Morgunblaðið - 01.05.2001, Qupperneq 80
80 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er til þjóðsaga um hinn
merka mann Sun Tzu Wu sem var
uppi í Japan fyrir um 2.500 árum.
Þetta á að hafa gerst stuttu eftir að
hann skrifaði hina þrettán kaflana
um stríðslistina (The Art of War)
sem var eins konar kennslubók um
hvernig eigi að bera sig í bardaga.
Ho Lu, sem var konungur og drottn-
ari yfir fjölskyldu Tzu’s, lét kalla
hann til sín eftir að hafa grandskoð-
að rit hans. Ho Lu sagði Tzu sagði að
hann hygðist leggja fyrir hann þraut
sem ætti að skera út um hvort eitt-
hvert vit væri í ritunum. Konungur-
inn hafði látið safna saman 180 stúlk-
um úr hirð sinni og átti Tzu að sanna
sig með því að láta þennan kvenna-
skara hlýða skipunum sínum.
Tzu brást hinn rólegasti við, skipti
stúlkunum í tvo flokka, setti svo tvær
uppáhalds frillur konungsins í
fremstu röð á hvorum flokk. Því
næst dreifði hann spjótum til allra
stúlknanna og spurði hvort þær
væru örugglega ekki allar með mun-
inn á fram/aftur og vinstri/hægri á
hreinu. Allar svöruðu þær játandi.
Því næst hófst æfingin.
Eftir að skipun Tzu’s til hópanna
að snúa til vinstri hafði aðeins fram-
kallað hávær hlátrasköll frá hópun-
um sagði hann rólegur; „Ef skipun-
arorð eru ekki skýr, skiljanleg og
beinskeytt er það hershöfðingjanum
að kenna.“ Því næst skipaði hann
hópunum að snúa sér til hægri. Í
þetta skiptið urðu hlátrasköllin enn
hærri. Eftir að hláturinn og flissið
hafði dáið út sagði Tzu rólegur: „Ef
skipunarorð eru ekki skýr, skiljanleg
og beinskeytt er það hershöfðingj-
anum að kenna. En ef þau eru það þá
er við hermennina að sakast.“
Hann bað því frillur konungsins að
krjúpa á kné og hjó af þeim höfuðin,
þrátt fyrir mótmæli konungsins.
Hann bað svo næstu tvær stúlkur í
röðinni að taka stöðu frillnana og
hélt æfingunum áfram, án frekari
hlátraskalla.
Konungurinn, sem var ekkert allt
of hrifinn af því að hafa misst frillur
sínar, lét koma þeim skilaboðum til
Tzu að honum líkaði ekki starfshætt-
ir hans. Svar Tzu’s var hart og hnit-
miðað:
„Hermönnum þínum hefur nú ver-
ið kenndur agi og nú er hægt að nýta
þær í hvaða verkefni sem þú kýst.
Hvort sem þú skipar þeim að vaða
eld eða vatn munu þær hlýða.“
Þessi stutta dæmisaga ætti að
gefa ykkur einhverja mynd af bók-
inni um stríðslistina. Það voru þessi
rit Sun Tzu sem mótuðu lífshætti
samuraianna og enn í dag er stuðst
við bókina þegar kemur að stríðs-
undirbúningi eða viðskiptum.
Lone Wolf and Cub er líklegast
þekktasta Samurai-Manga serían.
Hún segir frá leigumorðingjanum
Itto Ogami eða Lone Wolf eins og
hann er kallaður, fyrrverandi sam-
uraia sem gekk gegn vilja shoguns
(meistara) síns sem hafði skipað hon-
um að framkvæma seppuku (sjálfs-
morðsaðferð framkvæmd til þess að
viðhalda heiðri). Sá „heiður“ hafði
söguhetju okkar áhlotnast vegna
þess að hann var hafður fyrir rangri
sök fyrir að reyna að steypa meist-
ara sínum af stóli. Það er því skilj-
anlegt að hann skuli streitast á móti
því að fá að „opinbera“ innyfli sín
fyrir sólarljósinu. Eftir að Lone Wolf
hefur tekið þá ákvörðun að ganga
veg bölvunar um aldur og ævi verður
hann að taka ákvörðun um örlög
barnungs sonar síns. Ef hann kýs að
taka son sinn með sér verður hann
fordæmdur alla sína ævi, hins vegar
ef hann tekur hann ekki með verður
hann drepinn af mönnum shoguns-
ins. Það er athyglisvert hvernig
hann leysir þessa erfiðu þraut, hann
leggur bolta öðrum megin við son
sinn en sverð hinum megin. Ef smá-
barnið skríður í átt til boltans hyggst
söguhetja okkar senda hann til móð-
ur sinnar í andaheiminum en ef hann
skríður í átt til sverðsins hefur hann
valið að ganga veg föður síns.
Söguhetja okkar er með afar þver-
stæðan persónuleika, hvorki góður
né illur, bæði siðlaus morðingi og
tákn réttvísarinnar. Sambandið milli
föður og sonar er einnig afar sér-
stakt, söguhetja okkar er ábyrgðar-
full í föðurhlutverkinu, sonurinn in-
dæll og prúður en aðstoðar þó föður
sinn við vinnuna. Afkvæmi úlfs er
alltaf úlfur.
