Morgunblaðið - 01.05.2001, Page 46
MENNTUN
46 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
F
lokkunarvandinn hef-
ur viljað loða við
franska gáfumenn.
Þar sem aðrir halda
sig vanalega á sinni
braut skeiða þeir iðulega þvert
yfir völlinn og setja allt skipulag í
uppnám, brjóta leikreglurnar
sem hingað til hefur ríkt þegjandi
samkomulag um. Það er eins og
þeir geti ekki gert upp við sig
hvort þeir vilja vera skáld eða
fræðimenn og þá hvers konar
skáld og hvers konar fræðimenn.
Þetta veldur skilgreining-
arsjúkum samtímanum hugar-
angri.
Jean Baudrillard hefur starfað
eins og óþekktur vírus í hugvís-
indum síðustu
áratuga.
Hann er
sennilega sá
núlifandi
félags- og
menningar-
fræðinga sem hvað tíðast er vitn-
að til en á sama tíma er hann
sennilega einn sá umdeildasti
líka.
Kenningar hans um upplausn
veruleikans og yfirtöku eftirlík-
inganna í speglasal fjölmiðlanna
hafa reynst ákaflega notadrjúgar
en margir hafa gagnrýnt fræði-
legar forsendur þeirra. Að sumra
mati hefur Baudrillard misst öll
tengsl við veruleikann enda haldi
hann því fram að veruleikinn hafi
gufað upp í tilraunaglasi fjöl-
miðlanna. Hafa sumir gagnrýn-
endur hans kveðið svo fast að
orði að skrif hans gætu frekar
talist til vísindaskáldskapar en
fræða.
Í einni af minnisbókum sínum,
Svölum minningum II, svarar
hann þessari gagnrýni með þess-
um prakkaralegu orðum:
„Skáldskapur? Verk mín eru
það nú þegar. Sögupersónur mín-
ar eru nokkrar geggjaðar tilgátur
sem misnota veruleikann með
ýmsum hætti en ég losa mig við
þegar þær hafa gert sitt gagn.
Eina leiðin til að meðhöndla hug-
myndir er: morð (þeir drepa hug-
tök, ekki satt?) – en glæpurinn
verður að vera fullkominn. Þetta
er auðvitað uppspuni. Ef einhver
svipur er með persónum mínum
og raunverulegum manneskjum
þá er það tóm tilviljun“ (CM II).
Þessar „geggjuðu tilgátur“
Baudrillards hafa verið af ýmsu
tagi; sjálfur segist hann hafa ver-
ið „ofurfrumspekingur um tvítugt
– aðstæðingur um þrítugt – út-
ópískur um fertugt – þversum
um fimmtugt – vírus og viðhengi
um sextugt [...]“ (Svalar minn-
ingar II).
Ólíkindalæti Baudrillards hafa,
að segja má, komið honum út úr
húsi í flestum kreðsum fræðanna.
Kannski engin furða þar sem
hann hefur markvisst grafið und-
an veruleikanum, helsta haldreipi
hugvísindanna í gegnum tíðina.
Hann hefur ennfremur grafið
undan orðræðuhefð hugvísind-
anna. Hann hefur til dæmis að-
hyllst hugmyndir Nietzsches
umendalaust tíðindaleysi tungu-
málsins og beitt fyrir sig „ofur-
frumspeki“ eða patafýsík Jarrys
sem skilgreind hefur verið sem
„vísindi ímyndaðra lausna“. Hann
kennir fræði sín við veiruhugsun
sem hefur það að markmiði að
dulkóða, ekki afkóða eins og
raunveruleikafræði hefðarinnar,
að flækja það sem er einfalt, eða
eins og Baudrillard segir í grein
sinni „Róttæk hugsun“:
„Gera torskilið það sem er ein-
falt, óskiljanlegt það sem er full-
ljóst og gera atburðinn með öllu
óræðan. Efla falskt gagnsæi
heimsins til að sá þar ruglingi og
glundroða, til að dreifa þar bakt-
eríum eða vírusum róttækrar tál-
myndar, það er að segja róttækr-
ar afhjúpunar á tálmynd
raunverunnar. [...] Hin algilda
regla er að skila því sem þér hef-
ur verið gefið. Aldrei minna, allt-
af meira. Hin algilda regla hugs-
unar er að skila heiminum eins og
við fengum hann – óskiljanlegan
– og ef þess er nokkur kostur, að
skila honum aðeins óskiljanlegri“
(Frá eftrilíkingu til eyðimerkur).
