Morgunblaðið - 01.05.2001, Page 78
FÓLK Í FRÉTTUM
78 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
TÍMINN flýgur. Ótrúlegt, en satt,
leikarinn Brad Pitt hefur ekki verið í
sviðsljósinu nema í áratug, þó er
hann nánast orðinn gamall kunningi.
Pitt hefur líka látið mikið að sér
kveða, leikið í á þriðja tug mynda og
oftar en ekki stolið senunni. Hann er
ekki aðeins með þetta svala, sígilda
töffaraútlit sem prýtt hefur goðsagn-
ir á borð við Steve McQueen, Paul
Newman og Robert Redford, heldur
er hann, einsog þeir, magnaður leik-
ari í ofanálag. Það sýnir sig núna síð-
ast í illa skrifuðu hlutverki í The
Mexican, sem viðrar sig í bíóum
þessa dagana. Pitt tekur mörgum
kollegum sínum fram þar sem hann
hefur ekki látið glepjast í töffarahlut-
verkinu og losað sig við kyntákns- og
harðjaxlsstimpilinn sem einkenndu
fyrstu myndirnar. Af öllum leikurum
í yngri kantinum veðja ég hiklaust á
að Pitt verði einn sá lífseigasti.
William Bradley Pitt er „Oakie“,
einsog þeir segja fyrir vestan, fædd-
ur í Oklahoma 1963. Hann stendur
kvikmyndahúsgestum sprelllifandi
fyrir hugskotssjónum sem heillandi
götustrákur sem platar Geenu Davis
uppúr skóm og sokkum í Thelma &
Louise (’91) og rænir hana síðan
aleigunni af veraldlegu góssi. Þessi
groddalega innkoma í bíómyndir er
með þeim magnaðri í allri kvik-
myndasögunni.
Leiðin á toppinn var löng og
ströng. Pitt er sonur framkvæmda-
stjóra flutningabílafyrirtækis, elstur
þriggja systkina. Þau fengu strang-
trúarlegt uppeldi, foreldrarnir báðir í
baptistakirkjunni. Pitt lauk mennta-
skólanámi í heimabænum í Missouri,
en þangað fluttist fjölskyldan meðan
Pitt var enn ungur að árum. Hóf síð-
an nám í blaðamennsku við háskóla
Missouri-fylkis, en hætti rétt fyrir
útskrift. Leiklistarbakterían, sem
hann hafði tekið í háskólanum, var
búin að ná yfirhöndinni.
Pitt tók saman pjönkur sínar og
hélt til Hollywood. Hræddur við mót-
mæli sinna heittrúuðu foreldra sagð-
ist hann á förum í listnám í Pasadena.
Pitt fór í leiklistarnám í Hollywood
og framfleytti sér með ólíklegustu
störfum. Ók m.a. súludansmeyjum í
einkasamkvæmi, þjónaði á veitinga-
húsum, vappaði um í risavöxnum
kjúklingabúningi til að auglýsa
skyndibitastað, o.s.frv. Fyrstu tæki-
færin á leiklistarsviðinu var smáhlut-
verk í Dallas sjónvarpsþáttunum,
sællar minningar, og í unglingahroll-
inum Cutting Class (’89). Árið áður
hafði hann fengið smáhlutverk í sjón-
varpsmyndum. Hefðbundið byrj-
endabrölt.
Árið 1991 markaði tímamót á ferl-
inum. Að baki ár óvissu og erfiðleika,
’91 var ár Thelmu & Louise, sem
gerði hinn fjallbratta leikara lands-
frægan á einni nóttu. Pitt, hálfblind-
aður af skyndilegri frægð, var óhepp-
inn í næsta vali, sem var hin alónýta
Cool World, eftir Ralph Bakshi.
Næsta hlutverk, í Johnny Suede, fór
framhjá gagnrýnendum og áhorf-
endum og gerði lítið sem ekkert fyrir
leikarann. Stangveiðimyndin Áin líð-
ur þar um (’92), eftir Robert Redford,
gaf Pitt hins vegar kjörið tækifæri til
að sýna og sanna að hann var annað
og meira en sætur strákur. Við tóku
hlutverk í vegamyndunum Kalifornia
(framleidd af Sigurjóni Sighvats-
syni), og True Romance (báðar ’93).
