Morgunblaðið - 01.05.2001, Síða 72
72 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
NÚ hefi ég verið löggiltur eldri borg-
ari í nokkur ár. Ég hefi því haft góðan
tíma til að kynnast Reykjavík í dag.
Heimili mitt er í Vesturbænum, ná-
lægt Kvosinni svo að stutt er að ganga
í bæinn og það geri ég oft mér til mik-
illar ánægju, það er svo margt fallegt
að sjá, skoða og njóta.
Og Reykjavíkurborg veitir mikla
og góða þjónustu. Skömmu fyrir
páska kom lítill sópari í hverfið hjá
okkur og sópaði allar gangstéttir og
daginn eftir kom annar stærri sópari
og hreinsaði göturnar. Þetta var mik-
ið verk og þvílíkur munur! Svo gerðist
það í fyrradag, að sprautubíll kom og
spúlaði alla götuna mína, Bræðra-
borgarstíginn, svo að í dag, sumar-
daginn fyrsta, eru gatan mín og gang-
stéttir eins og stofugólf!
Á hverjum þriðjudegi kl. 11–12 f.h.
koma þeir frá hreinsunardeildinni og
tæma öskutunnurnar, það bregst
aldrei, röskir menn og frábær þjón-
usta. Og nú er komið að okkur sjálfum
að fara í garðana okkar og hreinsa.
Ég nota strætisvagna því að bíllinn
minn var dæmdur úr leik við síðustu
skoðun fyrir aldurs sakir. Þjónusta
Strætisvagna Reykjavíkur er afar
góð. Þvílíkur lúxus, á 20 mínútna
fresti kemur vagn, opnar dyrnar,
lækkar sig niður svo auðveldara er að
ganga inn. Og flestir vagnanna eru
glæsilegir að innan. Ég nota mest leið
3, en líka 4 og 115 og þeir eru nánast
alltaf á réttum tíma. Og bílstjórarnir
hafa alltaf sýnt kurteisi og lipurð og
ég dáist að leikni þeirra í umferðinni
og þolinmæði þeirra. Hafi þeir þökk
fyrir.
Þá kem ég oft í Ráðhús Reykjavík-
ur og þangað er gott að koma, þar er
alltaf eitthvað um að vera. Margar
góðar sýningar hefi ég séð, allskonar
uppákomur, fundi og ráðstefnur. Og
starfsfólkið er alltaf elskulegt og
tilbúið að spjalla. Og ekki má gleyma
Ráðhúskaffinu, þar er líka góð þjón-
usta og gaman að sitja yfir kaffibolla
eða glasi af öli og fylgjast með andalíf-
inu á Tjörninni. Sama er að segja um
Borgarbókasafnið í nýju heimkynn-
um þess í Grófarhúsinu. Þar er næst-
um stjanað undir manni, setustofa
með ókeypis kaffi, blöðum og tímarit-
um frá mörgum löndum. Og á efri
hæðum hússins eru aðrar stofnanir,
t.d. Ljósmyndasafnið. Það er alltaf
eitthvað að sjá í þessu ágæta húsi. Og
handan við götuna er svo nýja Lista-
safnið, en nú læt ég staðar numið.
Að lokum þetta: Mér finnst
Reykjavíkurborg vel stjórnað og ég
vil þakka borgarstjóra, borgarstjórn
og starfsfólki öllu. Gleðilegt sumar!
Á sumardaginn fyrsta, kær kveðja.
P.s. Væri hægt að lækka fasteigna-
gjöldin?
HALLDÓR S. GRÖNDAL,
Bræðraborgarstíg 18, Reykjavík.
Reykjavík – góð
borg – góð þjónusta
Frá Halldóri S. Gröndal:
UMRÆÐUR um Reykjavíkurflug-
völl hafa ekki farið fram hjá neinum.
Borgarstjórn Reykjavíkur treysti
sér ekki til þess að taka ákvörðun um
málið. Fara skyldu fram kosningar,
lýðræðið virkjað út í ystu æsar og vilji
fólksins fengi að ráða. Þetta er út af
fyrir sig góðra gjalda vert, þótt til-
raunin hafi kostað skildinginn. Von-
andi nýtist þekkingin og tæknin síðar
með minni tilkostnaði.
