Morgunblaðið - 20.05.2001, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 C 13
Seltjarnarnesbær
A
u
g
lý
si
n
g
a
st
o
fa
Þ
ó
rh
il
d
a
r
2
2
0
0
.9
0
Óskum eftir að ráða
leikskólakennara og
leikskólasérkennara eða
þroskaþjálfa
LEIKSKÓLINN
MÁNABREKKA
Uppeldisstefna Mánabrekku er umhverfis- og
náttúruvernd. Einnig er lögð áhersla á tónlist
og tölvur. Við bjóðum glæsilega vinnuaðstöðu,
skemmtilegt starf og góða vinnufélaga.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra
leikskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga.
Komið í heimsókn, hringið eða sendið okkur
tölvupóst og kynnið ykkur skólastarfið.
Leikskólar Seltjarnarness eru reyklausir vinnustaðir.
Upplýsingar gefa Dagrún Ársælsdóttir leikskólastjóri
og Guðbjörg Jónsdóttir aðstoðarleikskólastjóri
Mánabrekku í símum 595 9280, tölvupóstfang:
dagrun@seltjarnarnes.is eða Kristjana Stefánsdóttir
leikskólafulltrúi í síma 59 59 100.
Skriflegar umsóknir berist
til leikskólans Mánabrekku
eða Skólaskrifstofu
Seltjarnarness.
Skólaskrifstofa
Framhaldsskólinn í
Vestmannaeyjum
Lausar kennarastöður
Umsóknarfrestur um eftirfarandi störf er fram-
lengdur til 31. maí:
Náttúrufræði
(Líffræði og efnafræði) 1 staða.
Stærðfræði 1 staða.
Málmsmíði og málmiðngreinar ½-1 staða.
Vélstjórnargreinar ½ staða.
Rafmagnsfræði ½ staða.
Danska ¾ staða.
Jarð- og landafræði ½ staða.
Ennfremur vantar stundakennara í eðlisfræði
og myndlist. Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst
nk. og fara launakjör eftir nýjum samningum
KÍ við fjármálaráðherra. Ekki þarf að nota sér-
stök umsóknarblöð, en upplýsingar um mennt-
un og starfsferil þurfa að fylgja umsókn, hafi
þær ekki áður borist skólanum.
Nánari upplýsingar fást hjá skólameistara í
síma 481 1079 eða 481 2190. Umsóknir skal
stíla á skólameistara Framhaldsskólans í Vest-
mannaeyjum, pósthólf 160, 902 Vestmannaeyj-
ar. Öllum umsóknum verður svarað.
Ólafur H. Sigurjónsson skólameistari.
Sérhæfður
sölumaður
Traust iðnfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að
ráða strax til starfa sérhæfðan sölumann til
að selja vörur sem einkum tengjast sjávarút-
vegi.Leitað er að manni sem hefur þekkingu
á sjáv- arútvegi hér á landi vegna starfa eða
menntunar á því sviði. Æskilegur aldur er 35
til 50 ára.
Einungis koma til greina menn sem eiga gott
með að koma fram og treysta sér til að selja
og fylgja málum eftir af einurð, festu og
dugnaði. Þá þarf viðkomandi að geta unnið
skipulega, hafa tölvuþekkingu og málakunnáttu
(ensku).
Reglusemi og stundvísi áskilin. Um reyklaust
fyrirtæki er að ræða.
Þeir sem hafa áhuga, leggi inn umsókn/fyrir-
spurnir inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir 26. maí
nk. með sem gleggstum upplýsingum um
starfsferil, menntun, fjölskylduhagi og annað
sem máli skiptir, merkt:„Sölumaður
— sjávarútvegur 11247“. Fullum trúnaði heitið.
Öllum verður svarað.
Lyfjafræðingur óskast
Um er að ræða hlutastarf á Sjúkrahúsinu á
Akranesi og hlutastarf í apóteki Lyf og heilsu
á Akranesi. Fjölbreytt og líflegt starf í vaxandi
bæjarfélagi skammt utan bæjarmarka höfuð-
borgarsvæðisins. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veita Guðjón S. Brjánsson,
framkvæmdastjóri SHA, s. 430 6010, netfang
gudjon.brjansson@sha.is, og Gylfi Garðarsson,
lyfsöluleyfishafi Lyf og heilsu, Akranesi,
s. 431 1966, netfang gylfig@hagraedi.is .
Er erfitt að velja?
Hér er lausnin!
Það vantar grunnskólakennara
á Hellissand næsta vetur
Langar þig til að skipta um umhverfi og takast
á við ný verkefni, við tökum vel á móti nýjum
kennurum hér í Grunnskólanum á Hellissandi.
Okkur vantar íþróttakennara í nýja glæsi-
lega íþróttahúsið okkar (möguleiki á vinnu
við þjálfun í sumar), bekkjarkennara, náttúru-
fræðikennara og smíðakennara.
Umsóknarfrestur út þessa viku.
