Morgunblaðið - 01.05.2001, Qupperneq 55
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 55
Elsku besti afi
minn, ég kveð þig nú
með bæði sorg og
gleði, ég á eftir að
sakna þín svo mikið, sérstaklega
þess að sjá ekki brosið þitt og stóra
faðminn þegar ég kem heim í Kotið,
eða koma að kíkja á þig þegar að þú
ert að vinna í gróðurhúsinu eða að
smíða upp á verkstæði. Samt gleðst
ég yfir því að þú skulir vera kominn
heim og að þjáningum þínum er
lokið.
Ég veit samt ekki hvernig þetta
allt væri ef ég hefði ekki Guð, því að
nú veit ég hvar þú ert og ég veit
líka að þú ert ekki dáinn heldur
bara farinn heim og það besta er,
þess sem ég hlakka mest til, er að
fá að hitta þig aftur, elsku afi.
Daginn sem þú fórst var einn af
erfiðustu dögum sem ég hef lifað og
ég bara vissi ekki að líkaminn
geymdi svona mörg tár.
Daginn eftir var ég að skoða
myndir með litlu frænku, í albúm-
inu voru myndir af þér og hún var
að segja mér að þú værir á spítala
en núna værirðu dáinn. Þá sagði ég
við hana að við gætum einhvern
tímann farið og hitt þig aftur, afi
minn, hún sagði jaá með rútu, veist
þú hvað landið heitir? Hvað heitir
það, segi ég. Það heitir himnaríki
og þar á Guð fullt af gullhúsum,
þetta fékk mig einnig til þess að
brosa í gegnum sorgina með því að
sjá hversu börnin eru einlæg og
áhyggjulaus. Einnig það sem verm-
ir hjarta mitt er hversu lífsglaður
þú varst og hversu vel þú nýttir
hverja einustu mínútu, ég elska þig,
elsku afi minn, og kveð ég þig nú
þangað til við hittumst á ný.
Drottin er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyrð höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi drottins bý ég
langa ævi.
(Sálm. 23.)
Þín
Emilía.
MARKÚS GRÉTAR
GUÐNASON
✝ Markús GrétarGuðnason fædd-
ist í Kirkjulækjar-
koti í Fljótshlíð 9.
febrúar 1921. Hann
lést á Landspítalan-
um við Hringbraut
hinn 3. apríl síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Hvíta-
sunnukirkjunni
Fíladelfíu 11. apríl.
Með nokkrum orð-
um langar mig að
minnast elsku afa
míns. Fyrstu minning-
ar mínar um afa eru að
sjálfsögðu úr Kotinu,
Kirkjubæjarkoti í
Fljótshlíð, þar sem
hann bjó ásamt ömmu.
Afi og amma tóku allt-
af opnum örmum á
móti okkur þegar við
komum í heimsókn og
oftar en ekki fékk ég
að vera eftir hjá þeim
mér til mikillar
ánægju. Afi var alltaf
yfir sig ánægður að fá okkur í heim-
sókn og hafði alltaf frá einhverju
skemmtilegu að segja. Hann sá allt-
af um að fræða okkur krakkana um
Guð og hans orð enda var hann
fróður um allt er viðkom biblíunni
og oft drógum við mannakorn og
lásum það saman. Hann hafði líka
gaman af því að sýna okkur í gróð-
urhúsið á sumrin þegar tómatarnir
og gúrkurnar voru að þroskast.
Afi var alveg einstaklega góður
maður, enda þótti mörgum strax
vænt um hann. Hann hafði einstak-
lega gaman af lífinu og dreymdi um
að ferðast mikið en því miður gat
hann ekki farið nærri allt sem hann
langaði til. Hann var mjög bjart-
sýnn og jákvæður á lífið og til-
veruna og átti marga drauma.
Hann var einnig mjög flinkur í
höndunum og smíðaði hina ýmsu
hluti svo sem rokka, klukkur, skál-
ar og fleira. Hann kenndi líka nokk-
ur ár smíði í Fljótshlíðarskóla og
hafði gaman af. Á jólunum voru
gjafirnar ósjaldan handsmíðaðar af
honum sjálfum eins og t.d. biblían
með skúffunni fyrir mannakornin
og svo núna síðustu jól fékk ég og
fleiri, hirslu fyrir jólapóstinn sem
mun minna mig á afa hver einustu
jól.
Elsku afi, takk fyrir þau ár sem
ég fékk að kynnast þér, ég mun
sakna þín sárt, en eins og þú sagðir
alltaf sjálfur, að við værum gestir
hér á jörðu, þá hlakka ég til að hitta
þig aftur. Minningarnar um þig
geymi ég í hjarta mínu.
Elsku amma, Guð styrki þig og
veri með þér.
Svandís Björk.
Ég man ekki fyrr eftir mér en ég
man eftir Grétari föðurbróður mín-
um. Ég man eftir herbergi sem
hann hafði uppi á lofti í húsi for-
eldra sinna. Þar undi ég mér
löngum stundum, innan um margs
konar rafmagns- og rafeindadót og
fylgdist með frænda mínum setja
saman hina margvíslegustu hluti
sem vöktu forvitni og aðdáun lítils
drengs, og ekki amaðist Grétar við
litlum frænda sínum.