En kosningarnar urðu að lúta
reglum og þær setti borgarráð þar
sem borgarstjórinn situr í forsæti.
Þessar leikreglur eru kunnar og eftir
þeim ætluðu þeir að fara sem þær
settu.
Niðurstaða kosninganna liggur nú
fyrir og þar með að þær voru ekki
bindandi samkvæmt leikreglum
borgarstjóra og félagar hennar. En
það skiptir ekki máli fyrir borgar-
stjóra. Úr því að niðurstaðan varð
ekki bindandi ber henni „siðferðileg
og pólitísk skylda“ til þess að fara eft-
ir þeim. Annað er ekki hægt í kosn-
ingum, segir hún. Í morgunútvarpi
Rásar 2 vísar hún til forsetakosning-
anna í Bandaríkjunum og segir að ef
„Bush hefði unnið með 450 atkvæðum
hefði hann orðið forseti“, ekki satt.
Þvílík firra og útúrsnúningur. Ef leik-
reglur borgarstjóra hefðu gilt við
þessar aðstæður hefði Bush auðvitað
ekki orðið forseti, kosningarnar hefðu
auðvitað ekki orðið bindandi þar frek-
ar en hér. Eitthvað annað hefði þurft
að koma til eins og til dæmis önnur
umferð. Það er dapurlegt að borgar-
stjóri skuli með þessum hætti hafa
endaskipti á hlutunum.
Hver varð þá niðurstaða kosning-
anna? Hún varð sú að Reykvíkingar
eru ekki tilbúnir til þess á þessari
stundu að taka afstöðu til þess hver
framtíð flugvallarins á að vera. Þeir
sem vilja flugvöllinn burt eftir árið
2016 höfðu ekki vinninginn né heldur
þeir sem vilja hann áfram í Reykja-
vík. Það er því röng túlkun hjá borg-
arstjóra að hægt sé að túlka niður-
stöðuna með þeim hætti sem hún
gerir. Má þar minna á orð hennar
sjálfrar um að leikreglurnar voru
þekktar, allar upplýsingar lágu fyrir
o.s.frv. Það var sem sagt vitað fyrir-
fram að einn af kostunum yrði sá að
engin niðurstaða fengist.
Þar sem kosningarnar voru ekki
bindandi verða þær fyrst og fremst
skoðannakönnun og ljóst útfrá viður-
kenndum sjónarmiðum um skekkj-
umörk að ekki liggur fyrir hver er
vilji Reykvíkinga. Við þetta verður
borgarstjóri að búa fyrst leikreglurn-
ar tóku ekki á því hvernig með skyldi
fara kæmi þessi staða upp. En auðvit-
að stendur sá kostur eftir að það verði
önnur umferð í kosningunum, þar
sem einnig eru líkur á því að meiri
kosningaþátttaka náist, þ.e. samfara
næstu borgarstjórnarkosningum.
Að sinni ræði ég ekki um málflutn-
ing borgarstjóra í þá veru að Reykja-
víkurflugvöllur sé „sár“ í borginni, en
minni á að sé flugvöllurinn sem sam-
göngumannvirki sár, þá eru sárin
mörg í minni ágætu höfuðborg.
Kannski Ingibjörg bjóði Hafnfirðing-
um að taka höfnina að sér. Mín loka-
orð eru því þessi: Ingibjörg vertu
málefnaleg, sá hroki, sem farið er að
gæta í málflutningi þínum æ oftar,
verður þér á endanum að falli. Sið-
ferði er ekki fólgið í því að haga segl-
um eftir vindi þótt pólitík þín kunni að
vera það.
Með kveðju, frá Norðlendingi sem
þykir vænt um borgina sína.
BALDUR DÝRFJÖRÐ,
Kotárgerði 11, Akureyri.
Siðferði og pólitík
Frá Baldri Dýrfjörð: