Morgunblaðið - 20.05.2001, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 C 23
ALLT áhugafólk er velkomið á fyr-
irlestra í boði Háskóla Íslands.
Ítarlegri upplýsingar um viðburði
er að finna á heimasíðu Háskólans á
slóðinni: http://www.hi.is/stjorn/sam/
dagbok.html Kynning á námi í
sjúkraþjálfun og læknisfræði. Mánu-
daginn 21. maí kl. 15-18 fer fram
kynning á námi í sjúkraþjálfun og
læknisfræði í húsnæði sjúkraþjálfun-
ar, Skógarhlíð 10.
Allir þeir sem áhuga hafa á námi í
þessum fögum eru hvattir til að nýta
sér þetta einstaka tækifæri.
Hefnd kynjafræðikennarans í
Hlaðvarpanum. Þriðjudaginn 22. maí
kl. 20 mun Rannsóknastofa í kvenna-
fræðum bjóða upp á einkonuleik í
Hlaðvarpanum. Bonnie Morris, dokt-
or í kvennasögu og prófessor við Ge-
orge Washingon-háskóla í Banda-
ríkjunum, treður upp með einleik
sinn „The revenge of the women’s
studies professor“ eða Hefnd kynja-
fræðikennarans. Leikritið er skop-
ádeila á hinar fjölmörgu klisjur um
kvennafræði og femínisma. Í leikrit-
inu bregður Bonnie Morris upp
spaugilegum svipmyndum af ferli
sínum. Einleikurinn ásamt um-
ræðum stendur yfir í u.þ.b. eina til
eina og hálfa klukkustund. Öllum op-
ið, aðgangur ókeypis.
Lykt, bragð og óhljóð í heimildum.
Þriðjudaginn 22. maí kl. 12.05 mun
Matthías Viðar Sæmundsson ís-
lenskufræðingur flytja erindi á há-
degisfundi Sagnfræðingafélagsins í
Norræna húsinu. Erindið nefnist:
Lykt, bragð og óhljóð í heimildum.
Allir velkomnir.
Kynning á námi í heimspekideild.
Þriðjudaginn 22. maí kl. 15-18 fer
fram kynning á námi í heimspeki-
deild á 2. og 3. hæð í Nýja Garði. Þar
er hægt að kynna sér nám í íslensku,
sagnfræði, heimspeki, táknmáls-
fræði, málvísindum, bókmennta-
fræði, ensku, þýsku, dönsku, norsku,
sænsku, finnsku, spænsku, ítölsku,
frönsku, latínu, grísku og rússnesku.
Er um að gera að mæta á svæðið og
kynna sér hina fjölmörgu möguleika.
Kynning á námi í guðfræðideild.
Þriðjudaginn 22. maí kl. 15-18 fer
fram kynning á námi í guðfræði og
djáknanámi. Kynningin fer fram í
stofu V á 2. hæð í Aðalbyggingu Há-
skóla Íslands. Kennarar og nemend-
ur munu sitja fyrir svörum og eru all-
ir hjartanlega velkomnir.
Fræðslufundur á Keldum. Mið-
vikudaginn 23. maí í bókasafni
Keldna kl. 12.30 munu Astrid Pihl
Hansen og Hrund Hólm dýralækna-
nemar við Dýralæknaháskólann í
Osló kynna lokaverkefni sitt sem
þær unnu við Tilraunastöðina undir
leiðsögn Eggerts Gunnarssonar. Er-
indið fjallar um „The prevalence of
feline leukemia virus and antibodies
to feline immunodeficiency virus in
cats in Iceland.“ Athugið að þetta er
á miðvikudegi. Allir velkomnir.
Kynning á námi í hjúkrunarfræði-
deild. Miðvikudaginn 23. maí kl. 15-
18 mun hjúkrunarfræðideild standa
fyrir kynningu á námi í deildinni.
Kennarar og nemendur sitja fyrir
svörum og eru þeir sem áhuga hafa á
námi í hjúkrunarfræði hvattir til að
mæta og kynna sér hvað er í boði.
Kynningin fer fram í Eirbergi, Ei-
ríksgötu 34.
Kynning á námi í tannlæknadeild
Miðvikudaginn 23. maí kl. 15-18
munu kennarar og nemendur sitja
fyrir svörum um nám í tannlækning-
um. Kynningin fer fram á hæðinni
sem gengið er inn á í Læknagarði v/
Vatnsmýrarveg.
