Morgunblaðið - 20.05.2001, Qupperneq 8
8 C SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skólaskrifstofa
Hafnarfjarðar
Grunnskólakennarar — Námsráðgjafar
Lausar stöður við grunnskóla Hafnarfjarðar
frá og með 1. ágúst:
Lækjarskóli (s. 555 0585)
Almenn kennsla, enska, íþróttir.
Öldutúnsskóli (s. 555 1546)
Almenn kennsla (yngra stig) stærðfræði á ung-
lingastigi.
Víðistaðaskóli (s. 555 2912)
Sérkennsla Setbergsskóli (s. 565 1011)
Myndmennt(50%), almenn kennsla á yngsta
stigi.
Hvaleyrarskóli (s. 565 0200)
Almenn kennsla, samfélagsfræði, raungreinar,
sérkennsla.
Námsráðgjafi (100%).
Allar upplýsingar veita skólastjórar viðkomandi
skóla. Umsóknarfrestur er til 1. júní en umsókn-
areyðublöð liggja frammi á Skólaskrifstofu
Hafnarfjarðar, Strandgötu 31. Einnig er hægt
að sækja um rafrænt undir hafnarfjordur.is .
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.
Umsjónarmaður
húseigna
Við rekstur fasteigna Háskóla Íslands er laust
til umsóknar starf umsjónarmanns húseigna.
Í starfinu felst umsjón með húseignum , hús-
búnaði, öryggismálum og ræstingu. Unnið er
eftir vaktafyrirkomulagi. Æskilegt er að við-
komandi hafi reynslu af tölvunotkun.
Nauðsynlegt er að hafa bíl til umráða.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála-
ráðherra og Starfsmannafélags ríkisstofnana.
Gert er ráð fyrir því að ráða í starfið frá og með
1. ágúst nk. Umsóknum sem greina frá mennt-
un og starfsreynslu skal skila til starfsmanna-
sviðs Háskóla Íslands, Aðalbyggingu við Suð-
urgötu, 101 Reykjavík fyrir 5. júní nk.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækj-
endum síðan greint frá því hvernig starfinu
var ráðstafað þegar ákvörðun um það hefur
verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Vilhjálmur
Pálmason, rekstrarstjóri fasteigna, í síma
525 4235.
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið
tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans.
http://www.starf.hi.is
Menntaskólinn
við Hamrahlíð
Laus störf í ágúst
Staða bókasafnsafnsfræðings, a.m.k. 80% starf
til frambúðar.
Starfssvið: Umsjón og ábyrgð með ákveðn-
um verkefnum undir stjórn forstöðumanns
skólasafns, almenn afgreiðsla á skólasafni,
þjónusta við kennara, leiðbeining við tölvu-
notkun, upplýsingaleit, viðhald safnkosts, öflun
aðfanga, fræðsla og kynning, skýrslugerð, þátt-
taka í innra mati, frágangur safns að loknu
skólaári, sérverkefni að ósk forstöðumanns
eða skólameistara o.fl.
Kennsla í eðlisfræði, a.m.k. 50% starf á haus-
tönn.
Starf við ræstingu, 50% starf, vinnutími eftir
kl. 16.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála-
ráðherra og viðkomandi stéttarfélaga (SBU,
KÍ, Efling). Umsóknarfrestur er til 1. júní nk.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum umsóknar-
eyðublöðum en í umsókn þarf að greina frá
menntun, fyrri störfum og öðru því sem um-
sækjandi telur að máli skipti. Umsóknir skal
senda til Lárusar H. Bjarnasonar, rektors Menn-
taskólans við Hamrahlíð, 105 Reykjavík.
Nánari upplýsingar fást í síma 595 5200.
Rektor.
Á Veðurstofu Íslands
eru eftirtalin störf laus til umsóknar:
Veðurfræðingur/jarðeðlisfræðingur
eða maður með sambærilega menntun á
Tækni- og athuganasviði. Starfið felst m.a.
í eftirliti með veðurathugunum og kennslu veð-
urathugunarmanna og því er nauðsynlegt að
viðkomandi eigi auðvelt með að umgangast
fólk og leiðbeina því. Verklegar framkvæmdir
og prófun mælitækja eru einnig mikilvægir
þættir í starfsemi sviðsins.
Nánari upplýsingar gefa Hreinn Hjartarson og
Þórður Arason. Umsóknarfrestur er til 29. maí
nk.
Jarðskjálftafræðingur/
jarðeðlisfræðingur/tölfræðingur
á Jarðeðlissviði. Meginstarfssvið verður þátt-
taka í þróunarvinnu, sem miðar að því að efla
eftirlits- og viðvörunarþjónustu stofnunarinnar.
Nánari upplýsingar veita starfsmenn Jarðeðlis-
sviðs, Ragnar Stefánsson (sími 466 3125, net-
fang: ragnar@vedur.is) og Páll Halldórsson
(sími 522 6000, netfang: ph@vedur.is)
Umsóknarfrestur er til 11. júní nk.
Tölvari/veðurþjónustufulltrúi
á Þjónustusviði. Starfið er fjölbreytt og krefst
nákvæmni og lipurðar. Felst það m.a. í eftirliti
með fjarskiptum og tölvuvinnslu, gerð veðurat-
hugana og samskiptum við viðskiptavini.
Unnið er á vöktum.
Krafist er stúdentsprófs eða hliðstæðrar
menntunar. Æskilegt er að umsækjandi hafi
lokið einhvers konar tölvuprófi eða hafi tals-
verða reynslu af tölvuvinnslu. Umsækjandi
þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Guðmundur Haf-
steinsson forstöðumaður Þjónustusviðs. Um-
sóknarfrestur er til 5. júní nk.
Starfsmaður í ræstingu
á skrifstofuhúsnæði u.þ.b. 2 klst. alla virka daga
eftir kl. 17. Tímamæld ákvæðisvinna. Umsækj-
andi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari
upplýsingar gefur Björn Karlsson í síma
522 6000 eða 862 0636.
Laun samkvæmt kjarasamningum ríkisstarfs-
manna. Umsóknir skulu sendar til Veðurstofu
Íslands, Bústaðavegi 9, 150 R. s. 522 6000.