Morgunblaðið - 20.05.2001, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 C 5
Viltu leika í kvikmynd
í sumar?
Við óskum eftir áhugasömu fólki á öllum aldri
í aukahlutverk í íslenskri kvikmynd. Upptökur
fara fram í júní og júlí.
Svör sendist til auglýsingadeildar Mbl. eigi
seinna en á hádegi á miðvikudag merkt:
„Kvikmynd — 11235“.
Bókhalds- og skrif-
stofustarf fyrir hádegi
Lítið inn- og útflutningsfyrirtæki í Mosfellsbæ
óskar að ráða starfskraft með reynslu eða mennt-
un í almennum skrifstofustörfum og bókhaldi.
Um er að ræða mjög sjálfstætt starf. Þarf að geta
hafið störf sem fyrst. Svör berist auglýsingadeild
Mbl. merkt: „E — 11239“, fyrir 25. maí.
IÐNSKÓLINN Í HAFNARFIRÐI,
Flatahrauni 12, 220 Hafnarfirði,
sími 585 3600, fax 585 3601.
Námsráðgjafi!
Laus er staða námsráðgjafa við Iðnskólann
í Hafnarfirði frá og með 1. ágúst n.k. Starfshlut-
fall er 60%, en til greina kemur kennsla til að
fylla upp í heila stöðu. Launakjör eru sam-
kvæmt kjarasamningum KÍ.
Nánari upplýsingar gefur skólameistari í síma
585 3600 og skulu umsóknir hafa borist fyrir
3. júní nk.
Tölvuumsjón!
Laus er staða tölvuumsjónarmanns og tækja-
varðar. Starfið felst í að hafa umsjón með tölv-
um, netkerfi, ásamt ýmsum rafstýrðum
kennslutækjum.
Ráðning miðast við 1. til 15. ágúst.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum opin-
berra starfsmanna.
Allar nánari upplýsingar gefur skólameistari
í síma 585 3600 og skulu umsóknir hafa borist
fyrir 3. júní nk.
Jóhannes Einarsson,
skólameistari.
Gefandi starf - sveigj-
anlegur vinnutími
Við óskum eftir að ráða gott og hresst starfsfólk
við félagslega heimaþjónustu við félags-
og þjónustumiðstöðina í Árskógum 4.
■ Um er að ræða hlutastörf, tvær 25% stöður,
þar sem unnið er frá kl. 16—19, aðra hvora
viku.
■ Einnig vantar okkur starfsfólk til
sumarafleysinga frá júní til ágúst. Starfs-
hlutfall og vinnutími innan dagvinnutímabils
er samkomulag.
Laun skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar
og Eflingar. Hlökkum til að heyra frá ykkur.
Nánari upplýsingar veitir Pála Jakobsdóttir,
deildarstjóri heimaþjónustu, í þjónustumið-
stöðinni í Árskógum 4, eða í síma 510 2160.
Umsóknareyðublöð liggja einnig þar frammi.
Félagsleg
heimaþjónusta
Starfsfólk vantar til starfa við félagslega
heimaþjónustu í Laugardalshverfi (svæðið
norðan Miklubrautar og vestan Lönguhlíðar).
Um er að ræða bæði fastar stöður og sumar-
afleysingar. Starfsstaðir eru
■ í þjónustuíbúðum á Lönguhlíð 3, í Hátúni
10 og
■ út frá miðstöðvum að Norðurbrún 1 og
í Bólstaðarhlíð 43.
Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar og Eflingar.
Margvísleg reynsla kemur að notum.
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar.
Hlökkum til að heyra frá þér.
Nánari upplýsingar veita: Anna Kristín Guð-
mannsdóttir, deildarstjóri, í síma 568 5052
(vegna Lönguhlíðar 3, Hátúns 10 og Bólstarhlíðar
43), Helga Jörgensen, deildarstjóri, og María
Þórarinsdóttir, deildarstjóri, í síma
568 6960 (vegna Norðurbrúnar 1).