Morgunblaðið - 20.05.2001, Qupperneq 14
14 C SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skólaskrifstofa
Vestmannaeyja
Kennarar
Í Vestmannaeyjum eru ennþá lausar eftirfar-
andi kennarastöður:
Við Barnaskólann í Vestmannaeyjum vantar
kennara í dönsku, heimilisfræði og almenna
bekkjarkennslu. Upplýsingar veitir skólastjóri,
Hjálmfríður Sveinsdóttir í síma 481 1944
(481 1898 heima).
Við Hamarsskólann er laus staða sérkennara
og auk þess vantar kennara í dönsku og
almenna bekkjarkennslu. Upplýsingar veitir
skólastjóri, Halldóra Magnúsdóttir í síma
481 2644 (481 2265 heima).
Skólafulltrúi.
Yfirdýralæknir
Laus störf dýralækna
Auglýst eru laus til umsóknar eftirtalin
störf dýralækna:
● Starf efirlitsdýralæknis við embætti
héraðsdýralæknis í Gullbringu- og Kjós-
arumdæmi frá 1. júní 2001.
● Sumarafleysingar eftirlitsdýralækna.
Upplýsingar um störf þessi eru veittar á aðal-
skrifstofu embættis yfirdýralæknis, í síma
560 9750 Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík.
Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um
menntun og fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2001.
Laun eftirlitsdýralækna eru samkvæmt kjara-
samningi fjármálaráðherra við Dýralæknafélag
Íslands.
FRÁ SNÆLANDSSKÓLA
Eftirfarandi kennarastöður eru lausar til um-
sóknar við Snælandsskóla:
• Staða bekkjarkennara í 1. bekk
• Hálf staða raungreinakennara vegna
orlofs
Launakjör eru skv. kjarasamningum KÍ og Launa-
nefndar sveitarfélaga.
• Einnig eru laus bæði hálf og heil störf
gangavarða/ræsta.
Launakjör eru skv. kjarasamningum Eflingar og
Kópavogsbæjar.
Upplýsingar um kennarastöðurnar gefa skóla-
stjóri og aðstoðarskólastjóri í síma 554 4911.
Upplýsingar um störf gangavarða/ræsta gefur
húsvörður í síma 554 4911.
Umsóknarfrestur um öll störfin er til 30. maí nk.
Starfsmannastjóri
KÓPAVOGSBÆR
Grunnskólinn á
Blönduósi
Lausar kennarastöður skólaárið
2001—2002.
Kennslusvið: Sérkennsla, almenn
kennsla, list- og verkgreinar, heimilis-
fræði.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi
launanefndar sveitarfélaga og Kennara-
sambands Íslands fyrir grunnskóla. Allar
upplýsingar veita Helgi Arnarson skóla-
stjóri í vs. 452 4229 og hs. 452 4773 og
Björgvin Þór Þórhallsson aðstoðarskóla-
stjóri í vs. 452 4147 og hs. 452 4437. Um-
sóknarfrestur er til 31. maí 2001.
Umsóknir berist Grunnskólanum á
Blönduósi, Húnabraut, 540 Blönduósi.
Bifvélavirki
Brimborg á Akureyri óskar eftir að ráða
bifvélavirkja á vörubílaverkstæði sitt
Við leitum að þjónustuliprum, skemmtilegum
og metnaðarfullum manni með góða og víðtæka
reynslu í viðgerðum á vörubílum og vinnu-
vélum.
Við bjóðum þér reglulega þjálfun, mikil fríð-
indi, úrvals vinnuaðstöðu og síðast en ekki síst
góð laun fyrir góða fagmennsku.
Þið sem kjósið að slást í hópinn og viljið
fá tækifæri til að vinna við nýjustu tækni á sviði
bílgreina, athugið að umsóknafrestur er til og
með 31. maí. Allar umsóknir verða með-
höndlaðar sem trúnaðarmál.
Allar nánari upplýsingar og móttöku umsókna
veitir Jón Á. Þorvaldsson í síma 462 2700 eða á
skrifstofu Brimborgar, Tryggvabraut 5, Akureyri.
Mjódd
Hlutastarf
Brúðarkjólaleiga Katrínar óskar að ráða
starfskraft í hlutastarf. Viðkomandi þarf að
vera snyrtilegur og þjónustulyndur.
Einhver reynsla af saumastörfum æskileg.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst. Vinnutími getur verið fastur eða breyti-
legur. Áhugasamir sendi inn skriflegar um-
sóknir með upplýsingum um aldur og fyrri
störf. Umsóknir sendist fyrir 25. maí nk. til:
Brúðarkjólaleiga Katrínar,
Álfabakka 14a, 109 Reykjavík.
Stöðvarhreppur
Kennarar athugið!
Við Grunnskólann á Stöðvarfirði vantar kenn-
ara næsta skólaár.
Meðal kennslugreina:
● Almenn kennsla.
● Danska.
● Sérkennsla.
Í grunnskólanum eru tæplega 50 nemendur í 1.—10. bekk og því
töluverð samkennsla. Nýtt og glæsilegt skólahúsnæði var tekið í
notkun 1997. Vinnuaðstaða kennara er mjög góð og það sama á
við um tölvukost skólans. Nýtt íþróttahús var tekið í notkun í janúar
2000. Mjög öflugur tónlistarskóli er á staðnum og starfar hann í
nánum tengslum við grunnskólann. Sjá einnig heimasíðu skólans
www.eldhorn.is/grunnstf. Flutningsstyrkur og ódýrt húsnæði í boði.
Umsóknarfrestur er til 26. maí 2001.
Nánari upplýsingar veita:
Jónas E. Ólafsson, skólastjóri, í símum 475 8818
og 475 8911 og Jóhann P. Jóhannsson, form.
skólanefndar, í símum 475 8989 og 475 8990.
Hópferðir
Óskum eftir að ráða rútubílstjóra fyrir sumarið.
Einnig vantar okkur vaktstjóra og mann vanan
viðgerðum stórra bíla.
Upplýsingar gefur Rúnar hjá Allrahanda í sím-
um 540 1313 og 892 7400.
Tökumaður og klippari
óskast til afleysingastarfa yfir sumar-
mánuðina frá og með 28. maí.
Um er að ræða fullt starf og hugsanlegir mögu-
leikar á framtíðarstarfi. Áhugasamir pantið við-
talstíma hjá Elínu í síma 562 9600.