Slíkar yfirlýsingar ganga þvert
á hugsjónir fræðahefðar sem allt-
af hefur miðast að því að þoka
manninum fram á við, til auk-
innar þekkingar á alltumvefjandi
veruleikanum. En Baudrillard
sver af sér allar slíkar trúarsetn-
ingar um endanlegan sannleika
og þekkingarleit í hans þágu.
Hann heldur því meira að segja
fram að hann trúi ekki á eigin
kenningar enda skipti engu hvað
sagt er, það fáist allt staðfest af
miskunnarlausri raunverunni:
„[Raunveran] hefnir sín á and-
skotum sínum á þversagna-
kenndan hátt með því að stað-
festa fullyrðingar þeirra. Það er
sama hversu kaldhæðin og ósvífin
tilgátan er; í hvert sinn sem hún
reynist rétt slær miskunnarlaus
raunveruleikinn öll vopn úr hönd-
um manns með raunverulegri
staðfestingu á þeim fullyrðingum
sem maður hefur sett fram.
Þannig setur maður fram hug-
myndina um líkneskið án þess að
trúa á hana í raun og veru og
jafnvel í þeirri von að raunveran
hafni henni (sönnun á vísindalegu
gildi samkvæmt Popper)“ (Frá
eftirlíkingu til eyðimerkur).
Eins og áður sagði hafa kenn-
ingar Baudrillards um ofurveru-
leikann og „líkneskið“, sem raf-
vætt táknaflóðið birtir okkur í
stað veruleikans, reynst mjög
notadrjúgar. Þær hafa veitt
ferska og heildstæða sýn á hið
póstmóderníska ástand. En
Baudrillard hefur alltaf varað sig
á því að kenningar hans yrðu
ekki að dauðri kennisetningu,
hann hefur alltaf haldið áfram að
ögra. Á vissan hátt hafa fræði
hans því alltaf fjallað meira um
fræðin sem slík og takmarkanir
þeirra en ástandið sem þær
reyna að lýsa. Á þennan hátt eru
fræði hans róttæk veiruhugsun
en ekki akademísk sannleiksleit,
þau hafa leitast við að spilla
skilningi okkar á veruleikanum í
von um að hann sjálfur ann-
aðhvort hverfi endanlega eða
komi í ljós undan táknateppi
hefðarinnar.
Geggjaðar
tilgátur
Á þennan hátt eru fræði Baudrillards
róttæk veiruhugsun en ekki akademísk
sannleiksleit, þau hafa leitast við að
spilla skilningi okkar á veruleikanum í
von um að hann sjálfur annaðhvort
hverfi endanlega eða komi í ljós undan
táknateppi hefðarinnar.
VIÐHORF
Eftir Þröst
Helgason
trhe@mbl.is
MARGT bendir til þess aðfiskeldi verði stór at-vinnugrein á Íslandi íframtíðinni. Jafnvel er
talið að fiskeldisframleiðsla geti tí-
faldast á næstu árum,“ skrifaði Helgi
Thorarensen nýlega og birti í Ægi.
