Morgunblaðið - 20.05.2001, Blaðsíða 20
20 C SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir
tilboðum í verkið „Næturvarsla við Elliðaár
2001-2002".
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar.
Opnun tilboða: 29. maí 2001 kl. 14.00 á
sama stað.
OVR80/1
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings
er óskað eftir tilboðum í jarðvinnu vegna við-
byggingar við leikskólann Jöklaborg.
Í verkinu felst gröftur fyrir um 300 m² viðbygg-
ingu ásamt fyllingu undir sökkla og girðingu
umhverfis vinnusvæði.
Verklok eru 13. júlí 2001.
Helstu magntölur:
Girðing: 145 m
Gröftur: 2.200 m3
Fylling: 1.200 m3
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 5.000
kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 6. júní 2001 kl. 11.00 á sama
stað.
BGD81/1
Umhverfis- og tæknisvið
Hafnarfjarðar
Útboð
Reykjavíkurvegur (Fjarðarbraut)
endurbætur.
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboði í endurbæt-
ur á Reykjavíkurvegi frá Arnarhrauni að
Strandgötu. Verkið felur í sér jarðvinnu, yfir-
borðsfrágang, gróðursetningu og lagnir.
Væntanlegur verktaki mun geta hafið fram-
kvæmdir strax en verkinu skal að fullu lokið
23. júlí 2001.
Helstu magntölur eru:
Kantsteinn: 1300 m
Hellur: 470 m²
Malbik: 200 m²
Undirbygging gangstétta: 1200 m²
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Umhverfis-
og tæknisviðs Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu
8-10 (gengið inn frá Linnetsstíg), 3. hæð, frá
og með mánudeginum 14. maí 2001 á kr.
3.000.
Tilboð verða opnuð á sama stað mánudaginn
28. maí 2001 kl. 10.00.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Umhverfis- og tæknisvið Hafnarfjarðar.
ÚU T B O Ð
Prentun Íslandsbæklinga
fyrir Ferðamálaráð Íslands
Útboð nr. 12787
Ríkiskaup fyrir hönd Ferðamálaráðs Íslands og
Islandisches Fremdenverkehrsamt (IFVA), óska
eftir tilboðum í prentun á Íslandsbæklingum fyrir
árið 2002.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500
hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 105, Reykjavík, frá
með miðvikudeginum 23. maí.
Tilboðin verða opnuð á sama stað hinn 26. júní
2001 kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Sveitarfélagið Árborg
auglýsir útboð á byggingu
glerþaks yfir inngarð í
Sólvallaskóla á Selfossi
Auglýst er eftir verktaka til að smíða eða út-
vega píramída með fjórum hliðum úr stálstyrkt-
um álprófílum og gleri og koma honum fyrir
yfir núverandi opnum inngarði.
Í glerpíramídanum eru átta opnanleg fög með
tilheyrandi rafdrifnum opnunarbúnaði. Grunn-
flötur er 8,4 x 8,4 metrar. Hæð píramídans upp
frá þaki er um það bil 2,6 m.
Verkið getur hafist þriðjudag 5. júní 2001.
Því skal að fullu lokið föstudag 3. ágúst 2001.
Gögn verða afhent í ráðhúsi Árborgar, Austur-
vegi 2, Selfossi, og hjá OÖ Arkitektastofunni
ehf., Borgartúni 17, Reykjavík, frá og með
mánudegi 14. maí 2001 kl. 10.00.
Tilboð verða opnuð í ráðhúsi Árborgar mánu-
daginn 28. maí 2001 kl. 14.00.
Til sölu
Landsvirkjun óskar eftir kauptilboðum í eftirtalin
tæki sem verða til sýnis dagana 17. til 28. maí.
Við Blönduvirkjun:
1 Toyota Hi-lux, árgerð 1991. Ekinn 178.000
km.
1 Hagglund snjóbíll, árgerð 1981.
2 Polaris Indi vélsleðar með löngu belti árgerð
1991.
Upplýsingar um þessi tæki eru veittar í síma
452 4900.
Við Laxárstöð:
1 Liebherr PR712 jarðýta, árgerð 1990. Vinnu-
tímar 3.500 stundir. Vél í góðu ástandi, hliðar-
drif var endurnýjað 1996.
1 Case 580F skurðgrafa, árgerð 1981. Vinnutím-
ar 3.400 stundir.
