Morgunblaðið - 01.05.2001, Page 41
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 41
Heimsferðir opna þér leiðina til Ítalíu á
verði sem hefur aldrei sést fyrr á Íslandi.
Vikulegt flug alla föstudaga til Mílanó, þessarar háborgar lista og tísku í
heiminum. Hér kynnist þú listaverkum Leonardo da Vinci, Scala-óperunni
með frægustu listamönnum heimsins, hinum fræga miðbæ þar sem
Duomo-dómkirkjan gnæfir yfir, hinni frægu verslunargötu Galeria Vittorio
Emanuele II, ráðhúsinu, glæsilegustu verslunum heimsins, listasöfnum og
nýtur lífsins í þessu menningarhjarta Evrópu.
Beint flug föstudaga
- engin millilending
Mílanó
í sumar
frá 22.720 kr.
Verð kr. 22.720
Verð á mann m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára.
Skattar, kr. 2.495 fyrir fullorðinn, kr.
1.810 fyrir barn, innifaldir.
Ekki er öruggt að lægsta fargjald sé
til í öllum brottförum.
Verð kr. 23.520
Flugsæti fyrir fullorðinn.
Verð kr. 26.015 með sköttum.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Flugsæti
Flug og bíll
Flug og hótel
EINAR G. Baldvinsson opnar sýn-
ingu á vatnslitamyndum í art gall-
ery, Ármúla 36, í dag, þriðjudag.
Einar er fæddur árið 1919. Hann
hefur haldið fjölda einkasýninga,
þá fyrstu í bogasal Þjóðminjasafns-
ins árið 1958. Sýningin stendur til
15. maí.
Frá Hafnarfirði: Einar G. Baldvinsson.
Einkasýning
Einars G.
Baldvinssonar
ARKITEKTINN Michael
Anderson heldur fyrirlestur og
sýnikennslu á vegum umhverf-
is- og byggingarverkfræðiskor-
ar Háskóla Íslands á morgun,
miðvikudag, kl. 16 í húsi verk-
fræðideildar, Hjarðarhaga 2-6,
í stofu 158.
Michael er sérfræðingur í
japönskum arkitektúr og
smíðaaðferðum. Hann lærði
sjálfur hjá kunnum japönskum
trésmíðameistara og hefur rek-
ið arkitektastofu í Osaka. Hann
hefur einnig starfað víða um
lönd og verið kennari við Berk-
eley- og Cambridge-háskóla.
Michael mun lýsa hefðum og
helgiathöfnum sem smíðunum
tengjast og loks verður sýning
á verkfærunum og sýnt hvernig
þau eru notuð.
Ef áhugi væri á að stuðla að
byggingu japansks timburhúss
á Íslandi verður það tekið til
umræðu í lok fyrirlestursins.
Fyrirlesturinn fer fram á
ensku. Fundarstjóri er Trausti
Valsson, arkitekt og skipulags-
fræðingur.
Fyrirlestur
um japanskt
handverk