Morgunblaðið - 12.06.2001, Blaðsíða 64
POPPDROTTNINGIN Madonna er
greinilega enn í góðu formi, 42
ára, en um helgina hóf hún sína
fyrstu tónleikaferð í átta ár í
Barcelona á Spáni.
Hún fyllti Palau St. Jordi-
höllina, sem tekur tæplega 18.000
manns, tvisvar, á laugardag og
sunnudag.
Að venju kom hún fram í ýms-
um gervum. Í þetta skiptið sem
japönsk geisja, kúreki og nú-
tímadansari og að sjálfsögðu
lagði hún áherslu á að geisla af
kynþokka. Sveiflur hennar og
hnykkir á sviðinu framkölluðu
ósjaldan óp áhorfenda. Í fyrsta
laginu sem hún söng á tónleik-
unum var hún klædd leð-
urbuxum innan undir skota-
pilsi sem ku hafa verið óður til
eiginmannsins, Guys Richies,
sem er af skoskum ættum.
Klæðaburður Madonnu þótti
yfir það heila heldur íhalds-
samari og efnismeiri en oft
áður sem kann að vera
merki um að móður- og eig-
inkonuhlutverkið hafi breytt
henni og gert ögn ráðsettari.
Fyrir utan að flytja lög af nýj-
ustu plötunum, Ray of Light og
Music, söng hún eitt af sínum
gömlu góðu, „Holiday“, sem skóp
frægð hennar fyrir 20 árum.
Á ferð sinni um Evrópu, sem lýk-
ur í Lundúnum hinn 12. júlí, mun
hún koma við í París, Berlín og
Mílanó. 21. júlí hefst tónleikaferð
hennar um Bandaríkin. Nú þegar
er uppselt á alla tónleika hennar í
heimalandinu.
Madonna hefur tónleikaferð
Kom fram í skotapilsi
Spurning hvort vekurmeiri undrun; Madonna með hljóð-færi eða svona kapp-klædd á sviði.
Reuters
FÓLK Í FRÉTTUM
64 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ mætti, með góðum rökum
meira að segja, líkja tónlistarlegri
nálgun Rieu við aðferðir hins geysi-
vinsæla Richards Clayderman. Sí-
gilda tónlistin er „poppuð“ upp og
straumlínulöguð fyrir fjöldann.
Vegna þessa hafa þeir eðlilega verið
úthrópaðir af hinni lærðu stétt á
meðan hlustendur hafa tekið þeim
opnum örmum en plötur Rieu eru
þegar farnar að seljast í milljónum
eintaka um allan heim.
Það sem er þó mest heillandi við
Rieu er að hann er sannur inn að
beini í því sem hann er að gera og er
í raun og réttu í eins konar krossferð
- Rieu vill færa tónlistina til fólksins!
Rieu fæddist í bænum Maastricht
í Suður-Hollandi og tilheyrir mikilli
tónlistarfjölskyldu; faðirinn hljóm-
sveitarstjóri og systkinin öll meira
og minna á kafi í sígildri tónlist. En
Rieu beygði snemma af beinu braut-
inni og ræktaði með sér óþol gagn-
vart uppskrúfaða snobbinu sem oft
vill fylgja sígildu tónlistinni, því mið-
ur. Eða eins og Rieu segir sjálfur:
„Hvers vegna þarf allt í sígildri tón-
list að vera svona alvarlegt. Allt svo
rígbundið í hefðum og elítuhætti
þannig að almenningur verður henni
fráhverfur og á þess ekki kost að
einfaldlega njóta tónlistarinnar!?“
André Sisters!
Til að stemma stigu við þessu
stofnaði hinn lífsglaði Rieu sína eig-
in hljómsveit og til að gera langa
sögu stutta (þ.e. ef það er ekki orðið
of seint) sló hún fljótlega í gegn og
hefur ferðast um allan heim í kjöl-
farið. Þar er lögð áhersla á íburð
þann og glæsileika sem einkenndu
danssali Vínarborgar fyrr á tímum,
meðlimir hljómsveitarinnar eru
skrúðklæddir og jöfn áhersla lögð á
sjón- og tónræna þætti. Rieu sjálfur
kynnir verkin sem á boðstólum eru
en þau eru allt frá frumsömdum
völsum til laga úr kvikmyndum eins
og Dr. Zhivago og Mjallhvíti og
dvergunum sjö. Einnig hefur sveitin
verið að spila lagasyrpur úr safni
Glen Miller og Andrews Sisters,
sem eru kallaðar André Sisters af
kerskni, á hljómleikum! Allt þetta
framreiðir Rieu af stakri kostgæfni
þess sem trúir á það sem hann er að
gera.
Bjartsýni
Við André byrjuðum á að ræða lít-
ið eitt um plötuna hans nýjustu, La
Vie Est Belle eða Lífið er fallegt.
André verður óður og uppvægur er
hann fréttir að ég hef ekki séð
myndbandið sem fylgir disknum.
„Framsetningin og sjónræni hlutinn
hefur mikið að segja um upplif-
unina,“ áréttar André glaður í
bragði. Yfirmáta bjartsýni einkennir
annars þennan mann - lífið þar er
sannarlega fallegt.
Hann rekur því næst þessa af-
stöðu sína að tónlistin sé fyrir alla til
að njóta og hann leggi sig í líma við
það að fólk vilji nálgast hana fremur
en forðast. Hann verður hvumsa en
rekur svo upp skellihlátur er ég spyr
hann hvort að þetta sé pólitísk yf-
irlýsing af hans hálfu. „Jú, það
mætti í raun segja það,“ segir hann
samþykkjandi.
Hann segist vissulega hafa fengið
gagnrýni frá „sígilda“ heiminum en
það sé líka kannski mergurinn máls-
ins. Að fá hann til að hugsa, velta
þessu fyrir sér.
Rieu gefur lítið upp um uppáhalds
tónskáldið og segir glaðhlakkalegur
að þetta sé dæmigerð blaðamanns-
spurning. Sem er laukrétt hjá hon-
um!
Aðspurður um önnur áhugamál
segir þessi ljósi og litfríði Hollend-
ingur hins vegar. „Tónlistin er auð-
vitað aðalmálið og vinna og frístund-
ir blandast saman í eitt einhvern
veginn. En annars reynum við fjöl-
skyldan að lifa hefðbundnu lífi. Ég
get enn labbað óáreittur um götur
Maastricht!“
Lífið er
fallegt
André Rieu hefur vakið
athygli víða um veröld
fyrir frumlega nálgun
við sígildu tónlistina
svokölluðu. Arnar
Eggert Thoroddsen
velti þessum hlutum
fyrir sér og spjallaði
stuttlega við Rieu.
Heimsborgarinn André Rieu.
André veit fátt betra en að
leika við hundinn sinn, Xander.
André Rieu færir tónlistina til fólksins
arnart@mbl.is
SUMARIÐ er tíminn eins og mað-
urinn sagði, og þá ekki úr vegi að
koma á lifandi tónleikahaldi út um
borg og bý í þann stutta tíma sem
sunna stoppar við á klakanum.
Þessu ætlar Kuran Kompaní a.m.k.
að bregðast við með reglulegum
tónleikum í Húsi málarans, Banka-
stræti 7a, fyrsta fimmtudag hvers
mánaðar og leika nokkuð sem þau
kalla „piparbræðing“.
Kompaníið er reyndar aðeins
skipað þeim Szymon Kuran fiðlu-
leika og Hafdísi Bjarnadóttur raf-
gítarleikara en í sumar hafa þau
fengið til liðs við sig Þórdísi Claess-
en, slagverksleikara.
Heimspeki kompanísins er á þá
lund að það getur stækkað og
minnkað, allt eftir efnistökum
hverju sinni sem eru æði fjölbreytt;
stokkið er frá spuna í rokk, úr róm-
anskri sveiflu í sígilda og úr ein-
hverju í eitthvað allt annað.
„Við spiluðum eitt skipti með
Þórdísi og fleirum,“ segir Hafdís,
og útskýrir tilurð þessarar tónleika-
raðar.
„Okkur fannst þetta hljóma svo
skemmtilega með henni að við
ákváðum bara að skella okkur á
tónleikaröð.“
Fyrir ári síðan hitti Hafdís Szym-
on á tónleikum, þau tóku þar spjall
saman og Kompaníð varð að veru-
leika stuttu síðar.
„Hann var svo með tónleika á
Næsta bar þar sem hann valdi með
sér spilara. Hann spurði mig hvort
ég væri til og ég var það.“ Hún seg-
ir að þótt æfingar hafi verið litlar
og fyrirvari stuttur hafi þeir tón-
leikar tekist glimrandi vel og þau
hafi því ákveðið að halda samstarf-
inu áfram.
Fyrstu tónleikarnir voru fimmtu-
daginn 7. júní síðastliðin en svo
verða þeir 5. júlí og 2. ágúst. Hefj-
ast þeir kl. 21.00 og er miðaverð
800 kr.
Kuran Kompaní með sumardagskrá
Sambræðsla og
stefnuflakk
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Hafdís og Þórdís á fyrstu sumartónleikum Kuran Kompanís sem haldn-
ir voru síðasta fimmtudagskvöld í Húsi málarans.
FASTEIGNIR
mbl.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
=
(>7 $$>7
! "#$ % %&'( $
#(:>7) *+ , (8>7) *+ ,
(7>7 ,-.
/ (# 012%3) *+ ,$(>7
$>7
$:>7 ,$?>7) *+ $1>7
''' -4 $ # $5 -4 $
6# *-72# 08 -$(, ## $(( ) $(
0 #*.9 -7:;7<,# 0;-7:.12
HEDWIG KL. 20
Frumsýning fös 29/6 UPPSELT
Hádegisleikhús KL. 12
RÚM FYRIR EINN
fös 15/6 UPPSELT
fim 21/6 nokkur sæti laus
FEÐGAR Á FERÐ KL. 20
fim 14/6 nokkur sæti laus
fös 15/6 nokkur sæti laus
mið 20/6 UPPSELT
sun 24/6 nokkur sæti laus
Allar sýningar hefjast kl. 20.
Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og
frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í
síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða
530 3037.
midasala@leik.is — www.leik.is
Miðasölusími er 530 3030
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fös 15. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 16. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös 22. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 23. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fim 28. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 29. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 30. júní kl. 20- NOKKUR SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Fim 14. júní kl. 20 - UPPSELT
Fös 15. júní kl. 20 - UPPSELT
Lau 16. júní kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 16. júní kl. 22 - ÖRFÁ SÆTI
Þri 19. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Sýnt á Stóra sviði í tilefni 19. júní,
eftir sýningu flytur Ragnheiður
Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur og
kynlífspistlahöfundur, erindi tengt
Píkusögum.
ATH. ekki er hleypt inn í salinn eftir
að sýningin hefst.
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR.
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
3. hæðin