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Úlfar og aðrir
stríðslistamenn
Hér sjáum við söguhetjuna, leigumorðingjann Lone Wolf,
setja son sinn í prófið örlagaríka.
Lone Wolf and Cub, volume 1: The
Assassins road eftir Kazuo Koike.
Teiknuð af Goseki Kojima. Útgefin
á ensku árið 2000 af Dark Horse
Comics. Bókarkápan er teiknuð af
Frank Miller. Fæst í mynda-
söguverslun Nexus.
Birgir Örn Steinarsson
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 2 og 3.50. Vit nr. 203.
Miðvikud kl. 3.50
Sýnd kl. 1.50. Íslenskt tal.
Vit nr. 169
Sýnd kl. 8 og 10.20.
Vit nr. 225.
2 fyrir 1
Þið munuð aldrei trúa því hversu ná-
lægt heimsendi við vorum
i l i t í -
l i i i
Kevin Costner (Dances with Wolves) í sannsögulegri spennumynd
um Kúbudeiluna 1962 og hversu nálægt glötun heimurinn komst.
Engi
n mi
nnin
g get
ur ve
rið h
ættu
leg!
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
HK DV
Tvíhöfð
i
Ó.H.T RÚV
strik.is
www.sambioin.is
Sýnd kl. 5.30 og 8.
B.i.16. Vit nr. 201
HK DV
Kvikmyndir.is
Hau-sverk.is
Tvíhöfði
ÓJ Stöð2
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 207
Kvikmyndir.is
Vinsælasta Stúlkaninsæl sta Stúlkan
Brjáluð
Gamanmynd
Forrester fundinn
Allir hafa hæfileika,
þú verður bara að upp-
götva þá.
Sýnd kl. 10.30.
Vit nr. 217
Kvikmyndir.com
Sprenghlægileg ævintýramynd
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal. Vit nr 213. Sýnd kl. 2 og 3.50. Enskt tal. Vit nr 214
Miðvikud. kl. 4 og 6. Ísl. tal. Vit nr 213. Miðvikud. kl. 3.50. Enskt tal. Vit nr 214
Sýnd kl. 2 og 3.50.
Miðvikud kl. 3.50
Ísl tal. Vit nr. 183.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Vit nr. 173.
Miss Congeniality
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 224.
Miðvikudagur kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 224.
Hann man aldrei meira en seinustu 5 mín af ævinni sinni og veit ekki hver-
jum hann getur treyst. Guy Pearce (LAConfidential) og Carrie-Anne Moss
(Matrix) í frábærri spennumynd sem Ebert og Roeper líkja við PulpFiction
og Usual Suspects.
Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15. vit nr 220. B.i.14.
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
eftir Þorfinn Guðnason.
HK DV
Strik.is
Ó.H.T Rás2
SV Mbl
Lalli
Johns
Yfir 6000 áhorfendur
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 5.45 og 8. B.i.16 ára.
Sýnd kl. 5.45 og 8
Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10.30.
Mbl
Sýnd kl. 10. B. i. 16.
Sýnd kl. 5, 8 og 10.15.
HK DVKvikmyndir.com
strik.is
Ó.H.T RÚV
GSE DV
HL Mbl
ÓHT Rás 2
ÓFE Sýn
DANIELA ARCURI
& ARMANDO ORZUZA
5.-13. maí
Tangóháti›í
í Kramhúsinu
Kennarar frá Buenos Aires
Kennsla fyrir
byrjendur
og framhald
Tangósýning og
ball á Borginni
Einstakt tækifæri!!!
sími 551 5103
www.tango.is
ROKKIÐ fer aldrei í frí, ekki einu
sinni 1. maí, á alþjóðadegi verka-
lýðsins. Um kvöldið ætla nefnilega
sveitirnar Tristian, Náttfari og
Toni að rokka og róla sem aldrei
fyrr.
Að sögn Péturs, liðsmanns Trist-
ians, eru liðin ein þrjú ár síðan
sveitin spilaði síðast en fyrir áhuga-
sama má geta þess að sveitin á lög á
safnplötunni Spírum sem út kom
fyrir langalöngu „Þetta á nú ekki
að vera einhver rosa innkoma hjá
okkur,“ segir hann. „Við erum að
fara prófa efni sem við höfum verið
að fikta með í þrjú ár. Svo erum við
að grúska við að gera plötu í hjá-
verkum hjá honum Jóni Ólafs.“
Hann segir bandið hafa verið starf-
andi í þessi þrjú ár, þótt það hafi
verið misvirkt og mannabreytingar
hafi átt sér stað.
Og 1. maí hljómar vel í eyrum
Péturs sem hljómleikadagur.
„Þetta verður einn allsherjar
verkalýðsbaráttusöngur,“ svarar
hann glaðhlakkalegur
Sem fyrr hefjast hljómleikarnir
kl. 21.00 og miðaverð er kr. 500.
Aldurstakmark er 18 ár.
Stefnumót
Morgunblaðið/Ásdís
Hljómsveitin Náttfari spilar á
Stefnumóti í kvöld.
Alþýðurokk
á Gauknum