Grétar var hugmyndaríkur og
tók sér margt fyrir hendur. Hæst
ber þar fyrirtæki sem gjarnan var
kallað Steypiríið. Þar framleiddi
hann úr vikri: holsteina, milli-
veggjaplötur og einangrunarplötur
til húsbygginga, einnig voru þar
framleiddar gangstéttahellur og
steinrör til frárennslislagna. Við
þetta fyrirtæki hans fékk ég, ungur
að árum, mín fyrstu vinnulaun í
peningum.
Marga ferðina fór ég með Grét-
ari, á gamla vörubílnum, „Stúdd-
anum“ sem faðir minn hafði áður
átt, til að sækja Hekluvikur sem
gjarnan var sóttur inn í Þórólfsfell
eða gilið inn við Háamúla eða þá
rauðamöl sem sótt var í Seyðishóla í
Grímsnesi. Og þó að þyrfti að hand-
moka á bílinn var alltaf eitthvað
ævintýralegt við þessar ferðir.
Á síðari árum hafði ég þá ánægju
að njóta samvista við Grétar sem
samkennara við Fljótshlíðarskóla
þar sem hann um árabil kenndi
smíðar. Einkum minnist ég sam-
verustundanna í kennarastofunni
þar sem oft var glatt á hjalla yfir
kaffibolla.
Handlagni Grétars naut sín vel á
verkstæðinu hans þar sem hann
undi sér löngum við smíðar á marg-
víslegum og listilega vel gerðum
hlutum svo sem rokkum, klukkum,
eftirgerð gamalla búshluta o.fl. o.fl.
Ég hef þá ánægju að hafa upp á
vegg hjá mér loftvog sem hann
renndi úr birki.
Kirkjan okkar, Hvítasunnukirkj-
an í Fljótshlíð, naut þessa hagleiks
hans þar sem hann á ófá handtök
innandyra og marga listilega gerða
hluti.
Grétar var einlægur og glaðlynd-
ur, og naut sín vel í góðra vina hópi.
Ég minnist Englandsferðar sem ég
fór með honum, ásamt fleiri góðum
vinum, fyrir nokkrum árum, þar
sem hann naut hverrar stundar
með bros á vör.
Með söknuði í hjarta skrifa ég
þessar línur og Grrétars mun verða
sárt saknað á hans heimaslóðum
þar sem ég hafði þá ánægju að hafa
hann í næsta húsi síðastliðin tvö ár.
En huggun er harmi gegn að hon-
um hefur verið vel fagnað á föð-
urlandi hans á Himnum þar sem
hann auk vina og vandamanna, sem
á undan eru farnir, hefur fengið að
hitta Drottin sinn og frelsara sem
hann unni svo mjög og sagði hverj-
um sem heyra vildi frá fyrirgefandi
föðurkærleika Frelsarans og mildi
hverjum þeim til handa sem við
honum vilja taka.
Á þennan Frelsara, Jesú Krist,
setti Grétar allt sitt traust þegar
hann síðustu mánuðina háði svo
hetjulega baráttu við sjúkdóminn
að margir undruðust þá hetjulund.
Lýsandi dæmi er þegar ég sá hann í
síðasta skipti þegar ég, ásamt konu
minni, kom til hans, á sjúkrahúsið,
rúmri viku áður en hann lést. Hann
lá þá aftur á bak í rúmi sínu, lík-
aminn fársjúkur en sálin því hress-
ari og hvað skyldi hann hafa verið
að gera? Jú, hann var að lesa í
Nýjatestamenntinu sínu. Og hann
fagnaði okkur með ljóma í augum
og bros á vör.
Nú er stríð hans við sjúkdóminn
á enda og hann fagnar á þeim dýrð-
legasta stað sem til er í alheimi og
mun fagnandi taka á móti okkur
ástvinum sínum þegar að okkar
kalli kemur.
Konu hans, Þóru, sem er móð-
ursystir mín, börnum þeirra og öðr-
um ástvinum votta ég og kona mín,
Rebekka, okkar dýpstu samúð og
biðjum Guð að blessa þau og um-
vefja með kærleika sínum.
Yngvi Guðnason.
Skreytingar við
öll tækifæri
Langirimi 21,
Grafarvogi
587 9300
Samúðarskreytingar
Samúðarvendir
Kransar
Kistuskreytingar
Brúðarvendir
;
1
<
0
#<-
#
0
6
-K ((-
;-
% 8"
J+ 8 $
- #) $
% 8"
8
-12%1; 8+ '#8
/) *
#0 8+ $ L ) 9=
9!
%
-
%
2!
!')!)(!
% &+
M )
M
#)+ $ 9
"(8+ $
)*$
+
9 9, 9 9 9,
5
%-2-3
-3A-0A( /+ +*/ ) )
#) "+
/ 8 )
%
% -
!
!'3!((!
0 )+,)# ' ) $
' )+,)#
0 + # $
+"!9, ) ) $$
8
3 (-;
'
*8'=*$ +
0 ! 8+ ' CI
8+ '#8
%
%-
2!
!')!)(!
)"$
0 # $ M8 ' $ M8
# 9
$
0 #3$ M8
3 ? ) M8
' ' $
$
+ %
#
%-:%-:; $ * *,8
/)' ** ) B8+ '#8
!
=0
%
)!
!'2!((!
$
! '
!
% " ' '#A*$$
% "$ */ % "
() % " - N8 N+#8
9 9,9 9 9,
) ) $$
>1 <
0
#
0
4;-4;-;-
8 !+
8+ 9 H
+
4 ) )/ # $
#)4 9 $ )+
3 + +,84 9 $ " 0+
0 +/4 9 4 9 % # / $
9 9,
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.