1 Subaru Pickup bifreið, árgerð 1991. Ekinn
57.000 km.
Upplýsingar um þessi tæki eru veittar í síma
892 8497 eða 892 2540.
Tilboðum skal skilað til innkaupadeildar Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir
kl. 14.00 miðvikudaginn 29 maí, 2001 þar sem
þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóð-
endum sem þess óska.
Útboð á akstri vegna
heimsendinga á mat.
Félagsþjónustan í Kópavogi óskar eftir
tilboði í akstur á heimsendum mat fyrir
aldraða og öryrkja í Kópavogi.
Um er að ræða 20-30 heimsenda matar-
bakka á dag. Á virkum dögum er matnum
ekið frá félagsheimilinu Gjábakka, Fannborg
8 en á helgum og helgidögum er matnum
ekið frá Dalshrauni Hafnarfirði. Aksturinn fer
fram á tímabilinu 11.30 - 12.30, alla daga
ársins. Tilboðsgjafi þarf að hafa bíl til
umráða. Farið er fram á að tilboðsgjafi hafi
hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
554 3400 í síma milli kl. 10.00-11.00 alla daga.
Tilboðum skal skilað í Félagsheimilið Gjábakka,
Fannborg 8 Kópavogi fyrir 28. maí 2001.
Félagsþjónustan í Kópavogi
KÓPAVOGSBÆR
Leiksvæði í
Mosfellsbæ
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í gerð
leik- og útivistarsvæða í Mosfellsbæ.
Um nýframkvæmdir er að ræða.
Magntölur:
Uppúrtekt: 700 m3
Fyllingar: 600 m3
Yfirborðsfrágangur: 2.000 m2
Grjóthleðsla: 60 m
Leiktæki: Heild
Útboðsgögn verða afhent á tæknideild
Mosfellsbæjar, Völuteigi 15, frá og með
mánudeginum 21. maí 2001. Tilboðum
skal skilað á sama stað fyrir kl. 11.00
föstudaginn 1. júní nk. þar sem þau
verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda
sem þess óska.
Tæknideild Mosfellsbæjar.
Útboð
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í 3. áfanga
skólphreinsistöðvar. Innifalið í verkinu er upp-
steypa og fullnaðarfrágangur á stöðvarhúsi.
Húsið er kjallari og hæð, steinsteypt með hol-
plötum í þaki. Framhlið er einangruð og klædd
að utanverðu, fyllt verður að göflum og bak-
hlið. Grunnflötur hússins er u.þ.b. 12,5x30,6m,
heildarrúmmál 2.900 m³.
Helstu áætluðu magntölur, steypa 370 m³, mót
2000 m² og járnbending 27 tonn.
Á framkvæmdatíma verða aðrir verktakar að
störfum samhliða og skal verktaki 3. áfanga
hafa lokið uppsteypu fyrir 1. október nk. og
frágangi innanhúss fyrir 15. janúar 2002. Verk-
lok eru 30. apríl 2002.
Útboðsgögn verða afhent gegn 10.000 kr. skila-
gjaldi á skrifstofu Hveragerðisbæjar og hjá
Kletti Verkfræðistofu ehf., Bíldshöfða 12, Reykj-
avík, frá og með þriðjudeginum 15. maí.
Bjóðendum er boðið til kynningarfundar og
vettvangsskoðunar mánudaginn 21. maí kl.
11.00.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hveragerðis-
bæjar mánudaginn 28. maí kl. 11.00 í viðurvist
viðstaddra bjóðenda.
VEIÐI
Laus veiðileyfi í Svartá
Eftirfarandi holl eru enn laus í Svartá. 3 stangir.
7.- 9. júlí, 17.-19.júlí, 21.-24.júlí og 20.-23 ágúst.
Laus veiðileyfi í Búðardalsá
Eftirfarandi holl eru enn laus í Búðardalsá.
2 stangir.8.-11.júlí, 11.-13.júlí, 27.-30.júlí,
3.-5. sept, 7.-10.sept, 12.-14.sept., 17.-19.sept.
Upplýsingar í símum 896 5076 og 893 7249.
Búð ehf. -
www.laxveidi.is
ÝMISLEGT
Gold Quest
Vantar upplýsingar um Gold Quest
Sími 861 4577.