Málstofa efnafræðiskorar. Föstu-
daginn 25. maí kl. 12.20 verður mál-
stofa efnafræðiskorar haldin í stofu
157, VR-II, Hjarðarhaga 4-6. ( http://
www.raunvis.hi.is/~marb/malstofa/
index.htm) Þar mun Jón Tryggvi
Njarðarson, Department of Chem-
istry, Yale University, flytja erindið
„Heildarefnasmíðar náttúruefna:
Uppspretta nýrra hugmynda í líf-
rænni efnafræði“. Allir velkomnir.
Kynning á BS-verkefnum. Föstu-
daginn 25. maí munu nemendur í
sjúkraþjálfun við læknadeild HÍ
kynna lokaverkefni sín. Á dagskrá
eru 11 verkefni og mun hvert verk-
efni taka 20 mínútur í flutningi.
Kynningin fer fram í kennslustofu á
3. hæð í Læknagarði og hefst kl. 10
og stendur til kl. 15. Hádegishlé
verður frá kl. 11.40-13. Að kynning-
unni lokinni verður boðið upp á kaffi
og meðlæti. Nánari dagskrá má nálg-
ast á heimasíðu sjúkraþjálfunar:
www.physio.hi.is
Námskeið Endurmenntunarstofn-
unar HÍ. Vefsetur: www.endur-
menntun.is Grundvallaratriði við
stofnun fyrirtækja og gerð viðskipta-
áætlana. Umsjón: Rósa Erlingsdótt-
ir verkefnisstjóri jafnréttisátaksins.
Leiðbeinendur eru sérfræðingar
Impru í frumkvöðlafræðum.
Tími: 25. maí kl. 16.30-22 og 26.
maí kl. 10-17.
Bókhald í BÁR-ST tengt Skýrr, til
eftirlits og stjórnunar. Umsjón: Hall-
dór J. Harðarson, Ríkisbókhaldi.
Tími: 22. maí kl. 13-18 og 23. maí
kl. 8.30-12.30.
Vísindavefurinn Hvers vegna?
–Vegna þess! Vísindavefurinn býður
gestum að spyrja um hvaðeina sem
ætla má að vísinda- og fræðimenn
Háskólans og stofnana hans geti
svarað eða fundið svör við.
Leita má svara við spurningum um
öll vísindi, hverju nafni sem þau nefn-
ast.
Kennarar, sérfræðingar og nem-
endur í framhaldsnámi sjá um að
leysa gáturnar í máli og myndum.
Slóðin er: http://www.visindavef-
ur.hi.is
Sýningar. Árnastofnun, Stofnun
Árna Magnússonar, Árnagarði við
Suðurgötu.
Handritasýning er opin kl. 14-16
þriðjudaga til föstudaga, 1. sept. til
15. maí og kl. 11-16 mánudaga til
laugardaga, 1. júní til 25. ágúst.
Þjóðarbókhlaða. Þróun námsefnis
á 20. öld. Þriðjudaginn 17. apríl var
opnuð í Þjóðarbókhlöðu sýning um
þróun námsefnis. Sýningin ber heitið
Þróun námsefnis á 20. öld: Móður-
málið – náttúran – sagan og stendur
hún til 31. maí og er opin á opnunar-
tíma safnsins. Þetta mun vera í
fyrsta sinn sem sett er upp sýning af
þessu tagi hér á landi. Hún tekur til
námsefnis fyrir skyldunám og hafa
verið valin sýnishorn námsbóka í
nokkrum greinum frá því um og eftir
aldamótin 1900, frá miðri öldinni og
loks frá síðustu árum.
Orðabankar og gagnasöfn. Öllum
er heimill aðgangur að eftirtöldum
orðabönkum og gagnsöfnum á veg-
um Háskóla Íslands og stofnana
hans.