„Til þess að mæta þessum vexti er
nauðsynlegt að mennta starfsfólk til
þess að vinna við fiskeldisstöðvarn-
ar.“
Blaðamaður sótti Hóla heim og
hitti m.a. Skúla Skúlason skólameist-
ara og Helga sem er deildarstjóri
fiskeldisdeildar á Hólum en í Hóla-
skóla hefur kennsla í fiskeldi staðið í
nærri tuttugu ár og er þar nú eina
menntastofnun landsins sem býður
nám á þessu sviði.
Fiskeldi á Íslandi er vænleg at-
vinnugrein og hafa ákvarðanir í land-
búnaðarráðuneytinu um leyfi til fisk-
eldis í sjó vakið áhuga nemenda á
greininni. Mikil eftirspurn hefur ver-
ið eftir fiskeldis-
fræðingum frá
Hólaskóla og
undanfarin ár
hafa þeir sem
lokið hafa námi
getað fengið
vinnu við fisk-
eldi.
Skúli og Helgi
segja að fleiri en
oft áður hafi spurt um námið og von-
ast þeir eftir að fá 10-15 nemendur
árlega í Hólaskóla til að stunda fullt
nám í fiskeldi.
Aðstaða til rannsókna og kynbóta-
starfsemi í bleikjueldi er á Hólum en
aðstaða hefur verið leigð af fiskeld-
isstöðinni Hólalaxi hf. síðan 1989 og
nú er verið að byggja upp aðstöðu í
eigin húsnæði. Rannsókna- og þróun-
arverkefni fiskeldisbrautar hafa æv-
inlega verkið mörg og eru nokkur
þeirra styrkt af Evrópusambandinu.
Þar á meðal er samstarfsverkefni
með fiskeldisfyrirtækinu Máka auk
ýmissa fyrirtækja og stofnana í
Frakklandi og á Íslandi. Verkefnið
fjallar um eldi hlýsjávartegundarinn-
ar barra í stórum eldiskerum.
Önnur verkefni fiskeldisbrautar
eru tengd ræktun og þróun mark-
vissra kynbóta á eldisbleikju, en
Hólaskóli annast kynbætur á bleikju
fyrir hönd landbúnaðarráðuneytis-
ins. Skólinn hefur líka sinnt grunn-
rannsóknum á lífríki íslenskra vatna
og er með ráðgjafarþjónustu fyrir
fiskeldismenn, svo dæmi séu nefnd af
starfseminni.
Blaðamaður skoðaði nýja aðstöðu
fyrir fiskeldi, en þar voru Einar
Svavarsson og Ingólfur Arnarson
kennarar að störfum og Theódór
Kristjánsson kennari á Hólum og
meistaraprófsnemandi. Theódór hef-
ur unnið að aðferðum til að gera fisk-
eldið vistvænt og fann aðferð til að
endurnýta vatnið og hreinsa það áður
en notkun á því er hætt.
Helgi segir að markmið námsins
sé að þjálfa fólk til allrar almennrar
vinnu í fiskeldisstöðvum og til þess að
reka smærri fiskeldisfyrirtæki.
„Nemendur eru einn vetur á Hólum í
bóklegu og verklegu námi,“ segir
Helgi, „sumarið eftir fara þeir í verk-
nám í fiskeldisstöðvar og útskrifast
að hausti sem fiskeldisfræðingar.“ Á
Hólum læra nemendur um fóðrun og
umhirðu fiska, slátrun, vinnslu og
fjölmargt annað
sem tengist fisk-
eldi. Lögð er
áhersla á að
nemarnir kynn-
ist flestum þeim
tegundum sem
eru í eldi á Ís-
landi. „Á næstu
árum verður
einnig boðið upp
á framhaldsnám í fiskeldisfræðum
við Hólaskóla,“ segir Helgi. Hann
segir í raun tímabært að gera sér
grein fyrir því að fiskeldi verður stór
atvinnugrein á Íslandi í framtíðinni. Í
hans augum er komið vor í fiskeldinu
og því nauðsynlegt að hafa hraðar
hendur við að skapa starfsumhverfið.
