Morgunblaðið - 12.06.2001, Blaðsíða 65
SUMMERS mun íkvöld flytja fyr-irlestur um söguhljóðsins, frá
stóra hvelli til tungutaks
tölvunnar. Summers legg-
ur áherslu á að hér sé ekki
um að ræða strang-
fræðilegan, akademískan
fyrirlestur; hann sé á létt-
ari nótum og inn í hann
fléttað tóndæmum og öðru
hliðstæðu. Á morgun mun
Rod hins vegar vera með
hreina og beina sýningu/
uppákomu.
Pólýfónía er tíu daga há-
tíð sem fram fer í Ný-
listasafninu og koma að
sýningunni bæði mynd-,
tón- og hljóðlistamenn.
Sýningar opna öll kvöld kl.
20.00 en á lýðveldisdaginn
verður sérstök hátíðarsýn-
ing og hefst hún um hádeg-
isbil.
Hermennska
Fyrirlestur Summers er óneit-
anlega viðamikill. Allt frá því er ekk-
ert var, með viðkomu hjá hellisbúum,
þýsku og ítölsku fútúristunum, hljóð-
ljóðalist og svo inn í heim tölva og
tækni. Summers rekur efnið nokkuð
ítarlega og segir að m.a. muni hann
spila upptöku þar sem sjálfur James
Joyce heyrist lesa upp úr hinu til-
raunaglaða skáldverki sínu, Finneg-
ans Wake.
„Sem barn fékk ég útvarp að gjöf,“
segir Summers, inntur eftir ástæðum
lífsstarfsins. „Ég heillaðist af því að
þegar maður hlustar á útvarp þá býr
maður til ímyndir í huganum. Svo
þegar sjónvarpið kom varð ég fyrir
miklum vonbrigðum, þar sem það
sem ég sá þar passaði ekki við þær
hugmyndir sem ég hafði gert mér,
t.d. um útlit fólksins. Svo þegar ég sá
myndir af þeim „röddum“ sem ég
hafði verið að hlusta á í útvarpinu
hugsaði ég: „Þetta fólk lítur ekki út
eins og fólkið sem ég hafði hugsað
mér!“
Árið 1961 gekk Summers svo í
flugherinn. Þar komst hann yfir seg-
ulbandstæki, hóf að hljóðrita um-
hverfið og vinna nánar úr efninu.
„Ég hætti svo hermennskunni árið
1973 og fór beint í listaskólann í
Maastricht. Þar fannst fólki skrýtið
að listamaður væri ekki að vinna með
ljós, heldur hljóð. Ég varð fljótlega
hugfanginn af þeirri hugmynd, að
þegar þú heyrir hljóð, þá notar þú
ímyndunaraflið. Þannig að þetta er
gagnvirkt ferli. Þetta er ekki eins og
þegar þú horfir á málverk; þá er það
bara þarna.“
Tónlist = hljóðlist?
Summers segir hljóðlistina hafa
verið að vinna nokkuð á síðastliðin 4-5
ár.
„Þetta er ekki eins mikið jaðarfag
og þetta var. Fólk virðist orðið að
miklum mun áhugasamara um að
nota listformið, einfaldari og algeng-
ari tækja- og vélbúnaður hefur t.d.
mikið að segja. Ofgnótt af ímyndum
og mikið áreiti sjónvarpsins hefur
líka sitt að segja um meiri áhuga á því
að sinna hljóðum. Þetta er og orðið
vinsælla hjá listamönnum sem hafa
hingað til einungis sinnt myndlist,
höggmyndalist o.s.frv.“
En hver er munurinn á tónlist og
hljóðlist? Þessa spurningu hefur
Summers greinilega heyrt oft áður
og það kemur líka í ljós að hann hefur
velt henni þó nokkuð fyrir sér. Hann
spyr strax á móti: „Voru þessir tveir
þarna í gær [Auxpan og
Baldur sem fluttu óhljóð-
averk, atriði sem Summers
hreifst mikið af] að flytja
tónlist?“ Hann tekur svo til
við að ræða spurninguna.
„Það er hægt að segja að
tónlist þarfnist takts, hrynj-
anda og sönglínu. En það er
ekki endilega málið. Hver er
til dæmis munurinn á hljóð-
ljóðalist og söng? Tónlist,
hljóðalist – það er aldrei
auðvelt að njörva hluti niður
í flokka. Það er hægt að
segja að óhljóðalistin, sem
við heyrðum í gær sé tónlist;
samtímaform af tónlist. Sig-
ur Rós t.d. [hljómsveit sem
er í miklum metum hjá
Summers] spilar tónlist. En
svo notast sveitin mikið við
allskyns áhrifshljóð. Er það
tónlist – eða hljóðlist? Þetta
er sem sagt mjög erfið
spurning sem nær ómögu-
legt er að svara. Ég er viss um að ein-
hver kemur fram með svar en ég mun
alveg ábyggilega mótmæla því sam-
stundis.“
Summers kom fyrst til Íslands árið
1981 og varð þegar heillaður af land-
inu. Hann hefur t.d. kennt hér og
komst í kynni við Íslendingasögurnar
og féll kylliflatur fyrir þeim. Fór svo
að hann samdi eigin sögu: Helgi-saga,
sem byggir á minnum úr Íslendinga-
sögunum. Fleiri sögur fylgdu í kjöl-
farið, um þessar mundir er hann ein-
mitt að vinna að þeirri fjórðu. Hingað
hefur hann komið 15-16 sinnum og
ferðast þá gjarnan til afskekktra
staða og nýtur náttúrunnar og kyrrð-
arinnar sem þar er ásamt konu sinni.
Hann er áhugasamur fuglaskoðari og
svalar þeirri þörf sinni hér.
„Við hjónin komum hingað á
tveggja ára fresti. Við elskum þetta
land, þetta er yndisleg vin ef maður
ætlar að slaka á.“
Ein önnur uppákoma verður í
kvöld, en Magnús Blöndal Jóhann-
son, tónlistarmaður og frumkvöðull í
raftónlist hérlendis, mun flytja verkið
Hieroglyphics. Jafnframt eru til sýnis
fjölmörg verk sem tengjast tema há-
tíðarinnar, þ.e. samslætti hljóð- og
myndlistar.
Sjá nánar um dagskrána í menn-
ingarhluta blaðsins.
Ekki ljós,
heldur hljóð
Á meðal þátttakenda á þessari hljóðverka-
hátíð er Bretinn og Íslandsvinurinn Rod
Summers, en hann hefur fengist við hljóð-
list í um fjóra áratugi. Arnar Eggert
Thoroddsen tók listamanninn tali.
Club Bevil-hópurinn frá Svíþjóð.
Pólýfónía í Nýlistasafninu 7.–17. júní
arnart@mbl.is
Morgunblaðið/Billi
Rod Summers, núna.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Listamaðurinn Paula Roush undirbýr verk sitt.
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001 65
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
4507-4100-0006-6325
4548-9000-0056-2480
4543-3700-0027-8278
4507-4500-0028-0625
4507-2800-0004-9377
4507-4500-0030-3021
4543-3700-0015-5815
! "#
"$% &'
()( )$$$
Sandalar í
miklu úrvali
á allan aldur
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 14-18 og laugard. kl. 10-14.
Skóbúðin