Íslensk málstöð. Orðabanki. Hefur
að geyma fjölmörg orðasöfn í sér-
greinum: http://www.ismal.hi.is/ob/
Landsbókasafn Íslands – Háskóla-
bókasafn. Gegnir og Greinir.
http://www.bok.hi.is/gegnir.html
Orðabók Háskólans. Ritmálsskrá:
http://www.lexis.hi.is/ Rannsókna-
gagnasafn Íslands. Hægt að líta á
rannsóknarverkefni og niðurstöður
rannsókna- og þróunarstarfs: http://
www.ris.is
SPORTVEIÐIBLAÐIÐ kemur út á
allra næstu dögum og eru þar með
tuttugu ár síðan blaðið hóf göngu
sína. Ritstjóri frá upphafi hefur verið
Gunnar Bender og sagði hann í sam-
tali við Morgunblaðið að á sínum
tíma hefði ekki verið um auðugan
garð að gresja fyrir áhugamenn um
veiði. Tímaritið Veiðimaðurinn hefði
verið eina athvarfið og þörf hefði
verið á meiri fjölbreytni. Í upphafi
voru með Gunnari þeir Þröstur
Elliðason og Steingrímur Stein-
grímsson. Þeir hættu árið 1985 og
kom þá Snæbjörn Kristjánsson til
liðs við Gunnar og hefur það sam-
starf verið farsælt síðan.
Gunnar sagði að margt hefði á
dagana drifið á tuttugu árum, en
mestu skipti að veiðimenn hefðu tek-
ið blaðinu vel og þótt útgáfuum-
hverfið hefði á stundum verið erfitt
og fyrirtækið orðið fyrir áföllum,
hefði ævinlega tekist að halda sjó.
„Í gegn um þessi tuttugu ár höfum
við kynnst mörgum, enda flestir
boðnir og búnir að hjálpa okkur að
gefa út blaðið. Við höfum verið
heppnir með blaðamenn sem hafa
skrifað fyrir okkur og líka viðtöl sem
við höfum tekið í blaðið. Eitt viðtal
sem við tókum í annað tölublað okk-
ar er eftirminnilegt, en það var við
Björn J. Blöndal, en aðrir höfðu
reynt að fá viðtal við hann. Við Þröst-
ur fórum vestur í Laugarholt til
Björns, og gerðum okkur heima-
komna. Þetta var upp á von og óvon,
en það gekk eftir, við fengum viðtal
við Björn, þennan snilling ritmálsins
sem tók okkur vel og það var gaman
að ræða við hann. Margir hafa enn
fremur hjálpað okkur að safna
áskrifendum og vil ég sérstaklega
nefna Eggert heitinn Skúlason á
Patreksfirði, en hann safnaði fyrir
okkur 40 áskrifendum þar á staðn-
um.“
Varðandi framtíð blaðsins sagði
Gunnar: „Ég held að framtíðin sé
björt þótt maður viti aldrei hvað
morgundagurinn beri í skauti sér.
Tuttugu ár er langur tími og breyt-
ingar alltaf til batnaðar. Á meðan
maður hefur gaman af að standa í
þessu er allt í lagi að halda áfram í
þessari blaðaútgáfu. Afmælisblaðið
sem kemur út áður en fyrstu árnar
verða opnaðar um mánaðamótin og
hefur verið sérlega skemmtilegt í
vinnslu. Það er 120 síður og meðal
efnis eru viðtöl við Pálma Gestsson
leikara, Kára Stefánsson hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu, Þórarin Sig-
þórsson tannlækni og fleiri.
Enn á floti
eftir
tuttugu ár
Gunnar Bender, ritstjóri Sport-
veiðiblaðsins.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
UM leið og fólk heyrir nafniðHollywood, kemur upp íhuga þess Kalifornía og
filmstjörnur. Það er ekki nema eðli-
legt, því það er hin eina og sanna
Hollywood, og ekki nema ein-
hverjir aular myndu reyna að skíra
annan bæ þessu fræga nafni. Það
var einmitt svoleiðis auli, sem kom
hingað til Flórída og reisti hér aðra
Hollywood fyrir næstum 80 árum,
og hefir það stundum skapað mis-
skilning og vandræði.
Eitt sinn bönkuðu tvær þýzkar
ferðakonur uppá niðri á skrifstofu
og voru að leita upplýsinga. Töluðu
þær mjög takmarkaða ensku, en
bentu á landakort af okkar Holly-
wood og spurðu stöðugt um „der
Berg mit HOLLYWOOD“. Eftir
skamma stund rann upp fyrir mér
ljós. Þær voru að spyrja um fjallið í
Kaliforníu með risastöfunum, sem
mynda nafnið á hinni frægu
Hollywood. Þótti mér leitt að segja
þeim, að þær hefðu tekið skakkan
pól í hæðina, og að sú Hollywood
væri meira en 9000 km. hér fyrir
vestan!
