann
tíma. Nú hefur verkfallið staðið leng-
ur en svo að hægt sé að standa við
þau áform. Ekkert hráefni hefur
borist fyrirtækinu í tæpan mánuð og
nú er búið að pakka öllum þeim fiski
sem í húsinu var.“ Segir einnig að
taka verði starfsfólk af launaskrá og
er því bent á að skrá sig hjá Svæð-
isvinnumiðlun Reykjaness vegna at-
vinnuleysisbóta meðan hráefnis-
skortur varir vegna verkfallsins.
Starfsfólk
Vísis af
launaskrá
FRÉTTAÞJÓNUSTA verður
veitt á mbl.is í dag, 1. maí.
Hægt er að koma ábendingum
til blaðamanna í síma 861-7970
eða með því að senda tölvupóst
til netfrett@mbl.is.
Fréttaþjón-
usta á mbl.is
ÞRÍR 24 ára gamlir Litháar sem
sitja í gæsluvarðhaldi og sæta ákæru
Lögreglustjórans í Reykjavík vegna
gruns um stórfelldan þjófnað í fyr-
irtækið Hans Petersen og Bræðurna
Ormsson um miðjan mars sl. neituðu
allir sakargiftum við þingfestingu
málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Verðmæti þess sem stolið var
nemur á áttundu milljón króna. Einn
ákærðu viðurkenndi þó að hafa stolið
þremur sængum að verðmæti 9 þús-
und krónur úr leiguherbergi þeirra á
Farfuglaheimilinu við Sundlauga-
veg.
Stefnt er að því að aðalmeðferð
málsins fari fram í maílok og mun
ákæurvaldið leiða fram allt að 25
vitni í réttarhöldunum.
Litháar neita
sök um stór-
felldan þjófnað
TVEIR menn, sem sitja í gæsluvarð-
haldi og sæta ákæru ríkissaksóknara
fyrir rán í fimm söluturna og tilraun
til ráns í þeim sjötta á fjögurra vikna
tímabili í janúar og febrúar sl., ját-
uðu sakargiftir fyrir dómi við þing-
festingu málsins í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Ránin voru fram-
in á höfuðborgarsvæðinu og ógnuðu
ákærðu afgreiðslufólki með hnífum
og höfðu á brott með sér fjármuni.
Þá sætir karlmaður ákæru ríkis-
saksóknara fyrir að hafa stungið
mann í kviðinn með hnífi 20. ágúst sl.
Játa á sig rán í
5 söluturnum
♦ ♦ ♦