Morgunblaðið - 01.05.2001, Síða 24
LANDIÐ
24 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Búðardal - Jörvagleðin var haldin
hér í Dölunum 19.–22. apríl og tókst
hún vel. Mikið var að gera fyrir alla
og var hátíðin vel sótt. Þessi menn-
ingarhátíð hefur verið haldin hér
annað hvert ár með þessu sniði frá
árinu 1977 er hún var endurvakin,
en hér fyrr á síðustu öld var þetta
mjög fræg hátíð og réð fólk sig ekki
á bæi í vinnumennsku nema að um
það væri samið að það fengi að
sækja Jörvagleðina. Þessi mikla há-
tíð dregur nafn sitt af bænum Jörva
í Haukadal, þar var þetta mikil
danshátíð, en Jörvagleðin var af-
lögð í upphafi átjándu aldar vegna
lauslætis sem fylgdi gleðinni. Þá
tóku álfarnir þátt í Jörvagleðinni
og skemmtu þeir sér vel með mann-
fólkinu. Ekki er vitað hvort þeir
fylgist með núna en það fer alla
vegana minna fyrir þeim.
Menningarveisla fyrir börn og
fullorðna. Margt var í boði fyrir
alla, byrjað var á sumardaginn
fyrsta á guðsþjónustu í Kvenna-
brekkukirkju en þá var einnig hald-
ið upp á 75 ára afmæli kirkjunnar.
Um kvöldið var unglingakaraoke á
gistiheimilinu Bjargi, einnig var
Jörvagleðin formlega sett í Dala-
búð og var opnuð með miklum kór-
söng af fjórum kórum og einum
kvartett. Það voru Breiðfirð-
ingakórinn, Vorboðinn, Þorrakór-
inn og samkór Reykhólahrepps,
kvartettinn Guttarnir, en hann
skipa þeir Ásgeir Salberg Jónsson,
Hörður Hjartarson, Skjöldur Orri
Skjaldarson og Þórður Hall-
dórsson. Eftir þennan mikla og
góða söng tók Nikkólína við og spil-
aði harmonikumúsik fyrir þá sem
vildu dansa, eða bara njóta tónlist-
arinnar. Á föstudagskvöld var svo
haldið bridgemót í Tjarnarlundi í
Saurbæ og í Dalabúð fór fram leik-
sýningin Fiskar á þurru landi í leik-
stjórn Harðar Torfasonar. Fjórir
félagar úr Leikfélagi Laxdæla
sýndu við góðar undirtektir áhorf-
enda. Á eftir var boðið uppá ka-
raoke fyrir fullorðna á kránni. Á
laugardag var svo haldið áfram og
var þá byrjað á bíói fyrir börnin og
nutu þau þess að borða popp og got-
terí og horfa á Risaeðlur á bíó-
skerminum. Um kvöldið kom karla-
kórinn Heimir í Árblik í Miðdölum
og hélt þar tónleika og var þar
Jörvagleðinni 2001 formlega slitið.
Seinna það kvöld var stórdans-
leikur í Dalabúð með hljómsveitinni
Landi og sonum. Á sunnudags-
kvöldið var Hörður Torfason með
tónleika í Tjarnarlundi í Saurbæ.
Nefndarmenn stóðu sig að allra
mati vel. Nefndina í ár skipuðu þau
Ragnheiður Jónsdóttir formaður,
Kristín Guðrún Ólafsdóttir, sr. Ósk-
ar Ingi Ingason, Hörður Hjartarson
og Dóróthea Sigvaldadóttir.
Jörvagleði
Leikarar í Leikfélagi Laxdæla í hlutverkum sínum.
Morgunblaðið/Guðrún Kristinsdóttir
Birni S. Guðmundssyni var færður blómvöndur sem þakklætisvottur frá
Þorrakórnum sem frumflutti lag og texta eftir Björn.
Stykkishólmi - Skógrækt-
arfélag Stykkishólms hef-
ur komið upp skógarlundi
í bæjarlandinu í Grensási.
Trausta Tryggvasyni
skógarverði var brugðið í
síðustu viku er hann kom
þangað í eftirlitsferð. Þar
hafði verið unnið skemmd-
arverk á skóginum. Búið
var að höggva 10–15 tré
og þau höfð á brott.