Þótt betra hefði kannske verið, ef
okkar Hollywood hefði fengið eitt-
hvert annað nafn, má ekki þannig
skilja, að þetta sé ekki sómaborg.
Hún er milli Ft. Lauderdale og
Miami, og á undanförnum árum
hefir orðið mikil vakning til að betr-
umbæta borgina og skapa stolt hjá
hinum 128.000 íbúum í stað minni-
máttarkenndar, sem stundum varð
vart áður. Líka er staðurinn sér-
stakur fyrir Íslandsmenn, því þar
er íslenzkur læknir, íslenzkur gisti-
staður, íslenzkur fisksali, íslenzkur
endurskoðandi og íslenzkur ræð-
ismaður. Það er hægt að fá af-
bragðs gistingu á St. Maurice Inn,
sem er á besta stað við ströndina og
ekki meira en 50 metra frá sjónum.
Hótelstýran er Olga Haakonsen og
ættuð þið endilega að kíkja á
heimasíðuna hennar, ef þið hugið á
Flórídaferð, en hana er að finna á
http://stmaurice-inn.com. Þar eru
allar upplýsingar og líka tölvupóst-
fangið.
Hollywood státar af næstum 10
km. langri og fagurri strönd við
sjálft Atlantshafið. Sjórinn er
dimmblár og fagur en rétt undan
landi má sjá grænleitan Golf-
strauminn, drekkandi í sig hitann,
sem hann ber svo alla leið til landa
á norðurhveli til að færa þeim svo-
litla hlýju og skapa betri búsetu-
skilyrði. Þetta er breið og falleg
baðströnd og feikivinsæl. Fyrir of-
an hana er göngu- og hjóla-gata, en
við hana landmegin eru gistihús,
verzlanir og veitingastaðir, sem
flestir hafa útiborð með sólhlífum.
Pálmatré bærast í hafgolu, dýrar
veigar fljóta, tónlist ómar og ást er í
lofti.
Göngugatan er kölluð „The
Broadwalk“, sem getur þýtt bæði
Breiðgata og Skvísustígur og hall-
ast flestir, sem ég hefi talað við, að
síðari túlkuninni. Við ströndina í
Atlantic City í New Jersey er fræg
göngugata, sem heitir „The Board-
walk“, þ.e. Plankastígur. Það
fannst Hollywoodmönnum ekki
passa hér, enda eru í götunni engir
plankar, en á henni oftast fullt af
skvísum, léttklæddum í þokkabót!
Eina helgi, fyrir skömmu, var
haldin ferðakaupstefna við áð-
urnefnda strönd og var okkar ást-
kæra landi boðið að vera með.
Þarna voru um 40 aðilar í tjaldbás-
um, sem settir höfðu verið upp á
reiðhjólabrautinni, milli fjörunnar
og Skvísustígsins. Var þarna að
finna fulltrúa nokkurra landa, flug-
félaga, hótela og ýmissa annarra
fyrirtækja, sem ferðamálum við
koma. Var ég þar til til staðar á
stuttbuxum, ásamt tveimur sjálf-
boðaliðum, með blaktandi fána og
fullt af fínum ferðabæklingum frá
Ferðamálaráði og Flugleiðum. Vor-
um við til reiðu að gefa skvísunum á
Skvísustíg upplýsingar um „heit-
asta“ áfangastaðinn í ferðaheim-
inum, sjálft Ísland.
Veðrið á þessarri helgi var dýrð-
legt, glampandi sól og 25 stiga hiti
en gola af hafi, sem kom í veg fyrir
svita og svækju. En það var skortur
á skvísum á stígnum, því hann var
upp fullur af eldri borgunum, sem
reyndar er meiri hluti þess fólks,
sem hefir efni og tíma til að ferðast,
einmitt fólk, sem við viljum að sæki
Ísland heim. Mér var sagt, að skvís-
urnar færu meira á kreik eftir að
sól er setzt. Hollywood er upp-
áhaldsstaður franskra Kan-
adamanna og dvelja nokkur hundr-
uð þúsund þeirra þar vetur hvern.