„Aðstæður til fiskeldis á Íslandi
eru sérstakar og líklegt að hér verði
eldisfánan fjölbreyttari en þekkist í
nágrannalöndunum. Jarðhiti ásamt
gnægð af ómenguðu ferskvatni og sjó
skapa góðar forsendur fyrir eldi í
kerum á landi,“ skrifaði Helgi nýlega
í blaðið Fiskiðn.
Hólamenn eru sammála um að
spennandi tímar séu framundan í
fiskeldi og að upp byggist öflug at-
vinnugrein. „Vöxtur fiskeldis á Ís-
landi mun byggjast á traustri kunn-
áttu fiskeldismanna ásamt öflugu
rannsókna- og þróunarstarfi fiskeld-
isfyrirtækja og rannsóknastofnana,“
segir Helgi, „og þar mun Hólaskóli
gegna þýðingarmiklu hlutverki.“
Hólaskóli II/Þrjár öflugar námsbrautir eru í Hólaskóla á Hólum í
Hjaltadal. Gunnar Hersveinn var nýlega á Hólum og segir hér frá
tveimur þeirra sem snúast um fiskeldi og hestamennsku.
Spennandi fisk-
eldi framundan
Kennsla á ýmsum sviðum hesta-
mennsku er vaxandi á Hólum.
Þekking á fiskeldi er líkleg til
að verða verðmæt á næstu árum.
Námsbrautir í Hólaskóla falla vel að atvinnuvegum í dreifbýli.
Morgunblaðið/Guðbjörg
Helgi, Ingólfur, Einar og Theódór
kenna allir á fiskeldisbraut.
HÓLAR í Hjaltadal eru
fornfrægur staður. Skóli hefur
gjarnan verið starfræktur þar
og nú stefna forráðamenn
Hólaskóla að einskonar há-
skólaþorpi á Hólum sem bæði
veitir það sem dreifbýlið gefur
og er jafnframt í góðu og
miklu samstarfi við innlendar
og erlendar háskólastofnanir.
Aðstaða til náms á Hólum er
góð og er bæði fiskeldisstöð
rekin í tengslum við skólann
og hrossabú. Þrjár námsbraut-
ir eru á Hólum: Ferðamála-
braut (sjá Mbl. 10/4), fiskeld-
isbraut, og hrossaræktabraut.
Áhersla er á tengsl við at-
vinnulífið og vettvangsheim-
sóknir.
Nemendagarðar eru á Hól-
um, mötuneyti, sundlaug,
íþróttahús, grunnskóli og leik-
skóli, eða m.ö.o. allt sem þarf.
Hólar í Hjaltadal
HEIMIR Gunnarsson er áfyrsta ári á hrossabraut
Hólaskóla og verður því hesta-
fræðingur og leiðbeinandi. „Ég
ætla að halda áfram, það er eng-
in spurning,“ segir hann.
Heimir er Ak-
ureyringur og
hestamennskan
hefur hingað til
verið áhuga-
málið en hann
ætlar að sér-
hæfa sig og
starfa við fagið
í framtíðinni.
„Ég hef einnig
áhuga á fram-
haldsnámi og fara á reiðkennara-
braut og fá kennsluréttindi,“ seg-
ir hann og nefnir að nýlega hafi
nemendur verið með reið-
námskeið fyrir nemendur grunn-
skólans á Hólum. Heimir segir
gott að búa á Hólum. „Nemendur
eru flestir í bústöðum og þá 3-4
einstaklingar saman,“ segir hann
og nefnir að einnig geti stórar
fjölskyldum fengið hús, hér eða í
nágrenninu.
Hann segir að yfirleitt séu bók-
legar greinar fyrir hádegi á
hrossabraut og verklegar eftir
hádegi, tölvukennsla eða annað
og um helgar stöku námskeið.
„Ég ætla að
halda áfram“
Heimir
Gunnarsson