Morgunblaðið - 20.05.2001, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 C 11
Hólmavíkurhreppur
Íþróttakennarar !
Staða íþróttakennara við Grunnskólann á
Hólmavík er laus til umsóknar.
Um er að ræða 2/3 stöðu við íþróttakennslu
og einnig þarf viðkomandi að geta tekið að
sér einhverja bóklega kennslu. Einnig er
æskilegt að íþróttakennari geti tekið að sér
þjálfun á vegum UMFG Geislans.
Góðir tekjumöguleikar í boði fyrir réttan aðila.
Umsóknarfrestur er til 3. júní 2001.
Tónlistarkennarar !
Staða tónlistarkennara við Tónskóla
Hólmavíkur og Kirkjubólshreppa er laus til
umsóknar. Um er að ræða eina stöðu.
Viðkomandi þarf að geta kennt á píanó.
Möguleiki er á starfi organista við Hólma-
víkurkirkju og einnig á starfi við kórstjórn.
Umsóknarfrestur er til 3. júní 2001.
Nánari upplýsingar gefa:
Victor Örn Victorsson skólastjóri
v.s. 451-3129 og h.s. 451-3262
Kristján Sigurðsson aðstoðarskólastjóri
v.s. 451-3129 og h.s. 451-3562
Hólmavík er um 450 manna sjávarþorp í
Strandasýslu, 270 km. frá Reykjavík sem byggir
aðallega á sjávarútvegi og þjónustu. Hólmavík hefur
margt að bjóða lífsglöðu fólki. Á staðnum er mjög
góð aðstaða til iðkunar íþrótta t.d. skíðagöngu,
vélsleðaaksturs, jeppaferða, golfiðkunar, gönguferða
og veiðiferða. Einnig eru frábær berjalönd við
bæjardyrnar. Grunnskólinn er einsetinn, heilsdags
leikskóli, þróttmikið íþrótta og félagsstarf barna og
unglinga, góð heilbrigðisþjónusta og svo mætti lengi
telja. Hafir þú áhuga á þessum störfum endilega
hafðu samband og athugaðu hvað er í boði.
Umsjónarmaður
tækjabúnaðar
Við rekstur fasteigna Háskóla Íslands er laust
til umsóknar starf umsjónarmanns tækja-
búnaðar. Starfið felst einkum í umsjón og eftir-
liti með tækjabúnaði vegna kennslu og ráð-
stefna s.s. skjávarpa, tölvubúnaðar og hljóð-
kerfa, ásamt þjónustu við kennara og aðra not-
endur búnaðarins. Nauðsynlegt er að viðkom-
andi hafi reynslu af tölvunotkun.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála-
ráðherra og Starfsmannafélags ríkisstofnana.
Gert er ráð fyrir því að ráða í starfið frá og með
1. júlí nk.
Umsóknum sem greina frá menntun og starfs-
reynslu skal skila til starfsmannasviðs Háskóla
Íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101
Reykjavík fyrir 5. júní nk. Öllum umsóknum
verður svarað og umsækjendum síðan greint
frá því hvernig starfinu var ráðstafað þegar
ákvörðun um það hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um inntak starfsins gefur
Vilhjálmur Pálmason, rekstrarstjóri fasteigna,
í síma 525 4235.
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er
tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans.
http://www.starf.hi.is
MENNTASKÓLINN Á AKUREYRI
Menntaskólinn á Akureyri auglýsir eftir
kennurum í frönsku (hálft starf), sálfræði
(hálft starf), ensku (fullt starf) og sálfræði
(fullt starf). Umsóknir skulu hafa borist
skólanum fyrir 1. júní n.k. Undirritaður veitir
allar frekari upplýsingar.
Menntaskólinn á Akureyri er gömul
menntastofnun með ríkar hefðir og öflugt
skólaþróunarstarf og hefur markað sér stefnu
í nemendavernd, nýjum kennsluaðferðum og
upplýsingatækni og tekur þátt í margvíslegu
alþjóðlegu samstarfi eins og sjá má á vefsíðu
skólans http://www.ma.is.
Nemendur eru um 600
alls staðar að af landinu
og stunda nám á þremur
námsbrautum eftir nýrri
skólanámskrá.
Við skólann starfa 45
kennarar og 40 aðrir
starfsmenn þar sem ríkir
þægilegur starfsandi og
vinnuaðstaða er mjög góð.
Menntaskólanum á
Akureyri, 15. maí 2001
Tryggvi Gíslason
SKÓLAMEISTARI MA
Laus staða skólastjóra
í Langholtsskóla
Laus er staða skólastjóra við Langholtsskóla,
sem er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk.
Staðan er laus frá 1. ágúst nk.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
● Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi
og rekstri skólans.
● Veita skólanum faglega forystu á sviði
kennslu og þróunar í skólastarfi.
Leitað er að umsækjenda sem:
● Hefur stjórnunarhæfileika og reynslu af
stjórnun.
● Hefur kennaramenntun, framhaldsmenntun
á sviði stjórnunar, uppeldis- eða kennslu-
fræði æskileg.
● Hefur reynslu af kennslu og af vinnu með
börnum og unglingum.
● Er lipur í mannlegum samskiptum.
Upplýsingar gefur Ingunn Gísladóttir, starfs-
mannastjóri á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur,
netfang: ingunng@rvk.is, sími 535 5000.
Umsóknarfrestur er til 18. júní nk.
Umsóknir sendist til Fræðslumiðstöðvar Reykj-
avíkur, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík. Umsókn
fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, ennfremur
gögn og upplýsingar um frumkvæði á sviði
skólamála, auk annarra gagna er málið varðar.
Nánari upplýsingar um grunnskóla Reykjavíkur
er að finna á netinu undir grunnskolar.is
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi
stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um laus störf og
grunnskóla Reykjavíkur er að finna á
netinu undir job.is