Ekki vil ég neitt ljótt um þá
segja, en allir sem hafa sæmilega
sjón og eru í nánd við Skvísustíginn
geta séð, að þetta er með eindæm-
um ólögulegt fólk. En það veit það
ekki sjálft, svo það sviptir sig eins
miklum klæðum og sómasamt þyk-
ir, og skundar út á stíginn til að
sýna sig og sjá aðra. Það virðist
hafa verið leitt í lög í heimalandi
þess, að karlfólk verði að vera kom-
ið með myndarlega ístru, og konur
með þykk lær, ofþroskuð brjóst og
þungan rass, strax eftir fertugt.
Sá ég eitt eintak af karlpeningi,
líklega um sextugt, sem sló öll met.
Maðurinn var stór og myndarlegur,
hnarreistur af illri nauðsyn til að
halda jafnvægi, því hann var með
stórkostlega ýstru, sem þandist út
strax neðan bringspala. Náði hún
rétt niður fyrir nafla, en þar tók við
undirístra og í neðri fellingu henn-
ar var grafið efra byrðið á pínu-
sundskýlu, en það, sem þar var fyr-
ir neðan, hvarf algerlega í skugg-
ann af mikilfengleik þess, sem fyrir
ofan skartaði. Að öllum líkindum
verður þessi myndarlegi maður að
nota spegla, þegar hann þarf að
kasta af sér vatni, nema einhver
góðviljaður aðstoði hann.
Fólkið á Skvísustíg sýndi þó
nokkurn áhuga á Íslandi, þótt sum-
ir gengju framhjá og hristu sig eins
og í kuldahrolli, þegar þeir sáu
skiltið „Iceland“. Nægilega margir
aðrir stöldruðu við og fengu upplýs-
ingar, en við tókum strax eftir því,
að hinir frönsku Kanadamenn, voru
furðulega illa að sér í landafræð-
inni. Héldu þeir upp til hópa, að Ís-
land væri einhvers staðar á bak við
Alaska. Leiðréttum við þann mis-
skilning mörgum sinnum. Ferða-
pésarnir runnu út eins og heitar
lummur og við vorum ánægðir með
það, hve margir virtust ætla að at-
huga með ferðir til Fróns.
Þegar ég kom heim, las ég nýja
grein í „Time“ tímaritinu um vetr-
arferðir til Íslands. Þar er m.a. sagt
frá næturlífinu í Reykjavík og haft
eftir læknastúdent frá New Jersey,
að íslenzku stúlkurnar séu ynd-
isfagrar og njóti þær kynlífs en trúi
ekki á hjónabandið. Las ég líka
grein í „Iceland Review“ um nekt-
arklúbbana í Reykjavík. Einnig
kíkti ég í nokkurra daga gamla
Mogga og las um feikilega fjölgun
ferðamanna, skort á hótelplássi og
umræður um það, að fari sem nú
horfir, verði fjöldi þeirra, sem
sækja landið heim, kominn upp í
eina milljón 2015.
Ég var fljótur að sofna eftir að
hafa staðið upp á endann allan dag-
inn við Skvísustíg, talandi um Ís-
land við fáklætt ferðafólkið. Von
bráðar brá heilinn á leik og svið-
setti einn af þessum vitleysislegu
draumum, sem næstum má flokka
undir martraðir. Mér fannst ég
vera kominn heim til Reykjavíkur,
en þar var vart hægt að þverfóta
fyrir aragrúa erlendra ferðamanna.
Meðal þeirra voru nokkrir franskir
Kanadamenn í sundfötum og þótt-
ist ég sjá árangur af starfinu á
Skvísustíg. Ungur Ameríkani sveif
á mig, líklega af því að ég skar mig
úr í stuttbuxunum, og spurði, hvar
þær væru þessar undurfögru, sem
nytu kynlífsins.
Allt í einu var ég kominn með
borgarstjórann upp á arminn, og
sagðist hann ætla að sýna mér einn
af betri nektarklúbbum borg-
arinnar. Þegar inn kom, settumst
við niður í hálfgerðu myrkrinu, og
rétt í því var tjaldið dregið frá leik-
sviðinu. Brá mér heldur betur í
brún, því þar stóð, í allri sinni dýrð,
baðaður í ljósum, hnarreisti mað-
urinn af Skvísustíg með ístrurnar
tvær! Hrökk ég þá upp og var í
svitabaði.
Hollywood í Flórída
Þórir S. Gröndal
skrifar frá
Flórída