Næsta stórhlutverk Pitts var í
hinni ábúðamiklu Legends of the
Fall (’94). Hlutverkið er af svipuðum
toga og í Áin líður þar um; Pitt leikur
frjálslynda og viljasterka bróðurinn
en tekst að gera hann torráðnari og
leyndardómsfyllri að þessu sinni.
Fyrir vikið var leikarinn kjörinn
„kynþokkafyllsti karlmaður heims“
af tímaritinu People. Sama ár bætti
Pitt enn einni skrautfjöðrinni í hatt-
inn, mögnuðum leik í hlutverki vamp-
írunnar Louis, í Interview With a
Vampire. Stóð jafnvel mörgum aðdá-
endum hans ógn af þeim hamskipt-
um.
Pitt var kominn í þá stöðu að geta
valið úr hlutverkum. Þó varð The
Favor (’94), auðgleymd og lítilsigld
gamanmynd, næsti kostur. Hroll-
vekjan, Seven (’95), var því magnaðri
og sama ár færði mynd Terrys Gilli-
ams, 12 Monkeys, leikaranum Gold-
en Globe-verðlaunin fyrir bestan leik
í aukahlutverki og Óskarsverðlauna-
tilnefningu. Leikur Pitts og Kevins
Bacons er það besta í Sleepers (’96),
vel leikinni en bragðdaufri mynd um
æskuvináttu sem dregur dilk á eftir
sér. Fyrir hlutverk fjallamannsins
Heinrichs Harrar, í hinni sannsögu-
legu Seven Years in Tibet (’97), varð
Pitt að temja sér austurrískan fram-
burð. Myndin olli umtali og fjaðrafoki
þegar kom í ljós að Harrar hafði ver-
ið nasisti og pólitísk afstaða mynd-
arinnar til sjálfstæðis Tíbets varð
þess valdandi að síðan hefur Pitt og
verk hans verið bönnuð í alþýðulýð-
veldinu Kína. Hreimur leikarans
varð á hinn bóginn írskur í The De-
vil’s Own (’97), þar sem Pitt fer með
hlutverk hryðjuverkamanns sem fær
inni hjá írskættuðum lögreglumanni
(Harrison Ford) í New York. Þeir
eru nokkuð magnaðir saman en
myndin náði ekki ætluðum hæðum,
hvorki tilfinningalega né í aðsókn.
Pitt og Anthony Hopkins, mótleikari
hans í Legends of the Fall, voru
vissulega reistir í Meet Joe Black
(’98), leiðinlegum, mislukkuðum
langhundi, þar sem sá kynþokkafulli
leikur manninn með ljáinn.
Pitt hefur gaman af að glíma við
óvenjuleg hlutverk og gætir þess að
einskorða sig ekki við ákveðnar
manngerðir. Því tók hann lítið en gef-
andi hlutverk í hinni frumlegu og
snjöllu Being John Malkovich (’99).
Önnur mynd, sem sýnd var sama ár,
vakti ekki minni eftirtekt og umtal.
The Fight Club gerð af David Finch-
er (Seven) er tvímælalaust ein um-
deildasta mynd síðasta áratugar.
Hvaða skoðun sem menn hafa á þess-
um ofbeldislofsöng liggur stórleikur
Pitts og Eds Nortons, sem sitt hvor
hliðin á aðalpersónunni, dagljós fyrir.
Meira að segja Helena Bonham
Carter varð allt í einu spennandi, sexí
og leyndardómafull í þessum tryllta
félagsskap. Áfram hélt Pitt að glíma
við furðuskepnur á tjaldinu. Í Snatch
(’00) fer hann á kostum sem írskur
sígauni (af öllum mönnum) og mælir
með nánast óskiljanlegum hreim
þess þjóðarbrots.