Skólinn er einsetinn og telur 100 nemendur í 10 bekkjardeild-
um. Í skólanum er góð vinnuaðstaða, mjög gott tölvuver,
fjarkennslumöguleiki, góður vinnuandi, vinnum að því að
gera skólann vistvænan samkvæmt staðardagskrá 21, mikil
orka frá Snæfellsjökli. Hér verðum við aldrei veðurteppt,
öflugt félagsstarf, stórt og glæsilegt íþróttahús, stutt í skíða-
paradís (Snæfellsjökul) og aðra útivist og aðeins er rúmlega
tveggja tíma akstur til Reykjavíkur. Flutningsstyrkur og húsa-
leiguafsláttur.
Þetta gerist ekki betra!
Hikið ekki við að hafa samband við Huldu
skólastjóra í símum 436 6618 eða 436 6744 eða
Þorkel aðstoðarskólastjóra í símum 436 6717
eða 436 6783.
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin
á Akranesi — Sjúkrasvið
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga eru lausar
til umsóknar:
● Hjúkrunarfræðinga á handlækningadeild
Lausar stöður hjúkrunarfræðinga frá
15. ágúst. Deildin er 10 rúma legudeild. Mjög
fjölbreytt starfsemi fer fram á deildinni.
Spennandi vinna í gangi varðandi skráningu
hjúkrunar. Upplýsingar um stjöðurnar gefur
Guðjóna Kristjánsdóttir, deildarstjóri,
í síma 430 6111.
● Skurðhjúkrunarfræðingur
Laus staða á skurðdeild Sjúkrahúss Akraness
frá og með 1. ágúst 2001. Fáist ekki skurð-
hjúkrunarfræðingur kemur til greina að ráða
hjúkrunarfræðing með starfsreynslu á skurð-
deild. Á skurðdeild S.A eru framkvæmdar
um 2000 aðgeðir árlega. Ný og glæsileg
skurðdeild var tekin í notkun 30. september
síðastliðinn. Upplýsingar gefur Ólafía Sig-
urðardóttir, deildarstjóri, í síma 430 6141.
● Svæfingahjúkrunarfræðingur
Laus staða svæfingahjúkrunarfræðings frá
1. september nk. Upplýsingar um stöðuna
gefur Guðrún M. Halldórsdóttir, deildarstóri,
í síma 430 6188.
Frekari upplýsingar um stofnunina, launakjör
o.fl. gefur Steinunn Sigurðardóttir, hjúkrunar-
forstjóri, í síma 430 6012.
Kennarar
Brekkubæjarskóli
Grunnskólakennara vantar til starfa næsta
skólaár. Æskilegar kennslugreinar: almenn bekkj-
arkennsla, tónmenntakennsla, náttúrufræði-
kennsla (4 stöðugildi). Einnig er laus 50% staða
námsráðgjafa. Upplýsingar veita: Ingi Steinar
Gunnlaugsson skólastjóri og Ingvar Ingvarsson
aðstoðarskólastjóri í síma 431 1938. netfang:
ingist@akranes.is , ingvari@akranes.is .
Brekkubæjarskóli verður einsetinn frá haustinu
2001. Öll aðstaða kennara og nemenda verður
þá með ákjósanlegum hætti.
Grundaskóli
Laus er staða 50% staða námsráðgjafa. Upplýs-
ingar veita Guðbjartur Hannesson, skólastjóri,
Hrönn Ríkharðsdóttir, aðstoðarskólastjóri í
síma 431 2811. Netfang: grundask-
oli@grundaskoli.is . Grundaskóli verður einset-
inn frá haustinu 2002.
Tónlistarskólinn á Akranesi
Við skólann er laus staða málmblásturskenn-
ara. Nánari upplýsingar gefur Lárus Sighvats-
son, skólastjóri, í síma 431 2109.
Umsóknarfrestur til 28. maí nk.
Menningar- og skólafulltrúi Akraness.
Spennandi
stjórnunarstarf
Deildarstjórar óskast til starfa hjá Leikskólum
Reykjavíkur
Stöður deildarstjóra eru lausar í eftirtöldum
leikskólum:
Brákarborg við Brákarsund.
Upplýsingar gefur Anna Harðardóttir, leikskóla-
stjóri, í síma 553 4748.
Laufskálum við Laufrima.
Upplýsingar gefur Lilja Björk Ólafsdóttir, leik-
skólastjóri, í síma 587 1140.
Sæborg við Starhaga.
Upplýsingar gefur Soffía Þorsteinsdóttir
í síma 562 3664.
Leikskólakennaramenntun er áskilin.
Hjá Leikskólum Reykjavíkur er rekin metnaðar-
full starfsmannastefna, sem miðar að því að
allir njóti sín í starfi og þroski hæfileika sína.
Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu
Leikskóla Reykjavíkur og á vefsvæði
www.leikskolar.is
Leikskólar Reykjavíkur.
fljótasiglingar
r
a
f
t
i
n
g