Greinilegt er að heim-
sóknin var farin í ákveðn-
um tilgangi. Valdir höfðu
verið beinvaxnir trjástofn-
ar af birki, selju og grá-
elri. Skemmdarvargarnir
höfðu notað öxi við verkið
og skilið eftir ljót sár. Á
sárunum sést að ekki er
langt síðan verkið var
unnið. Trausti var að von-
um vonsvikinn yfir svona
umgengni og er lítið hrif-
inn af að fá sjálfskipað lið í
grisjun. Þetta er leiðinlegt
fyrir þá sem hafa staðið að
ræktuninni. Sem betur fer hefur
svona ekki gerst áður. Athæfið hef-
ur verið kært og eru þeir sem geta
gefið einhverjar vísbendingar sem
gætu upplýst verknaðinn beðnir að
hafa samband við lögregluna.
Í skógarreitum Skógræktar-
félagsins í Grensási, Sauraskógi og
í Vatnsdal hefur verið lögð áhersla
á að gera þá aðgengilega fyrir al-
menning svo að fólk geti notið þess
að ganga þar um og njóta gróðurs-
ins. Lagðir hafa verið göngustígar,
sett upp borð og grillaðstaða. Að
sögn Trausta er aðsóknin á sumrin
alltaf að aukast, en umgengni gesta
er ekki alltaf til fyrirmyndar, því
miður.
Skemmdarverk unnin hjá Skóg-
ræktarfélagi Stykkishólms
Skógarhögg
í skjóli nætur
Trausti Tryggvason skógarvörður við leif-
ar af beinstofna tré sem óvelkomnir gestir
hjuggu og höfðu á brott með sér.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Búðardal - Þau deyja nú ekki
ráðalaus í Búðardal. Í góða veðr-
inu sem verið hefur hér að und-
anförnu hefur verið bankað upp á
hjá fólki og þar stóðu nokkrir
krakkar úr 2. bekk og ein úr 3.
bekk grunnskólans hér að selja
skeljar, steina og ýmislegt annað
smádót sem þau höfðu safnað að
sér. Þau voru að safna peningum
til styrktar Rauða krossi Íslands
og völdu þessa leið. Fólk tók þeim
vel þegar þau bönkuðu upp á og
söfnuðu þau 1.792 krónum.
Krakkarnir voru með verð í lág-
marki að þeirra sögn og kostaði
þetta frá 10 krónum og upp úr.
Þau fóru svo öll saman í bankann
að leggja peninginn inn á reikn-
ing Rauða krossins. Það voru
stolt börn sem stóðu með kvittun
fyrir innleggsnótunni.
Morgunblaðið/Guðrún Kristinsdóttir
Krakkarnir sem söfnuðu peningunum: Ernir Freyr Sigurðsson, Krist-
inn Viðar Oddsson, Fjóla Heiðarsdóttir, Drífa Huld Guðjónsdóttir,
Telma Björg Þórarinsdóttir og Elín Margrét Böðvarsdóttir.
Ráðagóðir krakkar
Búðardal - Nýlega var í heimsókn í
skólanum írsk kona sem býr í Skot-
landi, Claire Mulholland, og með
henni ferðamálafulltrúinn Sigur-
borg Kr. Hannesdóttir. Þær voru
hér í eina viku og kenndu börn-
unum sagnalist og sögðu þeim sög-
ur. Einnig kom gestur, Kristmund-
ur Jóhannesson, og sagði sögur af
sinni alkunnu frásagnarlist. Eftir
vikuna buðu börnin almenningi á
sagnakvöld í Dalabúð og þar sögðu
þau gestum sögur og Claire sagði
m.a. söguna – og krakkarnir léku –
af Melkorku, sem er að finna í Lax-
dælu. Einnig voru frumsamin æv-
intýri með leikrænni sýningu á
sagnakvöldinu. Kristmundur sagði
sögu sem gerðist í Haukadal og
Þrúður Kristjánsdóttir skólastjóri
söng fyrir gestina og tókst það með
miklum ágætum.
Líflegt sagnakvöld
barnanna í Búðardal