Í upphafi var minnst á frammi-
stöðu Pitts í The Mexican. Vonum
svo fyrir hans hönd sem áhorfenda að
hlutverk hans í Ocean’s Eleven verði
mun bragðmeira, en þessi nýjasta
mynd Stevens Soderberghs verður
frumsýnd síðar á árinu. Hún ætti að
hafa alla burði til að verða vinsælasta
mynd leikarans frá upphafi. Gerð af
einum snjallasta leikstjóra Holly-
wood um þessar mundir og byggð á
bráðskemmtilegri mynd sem „Rottu-
gengið fræga“ (Frank Sinatra, Dean
Martin, Peter Lawford, Sammy Dav-
is yngri, Shirley McLaine og þau öll)
flutti á hvíta tjaldinu fyrir fjórum
áratugum. Ekki minni væntingar eru
gerðar til The Spy Game, þar sem
hann fer með aðalhlutverkið á móti
sjálfum Robert Redford undir leik-
stjórn Tonys Scotts. Framtíðin bros-
ir við Brad.
BRAD PITT
Pitt ásamt Geenu Davis í hlutverki sínu í
Thelma og Lousie.
Pitt í hinni óhugnan-
legu Seven.
Pitt var valinn „kynþokkafyllsti
karlmaður heims“ í kjölfar
myndarinnar A River Runs
Through It.
Stjörnurkvikmyndanna
eftir Sæbjörn Valdimarsson
Thelma & Louise (1991)
½ Ein besta vegamynd allra tíma. Óvenju fátt
um karlrembur, að Brad Pitt undanskildum, í
ógleymanlegri innkomu, sem bætir fæðina full-
komlega. Titilpersónurnar venjulegar húsmæður
(Susan Sarandon og Geena Davis). Sem finna, einn
góðan veðurdag, að karlpeningurinn er búinn að
sprengja öll velsæmismörk þolinmæði og umburð-
arlyndis. Setjast undir stýri og flýja sitt arma líf. Allt
gengur vel um sinn. En Evurnar eru ekki lengi í Pa-
radís, á þjóðveginum leynast ýmiskonar hættur,
flestar í karlalíki. Fyrr en varir eru þær með morð á
samviskunni, lögregluna á hælunum, afþreyingin
orðin að óstöðvandi flótta. Leikstjórinn, Ridley Scott,
og handritshöfundurinn, Callie Khouri, enda vega-
myndina á fullkomnasta hátt sem gerður verður; á
hinum eina sanna Leiðarenda.
Sjö – Seven (1995)
½ Ógnvekjandi, hroðalegur spennuhrollur um
leit tveggja lögreglumanna, hins gamalreynda Morg-
ans Freeman og nýliðans Brads Pitt, að óvenju vit-
firrtum fjöldamorðingja. Sjúkur hugur hans telur sig
vera refsivönd, fæddan til að hirta mannkynið fyrir
veikleika sína – dauðasyndirnar sjö. Að hætti flestra
kollega kemur hann leitarmönnunum á sporið, smám
saman verða þeir hlekkir í djöfullegri framvindu
ódæðismannsins. Eftirminnilegt ferðalag í svartnætti
mannssálarinnar og jafnan dökkra og regnvotra
skuggahliða stórborgarinnar. Æsispennandi, ógeðs-
leg, listilega tekin, leikstýrð og leikin af Pitt og
Freeman. Nánast kvikmyndasöguleg tímamótamynd
í kapítula óhugnaðarins.
Áin líður þar um – A River Runs Through It (1992)
½ Ljóðræn, gullfalleg mynd, ekki síst fyrir
augað, um fjölskyldubönd og þroska. Aðalpersón-
urnar þrír feðgar sem una sér best á árbakkanum,
þar sem fluguveiðar eru hin eina, sanna list og ögrun
í lífinu. Myndin fjallar ekki síður um sambandið á
milli feðganna. Faðirinn (Tom Skerritt), er harður í
horn að taka og gefur sonunum strangt, kristilegt og
krefjandi uppeldi. Það lukkast fullkomlega hvað
snertir þann eldri (Craig Shaffer), sem heldur
ótrauður beinan menntaveginn. Paul, sá yngri,
óbeislaður og villtur, sest að í heimafylkinu, Mont-
ana, og gerist drykkfelldur og kaldhæðinn blaðamað-
ur. Skerritt sýnir á sér nýja hlið sem hinn guðrækni
fjölskyldufaðir sem leggur sonum sínum lífsregl-
urnar með hjálparmeðölum fluguveiðilistarinnar, en
Pitt gnæfir yfir öðrum, sem hinn breyski en mann-
eskjulegi Paul.